Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 5
VtSIR. Mánudagur 17. april 1972. 5 í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND É MORGUN ÚTLÖND Umsjón: PORTÚGALAR GERA ARÁSIR A Stjórn Afrikurikisins Tansaniu mótmælir harðlega framferði Portugala, sem stjórnin sakar um að hafa gert loftárásir á landið. Tansaniustjórn segir, að lands- menn muni verja land sitt af fremsta megni. 1 yfirlýsingu i gær er sagt, að Tansania muni halda áfram að aðstoða þjóðfrelsishreyfingar, sem berjast i nýlendum Portú- gala. TANSANIU Portúgalskar herflugvélar hafa siðustu daga skotið á þorp eitt i Suður-Tansaniu, skammt frá landamærum Tansaniu og portúgölsku nýlendunnar Mósambik, að sögn frettamanna i •Daressalaam, höfuðborg Tansaniu. Stjórnin þar segir, að ein portúgölsk flugvél hafi verið skotin niður á föstudaginn. Siðan hafi flugvélar enn skotið á þorpið Kitaya i tvær klukkustundir á laugardag. Einn hermaður hafi heðið bana i þorpinu á föstudag, en ekkert manntjón orðið á laugardag. Haukur Helgason Tvö járnbrautarslys á tveimur dögum Jarðskjálftar í Austurríki Öflugur jarðskjálfti varð i austurhluta Austurrfkis og Vinar- borg i gærmorgun. Jarðskjálftinn mældist 5,5 Richterstig. Manntjón varð ekki, en leiðslur brustu og nokkur hús skemmdust nokkuð. 1 Vin stóð jarðskjálftinn i fimm sekúndur. Myndir duttu af veggj- um. Skelfing greip fólk i fjölbýlis- húsum i bænum Linz, en betur fór, en á horfðist. 85 hafa beðið bana í járnbrautarslysum á 14 mánuðum í Júgóslavíu Nýlega gerð hraðlest rakst á vöruflutninga- iest og fór af sporinu i Júgóslaviu i gær, i þann nuind sem nefnd var að rannsaka tildrög járn- brautarslyss, sem varð á laugardag. i slysinu á laugardag biðu tveir farþegar bana, og 42 slösuðust. Hermenn Norður-Vietnama, skriðdrekar og fótgöngulið i orrustu. Miklar deilur í Bandaríkj- unum um loftórósirnar Bandariskar flugvélar skutu niður þrjár orustuflugvélar fyrir Norður-Vietnam i gær fyrir suðvestan Hanoi höfuðborg N-Vietnam. Bandarikjamenn hafa hafið miklar loftárásir á Norður-Vietnam. Norður-Vietnamar segja, að loftárásirnar á Hanoi og Haip- hong sé tilraun til að neyða þá til að fallast á skilmála Bandarikja- manna þrátt fyrir ,,þá ósigra, sem Bandarikjamenn hafi beðið á vigvöllunum”, eins og það var orðað. Stórar sprengjuflugvélar réð- ust á lið Norður-Vietnama og þjóðfrelsishreyfingarinnar, sem situr um bæinn An Loc, 60 kiló- metra norðan Saigon i S-Vietnam, i gærkvöldi og snemma i morgun. Liðinu hafi ekki tekizt að ná bæn- um eftir bardaga á aðra viku og mörg áhlaup á hann. Her- foringjar i Saigon segja, að norðanmenn séu i þann veginn að hörfa frá An Loe. Chou spáir ósigri Bandarikjamanna. I yfirlýsingu Norður-Vietnama segir, að Bandarikin hafi sent fleiri flugvélar og herskip til Viet- nam og aukið striðið þar i þeim tilgangi að hindra algert skips- brot stefnu Bandarikjastjórnar i Vietnam. Er skorað á ,,andstæð- inga Nixons i Bandarikjunum að koma i veg fyrir, að hann magni striðið”. Chou En-Lai forsætisráðherra Kina sagði i morgun, að loftárásir á Norður-Vietnam gætu ekki komið i veg fyrir ósigur Banda- rikjamanna ilndó-Kina.Hann for- dæmi loftárásirnar á Hanoi og Haiphong og sagði, að ný ævintýr heimsvaldasinna skefldu enga. ,,Hvað munu aðrir halda um Bandarikin” spyr Muskie. Edmund Muskie öldunga- deildarþingmaður sagði i sjón- varpsviðtali i gær, að hann mundi leggja fram ályktunartillögu i deildinni um að stöðva skyldi allan hernað gegn Norður- Vietnam, á landi, sjó og i lofti. lofti. Hann kvaðst mundu hvetja Nixon til að hefja