Vísir - 01.02.1972, Page 7

Vísir - 01.02.1972, Page 7
VtSIR. Þriðjudagur 1. febrúar 1972. cyVIenningarmál Olafur Jónsson skrifar um bókmenntir: Meðan klukkublóm sofa Meir en fjörutíu úr eru lið- in síðan Sigríður Einars frá Munaðarnesi gaf út fyrstu Ijóðabók sína. Kveður í ^5^1 Sigriður Einars frá Munaðarnesi . runni nefndist bókin og kom út árið 1930. En eftir það leið líka fullur aldar- fjórðungur unz næsta bók birtist, Milli lækjar og ár, 1956. í ár og í fyrra hefur Sigríður á hinn bóginn birt ný Ijóð, Laufþytur nefndist bók hennar í fyrra, en í svölu rjóðri í ár. Og það skemmtilegasta við þessar bækur er hinn unglegi brag- ur máls og mynda sem á þeim er. Ekki svo að skilja að Sigrlður frá Munaðarnesi sé mjög harð- vítugt atómskáld. Það er nú öðru nær. En henni fellur augljóslega mætavel það frjálsræði málfars og hugmynda sem fylgir hinum nýja ljóðstíl í landi. Allur texti hennar er með ofur-einföldu, merkingarljósu málfari, en bezt lætur henni innileg ljóðræn til- finningalýsing, látin uppi á „náttúrlegu“ myndmáli, og er hvort tveggja auðvitað í sjálfu sér alveg hefðbundið. Af þessu tagi er t.a.m. ljóð sem nefnist Löng nótt: Svo þögul og döpur er þessi nótt enginn blær sem þýtur og strýkur um sefið engir fuglar sem kvaka meðan klukkublóm sofa enginn árniður heyrist ekkert rísl í læk enginn hófadynur enginn gestur sem kemur enginn vinur sem ríður í hlað Svo löng og þögul er þessi nótt þeim sem vakir og bíður. 1 svölu rjóðri er eins og bók hennar í fyrra allstór bók, en hún er með samfelldri svip, fátt eða ekkert um beinan tækifæris- kveðskap. Sigríður Einars er vita- skuld vaxin upp við stuðlanna þrískiptu grein, og fyrri ljóð hennar nutu einatt styrks af stuðlasetningu, rími og brag þótt frjálslega væri með þessi efni farið. f þessu efni lýsir nýja bókin vaxandi frjálsræði, flest ef ekki alveg öll ljóðin rím- og háttlaus. En bezti texti í bókinni finnst mér innileg ljóðræn smá- kvæði hennar, hin einatt takast miður þar sem er meiri frásagn- ar- eða íhugunarefnum fyrir að fara. Hitt er líka ljóst að ljóð- efni Sigríðar eru einatt af frá- sagnar- eða minningatagi. Minn- ing æskuára, innileg náttúru-} skynjun höfundar setur víða svipí á ljóðin og vegur þar á móti( hinum angurværa eða trega- kennda hugblæ þeirra. En I sínum látlausu sniðuml eru þessi ijóðmæli enn eitt vitni^ þess hvernig ljóðræn „hefð“ við- helzt og ávaxtast í „nútímalegri“( sniðum, hvernig nýtt og gamalti getur farið saman og frjóvgazt/ hvað af öðru í ljóðagerðinni. Ólafur Jónsson skrifar um bókmenntir: Unaður þess sem aldrei gerðist Unnur Eiríksdóttir hefur áður birt skáldskap, Ijóð og sögur, í blöðum og tímaritum, og ein skáld- saga eftir hana held ég að hafi komið út, Villibirta, ár- ið 1969. Sú bók fór fram- hjá mér á sínum tíma. En Ijóð hennar, í skjóli hásk- ans, er einkar viðfelldinn lestur, vandaður og smekk legur texti það sem hann nær: Unnur reynist einn af þeim höfundum er maður hefur af lauslegan pata úr blöðum en kemur reyndar á óvart í bókarlíki. Á stöku stað I bókinni yrkir