Vísir - 12.01.1972, Blaðsíða 13
’l »
VlSIR . Miðvikudagur 12. janúar 1972.
Gríðarstór, svört samkvæmisgleraugu með simillskreyt
ingu eru stöðutákn.
s mmm
‘ '
Sólgleraugu líka, ef þau eru með merki Christian Dior og kosta meira en fimm þúsund
krónur.
Diorgleraugu á 5 þús. kr.
- ERU ORÐIN STÖÐUTÁKN OG SELJAST ÞVÍ VEL
Ctöðutáknin geta verið margvís
leg og þá eikki síður í fata .
tízku en t: d. bílmerikjum. Nú
eru gleraugu, sem kennd eru við
Dior síðasta stöðutáknið og t. d.
danskar stúlkur hika ekki við að
borga rúmlega fimm þús-und kr.
fyrir stykkið. Til þess að ekki
verði viilzt á þessari tegund
og öðrum ófínni eru litlir siif
urstafir CD grevptir inn I þessi
gleraugu.
Það er svissneskt fyrirtæki,
sem fratnieiöir Diorgleraugun,
bæði lesgleraugu og sólgleraugu
og svo munu vera til samkvæm
isgleraugu. ,
Litirnir hafa sitt að-segja þeg
ar um gleraugu ræðir eins og
annan tízkuvarning, og nýjustu
gleraugnalitiirnir eru meiónulit-
ur, dökkrautt og postuiínsbiátt
og hægt er að fá gleriö í sams
konar litbrigðum svo að flottara
getur það vart veriö.
Myndirnar sem birtast hér
með eru af tveim tegundum þess
ara gleraugna sem hafa reynzt
vinsæl í Evrópu. Dökfcu gleraug
un með similistemasfcreytingu
eru ætluð tii samikvæmisnota og
Fyrmefndu teguridina kaupa
þeir, sem vdija vera framarlega
í tízkunni en jafnt konur sem
karlar gleraugun meö málmum
gjörðinni, sem er reyndar hægt
að nota að staðaldri.
Þá er hægt aö geta þess, að
höfuðklúturinn sem daman á
myndinni er með er úr kasmír-
efni, sem er ullarbiandað efni og
er nú spáð meiri vinsældumen
silki á næstunni. —SB
ic®
MSilfurgIeraugu“ hæfilega gamaldags eru stöðutákn.
LOKAÐ
u-m óákveðinn tíma
SÖLUMIÐSTÖÐ BIFREIÐA