Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 12

Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 12
* y % mmmm m®m X v' ; » * - ■ ■ 'y *"V* < :íí5Ív ,* x*X. v.V„,-.< ' ■ «*.***■''* V<. :('• '••' - Urvalið vann KR Orvalslið KSÍ sigraöi KR i æfingaleik 1-0 á Melavellinum i gær og var það skemmtilegur og fjörugur leikur, háður viö hinar beztu aðstæður. Kina markið i leiknum var skoraö i siðari hálfleik og átti Guðgeir Leifsson mestan hciður af þvi. Hann þræddi frá miðju gegnum vörn KR, lék á einn KR- ing af öðrum og gaf siðan knött- inn til Hermanns Gunnarsson- ar, sem i opnu færi átti létt með að skora — eins og mynd Bjarn- leifs af atvikinu sýnir vel. Æfingar verða nú hertar hjá landsliðinu undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans skozka, McDowell, en æfingaieikir á milli eins og við verður komið. Baráttan stöðugt Lokabaráttan i ensku deildakeppninni er meö eindæmum tvisýn — og lítið breyttist staöan i leikjunum á laugardaginn hjá efstu liðunum. Derby og Liverpool unnu auð- velda sigra, en Manch.City tapaði þýðingarmiklu stigi i Coventry og kann það að reynast afdrifaríkt fyrir liðið í lokabaráttunni. Smjör&Ostur Hreysti og glaðlyndi úr nestispakkanum. Ostur er alhliða fæðutegund. Úr honum fá börnin eggjahvítuefni (protein), vítamín og nauðsynleg steinefni, þ. á m. óvenju mikið af kalki. Kalkið er nauðsynlegt eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Smjörið veitir þeim A og D vítamín. A vítamín styrkir t. d. sjónina og D vítamín tennurnar. Gefiö þeim smjör og ost í nestið jafn tvísýn Leeds lék i bikarkeppninni og á þvi fleiri leiki eftir en hin efstu liðin. Derby er i efsta sæti i 1. deild með 56 stig og Manch. City er i öðru sæti með 55 stig. Þau hafa bæði leikið 40 leiki — eiga tvo leiki eftir — og mætast innbyrðist á laugardag i Manchester. Liverpool er i þriðja sæti með 54 stig eftir 39 leiki og siðan kemur Leeds með 53 stig eftir 38 leiki og bæði þessi lið eiga aðeins eftir einn heimaleik. t botninum er staðan orðin nær vonlaus hjá Nott. Forest, sem hefur 23 stig og á eftir 3 leiki, og Huddersfield, sem er með 24 stig, og á eftir tvo leiki. C.Palace hefur 26 stig og á eftir þrjá leiki. Onnur lið eru ekki lengur i fallbaráttunni. Derby vann Hudderfield örugglega 3-0 á laugardag, en leikmenn liðsins voru klaufar að tvöfalda ekki þá markatölu, þvi eins og keppnin er nú tvisýn er hvert mark þýðingarmikið og markatala gæti ráðið úrslitum. Roy McFarland og Hector skor- uðu fyrir Derby fljótlega, og O’Hare fyrst i siðari hálfleik, en fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir mikla pressu. Liverpool skoraði eftir aðeins 10 min. gegn West Ham og mistök markvarðar West Ham, Bob Ferguson, áttu sök á þvi marki. Það var Toshack sem skoraði og eftir það réð Liverpool gangi leiksins. Highway skoraði annað mark liðsins, en undir lokin vakn- aði West Ham aðeins til lifsins, án þess þó að ógna Liverpool að ráði. Coventry var betra liðið gegn Manch. City, en þó leit út fyrir, að Manchester-liðið mundi hljóta bæði stigin. Tony Towes skoraði fyrir City á 56 min. og það var ekki fyrr en rétt fyrir leikslok að Mortimer tókst að jafna fyrir Coventry. Manch.City var langt frá sinu bezta og var raunveru- lega heppið að ná öðru stiginu. Tottenham tókst nú loks að sigra Chelsea og þá var um yfir- burðasigur að ræöa. A fyrstu 25 min. leiksins skoraði Tottenham þrisvar — Martin Chivers tvi- vegis og Ralph Coates og er það fyrsta markið, sem Coates skorar fyrir Tottenham i deildakeppn- inni siðan hann var keyptur frá Burnley fyrir 190 þúsund pund. Fleiri urðu mörkin ekki og Chelsea var einnig fyrir þvi áfalli, að Peter Osgood var borinn af leikvelli. Manch. Utd. skoraði þrjú fyrstu mörkin gegn Southampton, Best viti, Ian Moore og Kidd, og 3-0 stóð i hálfleik, en i þeim siðari skoraði Ron Davies tvivegis fyrir Dýrlingana. Úlfarnir töpuðu enn einum leiknum og nú gegn nágrönnum sinum, WBA, á :heimavelli. Tony Brown skoraði eina markið i leiknum strax i byrjun. Markhæstu leik- mennirnir i 1. deild eru nú Francis Lee, Manch.City, og Martin Chivers, Tottenham, með 34 mörk, en markahæsti leik- maðurinn á Englandi er Ted McDougall, Bournemouth, sem skorað hefur 44 mörk i deild og bikar. Efsta liðið i 2. deild Norwich tapaði i Middlesbro og hefur nú aðeins eitt stig umfram Millwall. Bæði liðin hafa leikið 39 leiki og eiga þvi þrjá eftir. Norwich hefur 52 stig, Millwall 51 og Birming- ham kemur svo i þriðja sæti með 48 stig, en hefur leikið tveimur leikjum minna. Liðið hefur þvi enn mikla möguleika aö komast i 1. deild, þvi það hefur mun betri markatölu en efstu liðin tvö. Hreinn úrslita- leikur ÍBK - ÍBV i vonzkuveðri á laugardaginn sigruöu Keflvikingar Vfking 2-1 i meistarkeppni KSÍ og það verður þvi hreinn úrslitaleikur, þegar Keflvikingar og Vestmannaey- ingar mætast i síðasta leik keppn- innar i Keflavfk — sennilega um næstu helgi. Það var eiginlega útilokað að sýna nokkra knattspyrnu eins og veðurhamurinn var á laugardag- inn og ekki bætti það úr skák fyrir Viking, að bezta manni liðsins, Guðgeiri Leifssyni, var visað af leikvelli eftir hálftima leik, en eitthvað orðaskak var milli hans og dómarans, Vals Benediktsson- ar. Vikingar léku þvi 10 það sem eftir var — eða klukkustund. Ekkert mark var skoraö i fyrri hálfleik, en i þeim siðari tókst Keflvikingum tvivegis að senda knöttinn framhjá Eiriki Þor- steinssyni, sem lék i marki Vik- ings, en hann æfir sem kunnugt er með landsliðinu sem miðherji. Undir lokin skoraði Hafliði Pétursson fyrir Viking úr vita- spyrnu. Staðan i meistarakeppninni er nú þannig, að Keflavik hefur fimm stig, Vestmannaeyingar fjögur og eiga einn leik eftir, en Vikingur eitt og hefur lokið leikj- um sinum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.