Vísir - 03.06.1972, Síða 16

Vísir - 03.06.1972, Síða 16
vism Laugardagur 3. júnl 1972 Setudómari í Teigsmálinu Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu hefur ákveöið að víkja sæti I deilumáli ábilanda jarðar- innar Teigs og Hitaveitu Reykja- víkur út af hitaveituréttindum. Astæðan mun vera sú aö núver- andi eigandi Teigs keypti jörðina I þrennu lagi og mun vera ósam- ræmi i þinglýsingum embættisins á skjölunum. Dómsmálaráðu- neytið mun því þurfa að skipa setudómara I málinu áöur en þvi vcröur fram haldið. —SG Nú verður kannski Einn slosast - ellefu kunna því oð verða af Grœnkmdsferð - Starfsmaður í kerskóla Álversins brenndist á handleggjum og andliti af völdum gasbruna Þaö vinnuslys varð i kerskál- anum i Straumsvik sl. þriðju- dag, að starfsmaöur brenndist illa á upphandiegg og andliti. „Það er auövitaö fyrst og fremst af velvilja I hans garð, sem við vinnufélagar óskum þess, aö hann verði vinnufær á nýjan leik strax á morgun, en það á Hka stóran þátt i þeirri ósk okkar, aö verði hann frá vinnu lengur verður vaktin af Græn- landsferð, sem við höfum nær unnið til vegna slysaleysis I samfleytt citt og hálf ár,”sagði einn starfsmanna kerskálans. „Það er rétt. Við hðfum staðið fyrir samkeppnum af þessu tagi siöustu þrjú árin og talið þær eiga stóran þátt i þvi, að vinnu- slysum fækkaði úr 38 i 15 i fyrra frá árinu áður,” sagði Agúst Þorsteinsson öryggisfulltrúi Al- versins i viðtali við Visi i gær- morgun. „Okkur hefur verið legið á hálsi i einstaka blöðum fyrir annarlegan tilgang” með þessu, en þar sem þessar keppnir hafa veriö árangurs- rikar, bæði hér við Alverið og eins erlendis, þar sem sami háttur er hafður á, teljum við enga ástæðu til að leggja árar i bát. Samkeppnirnar stuðla að þvi, að starfsmennirnir hugsi meira um öryggið en ella. Aldrei er öryggið brýnt of vel fyrir mönnum, segir Agúst enn- fremur. Og hann heldur áfram: „Einmitt I dag drögum við úr réttum úrlausnum i getraun, sem við efndum til meðal starfsmannanna. Þátttakan var 50 prósent, sem má kallast gott. Getraunin var fólgin i þvi að fara gegnum nokkrar myndir, sem dreift var, og finna út hvar skorti á öryggi verka- manna, sem myndirnar sýndu.” Vinnuslysið, sem átti sér staö i kerskálanum siðastliðinn þriðjudag, varð með þeim hætti, að starfsmaðurinn ók yfir gas- slöngu og sprengdi hana. Brenndist hann svo, er kviknað hafði i gasinu. Gasið var verið að nota til að hita upp 20 ker, sem verið var að taka i notkun á nýjan leik. Svipað slys i steypuskála Al- versins i septembermánuði siðastliðnum felldi úr keppninni þá vakt, sem i fyrra hlaut Grænlandsferð fyrir slysaleysi. —Þim hœgt að ná i lœkni: Lœknaþjónustan léleg segir Halldór Steinsen, lœknir „Astandiö varðandi lækna- vaktþjónustuna er jú nokkuö slæmt, og það vill oft koma fyrir, að fólk veröur að bíða ótimabæra bið eftir læknishjálp, og þaö má margt gera til þess að stytta þennan biðtima.” Svo segir Halldór Steinsen læknir, en hann lagði fram tillögu varðandi bætta læknavaktþjón- ustu á fundi heilbrigðismálaráðs fyrir nokkru. Undanfariö hafa fariö fram við- ræöur milli Læknafélags Reykja- vikur og Sjúkrasamlags Reykja- vikur um bætta vaktþjónustu, en ekkert ákveöið hefur komið þar fram ennþá. I tillögunni er meðal annars lagt til, að tekin verði upp þjónusta, sem gefi almenningi kostá að leita ráða hjá lækni sim- leiðis, að kvöld- og næturlagi. „Bærinn fer ört stækkandi”, sagði Halldór ennfremur, ,,og þvi legg ég til, aö á vakt sé einn ráðgefandi læknir, þvi aö af koll- egum minum skilst mér, að tölu- vert af heimsóknum á næturvakt sé fólk, sem aðeins er komið til þess að leita ráða. Þessi ráð- gefandi læknir mundi einnig taka við vitjanabeiðnum og siðan sort- era þær og flokka og beina vakt- læknum þangað, sem brýn væri þörf hverju sinni.” Meö þessum hætti væri hægt að stytta biðtima bráðveikra sjúkl- inga eftir lækni og einnig flutningstima á sjúkrahús, væri sjúkrabill sendur samtimis lækni, þegar þess væri þörf. Vandamál eru oft þess háttar, aö þau má leysa I simtali, og einnig gæti þessi þjónusta orðið til þess, að hægt væri að fækka vitjunum. t tillögunni er lagt til að