Vísir - 25.03.1972, Page 6

Vísir - 25.03.1972, Page 6
6 Visir. Laugardagur 25. marz 1972. Útgefandi: Reykjaprent hf Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Fétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Ilverfisgötu 22. Simar lfkiio 11660 Afgreiðsla: Hverfisgötu J2. Simi 11660 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 11660 15 linun Askriftargjald kr. 225 á mánuði inranlands i lausasölu kr 15.00 eintakið Blaðaprent hf. JL • ■ #1 e _ • r Ovinsœl rikisstjorn Þeim fjölgar með hverjum deginum sem liður, er lizt illa á stjórnarfarið i landinu. Þeir eru ekki aðeins úr hópi stjórnarandstæðinga, enda væntu þeir sér aldrei góðs af þessari rikisstjórn. Nei, það er fólk, sem veitti stjórnmálaflokkunum brautar- gengi i kosningunum sl. sumar sem fyrir vonbrigð- um hefur orðið og talar nú hvað mest um, hve illi- lega þeir hafi brugðizt loforðum sinum þá. Heita má, að rikisstjórninni hafi tekizt á þeim stutta tima, sem hún hefur verið við völd, að skapa á sér andúð hjá flestum stéttum þjóðfélagsins. öllum ætti t.d. að vera kunnugt, hvernig hún kom fram við opinbera starfsmenn, þegar stjórn BSRB óskaði kurteislega eftir viðræðum um kjaramálin. Þess munu vandfundin dæmi, að rikisstjórn i lýð- ræðislandi hafi brugðizt með slikum hætti við mála- leitan svo fjölmenns hóps um að fá að skýra viðhorf sin. Þvi verður vart trúað, að opinberir starfsmenn láti hér við sitja. Þeir verða með einhverjum hætti að sýna rikisstjórninni það svart á hvitu, að þeir láti hana ekki bjóða sér þá svivirðu, sem hún sýndi þeim, án þess að það komi henni i koll. Rikisstjórnin hagar gerðum sinum með hliðsjón af þvi, að henni muni takast að hanga við völd út kjörtimabilið, eða a.m.k. mestan hluta þess, og þá fyrnist yfir svona hluti. Svo megi illu venjast að gott þyki. En i fyrstu verður það að teljast harla ótrúlegt, að stjórninni heppnist að lafa svo lengi. Enginn veit hvenær upp úr kann að sjóða i stjórnar- herbúðunum sjálfum. Það er vitað, að þar rikir mikill ágreiningur um ýmsa mikilvæga hluti. Ein- hver takmörk hljóta t.d. að vera fyrir þvi, hve lengi framsóknarmennirnir geta látið kommúnista svin- beygja sig, eins og þeir hafa gert hingað til. Og gæti ekki verið, að Hannibal yrði búinn að fá nóg af sam- búðinni einn góðan veðurdag og gengi úr vistinni með lið sitt? Hann hefur gaman af kosningum og gæti átt til að vilja prófa, hvort hann gæti ekki styrkt flokk sinn svolitið meira og gengið svo til samstarfs við aðra. Þetta er siður en svo óhugsandi, einkanlega þegar höfð er i huga sú reynsla, að enginn flokkur hefur til lengdar getað starfað með Framsókn, né heldur kommúnistum. En hvað sem þessu liður, hefur rikisstjórnin þegar á þeim stutta tima, sem hún hefur setið , gert svo margar skyssur, að landsmenn hljóta að hafa séð, að hún er óhæf til að stjórna landinu. Dýr-- tiðin fer hraðvaxandi. Heldur rikisstjórnin,, að hús- mæðurnar taki ekki eftir þvi, hvað landbúnaðar- vörurnarhafa t.d. hækkað gifurlega? Það er gagns- laust fyrir Timann að segja fólki, að kaupmáttur launanna sé sá sami eftir sem áður. Skyldu t.d. konur opinberra starfsmanna trúa þvi? Seinna kemur svo i ljós, hvað skattarnir hækka. Það er aðeins gálgafrestur hjá stjórnarliðinu að neita þvi. Skattseðillinn kemur upp um þá á sinum tima. Kaþólskir munu tortryggja Heath - en hann steig skref, sem vekur vonir um frið Kaþólskir menn á Norður-irlandi hljóta að binda vonir við ákvörðun brezku stjórnarinnar í gær að setja iandið undir beina stjórn frá London og svipta stjórnina á Norður- irlandi völdum. Þessari ráðstöfun hefði þó verið / fagnað meira meðal ka- þólskra, áður en ,,blóð- sunnudagurinn" rann i