aftur friðar- samninga iParis, en Bandarikja- menn hafa ekki tekið þátt i við- ræðunum þar, siðan sókn kommúnista hófst i Suður-VIet- nam. Muskie sagði einnig, að Banda- rikjamenn ættu að stefna að þvi aðfá N-Vietnama til að láta lausa bandariska striðsfanga gegn lof- orði um algeran brottflutning bandariskra hermanna frá Viet- nam og stöðvum hernaðarað- gerða gegn N-Vietnam. Hann sagði, að Nixon hefði lagt inn á hættubraut með þvi að hefja aftur loftárásir á Nanoi og Haiphong og hefði hann spillt.og jafnvel eyði- lagt, möguleikana á að fá striðs- föngunum sleppt. Muskie spurði hvað fólk i öðrum löndum mundi halda um Bandarikin, þegar þau, öflugasta riki, heims, senda raðir B-52 sprengjuflugvéla til að varpa risasprengjum á litið Asiuriki. Búizt er við, að William Rogers utanríkisráðherra verði spurður spjörunum úr, þegar hann kemur á fund þingnefndar siðdegis i dag. Andstæðingar þátttöku Banda- rikjamanna i Vietnamstriðinu hafa meiri hluta i nefndinni. Yfirleitt munu demókratar á þingi telja það hættulegt og „ábyrgðarlaust” af stjórninni að hefja' loftárasir á borgir N- Vietnam, en þingmenn repú- blikana munu yfirleitt styðja stjórnina. Útvarpið i Hanoi segir, að bandariskar flugvélar hafi gert árásir á þéttbýl hverfi i Hanoi og úthverfi. Ellefu flugvélar hafi verið skotnar viður, segir út- varpið i Hanoi. Suður-Vietnamar segjast hafa hrakið norðanmenn út úr bænum An Loc. bjóðfrelsishreyfing er sögð hafa dregið að hún flagg sitt i útjaðri An Loc, en margir hafa talið, að kommúnistar hyggðust taka bæinn til að gera hann höfuð- borg stjórnar þjóðfrelsishreyf- ingarinnar i S-Vietnam. S-Viet- namar segjast hafa „útrýmt leyniskyttum norðanmanna” i An Loc. Eldsprengjum kastað i Gautaborg. Hanoi og Haiphong urðu fyrir miklum loftárasum i forsetatið Johnsons, áður en hann stöðvaði loftárásir. Sovézkt skip i höfn i Haiphong varð fyrir sprengjubrotum i loft- árásunum, og einn yfirmanna særðist, að sögn fréttastofu Norður-Vietnam. Er sagt, að 30 göt hafi komið á skipsskrokkinn. Sænski utanrikisráðherrann Wickmann mótmælti loftárásum Bandarikjamanna fyrir hönd stjórnarinnar i gær. Mótmælaað- gerðir voru i Sviþjóð. Heimatil- búnum eldsprengjum var i Gautaborg kastað i skrifstofuhús- næði upplýsingaþjónustu Banda- rikjanna, þúsundir ungmenna tóku þátt i mótmælunum, og óku um á mótórhjólum. Nokkrir áhorfendur slösuðust, er ekið var á þá, þar af einn alvarlega. Eldur kviknaði inni i húsinu, en var slökktur, og teppi og legubekkur eyðilögðust. Enginn beið bana i seinna slys- inu. Hraðlest, sem fer milli Bei- grad og Skopiu, ók á vörulest á brautarstöð 120 kilómetrum suð- austan Belgrad. Hraðlestin ók á geymivagn með bútangasi, og var mikil mildi, að leki kom ekki að geymunum. Lestin ók á 30 kiló- metra hraða, þegar áreksturinn varð. Sprengja viðist hafa sprungið i hraðlestinni sem var i förum milli Parisar og Aþenu.á laugardag.en Belgradblað segir, að ókunnugt sé um tildrög slyssins. Fimmtán vagnar fóru af sporinu og ultu. Sex vagnar brunnu til kaldra kola. Alls hafa nú orðið fimm meiri háttar járnbrautarslys i Júgó- slaviu siðustu 14 mánuði. 85 manns biðu bana i þessum slysum. APOLLO GENGUR VEL Ný atómvopn Bandarikjastjórn er að athuga að flytja nýja gerð kjarnorku- vopna til stöðva i Vestur-Evrópu, sem séu „smærri og hreinni” en þau, sem nú eru þar, að sögn Melvin Lairds hermálaráðherra. Stjórnandi ApoIIo 16 geimfarsins John Young (efst i stiganum), Thomas Mattingly (til vinstri) og Charles Duke ganga inn í fariö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.