Vísir - 03.06.1972, Page 7

Vísir - 03.06.1972, Page 7
VÍSIR. Laugardagur 3. júni 1972 7 cyWenningarmál Vissulega er nauðsynlegt að gera enn meiri átök i uppbygg- ingu almenns tónlistarlifs i land- inu, sem réttlætir rekstur sin- fóniuhljómsveitar til frambúðar. bessi sveit ætti að vera kórónan á islenzkri tónmenningu. Til þess verður hún að fá að vaxa eðlilega, og það kostar nokkurt fé, — rúma eina milljón á ári næstu árin. Breyttir starfshættir Ég vil nota tækifærið og benda einu sinni enn á þá miklu þörf á endurskipulagningu á starfsemi St sem knýjandi er. Einhliða áskriftartónleikar, 2 á mánuði i Reykjavik, réttlæta varla nafnið Sinfóniuhljómsveit tslands. Nokkrir tónleikar utan Reykjavikur i nærliggjandi sveit- um, og stök ferð til Akureyrar og Egilsstaða, breytir engu þar um. ■ Seinni grein eftir ■ : Stefán Edelstein : ■ ■ ■ ■ Róttækar breytingar þurfa að koma til. Fækka ber áskriftartón- leikum i Reykjavik að mun, en auka framboðið úti á landi. Um leið þarf að auka sveigjanleika St þannig, að hluti hennar geti leikið i Reykjavik, en hluti úti á landi (t.d. strengir og blásarar aðskild- ir, eða ýmsar gerðir kammer- sveita). Fjölga þarf skólatónleik- um og fjölskyldutónleikum. Stór- Að lokinni tónlistarvertíð: Listahátíð og tónlistarlífið HUÓ.MUST I.EÍKI.IST UÓKHENNTIIi US'i'UANS MY.VmdST 4 (ii »5> Júni 197S Listahálíð í Hejiyavík ! Listaháiíð í Reykjavík auka þarf möguleika islenzkra hljóðfæraleikara til að halda tón- leika úti á landi og i Reykjavik, svo og koma fram sem einleikar- ar með St. Allt þetta krefst gagngerrar endurskoöunar og breytinga á starfsháttum St. Sveigjanleiki starfsfyrirkomulagsins er grund- vallarskilyrði til þess, að slikar umbætur geti orðið að veruleika. Þökk fyrir skammir bar sem ég mun nú hætta að skrifa i Visi i bili, vil ég i lokin þakka þeim, sem nennt hafa að lesa þetta krot mitt og jafnvel hringt i mig út af grein og grein. Einnig þeim, sem hringt hafa til að skamma mig. Slikt er mikil uppörvun, þvi þá sannast það sem ég sagði i upphafi: List er og á að vera hitamál. Undanfariö hefur margt veriðrætt um kosti og galla listahátíðarinnar sem fer i hönd(fyrir stöðu og starf ís- lenzkrar lístmenningar og listamanna. Svo langt hef- ur verið gengið að segja hátið sem þessa líklegri til að drepa niður innlent framtak i listum en að efla það. Ég tel að hyggilegra væri að fara varlega i þessar sakir. Að- eins reynslan getur skorið úr gildi islenzkrar listahátiðar — og til þess er reynsla af einni hátið eða tveimur ekki nóg. En kostir „alþjóðlegra” lista- hátiða sem þeirrar.sem nú er að hefjast hér á landi.eru augljósir: þangað kemur ágætt listafólk er- lendis frátjafnvel framúrskarandi snillingar, og aðeins hið bezta efni er framreitt á dagskránni. Fólk fær tækifæri til að velja úr þess- um alþjóðlega matseðli, það sem þvi lizt bezt a, við mjög vægu verði, a.m.k. miðað við erlendar hliðstæður listahátiðarinnar. Og hlutur islenzkrar listar og lista- manna á hátiðinni er ekki litill. Ég efast um að slikt átak sem þetta kæmi til — væri ekki lista- hátiðin driffjöður. Listin er ekki