Vísir - 28.03.1972, Blaðsíða 11
v i9u . hi lujuud^ui ao. ntarz. i»14.
Spjallað um getraunir:
Stórleikur umferðarinnar
milli nr. 2 og 3 í 1. deild
Það gat ekki farið hjá því að
|12 réttir kæmu ekki á 12. get-
raunaseðil ársins og reyndar
urðu þeir fimm seðlarnir, sem
starfsfólk getrauna fann i gær
með öllum leikjunum réttum.
Potturinn var hærri en undan-
farið og kemur þvi i hlut hvers
um 85 þúsund krónur. Með 11
rétta voru 146 og var þvi rétt á-
gizkun prentarans hér i Blaða-
prenti, sem var með 11 rétta,
og sagði strax í gærmorgun.
,,Maður fær kannski fyrir
einni, það verður ekki mikið
meira". Og fyrir 11 rétta voru
1200 krónur.
A þréttanda seðlinum rekur maður
strax augun i stórleik umferðarinnar.
Það fer ekki á milli mála, að hann
verður i Derby, þvi þangað kemur
Leeds i heimsókn. Liðin eru nú nr. 2 og
3 i 1. deild og eru raunverulega hin
einu, sem geta gefið Manch. City
keppni um efsta sætið. Og möguleikar
þess liðs, sem tapar þessum leik i
Derby á laugardaginn, minnka mjög i
keppninni um meistaratitilinn enska.
En þá skulum við snúa okkur nánar
að einstökum leikjum.
O Arsenal-Nott.Forest 1
Þrátt fyrir heldur slæmt gengi Ar-
senal að undanförnu ætti liðið vel að
ráða við neðsta lið deildarinnar,
Nottm.Forest. t siöustu sex leikjum
liðanna á Highbury i Lundúnum hefur
Forest þó tvivegis náð jafntefli, en
annað en heimasigur kemur ekki til
greina nú.
© Coventry-Manch. Utd.
Coventry-liðinu hefur gengið afar
illa að undanförnu — allt hefur gengið
á afturfótunum siðan Noel Cantwell
var rekinn sem framkvæmdastjóri
liðsins og þeir Ian St. John og Tony
Waiters hættu. Manch. Utd. ætti þvi að
hafa þarna góða möguleika á sigri, þó
svo liðinu hafi oftast gengið heldur illa
i Coventry — aðeins unnið þar einu
sinni — 1970 — siðan Coventry komst i
l.deild 1968. En við reiknum þó með
þvi, að Manch. Utd. vinni þarna sinn
þriðja deildasigur i röð.
0 C.Palace-Southampton
Þetta er afar þýðingarmikill leikur i
fallbaráttunni — Palace hefur 24 stig,
en Ðýrlingarnir 23 og hafa þeir leikið
einum leik minna. Palace hefur unnið
báða heimaleiki sina gegn
Dýrlingunum i l.deild — 3-1 i fyrra og
2-0 árið áður, og við reiknum nú með
sigri Lundúnaliðsins þó það skuli
viðurkennt að leikurinn getur farið
alla vega. Heimasigur.
O Derby-Leeds 2
Leeds vann öruggan sigur i Derby i -
fyrra 2-0 og i fyrri leik liðanna á þessu
keppnistimabili vann Leeds góðan
sigur 3-0. Þetta verður áreiðanlega
mikill leikur, en leikreynsla Leeds-
liðsins er svo miklu meiri að liðið ætti
að ná sigri i þessum „taugaleik”. úti-
sigur.
0 lluddersfield—Everton x
Everton er mikiö jafnteflislið — alls
14 jafntefli á þessu leiktimabili og
þarna virðist mikill möguleiki á þvi
15. t fyrra varð jafnt milli liðanna i
Huddersfield. Jafntefli.
0 Ipswich—Chelsea x
Þessi er erfiður! Það fer ekki á milli
mála. Chelsea gerði jafntefli i Ipswichi
fyrra 0-0 , en vann tvo leikina þar á
undan — hefur sem sagt ekki tapað i
Ipswich, siðan Suffolk—liðið komst
aftur i 1. deild. Jafntefli nú þar sem
Chelsea hefur gengið illa á útivelli að
undanförnu, tapað þremur af siðustu
fjórum útileikjunum.
