Vísir - 01.02.1972, Síða 16

Vísir - 01.02.1972, Síða 16
vism Þriðjudagur 1. febrúar 1972 Strætóstjórinn fljúgandi Það verður ekki sagt um hann John Trotter frá Edinborg að hann eigi úhugámúl lik þeim „breiða massa”, sem við köllum oft svo, þegar rætt er um al- menning. llann John kom hér við fyrir nokkrum dögum á leið heim til að stýra strætónum sinum, - og i sai'nið sitt kom hann með flug (sem faregi) á Douglas DC-8-63. Ahugamál hans er sem sé að fljúga með sem flestum teg- undum flugvéla, og eins og fti merkjasafnarar, þá vill hann afbrigðin lika. John flýgur venjulega heiman og heim sama daginn ef hann mögulega getur, - það sparar hótelgjöld, allskonar óþarfa eins og mat, sem hann fær óiyrari heima hjá sér, o.s.frv. Frá Glasgow hélt hann á föstu- degi, og hélt til New York með hinni fyrirheitnu, DC-8-55. Heim frá New York hélt hann þegar með I)(N8-63, en sú vél var ekki i safninu, hafði áður flogið slikri. þa kom inn i málið verkfall flugumferðarstjóra og einh- vernveginn æxlaðist svo til að hann lenti i Keykjavik, - og heim fór hann með Boeing 727 Flugfélagsins, sem hann átti lika i hinumikla safni sinu. Nú er John Trotter farinn að safna saman fyrir nýrri og stuttri flugferð. Blöðin i Glasgow hafa olt sagt Irá þessum furðutyr, - og segja að hann leggi allt silt fyrir lil að geta sinnt áhugamálinu, - og afslátt biður hann aldrei um hjá flugl'élögunum. — JBF. Vitlaust veður — og enginn d sjó Vitlaust veður var á loönumiö- unum fyrir sunnan land i nótt og morgun. Stóö rokið á suöaustan, og var mikið brini viö suöur- ströndina og onginn bátur á sjó, aö þvi þeir sögöu okkur i Þorláks- liöfn i morgun. Reikna má með að samtals hafi verið landað kringum 25.000 tonn- um alls á landinu, langmest i Vestmannaeyjum, en einnig var i byrjun vertiðarinnar landað á Höfn i Hornafirði, og raunar fleiri Austfjarðahöfnum. Eitthvað litil- ræöi hefur borizt á land i Grinda- vik og Þorlákshöfn. Þróarrými er nú að þrjóta i Vestmannaeyjum, og verður lopnunni þá eitið á tún — ef rokið hefur þá ekki feykt göngunum út i hafsauga. — GG. ,,Sumar"janúar var þriðji hlýjasti á öldinni Janúarnánuður nú var þriðji hlýjasti janúarmánuður i Reyk- javik á ölriinni. 1 janúar mældist meðalhitinn 3.1 stig, en meðalhiti mánaðarins er minus 0.4 stig. Aðeins tvisvar áður á öldinni hef- ur verið meiri meðalhiti i janúar. Það var árið 1964 en þá mældist 3.6 stiga meðalhiti og áriö 1947 var meðalhitinn 3.2. stig. Sólskir, i janúar var undir meðallagi. Febrúar ætlar að byrja sæmi- lega hvað snertir hitann, en i morgun var hitinn 1—3 stig á lág- lendi og spáð er svipuðu hitastigi eitthvað áfram. Mjög hvasst var á landinu 5—7 vindstig fyrir norðan og á vestan- verðu landinu en 8—9 vindstig vfða á Suðurlandi og fárviðri á Stórhöfða 12 vindstig sem er held- ur undantekning, —SB— L,Stór hópurf unglinga smakkar ii ekki vin segir stórtemplar: „fcg held aö dagsins sé minnzt i öllum skólum iandsins þar sem þvi veröur komiö viö”, sagöi ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri Flensborgarskólans i samtali viö Vísi. 1 dag er svonefndur Bin- dindisdagur og er hann einkum helgaöur bindindisfræöslu i skól- um. Ilefur Samband bindindis- félaga i skólum verið starfandi i 40 ár og gert þennan dag að bar- áttudegi sinum 1 morgun heimsótti Hrafnkell Helgason læknir Flensborgar- skólann og ræddi við fjórðubekk- inga um skaðsemi áfengis og tó- baks og seinna mun hann heim- sækja aðra bekki skólans. Ólafur sagði að nemendur tækju þessari fræðslu yfirleitt vel, en að sjálf- sögðu gengi ræðumönnum á þess- um degi misjafnlega vel að ná til unglinganna. En full þörf væri á slikun) bindindisdegi i skólunum yfirleitt. Aðspurur sagði Ólafur að erfitt væri að koma með fullyrðingar um aukinn drykkjuskap unglinga. Til þess skorti öll gögn, en hann kvaðst hræddur um að drykkjuskapur næði til yngri ald- ursflokka en áður. ,,En það er mjög stór hópur unglinga sem alls ekki smakkar vin. Þvi meg- um við ekki gleyma þegar við töl- um um æskuna”, sagði Ólafur að lokum. Núverandi formaður Sambands bindindisfélaga i skólum e'r Einar