Vísir - 17.04.1972, Qupperneq 13
VISIR. Mánudagur 17. april 1972.
13
EITT SINN SEM OFTAR fór Rainer Ziech, fimm ára, I feluleik meö
félögum sinum. Og það kom I hans hlut að fela sig. Það hugöist hann
gera verulega vandlega svo féiögum hans tækist ekki að finna hann. I
60 feta djúpri skolplögn ofan i djúpri gryfju faldi hann sig og þóttist
viss um, að þeir findy leikfélagar hans sig ekki. Og hann hafði rétt fyr-
ir sér. Félagar hans gáfust upp á leitinni og gleymdu honum. En þá var
það, að drengurinn uppgötvaði að hann var fastur f rörinu og gat ekki
haggað sér þaöan. t stað þess að stunda feluleik var hann nú farinn ai'«
leika við dauðann. Seint og um siðir fannst hann þó eftir umfangsmikla
leit. Það tók byggingaverkamenn, lögreglu, slökkviliðsmenn og loft-
pressumenn liðlega klukkustund að losa drenginn úr prisundinni. En á
meöan naut drengurinn þess, að hafa hjálm eins og slökkviliðsmanns-
ins á höföi sér. Hér eftir kveðst Reynir litli ætla bara að leika sér f
brunaleik.
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
X g
s . —_^r>?Smurbraudstofan |
X
5?
x
X
X
X
X
&CXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
BJQRNINN
Njálsgata 49 Síml 15105
DAUÐAREFSING
FYRIR FiKNI-
LYFJAMORÐ
Forseti Filippseyja, Ferdinand
Marco, hefur undirritað lög, sem
innleiða dauðarefsingu á hendur
þeim fiknilyfjasölum, sem finnast
sekir að fiknilyfjadauða
„viðskiptavina”. Lögin hafa enn-
fremur i för með sér enn strang-
ari refsingar en áður fyrir fikni-
lyfjasmygl — neyzlu eöa sölu.
Ætti að vera
orðin móðir
81. barns...
Margt hafa frönsk blöð
slúðrað um EHsabetu Eng-
landsdrottningu.
Elisabet Bretadrottning verður
að taka sig saman i andlitinu
áður en hún heldur til Frakk-
lands. Frakkar hafa nefnilega
gerð sér æði margar hugmyndir
um drottninguna, sem ekki fá
staöizt i raunveruleikanum.
I öllu falli þótti brezka dag-
blaði „Sunday Times” tilhlýði-
legt að vara drottninguna við,
en þeir á blaðinu hafa tekið
saman lista yfir hinar ýmsu
slúðursagnir franskra blaða um
Elisabetu.
Listinn veitir m.a. þær upp-
lýsingar, að frönsk blöð hafa 92
sinnum sagt drottninguna
ófriska, en fósturláti hafi hún
aðeins orðið fyrir niu sinnum.
Og ellefu sinnum hafa blöðin
skýrt svo frá, aö Elisabet
drottning væri á barmi glötunar
sökum pilluáts. En sem betur
fer upplýsa kunnugir, að þetta
sé alltsaman tómt blaöur.
Þá hafa frönsk blöð upplýst,
að drottningin hafi móðgað
Persakeisara ellefu sinnum,
Grace furstynju af Monaco sex
sinnum, en hins vegar hafi hún
ekki skapraunað Fabiolu
Belgiudrottningu verulega
nema tvisvar. Annað slúður um
Betu hefur gengið út á, að hún
hafi verið að þvi komin að falla
saman af taugastrekkingi 32
sinnum og 70 sinnum hafa
frönsku blöðin lýst þvi yfir, að
hjúskapur drottningar væri far-
inn norður og niður.
Nú,og svo má ekki gleyma
þvi, að frönsk dagblöð hafa 27
sinnum birt fregnir af banatil-
ræðum, sem drottningu
hafi verið sýnd. Fregnir, sem
hafa verið gjörsamlega úr lausu
lofti gripnar.
VOPNIÐ JÓ-JÓl
Hið svokallaða jó-jó hefur um
langan aldur verið vinsælt leik-
fang i mörgum löndum heims og
þá ekki hvað sizt i Bretlandi,
þar sem það i fyrstu bar nafnið
„bandkeila”.
En brezkir voru ekki fyrstir til
að meðhöndla jó-jó, Filipps-ey-
ingar höfðu notað slikt verkfæri
sem vopn frá þvi tveim öldum
áður en það kom fyrst til Bret-
lands.
Miklar bardagahetjur höfðu
einkar mikið dálæti á þessu
vopni og kunnu vel að beita þvi.
Vopn þetta vóg venjulega upp
undir eitt pund og bandið i þvi
ýmist þrir til fjórir metrar að
lengd. Og aðalkosturinn við
þetta vopn var auðvitað það, að
steinninn kom til baka eftir að
hafa rotað óvininn. „Yo-yo” er
úr málýsku Filippseyinga og
þýðir „komdu-komdu”.
Bjóðum aðeins
það bezta
JANE HELLEN
varalitir 3 nýir litir
Háralitur, mikið úrval,
hárnæring
hárlakk
permanent,
hárlagningarvökvi,
ilmvötn,
Dior ilmvötn,
Dior stenkvötn,
COTY og MAX-
FACTOR.
Auk þess bjóðum við
viðskiptavinum vorum
sérfræðilega aðstoð við
val á snyrtivörum.
Snyrtivörubúðin
Laugavegi 76, simi 12275.
N.L.F. búðirnar auglýsa
eftir eftirtöldu
starfsfólki
1. Bakari óskast strax i nýtt bakari eða
maður vanur slikum störfum, góð laun.
2. Vön afgreiðslustúlka óskast.
3. Maður óskast til lagerstarfa og út-
keyrslu. Simar 10262 og 10263, simar á
kvöldin 40363 og 26735.
Húsvarðarstarf
Norræna Húsið óskar að ráða i þjónustu
sina hjón til húsvarðarstarfa og ræstinga,
þurfa að hafa bil til umráða.
Húsnæði fylgir ekki. Skriflegar umsókm
skulu hafa borist Norræna Húsinu fyrir
april.
Starfið veitist frá 1. mai.
Norræna Húsið.
EYÐUBLAÐATÆKNI
Námskeið i eyðublaðatækni verður haldið
að Skipholti 37, dagana 24.-25.-26.-27. og
28. april n.k. kl. 9-12 f.h.
Stuðst verður við nýútkominn staðal um
grunnmynd eyðublaða.
Efni m.a.r.Prentverk, mælikerfi, efni, let-
ur, setning. Pappirsstaðlar, teikning og
gerð eyðublaða.
Sérstök áherzla verður lögð á verklegar
æfingar.
Leiðbeinandi: Sverrir Júliusson rekstrar-
hagfræðingur. Þátttkaka tilkynnist fyrir
20. april i sima 82930.