© Liverpool—WBA 1
IJverpool hefur hlotið 16 stig af 18
möguleikum i siðustu niu leikjunum
og ætti að vinna WBA þrátt fyrir þá
staðreynd, að Miðlandaliðið hefur tvö
siðusta árin gert jafntefli i Liverpool.
Heimasigur.
0
1
Manch.City—Stoke
Manch.City hefur unnið Stoke fimm
sinnum i siðustu sex leikjum liðanna á
Maine Road i Manchester — aðeins
tapað einum leik 1970. Annað en
heimasigur kemur varla til greina nú.
© Sheff.Utd. — Newcastle 1
Með betri völlum verður leikur
Sheff.Utd. betri og liðið hefur verið
sterkt á heimavelli — aðeins tapað þar
tvivegis i deildinni i vetur. Liðin
mættust ekki á siðasta keppnistima-
bili, þar sem Sheff.Utd. var þá i 2.
deild. Heimasigur.
West Ham — Tottenham 1
Þetta er erfiður leikur fyrir Totten-
ham, þar sem mikil keyrsla er á leik-
mönnum liðsins. West Ham hefur lika
unnið Tottenham þrisvar á heimavelli
siðustu sex árin og tapað tvisvar, en
vegna leiks Tottenham við AC Milanó
5. april reiknum við með sigri West
Ham nú.
(D Wolves—Leicester 1
Úlfarnir ættu að vinna Leicester i
þessari innbyrðisviðureign tveggja
Miðlandaliða. Liðin mættust ekki á
siðasta leiktimabili — Leicester 'var þá
i 2. deild — en 1969 vann Wolves 1-0
heima. Heimasigur.
© Blackpool—Burnley x
Leikur tveggja frægra Lancas
hire—liða, sem oft hafa leikið i 1.
deid — meðal annars á siðasta leik
timabili og þá varð jafntefli 1-1 — en
Tveir frægir kappar I ensku knattspyrnunni — Mike England, hvitkiæddur, míó- [?**u niður sl. vor. Þetta eru jöfn
vörður Tottenham og Wales, og Derek Dougan, miðherji Úlfanna og Norður-ír- °S jafntefli afar sennilegt.
lands og formaður samtaka atvinnumanna I knattspyrnu. —hsim.
VIKINGUR SIGRAÐII VETRARM0TINU
Vikingur varö sigurvegari í
Vetrarmóti Knattspyrnuráðs
Reykjavikur — hlaut átta stig
— en síðustu leikir mótsins voru
háðir á Melavellinum í gær-
kvöldi.
Þá sigraði Valur Fram með 2-1 og
Vikingur vann Armann 4-2. Það leit þó
ekki vel út fyrir Viking i byrjun, þvi
eftir 20 min. stóð 2-0 fyrir Armann.
Fyrst skoraði Jón Sigurðsson (Jóns-
sonar, Viking) fyrir Armann og siðan
fékk liðið vitaspyrnu, sem skorað var
úr. En þá fóru Vikingar að taka við
sér. Fyrst skoraði Ólafur Þorsteinsson
og siðan Hafliði Pétursson þrjú mörk
— en þessi markakóngur 2. deildar i
fyrra hefur ekki leikið með Viking fyrr
i mótinu vegna meiðsla.
Úrslit i mótinu urðu þau, að Viking-
ur hlaut 8 stig. Þóttur og Valur sex stig
hvort félag, Fram og KR fjögur stig og
Ármann tvö. — hsim.
Jón Sigurðsson skoraði átta stig fyrir islenzka landsiiðið I körfuknattieik gegn Luxemborgariiðinu á sunnu-
dag. Hér sést hann senda boltann i körfuna, og Þórir Magnússon (nr. 13) og Einar Boliason fyigjast spennt-
ir með. Ljósmynd Astþór.
Slátrarnir eru með
fjóra landsliðsmenn
i kvöld má reikna með
mikilli baráttu á fjölum
Laugardalshallarinnar,
þegar þýzku „slátrararnir"
frá Dortmund — Tus
Wellinghofen — leikur
gegn harðskeyttum Vals-
mönnum, sem nú hafa
endurheimt landsliðsmenn
sína aftur. Annað kvöld
leikur þýzka liðið svo við
islandsmeistara Fram.
Það helzta sem um þetta lið er
vitað er að það leikur i norðurriðli
l.deildarinnar i Þýzkalandi og
varð nú i ár i 6.sæti.
t þessum sama riðli leikur
Hamborg SV, sem kom hér i boði
Vikings fyrir skömmu.
