Vísir - 03.06.1972, Side 8

Vísir - 03.06.1972, Side 8
8 VÍSIR. Laugardagur 3. júní 1972 ÁSTA SÓLULJA OG RÓSIRNAR ERU VINSÆLUST í DAG Litið inn á gróðursýningu í Sigtúni Umsjón: Edda Andrésdóttir Eitt af allra vinsælustu blóm- unum i dag er Asta Sóllilja, það blóm sem kom á markaðinn á afmælisdegi Eaxncss og var skírt þá af framleiðanda Sól- lilja, en l.axness sjálfur bætti Astu við. Asta Sóllilja er ræktuð i Mos- fellssveitinni eins og öll þau blóm, sem nú eru á sýningunni i gróðurhúsinu við Sigtún. Visismenn litu þar inn fyrir forvitnissakir og fengu upplýs- ingar um hlómin og ýmsar að- fcrðir til þess að halda þeim sem lengst lifandi. Þar fengum við cinnig þær upplýsingar, að Asta Sóllilja seldist einna mest af öllum blómum i dag, og hún er svo lifseig, að hún getur stað- ið allt upp i fjórar vikur. En rétt meðferð hefur mikið að segja, og stærsta atriðið er að skipta sem oftast og jafnast á vatninu. Sýningin hófst sem kunnugt er á föstudag, og lýkur henni nú á sunnudaginn. Daninn Jess Berrit, sem tvisvar sinnum hef- ur orðið Danmerkurmeistari i blómaskreytingum, hefur á hverju kvöldi verið staddur i gróðurhúsinu og sýnt þar al- menningi ýmsar blómaskreyt- ingar. Hann hefur kennt fólki, hvernig hægt er að auka á til- breytingu blómanna með þvi að raöa mörgum tegundum saman á ýmsa vegu. Til dæmis að raða ekki aðeins rósum i einn vasa, heldur að hafa einhverja aðra tegund með og svo framvegis. En svo vikið sé að rósum, og þó að Asta Sóllilja veki mesta aðdáun fólksins þessa dagana, þá heilla rósirnar stöðugt og mjög mikið selst af þeim. Rósunum er lika komið fyrir á mörgum stöðum á sýningunni. Ef rósirnar hljóta rétta með- ferð, geta þær staðið mjög lengi, allt upp i 14 daga, ef ekki lengur. Ýmsar húsmæður og auðvitað aðrir, sem hafa stillt rósum i vasa á heimili sinu, hafa kvart- að yfir þvi að þær standi aldrei lengur en 3—4 daga. Það er þá aðeins vegna þess, að fólk þekk- ir ekki réttu aðferðina til þess að gera þær langlifari. Þess má geta, að rósir á sýn- ingunni, sem hlotið hafa hina réttu meðferð, sem Jess Berrit hefur sýnt i sýnikennslu sinni, hafa staðið i 12daga, þrátt fyrir hinn ógurlega hita sem þar er rikjandi þegar sólin skin, stund- um allt upp i 40 stiga hiti. Glæsileg borðskreyting, rósir og crysur hafðar saman. Þær eru fallegar og alltaf jafnvinsælar rauðu rósirnar, og ilmur- inn er góður. BLÓMA- OG GARÐYRKJUSÝNINGUNNI í GRÓÐURHÚSINU VIÐ SIGTÚN LÝKUR SUNNUDAGINN 4. JÚNÍ KOMIÐ OG SJÁIÐ TVO SNJÖLLUSTU BLÓMASKREYTINGA' MENN EVRÓPU SÝNA SNILLI SÍNA SÝND VERÐUR SÉRSTÖK ÚTFÆRSLA Á STÚDENTA- BLÓMAVÖNDUM EVRÓPUMBSTARINN ER KOMINN Stilkurinná afskornum rósum er soðinn i 20 sek. Siðan er þeim skellt i kalt vatn og látnar standa i ca. 10 cm háu vatni eða hærra, ef rósirnar eru þvi stærri, en áður er stilkurinn skorinn skáhallt. Þess verður að gæta mjög vel að'láta rósirnar aldrei ná að þorna, þvi þá myndast loft innan i stilknum, sem gerir það að verkum, að þær deyja fyrr. Crysantemur eru einnig soðn- ar og yfirleitt öll trjákennd blóm og gróður. Þess má einnig geta, að Dan- merkurmeistarinn Jess Berrit er mjög ánægður með islenzku blómin og segist yfirleitt aldrei hafa séð eins falleg og góð blóm og hér á landi. En svo er aðeins að vita, hvað Evrópumeistar- inn, Holger Kristianssen, sem væntanlegur var til landsins i morgun, segir um islenzku blómih. Hann mun einnig hafa sýnikennslu i gróðurhúsinu i Sigtúni, og seinni part dags á morgun verður i miklu að snú- ast i kennslunni. En það eru fleiri blóm en vasa-og inniblóm á sýningunni. t garðinum fyrir utan hefur Svavar Kjærnested komið upp sýningarreit og þar sýnir hann almenningi skipulag og meðferð gróðurs i skrúðgörðum. ,,En það má alls ekki lita á þennan sýningarreit sem skrúð- garð”, segir Svavar. ,,Maður verður að lita á þetta eins og húsgagnaframleiðandi óskar eftir að litið sé á húsgagnasýn- ingu sina. Það má ekki iita á þess háttar sýningu sem heild, heldur virðir fólk fyrir sér einn stól, eitt borð og svo framvegis. Það gegnir sama máli með gróðurinn. Hann er ekki ein heild, heldur á að virða fyrir sér beðin, eitt og eitt eða tvö og tvö i einu.” Eftir þeim upplýsingum, sem við höfum aflað okkur hjá Svavari Kjærnested, er það fyrsta, sem fólk þarf að hugsa 'um, áður en komið er upp skrúðgarði, skipulagið. Allt þarf að vera mjög vel skipulagt, svo ekkert fari úrskeiðis, og allur undirbúningur þarf að vera mjög vandaður. Þýðingarmesta atriðið er sem gefur að skilja jarðvegurinn. Það hefur oft far- iðsvo, að fólk hefur keypt mikla mold og talið sér trú um, að það væri góð mold, en siðan hefur orðið að flytja hana alla i burtu, þvi hún hefur ekki staðið i stöðu sinni. Um jarðveginn er hægt að afla sér upplýsinga hjá Skrúð- garðafélagi Rvikur, sem mjög bráðlega mun hafa sérstakan tima á degi hverjum til þess að veita fólki þær upplýsingar, sem þörf er á. En svo vikið sé aftur að upp- komu skrúðgarðs, þarf einnig að gæta þess, að húsið og garð- urinn fari saman, og svo þarf margt að athuga i sambandi við legu garðsins gagnvart sólarátt. Eitt af þvi vinsælasta i skrúð- görðum þessa dagana eru lim- gerðin, og ber þá fyrst að nefna brekkuviðinn. Hann hefur einn- ig reynzt mjög vel, og yfirleitt er islenzkt birki mjög harðgert og stendur sig vel. Skrautrunn- ar eru einnig ofarlega á vin- sældalistanum, og þá aðallega hinn svokallaði misþilt, sem er sérstaklega fallegur að hausti til, og svo einnig hinn blómstrandi birkikvistur. En af sumarblómunum eru það stjúpmæðurnar, sem seljast hvað mest og bezt á hverju ein- asta vori. En sjón er sögu rikari, og þess skai aftur getið að lokum, að sýningunni i gróðurhúsinu i Sig- túni lýkur á sunnudag. - EA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.