Vísir - 01.02.1972, Page 6

Vísir - 01.02.1972, Page 6
6 VÍSIR. Þriöjudagur 1. febrúar 1972. visir tltgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritst jóri: j Fréttastjóri: Ritst jórnarfulltrúi: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjóm: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 15610 Hverfisgötu 32. Slmi 11660 Siöumúla 14. Slmi 11660 (5 línur) 11660 Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands I lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaðaprent hf. Lærír stjórnin af loðnunni? Stóru fiskiskipin okkar hafa undanfarna daga verið að moka upp loðnunni, sem nú gengur i stórum torfum vestur með suðurströndinni. Útlit er fyrir mikla veiði, jafnvel metveiði, og hlýtur það að teljasta góður búhnykkur á þessum sildarleysis- timum. En útlitið er ekki jafn bjart i sölunni á erlendum markaði. Verð á loðnuafurðum hefur fallið veru- lega, svo mikið, að það er langt i frá, að fiskvinnslu- stöðvarnar geti borgað bátunum það verð, sem þeir þurfa að fá fyrir aflann. Menn voru mjög uggandi siðustu dagana fyrir á kvörðun loðnuverðsins frá bátunum til vinnslustöðv anna. Samtök útgerðarmanna hvöttu félagsmenn sina til að fara ekki á veiðar, fyrr en verðið hefði verið ákveðið. Nú er verðið komið fyrir nokkru og veiðar hafnar. Og það, sem gerir þetta kleift, er sjóður er tók til starfa fyrir tveimur árum. Loðnudeild verð- jöfnunarsjóðs tók til starfa i ársbyr jun 1970 og hefur siðan safnað 55—60 milljónum króna, meðan loðnu- verð var tiltölulega hátt. Nú er sjóðurinn farinn að greiða til baka, og nemur upphæðin 25—30 aurum á hvert kiló. Ef ver- tiðin verður góð og aflinn nær 200.000 tonnum, mun það standa á endum, að sjóðurinn nægi til að greiða mismuninn út vertiðina. Þetta sýnir, hve skynsamlegt var á sinum tima að koma upp verðjöfnunarsjóði fyrir sjávarútveginn. Þetta sýnir lika, að það var sizt farið of geyst i sakirnar, þegar greiðsluupphæðirnar voru ákveðn- ar i upphafi. Loðnudeildin nægir aðeins til að halda uppi einni vertið eftir tveggja ára uppbyggingu. En það er lika ef til vill alveg nóg. Á næsta ári kann verðlag erlendis að vera orðið hagstætt á nýjan leik. Og þá getur verðjöfnunarsjóðurinn aftur farið að safna fé til að mæta næstu áföllum. Mörg hundruð milljónir króna hafa safnazt i hinum ýmsu deildum verðjöfnunarsjóðsins. Þetta fé er varasjóður sjávarútvegsins. Það gerir hon- um.kleiftað mæta verðsveiflum á erlendum markaði. Nú þegar hefur ein deild hans bjargað einni loðnuvertið. Og slikar aðstæður eiga vafalaust eftir að koma fram aftur og aftur. Þegar rikisstjórnin var i fyrrasumar að svipast um eftir peningum til að nota til eyðslu, kom henni fljótt i hug að nota þennan mikilvæga verðjöfnunar- sjóð. Hún ákvað þá að skerða hann til að hækka fiskverð, svo að sjómenn vildu frekar róa. Þetta var þægileg lausn á dagbundnu vandamáli. En sú lausn var gerð á kostnað framtiðarinnar. Vonandi sýnir loðnumálið rikisstjórninni fram á, hve varasamt er að rýra verðjöfnunarsjóðinn og heldur henni frá þvi að reyna það i annað sinn. ( 70 mílljónir fara til gæzlu Angelu Davies — þegar hún kemur Angela Davies bíður