Lið þetta hefur það orð á sér, að
leika harðan handknattleik og
hefur af þeim sökum fengið á sig
viðurnefnið „slátrarnir frá Dort-
mund”. Sem dæmi má r;efna, að
liðið var á keppnisferðalagi um
Sviþjóð, áður en það hélt til
Bandar. en það er nú á heimleið
þjóð, áður en það hélt til Banda-
rikjanna, en það er nú á heimleið
þaðan með viðkomu hér og var
fyrirhugað að það léki 4 leiki. En
leikirnir urðu aðeins 2 vegna þess
að tvö sænsk lið neituðu að leika
við það. Þá má nefna að liðið
hefur 4 landsliðsmenn. Heiner
Möller, sem leikið hefur 46 lands-
leiki og skorað 99 mörk. Hann lék
gegn Norðmönnum i lok febrúar
og skoraði 3 af 18 mörkum Þjóð-
verja. Einnig má nefna Hans
Peter Neuhaus, sem leikið hefir
58 landsleiki og skorað 26 mörk,
Burkhard Gröning, sem leikið
hefir 16 landsleiki og skorað 13
mörk, og Rainer Goswinkel, sem
leikið hefir 6 landsleiki og skorað
6 mörk.
i þýzku deildarkeppni voru
þessir markahæstir fyrir
Weliinghofen: Möller skoraði 44
mörk, Goswinkel skoraði 37
mörk, Gröning og Oberscheldt
skoruðu 31 mark og Neuhaus
skoraði 24 mörk.
Leeds nólgast Man. City
Einn leikur var háður í 1. deild-
inni ensku í gærkvöldi og léku
sniilingar I.eeds þá við Notting-
ham Forest á heimavelli. Botn-
liðið hafði litiö að segja i Leeds
—liðið, sem er i miklu stuði um
þessar mundir, og áður en lauk
hafði knötturinn sex sinnum
hafnað i marki Forest, en einu
sinni i marki Leeds. 6-1.
Að visu varð Forest fyrir þeirri
óheppni, að markvörður liðsins
Jim Barron slasaðist i siðari hálf-
leik og var borinn af leikvelli. En
það breytti ekki miklu um gang
leiksins — Leeds hafði þegar
skorað fjögur mörk, þegar
Barron meiddist.
Nú eru aðeins tvö stig á milli
Manch. City og Leeds. Man-
ch.City hefur 50 stig eftir 35 leiki
og markatöluna 66-36, en Leeds
er með 48 stig eftir 34 leiki og
hefur miklu betra marka
hlutfall en Manchester
liðið eða 61-22J3erby er nú komið i
þriðja sæti með 47 stig, einnig
eftir 34 leiki eins og Leeds.
Á Skotlandi voru tveir bikar-
leikir, sem jafntefli varð i á
laugardag. Hearts iék á heima-
velli gegn Celtic, en það nægöi
ekki. Celtic vann 1-0 og mætir
Kilmarnock i undanúrslitum. Þá
sigraði Rangers á heimavelli
Motherwell 4-2 og leikur i undan-
urslitum við Hibernian.
Tottenham reyndi i gær að fá
leik sinum við AC Milanó frestað
um nokkra daga, vegna þess hve
liðiö á marga leiki nú framundan
um páskana. ltalska liðið féllst
ekki á það og verður fyrri leikur
liðanna i undanúrslitum
UEFA—bikarsins því á White
Hart Lane 5. april.
Hins vegar tók enska deildin vel
i málaleitun Úlfanná, sem einn
ig er i undanúrslitum
UEFA—bikarsins og leikur við
ungverska liðið Ferencvaros.
Deildaleikjum Úlfanna við
Chelsea varð frestað til 12. april
og við Nottingham Forest til 25.
april.
í 57. VÍÐÁVÁNGS-
HLAUP ÍR-INGA
Viðavangshlaup tR fer fram i
57. sinn á sumardaginn fyrsta —
20.april n.k. — og mun hefjast
kl. 14.00
Hlaupaleiðin verður svipuð og
áður. Hlaupið hefst á vestur-
bakka Tjarnarinnar i Hljóm-
skálagarðinum, en i honum
verða hlaupnir um 800 m. en
siðan verður hlaupið suður i
Vatnsmýrina, hlaupinn þar
hringur og endað með að hlgupa
norður gegn um Hljómskála-
garðinn og norður Frikirk-
juveginn og endað við
norðurhorn Menntaskólans við
Tjörnina. Vegalengdin sem
hlaupin verður, er um 3,3 - 3,5
km.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til þjálfara 1R
Guðmundar Þórarinssonar,
Baldursgötu 6, eigi siðar en að
kvöldi sunnudagsins I6.april.