starfsemi þessi fái húsnæði i Slökkvistöð Reykjavikur, þar sem er gott húspláss og þar sem gott væri að koma þar fyrir slikri þjónustu —EA ...og bang'. Beint I vinstri hliö bilsins og ýtti honum út af veginum... Eggið kennir hœnunni Air Bahama grœðir upp tap Loftleiða A aðalfundi Loftleiða kom fram, að rekstrartap félagsins nam á sl. ári 19,5 milljónum króna eftir að afskrifaðar höfðu veriö liðlega 218 milljónir. Það kom einnig fram, að dótturfyrir- tæki Loftleiða, International Air Bahaina. skilaði hagnaði, sem nam 20 milljónum króna á liðnu ári. Þetta santiar undantekn- inguna frá reglunni, þvi máls- hátturinn „sjaldan launar kálfur ofeldi" á auðsjáanlega ekki við urn IAB. Heildarvelta Loftleiða i fyrra var 2.8 milljarðar og félagið flutti samtals 300 þúsund farþega, sem er 5.8% aukning frá árinu áður. Þrátt fyrir fargjaldastrið og harðnandi samkeppni voru for- ráðamenn Loftleiða bjartsýnir á framtið félagsins, en ræddu um að gæta þyrfti ýtrustu hag- kvæmni i öllum rekstri. Kristján Guðlaugsson var endurkjörinn stjórnarformaður Loftleiða. —SG Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns ólafssonar veröur opnuð n.k. sunnudag i Listasafni rikisins i tilefni af Listahátið, og verður aðgangur ókeypis. Þarna eru verk allt frá árinu 1934 til dagsins i dag, og mörg verkanna hafa ekki fyrr komiö á sýningu. Þá verður einnig opnuð á sunnudag sýning á vegum Listasafnsins i Kjarvalshúsinu við Sæbraut á andlitsmyndum eftir Kjarval. Báðar sýningarnar eru opnar frá 10-2. —ÞS Sigurjón sýnir „ÍOg er sá bjartsýnismaður að halda, að dýraspitala megi koma á laggirnar á stuttum tima. ef bara á annaö borð er ráðizt i að fá undir hann lóð og reka fyrstu skóflustunguna þar i jörðu,” sagði Marteinn Skaftfells for- niaður I)ýra verndunarfélags ísland i viðtali við Visi i gær. Hann kvað það raunar hafa verið einna efst á blaði sambands dýra verndunarfélaga hérlendis i hart- nær tuttugu ár að koma á fót dýraspitala, fjárhagsöröugleikar heföu bara hindrað fram- kvæmdir. VAR AÐ STILLA ÚTVARPSTÆKIÐ! „Hvað er að manninum eigin- lega? Hvert ætlar hann?” hugs- aði ökumaöur, sem var að aka upp Flugvallarveginn að aðal- hliðinu inn á Keflavikurflugvöll í gærkvöldi kl. 19. Bíllinn.sem kom á móti honum, var kominn yfir á rangan vegar- helming og virtist stefna beint á hann. Maðurinn ók bil sinum alveg út i vegarkantinn, og meira að segja langleiðina út af, áður en hann stöðvaði bil sinn og beið þess, sem koma varð. Bang! — Þessar varúðar- ráðstafanir reyndust allar til ein- skis unnar, og billinn, sem kom ofan af Vellinum, ók beint inn i vinstri hlið hins og ýtti honum alveg út af veginum. Nei, ökumaðurinn var ekki fullur, eins og mönnum datt fyrst i hug. Hann var alveg i öngum sínum yfir óhappinu og gat enga grein fyrir þvi gert, hvað komið hafði yfir hann. „Nema ég hafði beygt mig ó- meðvitaö, meðan ég var að stilla útvarpstækið,” var eina skýr ingin, sem hann gat gefið. —MG-GP „En við erum staðráðnir i þvi, i sambandinu, að láta þetta ár ekki liða svo, að ekki liggi fyrir hreinar linur að stofnun spitalans”, sagði Marteinn ákveðið. „Margar hugmyndir eru fyrir hendi, og á næstu fundum munum við kanna þærhagkvæm ustu. Við könnum ennfremur möguleika á að verða samband- inu úti um fastan tekjustofn. Einu sinni kom það t.d. til tals, að við fengjum til ráðstöfunar ákveðinn skatt af sölu skotvopna og skotfæra. Eðlileg hugmynd, en ekki endilega svo vist að hún verði ofaná”, hélt Marteinn áfram máli sinu. „Eg er þess lika fullviss, að almenningur er reiðu- búinn til að láta fé af hendi rakna, verði ráðizt i byggingu dýra- spitalans. Þjóðin öll stendur i þakkarskuld við húsdýrin, eöa hvernig hefðum við hjarað af verstu tima i sögu þjóðarinnar, hefði þeirra ekki notið við?” Marteinn benti á, að i Dan- mörku væru starfræktir tólf dýra- spitalar. „Hér er hins vegar ekki einn einasti. Ekki einu sinni visir að slikri stofnun. Það jaðrar við að vera hreinasta hneisa,” sagði hann. —ÞJM ffsm „Nánast hneisa, að hér skuli ekki vera einn einasti dýraspítali" - segir formaður Dýraverndunarfélags Reykjavíkur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.