Londonderry, þegar 13 ka- þólskir féllu fyrir byssu- kúlum brezkra hermanna. Eins og þingmaðurinn Gerard Fitt sagði: „Sú pólitíska lausn, sem hefði verið fær fyrir 3. janúar, er nú ófær." Meirihluti kaþólskra borgara N-trlands stendur með IRA—hreyfingunni ibaráttu fyrir sameiningu beggja hluta trlands i eitt riki. Bretar geta ekki til þess hugsað. Harold Wilson segir, að heimkvaðning brezku hermann- anna frá Norður-írlandi geti leitt til borgarastyrjaldar og fjölda- morða, sem verði hryllilegri en dæmi finnist um i sögunni... Hátt í 300 fallnir. Hins vegar vekur ákvörðun Heaths vonir, ekki aðeins kaþólskra! heldur alls almenn ings, um að takist að bæta úr þvi hörmulega ástandi, sem hefur rikt. Hátt i þrjú hundruð hafá fallið i átökunum. Hermdarverk eru daglegt brauð. Aldalangt hatur milli trúflokka glæðir eldana, og brezki herinn, sem var sendur til aö skakka leikinn og stia fylkingum i sundur, varð sjálfur þátttakandi, i augum ka- þólskra „blóðhundar” mótmæl enda. Börn kasta sprengjum og eru skotin, prestar tveggja trúar- bragða vigja morðvopn. Afriku- menn komast hvergi i hálfkvisti við IRA i villimannslegu haturs- striði. 1000 i fangelsum án málsóknar. Stjórnin i Stormont á Norður- trlandi er stjórn mótmælenda, gegn kaþólskum. Hún hefur alla tið, með örfáum undan- tekningum, verið eingöngu skipuð mótmælendum, að visu mismun- andi öfgafullum. bessir menn hafa tryggt það, að kaþólski ur-Irlands i fyrra, hefur ástandið versnað um allan helming. Stjórnin framdi það glapræði með vilja brezku stjórnarinnar að setja lög, sem heimiluðu, að fólk væri handtekið og haldið i prisund án þess svo mikið að hefja þyrfti Fórnardýr I Londonderry. málsókn á hendur þvi. væri handtekið og haldið i prisund án þess svo mikið að hefja þyrfti málsókn á hendur þvi. Með þessum lögum hafa kaþólskir menn verið tindir upp og varpað i prisun, þar sem margir hafa sætt verstu pynt ingum. Um það berheim ildum saman, þótt menn greini á um, hversu almennar pyntingarnar hafa verið. Blaðafregnir herma, að um eitt þúsund manna sé nú i fangelsi samkvæmt þessum lögum, sem Heath—stjórnin kvaðst i gær ekki mundu þessi lög i bili, en þó yrðu mergir látnir lausir, sem dúsa i fangeslum þeirra vegna. Mega ekki teljast blóö- hundar annars aöilans. Stjórn mótmælenda á Norður- Irlandi hefur reynzl til óþurftar, og engar likur benda til annars en ástandið versnaði enn undir forystu Brian Faulkners. Þótt kaþólskir séu eðlilega fullir grundemda gagnvart Sigur hersins á Norður trlandi. kaþólskir menn kalla eðlilega einræðis- og fasistalöggjöf. Valdhafar hafa fært þau rök fyrir sliku framferði, að annars mundi blóðið fljóta enn striðari straumum. Þessi kenning er vægast sagt einkennileg i ljósi þeirra staðreynda, að blóðið hefur aldrei flotið jafnstriðum straumum né hatrið verið meira en siðan þessi lög voru sett. brezku stjórninni, ættu mál þeirra að vera betur komin hjá Bretum, sem kannski fyrirlita þá en hata þá ekki i neitt svipuðum mæli og erkifjandinn heima fyrir. Mest veltur á, að brezka stjórnin fylgi fast eftir með gagn- gerum umbótum. Annað tjóar ekki. Verkefnið er miklu verra viðfangs en það var fyrir ári, en það yrði enn verra eftir ár, ef ekki verður snúip við blaði. Kaþólskir munu taka ákvörðun Heaths með tortryggni. Mótmælendur munu fjandskapast við þær, ef þær verða gagngerar. En það er Bretum betra, að báðir aðilar tortryggi þá en að þeir teljist blóðhundar annars aðilans. Það er líka hið eina, sem getur bjargað almenningi úr blóðbaðinu og heiminum frá and- vöku. Illlllllllll M) IRA-skæruliöar i þjálfun, meö poka á höföum. Umsjón: Haukur Helgason

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.