Reykvísku unglingamir fengu
uppreisn gegn þeim siglfirzku
V
— á unglingameistaramóti Islands í badminton um helgina
Á Unglingameistaramóti
islands í badminton, sem
fór fram i Hafnarfirði um
helgina, kom berlega í Ijós,
að badmintoníþróttin er á
mikilli uppleið hér á landi.
Unglingarnir sýndu i heild
betur en nokkru sinni áður,
skemmtilegan og vel út-
færðan leik og rómuðu hin-
ar eldri kempur er á horfðu
mjög leik unglinganna og
töluðu um „glæsilega full-
trúa þessarar fögru íþrótt-
ar".
Meiri þátttaka var i þessu móti
en á nokkru unglingamóti hér til
þessa, eða 69 þátttakendur, þar af
22 frá Siglufirði, 7 voru frá Akra-
nesi en 40 úr Reykjavik. Margir
spennandi leikir voru leiknir og
þurfti oft að leika aukalotu til að
úrslit fengust — sérstaklega var
áberandi hversu úrslitaleikirnir
voru jafnir og spennandi, af 15 úr-
slitaleikjum þurfti að leika auka-
lotu i 11 leikjum.
Mótið hófst á laugardag, er for-
maður Badmintonsambandsins
Einar Jónsson, sétti mótið og
keppendur gengu fylktu iiði inn i
sal hins glæsilega iþróttahúss i
Hafnarfirði.
Strax að lokinni setningarat-
höfn hófst mótið og voru alls
leiknir 102 leikir.
Af einstökum keppendum
mótsins vöktu sérstaka alhygli
þau Jónas Þ. Þórsson og Svan-
björg Pálsdóttir K.R., en þau
sigruðu bæði i öllum þrem grein-
unum, sem þau tóku þátt i og
fengu þvi þrenn gullverðlaun.
Aldrei hefur þáttur K.R. verið
stærriá sliku móti. Þess má geta,
að Svanbjörg keppir nú i fyrsta
sinn fyrir K.R., en hún hafði áður
gert sinn hlut stóran á unglinga-
móti sem Siglfirðingur. Af öðrum
keppendum má nefna Þórð
Björnsson, Siglufirði, en hann
varð að visu að láta sér nægja
þrjú silfur i þetta sinn, en hann og
Jónas léku mjög skemmtilegan
og vel útfærðan leik i úrslitum i
einliðaleik.
Þeir félagar úr T.B.R. Jóhann
Kjartansson og Sigurður Kol-
beinsson, skiptu bróðurlega með
sér verðlaunum i sveinaflokki,
fengu hvor um sig tvö gull og eitt
silfur.
í piltaflokki var Sigfús Ægir
Árnason T.B.R. stóra nafnið, en
hann ásamt Hannesi Rikharðs-
syni léku einna mest spennandi
leik mótsins gegn þeim Gunn-
laugi Vigfússyni og Óttari
Bjarnasyni frá Siglufirði. I tvi-
liðaleik, sem lauk með sigri
þeirra fyrrnefndu. Sigfús sigraði
nokkuð léttilega Hrólf Jónsson
Val, i úrslitum i einliðaleik, eftir
að hinn siðarnefndi hafði unnið
erfiða mótherja I hörku leikjum á
fyrra degi mótsins.
Reykvisku unglingarnir fengu
nú nokkra uppreisn gegn þeim
Siglfirzku, sem hafa borið ægis-
hjálm yfir aðra keppendur á
tveim unglingameistaramótum
þar á undan. Þess ber þó að gæta,
að miklar tilfærslur urðu hjá Sigl-
firðingum á milli flokka nú i ár,
þannig eru t.d. Þórður Björnsson
og Gunnlaugur Vigfússon, sem
báðir fengu þrjú gull i fyrra, nú á
fyrsta ári i sinum aldursflokki.
Þær siglfirzku reyndust einráð-
ar i stúlknaflokki, en ungar stúlk-
ur úr Reykjavik sigruðu i meyja-
flokki.
