Vísir - 28.03.1972, Blaðsíða 8
8
Vísir. Þriðjudagur 28. marz 1972.
Rokdýrt — nofnið Cardin stendur ó því
„Hönnun” er tizkuorð, sem
hefur stungið upp kollinum og fest
sig i málinu á skömmum tima.
Verkfræðingar vilja eigna sér
orðið, cn samt hefur það óspart
verjð notað af þeim, sem teikna
húsgögn og ýmsa aðra notahluti.
Núna eru jafnvel föt „hönnuð”.
A erlendum vettvangi hefur
tizkuteiknari einn skipt yfir og er
nú meir og meir farin að „hanna”
ýmsa hluti. Það er Frakkinn
Cardin.
„Það er jafnauðvelt að teikna
borð eins og kjól”, sagði hann og
hófst siðan handa.
Nú eru það ekki eingöngu mini-
kjólar, sem koma frá teikniborði
Cardin, heldur einnig skrifborð,
sjónvarpskastarar, leirtau,
pappaöskjur. Eða eins og sagt
hefur verið: „allt, sem er dýrt
fyrir neytandann”.
I þetta fyrirtæki sitt mun
Cardin setja einn þriðja hluta
tekna sinna, milljarðar eru
nefndir i þvi sambandi.
Búizt er við, að vörur, teikn
aðar af Cardin og með merki
hans, muni flæða yfir markaðinn.
Cardin hefur þegar gert „hönn
unar-samning” við 45 fyrirtæki i
ýmsum löndum, þeirra á meðal
Vestur-Þýzkaland, Italiu, Japan
og Bandarikin.
Tizkuteiknarinn heldur nöfn
unum á viðskiptasamböndum
sinum leyndum að mestu leyti,
vegna þess að framieiðandinn á
ekki að njóta góðs af Cardin-
vörunum með þvi að láta sitt
vörumerki fylgja með einnig.
Einnig á svokallaður Cardin-
leyndardómur að ýta undir kaup-
skapinn.
Aðalteiknari Cardin, sem heitir
Cardin við skrifborðið
fræga.
Hj úkrunarkvennabún-
ingur eftir Cardin.
Alain Carre segir: „þegar eitt-
hvert fyrirtæki pantar frá okkur
teiknun á rúmfötum, munu þau
seljast á okkar nafni en ekki þess.
Við getum ráðið lit og munstri.
Varan ber okkar merki, en ekki
hinna. Framleiðandinn mun
einnig öðlast kjark með þvi að
voga einhverju.”
I vöruhúsunum i Paris er
nýjasta uppfinning Cardin einnig
ætluð lúxusneytandanum. Það er
silfurlit pappaaskja með litrikum
hringum og bókstöfum Cardin.
Innihaldið er 60 bréfvasaklútar.
Þessi varningur varð til þess,
að franskt blað varpaði fram
spurningu varðandi lúxusum-
búðirnar: „Hvers vegna að kaupa
60 bréfavasaklúta á 75
krónur vegna þess að nafn Cardin
er prentað á pakkann? Það er
nefnilega hægt að fá 100 stykki af
bréfvasaklútum á þessum sömu
stöðum, en i látlausari umbúðum,
á 26 krónur.
Nafn Cardin er dýrt. Ef það
kemur fram á einhverri vöru-
tegund, kostar það stórfé. Og
Cardin færir út kviarnar og
kemur upp fleiri og fleiri teikni-
stofum.
Frægt Cardinverk er skrifborð,
sem hann gerði fyrir italskan for-
stjóra. Það er vafflaga, pressað
saman úr efninu polyester, i kúlu-
laga apparati er komið fyrir sjón-
varpi, sima, kalltæki, plötu-
spilara, sigarettukveikjara.
Þrjár glerkúlur ljóma i litum
regnbogans, þegar ýtt er á hnapp.
Cardin segir, að hann hafi búið
þetta skrifborð til fyrir hvildarhlé
mannsins, sem starfi. Dýr hlé það
— hvildarborðið kostaði rúma
hálfa milljóh. Cardin hefur búið
til fimm stykki og býst við að geta
lækkað verðið, eftir að hafa selt 20
stykki.
Cardin vill ekki aðeins veita
þreyttum forstjórum stuðning i
önnum dagsins: bráðum munu
smábörnin hvila i Cardinbarna-
vögnum og konur prjóna á
Cardinprjónavélar. Bráðum
getur fólk með tilfinningu fyrir
tizkunni borðað af Cardindiskum,
Cardinmerkið á gúmmí-
bát, postulíni, bréfvasa-
klútum — og allt rokdýrt.
sett á sig Cardinúr og þurrkað sér
með Cardinhandklæðum.
Tizkuteiknaranum finnst
ekkert eins spennandi og að
„hanna” fyrir framtiðina. Hann
hefur búið til geimfarahúsgögn
fyrir þýzkt fyrirtæki, sem vinnur
með tölvur. Næsta vor ætlar hann
að sýna framtiðarhönnun sina,
allt frá baðherbergi með öllu til-
heyrandi til kaffivélar.
Cardin fóryfir i iðnaðarhönnun,
eftirað Parisartizkan fór að hafa
minni áhrif. Kollegar hans i
tizkunni láta sér fátt um finnast
um framkvæmdasemi hans. En
Cardin er rólegur og segir, að
fyrir tólf árum hafi hann fyrstur
þeirra komið með fjöldafram-
leiðsluföt og orðið að athlægi
meðal þeirra. „Nú búa þeir allir
til fjöldaframleiðslu. Þeir fara
einnig allir út i hönnunina. Og
þeir eru þegar komnir af stað!
-SB-
riixiNi
I SÍÐAN J
Umsjón:
Svanlaug Baldursdóttir
PASKAINNKAUP
☆
Sömu góðu vörurnur.
Snmu Iúgu verðið.
☆
Meiru úrvol.
Betri búðir.
Meiri broði.
☆
Betri þjónusio.
Sífelld þjónusfu.
xuupimLu,