Vísir - 27.04.1972, Síða 1
VÍSIR
Merkur fornleifafundur
— Legsteinn Skúla jarls fundinn
Kominn er á daginn i Noregi
legsteinn, merkur fornleifa-
fundur, og viröist hann vera af
gröf Skúla hertoga. Skúli her-
togi var góður vinur Snorra
Sturlusonar og segir svo um þá
fóstbræður: „Snorri karlinn
kunni að svalla, og bæta rekka
snjalla, er húmi tók að halla, i
höllu Skúla jarls.” Það hefur
verið líf i tuskunum þá ekki
siður en nú. — Sjá nánar um
þennan merka fornleifafund á
BAKStÐU.
62. árg. Fimmtudagur 27. aprfl. 1972. 95. tbl.
Pólifískf þukl
Mjög hefur verið rætt um
hina „pólitisku þuklara” að
undanförnu. Fossvogsbúi
einn segir i lesendabréfi i
dag frá viðskiptum sinum
við húsnæðismálastjórn fyrir
nokkrum árum. Kveðst hann
gjarnan vilja koma fram i
dagsljósið og gefa skýrslu
um það sem gerðist þá. Telur
hann að þar hafi pólitiskt
þukl verið á ferðinni. — Sjá
bls. 2
DDDB
Hraunið sem
hvarf
Hraunið sem hvarf — hraun-
ið við Hafnarfjörð, sem sagt
hefur verið frá i Visi, er tekið
til umræðu i leiðara blaðsins
i dag. Málið hefur vakið
mikla athygli og umræður.
En geta menn verið með eitt-
hvert röfl út af þvi að hrauni
sé breytt i byggingalóðir?
„Náttúrunni hefur verið sýnt
tillitsleysi i uppbyggingu
þessa hverfis,” segir i
leiðaranum — Sjá bls. 6
DDDD
Misskilm
aðvörunarljós
A nýrri bilum eru svokölluð
aðvörunarljós, — fjögur
samvirk ljós á öllum hornum
bilsins. Blikka þau i sifellu,
þegar þau eru sett á, t.d. er
springur úti á þjóðmegi eða
eitthvað þvi um likt. Hins-
vegar hafa ökumenn ekki
skilning á notkun slíkra ljósa
og nota þau i sifellu og á lög-
reglan i basli með ökumenn
út af þessari misnotkun. —
Sjá bls. 3
DDOD
Kastað í
gullkistuna
Hvernig lita veiðilendur tog-
aranna í raun og veru út? Við
fengum að láni strimil úr
bergmálsdýptarmælinum
hans Halldórs Halldórssonar
á Mai. Þar sést fisktorfan
sem hann fékk 50 tonna kast
úr einum litlum 5 minútum,
— sannkölluö gullkista það!
— Sjá bls. 2
DDDD
Drepa heimamenn Mývatn?
frá gufuaflsstöðinni væri 100
gráðu heittog rynni beina leið út i
Mývatn. „Það má ekki breyta svo
nokkru nemi hitastigi vatnsins
svo >að spillist ekki” bætti
Guðmundur við.
Það var félag náttúrufræði-
nema og stúdentafélagið Verð-
andi sem boðuðu til fundar um
verndun Láxár og Mývatns. í
stuttu máli má segja að nú þegar
verður að gera róttækar
ráðstafanir til að bjarga vatninu
frá stórskemmdum ef ekki
algerri eyðileggingu.
„Það þarf að taka fyrir alla
oliukyndingu og oliunotkun.
Margt annað en að hrinda af
höndum sér virkjunum er nauð-
synlegt til að bjarga Mývatni”
sagði Jónas Jónsson ráðunautur.
Astandið virðist orðið þannig, að
vegna stöðugs frárennslis frá
gufuaflsstöðinni og hitaveitunni,
vegna meiri eða minni oliu-
mengunar, vegna þess að vatnið
grynnkar stöðugt og siðast en
ekki sizt vegna sivaxandi fjölda
ibúa við Mývatn verði nú þegar i
sumar að hefja einhverjar að-
gerðir.
Finnur Guðmundsson gagn-
rýndi harðlega þær fyrirætlanir
að reisa við Mývatn alþjóðlegan
heilsubaðstað. Slikt væri fáran-
Iegt þvi þá væri gefið mál að
vatnið myndi deyja á skömmum
tima. Ef til vi 11 stafar vatninu
mest hætta af fjölgun ibúa
Mývatnssveitar, sagði Finnur.