Að lokinni keppni'á sunnudags-
kvöld, afhenti Einar Jónsson
keppendum verðlaunapeninga,
en veitt voru gull og silfur- verð-
laun.
Mótið fór i alla staði mjög vel
fram og gekk fljótt og vel fyrir
sig. Mótsstjóri var Sigurður Ág.
Jensson.
Hér fer á eftir úrslit i einstökum
úrslitaleikjum:
Einliðaleikur meyja:
Kristin Kristjánsdóttir T.B.R.
sigraði
Elsu Ingimarsdóttir Val 7:11,
11:9, 11:4
Einliðaieikur sveina:
Jóhann Kjartansson T.B.R. sigr-
aði
Sigurð Kolbeinsson T.B.R. 11:2,
4:11, 12:10.
Einliðaleikur telpna:
Svanbjörg Pálsdóttir K.R. sigraði
Hrafnhildi Tómasdóttur Siglu-
firði 11:6, 3:11, 11:3.
Einliðaleikur drengja:
Jónas Þ. Þórisson K.R. sigraði
Þórð Björnsson Siglufirði 11:5,
3:11, 12:11.
Kinliðaleikur stúlkna:
Guðrún Pálsdóttir, Sigiufirði
sigraði
Mariu Jóhannsdóttur, Siglufirði
8:11, 11:7, 11:6.
Einliðaleikur pilta:
Sigfús Ægir Arnason T.B.R. sigr-
aði
Hrjólf Jónsson, Val 15:0, 15:3.
Tvenndarleikur sveina og
meyja.:
Sigurður Kolbeinsson T.B.R. og
Elsa Ingimarsdóttir Val sigruðu
Jóhann Kjartansson T.B.R. og
Bryndisi Bjarnadöttur, Val 18:17
og 15:13.
Tvenndarleikur drengja og
telpna:
Jónas Þ. Þórisson og Svanbjörg
Pálsdóttir, K.R. sigruðu
Þórð Björnsson og Hrafnhildi
Tómasdóttur, Siglufirði 17:14,
8:15, 15:1
Tvenndarleikur pilta og stúlkua:
Gunnlaugur Vigfússon og Stella
Matthiasd., Siglufirði sigruðu
Sigfús Ægi Árnason og Steinunni
Pétursdóttur T.B.R. 3:15, 18:14,
15:9.
Tviliðaleikur nieyja::
Kristin Kristjánsdóttir og
Margrét Adolfsdóttir, T.B.R.
sigruðu
Bryndisi Bjarnadóttur og Elsu
Ingimarsdóttur, Val 15:11 og 15:8
Tviliðaleikur sveina:
Sigurður Kolbeinsson og Jóhann
Kjartansson T.B.R. sigruðu Sig-
urð Blöndal og Stefán Birgisson.
Siglufirði 10:15, 15:11, 15:7.
Tviliðaleikur telpna:
Iirafnhildur Tómasdóttir, Siglu-
firði og Svanbjörg Pálsdóttir K.R.
sigruðu
Ilelgu Skúladóttur og Guðrúnu
Blöndai. Siglulirði 15:7 og 15:7.
Tviliðaleikur dreugja:
Jónas Þ. Þórisson K.R. og Otto
Guðjónsson T.B.R. sigruðu Þórð
Björnsson og Hilmar Stefánsson,
Siglufirði 11:15, 17:16.
Tviliðaleikur stúlkna:
Guðrún Pálsdóttir og Maria Jó-
hannsdóttir, Siglufirði sigruðu
Þórdisi Ingimarsdóltur og Steilu
Matthiasdóttur, Siglulirði 15:9,
12:15, 15:11.
Tviliðaleikur pilta:
Hannes Rikharðsson og Siglús
Ægir Arnason T.B.R. sigruðu
Ottar Bjarnason og Gunnlaug
Vigfússon, Siglufirði 15:5, 10:15,
15:8
Viðselj
vondi
fráviðurkenndum framleiðendum
Við kaupum teppin, milliliðalaust, beint frá verksmiðju, í
heilum rúllum og fáum þannig mun betra verð.
Eigum á lager 12 gerðir, í yfir 50 litum, frá eftirtöldum
framleiðendum:
ÁLAFOSS, SHAW, BRISTALL, LANCASTER, BAR-
WICK, WESTON, FEBOLIT.
Við mælum gólfflötinn og þaulvanir fagmenn leggja
teppin, veggja á milli, með stuttum fyrirvara.