dóms/ ákærð fyrir morð, mannrán og samsæri um að fremja morð og mann- rán. Þegar þeir atburðir urðu, sem hún er ákærð fyrir, var hún víðs fjarri. Engu síður getur hún hlotið dauðarefsingu og dóm fyr- ir alla þessa glæpi eða sér- hvern þeirra. Samkvæmt lögum Kaliforníu er sá, sem tekur þátt í samsæri, er leiðir til morðs, jafnsek- ur og sá, sem skotinu hleypir eða hnífnum bregður. — Angela vann þó nokkurn sigur fyrir fáum dögum, þegar úrskurðað var, að brottrekstur henn- ar úr stöðu háskólakenn- ara fyrir kommúnisma hefði verið ólöglegur. Þegar mál hennar verður tekið fyrir, verða um 70 milljónir ísl. króna lagðar í varðgæzlu um dómshúsið. Leitað verður á öllum áhorfendum, flóðljós um- hverfis húsið, sérstakt að- vörunarbjöllukerfi, og tug- ir varða. Það var 7. ágúst 1970, að ör- lagarikir atburðir urðu I réttarsal I Marine City I Kaliforniu, sem vöktu athygli um allan heim og gera enn, hálfu öðru ári siðar. Dómarinn lá i valnum. Ungur svertingi var ákærður fyrir að hafa stungið hnifi i fanga- vörð i fangelsinu i San Quentin. Þá gerðist það allt i einu þennan örlagadag, að annar svertingi ris á fætur i réttarsalnum og miðar skammbyssu. Þetta var Jonathan Jackson, 17 ára. Hann afhenti sakborningi og tveimur öðrum svertingjum, sem voru þar sem vitni, einnig byssur. Þeir tóku til fanga dómara, ákæranda og þrjá kviðdómendur og fóru með fólkið út. Soledad-bróðirinn George Jack- son, skotinn i sumar. fyrir dómstól. Gislarnir voru settir i vörubif- reið fyrir utan. En þá var skotið. Enginn virðist vita með vissu, hver hleypti fyrsta skotinu, en að lokum lágu i valnum dómarinn og þrir árásarmanna, meðal þeirra Jackson. Akærandi og einn kvið- dómandi voru alvarlega særðir. Þannig byrjuðu Angelu Davies- málaferlin. Aður hafði þessi lag- lega þeldökka stúlka þó verið töluvert i fréttum. Hún hafði ver- ið rekin úr háskóla þeim, er hún hafði starfað við, þar sem hún var grunuð um kommúnisma og bylt- ingaráhuga. Það mál vakti mikla athygli i bandariskum fjölmiðl- um, þvi að það minnti nokkuð ó- notalega á MacCharty timabilið fræga með ofsóknum gegn kommúnistum, „nytsömum sak- leysingjum” og vinstri sinnum yfirleitt. Angela keypti byssurnar. Þótt Angela væri hvergi nær- stödd skothriðina við dómshúsið, var fáum dögum siðar hafið mál á hendur henni. Lögreglunni var kunnugt, að hún hafði unnið með Jackson, og lögreglan telur sig hafa sannanir fyrir þvi, að hún hafi keypt byssurnar, sem voru notaðar i hinni misheppnuðu mannráns- og björgunartilraun. Lögreglan fullyrðir einnig, að Angela Davies hafi sézt i för með Jackson daginn fyrir árásina. Þá hafi þau setið saman I gula vöru- bílnum, sem siöar átti að nota til að komast brott eftir árásina. Illlllllllll ■■■■■■■■■■■■ Umsjón Haukur Helgason Akæran hljóðar upp á það, að Angela og Jackson hafi skipulagt mannránin til að nota gislana til að fá svonefnda Soledad-bræður leysta úr fangelsi. Þeir sátu i fangelsi ákærðir fyrir að hafa myrt fangavörð. Svartir hlébarðar og aðrir i rót- tækustu röðum Bandarikja- manna héldu þvi hins vegar fram, að Soledad-bræður hefðu verið handteknir, af þvi að þeir voru fremstir i flokki i