Jón B. Sigurðsson, náttúrufræði-
nemi, kvað ferðamannastraum-
inn orðinn til stórvandræða.
Ekkert skipulag væri rikjandi
gagnvart þessum fjölda, til
dæmis eftirlit með þeim eða tak-
markanir að vissum svæðum.
Það þyrfti þegar i stað að skipa
eftirlitsmenn við vatnið sem
fylgdust með gerðum ferða-
manna og gættu þess að þeir yllu
ekki tjóni.
Vegna sivaxandi fjölgunar ibúa
sveitarinnar, ekki sizt eftir
tilkomu Kisilverksmiðjunnar
hefur frárennsli sem blandað er
sterkum þvottaefnum vaxið
gifurlega. Guðmundur G.
Þórarinsson taldi að koma yrði
upp hreinsistöð eins fljótt og unnt
væri, sem safnaði öllu frárennsli
saman og hreinsaði. Rætt var um
að frárennslisvandamálið væri
komið á hættulegt stig þegar
ibúar væru komnir um eða yfir
500. Jónas Jónsson upplýsti að
ibúar væru nú liðlega 400 talsins
svo ekki væri langur timi til
stefnu ef marka ætti þessar upp-
lýsingar. Allir þeir sem tóku til
máls voru sammála um að nú
þegar yrði að koma upp ranns-
óknarstöð við vatnið.
—SG.
Gripa þarf tii aðgerða nú þegar
Frórennsli hitaveitunnar stórhœttulegt
„Þrátt fyrir eindregnar við-
varanir og mótmæli liffræðings,
sem fenginn var til að rannsaka
Mývatn, gerðu Mývetningar hita-
veitu sina þannig úr garöi að allt
frárennsli hennar rennur út I
vatnið. Þetta getur orðið stór-
hættulegt fyrir Mývatn" sagði dr.
Finnur Guðmundsson á fundi að
Hótel Sögu i gærkvöldi.
Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur sagði að frárennsli
„Já, við erum oft hérna ibátaleik”, sögðu þeir og skriktu af kæti um leið og þeir toguðu af öllum mætti
i Gamla Magna án þess þó að hagga honum. Hann er lika allmörg tonn áþyngd sligaöur af allri þeirri stein-
steypu, sem hann er fullur af til að koma að gagni sem flotbryggja. Sennilega verða strákarnir að reyna
til við einhverja minni báta og meðfærilegri......
vinnuviku"
„Ánœgð með 3ja daga
— en vildi ekki vinna þannig œvilangt
— segir Svala Thorlacíus fréttamaður sjónvarps
„Við erum öll mj'ig ánægð
með þetta fyrirkomulag, að
vinna þrjá daga i viku, tólf
klukkustundir á dag. Þó held
ég að ég vildi ekki hafa þetta
ævilangt. óneitanlega erum við
oröin þreytt eftir þessa þriggja
daga lotu,” segir Svala
Thorlacius, fréttamaður sjón-
varpsins um „þriggja daga
vinnuvikuna”.
„Vissulega er þetta heppilegt
fyrir konur, sem vinna úti,”
segir hún. „Fyrir mig til dæmis
fylgir sá kostur, að við hjónin
þurfum ekki að fá barnagæzlu
nema tvo eftirmiðdaga i viku,
þvi að min vinna kemur oft um
helgar.B Svala er gift Gylfa
Thorlacius lögfræðingi. Svala
sagðist hafa verið að mála húsið
sitt i siðasta friinu.
„Ég vildi, að allt þjóðfélagið
væri skipulagt I vaktavinnu”,
segir Sonja Diego fréttamaður
sjónvarpsins. „Þetta fyrir-
komulag gefur góða möguleika
til annarra hluta, en fyrir okkur
i erlendum málefnum er yfir-
leitt ekki hægt að fara neinar
langferðir, þvi að við vinnum
að þáttum á milli.”
Fréttamenn sjónvarpsins
vinna til skiptis tvo og þrjá
daga i einu, og meðaltalið eru
þrir i viku. Þeir hafa rutt braut,
sem aðrir þjóðfélagsþegnar
munu kannski ganga innan
skamms.
SJA GREIN BLS. 6
Hœtt við
frekari
virkjun Laxár?
— Sjá baksíðu
DDDD
Gagnslausar
varúðarráð-
stafanir
—Sjá baksíðu