Kristinn Jónsson, nemandi i Austurbæjarskóla. SG Gömlu meistararnir á slikk! Útsöluhasarinn er óviða jafn- mikill og i hljómplötuverzlun- unum, þegar þær opna með ó- dýrar og oft góðar hljómplöt- ur. Tvær verzlananna opnuðu i gær útsölur sinar, Hljóöfæra- húsið og Fálkinn. Og það var eins og við manninn mælt, all- ar smugur T)úðanra fylltust, og jaðraði við umferðaröng- þveiti i grennd v:ð búði'rnar. Myndin er úr Hljóðfærahúsinu þar sem fólk var að birgja sig upp af gömlu meisturunum, — en i poppdeildinni var slagur- inn þó sýnu mestur. „Mútað Verkfall hárgreiöslukvenna, seni hófst 15. janúar stendur ennþá. A fundi meö hárgreiðslu- konum og hárgreiöslumeisturum i gær miöaöi litiö sem ekkert i samkomulagsátt að sögn for- manns félags hárgreiðslukvenn „Það stendur i streði um 40 stunda vinnuvikuna. Hár- greiðslumeistarar vilja fá vinnu gegn dagvinnutaxta einum saman og láta vinna alla daga vikunnar, laugardaga einnig, en veita fri smáhluta úr vinnu- dögunum.” og ógnað varðar laun, þó gegn ýmsum skil- yrðum t.d., að hárgreiðslukonur þrifi verkfæri, borð og spegla og fari þar með inn á svið ræstingar- kvenna. Nemar hafa unnið þessi störf hjá hárgreiðslustofunum, en þær hafa litið tekið af nemum að undanförnu og vilja þvi færa þessa vinnu yfir á hárgreiðslu- konur. Hárgreiðslumeistarar neita einnig að veita launað fæðinga- orlof til þriggja mánaða* sagöi formaður félags hárgreiðslu- kvenna. til verkfallsbrota” „Það stendur bara á vinnu- timanum. það er búið að bjóða hárgreiðsiusveinum 40 stunda vinnuviku, en þær vilja ekki vinna hann á sumrin, og 3 1/2 tima á laugardögum á veturna. Þetta er þjónustuiðngrein og við höfum unnið á veturna frá 8.30 til klukkan tvö á laugardögum, en hárgreiðslusveinar vilja vinna til klukkan tólf. Laugardagurinn er aðaldagurinn fyrir fólk, sem er að fara út að skemmta sér. Við erum yfirleitt með helmingi fleira fólk i vinnu á laugardögum en aðra daga vikunnar vegna þess, að það er aðaldagur vikunnar. Það er álit margra i stéttinni, að hárgreiðslusveinar vilji fá laugardaginn til að vinna heima. Það hefur komið fyrir, að hárgreislusveinar hafa unnið til klukkan tvö á laugardögum og siðan farið beint heim að vinna. Það finnst okkur ekki passa," sagði formaður hárgreiðslu- meistara i viðtali við Visi. — SB — F'ormaðurinn kvað 30 — 40 stúlkur hafa lagt niöur vinnu auk nema og verkfallið vera erfitt. „Hárgreiðslumeistarar neyða eða múta nemunum til að vinna og láta þá vinna á bak viö og læsa stofunum fyrir verkfallsvörðum. Nemarnir hafa alltaf verið undir miklum aga og eru hræddar og undirlátar og meistarar ganga eins langt og þeir geta. Ekki bætir úr skálc, að húsmæður sem hafa verið árum saman frá starfi á stofu og hafa unnið heima lengi vel, hlaupa út til vinnu i verkfallinu. Þær eyði- leggja baráttu okkar i þessu máli. Hárgreiðslumeistarar hafa viljað ganga að svipuðum sam ningum og samdist við ASt hvað n ■ • .1 . i . ■ m l L .. m 1 I . I I , 1 1 n n t i 11 , i i i n i, i i . i , i i i . i i i . i i m , liiii- Hvorki bjartsýnn né svartsýnn Ég er hvorki bjartsýnn né svartsýnn um árangur viðræðnanna hér í Reyk- javik um landhelgismálin, Ég vona aðeins að þetta verði árangursríkur fundur og mun gera mitt bezta til að lausn faist i þessu máli, sagði dr. von Schenk,þjóðréttarfráðingur og formaður þýzku sendi- nefndarinnar, sem hóf viðræður við íslenzku land- helgisnefndina í Ráðherra- bústaðnum kl. 11 í morgun. Reiknað var fastlega meö þvi, að þýzka sendinefndin kæmi með áþekk tilboð til iausnar land- helgismálinu eins og brezka sendinefndin, sem kom hingað til viðræðna snemma i siðasta manuði. Tillögur þeirra munu hafa gengið mest út á friðunarað- gerðir á mikilvægum uppeldis- stöðvum nytjafiska. Þjóðverjarnir koma aðeins þrir saman til viðræðnanna hér, en brezku embættismennirnir voru 8 eins og islenzka viðræðunefndin, en i henni eiga sæti; Hans G. Andersen. sendiherra. formaður, Már Elisson. Jón Arndals, Þór Vilhjálmsson, Jónas Árnason, Þórarinn Þórarinsson, Baldvin Jónssonog Haraldur Henrysson. -VJ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.