Unnur Eiríksdóttir um hvers- dagslíf og háttu, kvæði er koma dálítið nýstárlega fyrir. Drama í þúsund þáttum nefnist eitt þeirra: Þúsund konur þögul fylking í morgunskímu kaupa þúsund fiska snúa aftur sömu leið þöglar 1 grárri morgunskímu sjóða þúsund fiska. Þúsund menn þyrpast í strætisvagninn klukkan tólf. Síðan sezt fiskurinn til borðs og kroppar úr okkur sálirnar. Þarna finnst mér reyndar að síðustu línunni sé ofaukið: henn- ar þarf ekki við til að leiða í ljós það hugarástand sem verið er að lýsa. Þess vegna er seinna kvæði af svipuðu tagi. Fyrir austan sól, líklega að því skapi betri texti að þar er ekkert efni umfram hina smellnu skopmynd hversdagsins sem kvæðið fram- fleytir. Það er annars engan veginn auðkenni Unnar að ofsepia e?Sa ofgera yrkisefnum sínum: þvert á móti er hið látlausa, hófstillta orðfæri höfuðprýði á ljóðum hennar. Og yrkisefni hversdags- ins eru henni engan veginn hug- leiknust. Frekar er að hversdags- leikinn verði henni andstæða rómantískrar draumsýnar, stund- anna handan hversdagslífs sem ljóð hennar einatt leitast við að tjá: komdu fylltu hús mitt litum heitum hlæjandi litum kyntu rauðan eld brenndu mig ein sklnandi perla ein stund af lífi handan hversdagsleikans. Langt úr fjarska yljar hann nú unaður þess sem aldrei gerðist, segir Unnur Eiríksdóttir í ofur- fínlegu litlu ljóði, Úr fjarska, sem engu að síður segir margt um kvæðalag hennar. Sannleik- urinn er sá að yrkisefni, orðfæri hennar má ekki verða róman- tískt um of (Jónsvökudans, Log- ar), þarf á að halda efnivið veru- legrar reynslu og tilfinningalífs til að takast til hlítar. Ekki læt- ur henni heldur alls kostar að yrkja út af „vandamálum" heims og mannlífs, pólitískum tilefnum (Martin Luther King, Lúmúmba, Víetnam) þótt hún freisti þess í þriðja þætti bókarinnar, ljóðum sem í sjálfu sér eru allvel gerð. En þar sem draumur og veru- leiki mætast, hin rómantíska draumsýn fyllra og fegurra lífs iklæðist efnivið verulegrar til- finningalýsingar gerast beztu ljóð Unnar, furðu mörg og fjöl- breytt, ef að er gáð, í öllu sínu látleysi. Þar á meðal er þetta „ástarljóð“, engu öðru líkt: Unnur Eiríksdóttir ég fann hann verða að þungum svörtum steini þvi ég sá að dauðinn hafði farið um andlit þitt höndum. Ég heyrði þig spyrja: Ert þetta þú? Þegar ég mætti þér sló þögn á Og ég svaraði: draum minn Nei ég er önnur kona. MGMeghvili * «**. ijti með gleraugum frá l\fllr Austurstræti 20. Sími 14456 Bílamálarar LESONAL bilalakk, grunnur ofl. Stórlækkað verð meðan birgðir endast, allt frá kr. 293.00 pr. ltr. póstsendum. Málarabúðin Vesturgötu 21a simi 21600. Almennur borgarafundur um kjaradeilu opinberra starfsmanna verður haldinn í Há- skólabíói, miðvikudaginn 2. febrúar kl: 21,00. Stuttar ræður flytja: Kristján Thorlacius Sigfinnur Sigurðsson Haraldur Steinþórsson Guðjón B. Baldvinsson Fundarstjóri: Ágúst Geirsson, formaður Fél. ísl. símamanna. Ríkisstjóm, borgarstjóra og borgarráði er boðið á fundinn og gefinn kostur á ræðutíma. Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.