spari-vara En ókostirnir, eða hættur lista- hátiðar, eru lika augljósir. Hætt er við að raskist hlutföll hins' is- lenzka og erlenda efnis á hátið- inni, að islenzkt framlag falli i skuggann af þvi erlenda, hátiðin verði tviskipt i eðli sinu á milli is- lenzks efnis og erlends, en sam- verkan og vixlverkan listgreina og listafólks fari út um þúfur. önnur hætta: listin er höfð ,,til spari” á hátiðinni, menn setja upp svip og „njóta” listar andaktugir i tvær vikur — en heldur ekki deginum lengur. bessi spari-hugmynd um listina ber hættu i skauti sér. bað væri illa ráðið að reyna að likja eftir þeim ósköpum sem t.d. Wagner- hátiðin i Bayreuth og Mozart- hátiðin i Salzburg eru orðnar: leikvöllur snobba og peninga- manna, fullkomið neytendakerfi fyrir „jet-set” tónlistarheimsins. Heilbrigð skynsemi og hátiðin betta er annað sinn sem lista- hátið er haldin i Reykjavik i þess- ari mynd. Framtiðar-árangur listahátiðar er undir þvi kominn hvort tekst að gera hana að lyfti- stöng islenzku listalifi, einnig á milli hátiða. Til að það megi tak- ast er nauðsynlegt að leggja enn meiri áherzlu á islenzkt framlag til hátiðarinnar, bæði i sköpun og túlkun, sem svo má „punta upp á” með framúrskarandi erlendu efni. Ef litið er á efnisskrána i heild, hygg ég, að ósanngjarnt væri að áfellast listahátiðarnefnd fyrir „óþjóðlega” stefnu eða van- rækslu i þessum efnum. Hlutföllin erlent/innlent eru ekki óhagstæð, og mun hagstæðari en gerist sums staðar erlendis. En árangur listahátiðar er einnig undir innri afstööu kominn: Við verðum að losa okkur undan þeim fjötrum að einblina á ofurmagn hins ,,út- lenda”, en vanmeta hið „inn- lenda” af.minnimáttarkennd og eyjaskeggjahætti. Hins vegar er hér kærkomið tækifæri til að gagnrýna ákveðna þætti hátiðarinnar. Hvað Sin- fóniuhljómsveit Islands viðkem- ur, hlevpur greinilegur ofvöxtur i sveitina þessa tiu daga sem hátið- in stendur. Allt i einu sér enginn eftir þvi að greiða laun til auka- hljóðfæraleikara og gera hana sem bezt úr garði við þetta tæki- færi. Nú á hún að brillera og glaqsa, nú rikja alþjóðlegir mæli- kvarðar. Er þetta heilbrigt, skyn- samlegt, réttlátt? bessi afstaða vekur þann grun, að dubba eigi hljómsveitina upp „til spari” meðan á hátið stendur, en að þvi loknu taki hversdagslif aftur við. Hér er eitthvert ósam- ræmi á ferðinni. Hátiðarframlag hins opinbera til S1 (með f jölgun á hljóðfæraleikurum) felur i sér viðurkenningu á þeirri staðreynd að Sí er ekki fullskipuð undir venjulegum kringumstæðum. bað er einmitt þetta sem kemur manni til að efast um skilning og innsæi stjórnunaraðila og fjár- veitingarvalds. Sí er sem stendur eins og væng- stýfður fugl. bað vantar a.m.k. 4, ef ekki 6 fyrstu fiðlur og 4 aðrar fiðlur, 2 knéfiðlur og ýmislegt fleira. Hógvær áætlun um upp- byggingu sveitarinnar hefur lengi légið fyrir, en engin jákvæð ákvöðun verið tekin enn. Enginn biður um 10 fasta viðbótarhljóð- færaleikara á einu ári. bað væri óraunhæft, ef miðað er við að- stæður okkar. En að biðja um 10 manns á 5-7 árum er raunhæft.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.