réttindabaráttu svertíngja. Angela Davies hafði sjálf mikið haft sig i frammi, i ræðu og riti, i baráttunni fyrir þvi að þeir yrðu látnir lausir, hún neitar hins vegar að hafa átt nokkurn þátt i mannránstilraun Jonathan Jacksons og félaga hans. Hún viðurkennir að hún sé kommúnisti og segist hafa keypt vopnin til sjálfsvarnar. Hafi hún ekki fengið Jackson þau til þess- ara verka. Svona var Angela „dulbúin”, þegar hún fór huldu höfði fyrir lögreglunni. „Sennilegast sek,” segja stjórn- völd. Angela Davies hvarf lengi vel, eftir að ákæran var lögð fram gegn henni. Um siðir náðist hún þó fyrir 16 mánuðum i móteli i New York. Engin leið hefur verið að fá hana látna lausa gegntrygg ingu, þennan tima. Stjórnvöld i Kaliforniu vitna til lagagreinar, þar sem segir, að ekki megi láta neinn lausan gegn tryggingu, sem sé sannur að sök eöa sennilegast sé, að sé sekur. Það vakti mikla ólgu i sumar, þegar einn Soledadbræðra, George Jackson, var drepinn, að þvi er virðist i flóttatilraun. Svartir hlébarðar hafa ákaft mót- mælt drápi hans og talið, að þar hafi verið um algert morð að ræða. Hins vegar er Angela sögð njóta allgóðrar meðferðar i fangelsi. „Dómsmorð”. Þau réttarhöld, sem nú munu byrja yfir Angelu Davies, munu vekja mikla eftirtekt um allan heim. Róttækir aðilar viða um lönd hafa sýnt máli Angelu sér- stakan áhuga, og kommúnistar lita á það sem „dómsmorð”. Samt mun geta liðið hátt i eitt ár enn, áður en dómur verður upp kveðinn og vitað verður, hvort hún verður sek fundin og dæmd til dauða eða lifstiðarfangelsis. Mál um á hendur ýmsum svört- um hlébörðum i fyrra lyktati með sýknun, sem kom mönnum yfir- leitt á óvart. Brottrekstur Angelu var ólög- mætur. Auðmennirnir á bak við Goldu óánægðir Golda Meir og tsraelsrlki hafa jafnan hlotið mikinn stuðning frá gyðingum i öðrum löndum. Hátt- settum gyðingum og auðugum i Evrópu hefur að undanförnu þótt stjórn tsraels þrjóskazt við og sýna litinn samkomulagsvilja gagnvart Egyptum. Þessir Evrópugyöingar létu I fyrra meira en 9 milljarða islenzkra króna af hendi rakna til tsraels- rikis. Evrópugyðingarnir kenna Goldu Meir persónulega um þessa afstöðu. Einn þeirra, sem hefur ásamt fjölskyldu sinni ár- lega látiö mikið fé af mörkum til stuönings tsraels, segir nú: „Það hefur komiö æ betur fram, að Sadat Egyptalandsforseti vill frið og hann er tilbúinn að greiða frið- inn þvi verði, sem þarf, það er formlegri viðurkenningu á tsraelsriki og frjálsum sigl- ingum, ef tsrael skilar Sinai- skaga. En frú Meir er gömul oröin, og hún er hrædd um, að sin verði minnzt I sögunni, sem kon- unnar, sem ofurseldi tsrael”. Mörgum þessum gyðingum finnst, að það sé rangt af stjórn israels aö stefna að þvi, að her- numdu landsvæöin, er þeir tóku 1967, veröi hlutar ísraels. Mikið af fénu, er þessir gyðingar hafa greitt, hefur farið tii hernumdu svæðanna og framkvæmda Israelsmanna þar. En Golda hefur ráð undir rifi hverju. „Ef þeir vilja skipta sér af stefnu okkar, þá skulu þeir bara koma hingað og fara út i pólitik". En þar liggur hundurinn grafinn. Þessir gyðingar vilja ekki flytja til tsraeis.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.