Vísir


Vísir - 10.06.1972, Qupperneq 6

Vísir - 10.06.1972, Qupperneq 6
6 VISIR. Laugardagur 10. júni 1972. vísib Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Slöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Hrollvekja stjórnarliðsins Skattalögin nýju og lögin um tekjustofna sveitar- / félaga, sem ríkisstjórnin knúði með miklu flaustri ) gegnum siðasta Alþingi eru nú að verða stjórninni \ sjálfri og stuðningsmönnum mikil hrollvekja. ( Það er nú að koma fram, og kemur enn betur i ljós ( siðar i sumar, að allt var rétt, sem Sjálfstæðismenn ( héldu fram um galla þessarar lagasetningar og af- / leiðingu hennar. ) Sjálfstæðismenn bentu strax á að löggjöfin mundi \ skerða til mikilla muna tekjuöflunarmöguleika ( sveitarfélaganna. Stjórnarliðið vildi ekki á þau rök // hlusta og fékk vilja sinum framgengt. Rikisstjórnin )) vissi þó mætavel, að svo mundi verða sem \\ andstæðingar hennar héldu fram. Það yrði ó- (( hjákvæmilegt fyrir sveitarfélögin flest, að nýta til (í hins ýtrasta þá tekjustofna, sem þau höfðu heimild // til eftir þessum lögum, til þess að geta staðið undir )l eðlilegum framkvæmdum og þjónustu við )\ borgarana. Flestum forráðamönnum sveitarfélag ( anna mun verða mjög óljúft að gera þetta, en þeir / eru til þess neyddir af rikisstjórninni. ) Handbragð kommúnista á þessum lögum leynir \ sér ekki. Þau eru i þeirra anda samin og Framsókn (\ varð að kyngja þeim bita eins og svo mörgu öðru (( sem kommúnistar gerðu að skilyrði fyrir stjórnar- // samstarfinu. Markmiðið er vitaskuld að skerða ) eignarrétt og athafnamátt einstaklingsins m.a. til ) þess að koma sér upp eða halda eigin húsnæði, og i herða jafnframt tök rikisvaldsins. Fjárhagslegt / sjálfstæði einstaklingsins er andstætt stefnu og ' markmiði kommúnista i öllum löndum. ) Framsóknarmenn eru nú farnir að sjá hvilika \ reginvillu þeir gerðu með þessari lagasetningu. ( Þeim er ljóst að almenningur er farinn að sjá hvert ( stefnir. Þeir þora vitanlega ekki að játa þetta, sem / þó væri drengilegast, heldur er Timinn látinn ráðast ) heiftúðlega á sveitarfélögin og þó fyrst og fremst \ meirihluta borgarstjórnar Reykjavikur. Ein slik ( árás var t.d. i leiðara Timans s.l. fimmtudag. Þar / er skrifað eins og heimildir um álagningu fast- ) eignagjalda hafi hvergi verið notuð til fulls nema i \ Reykjavik. ( Ekki hafa Sjálfstæðismenn meirihluta i bæjar- ( stjórn Akureyrar. Þar var 50% álag fasteignaskatta / samþykkt með atkvæðum allra flokka nema Al- )) þýðubandalagsins ög gert ráð fyrir að nota þurfi \\ 10% álög i útsvörin. Ekki hafa sjálfstæðismenn (' heldur meirihluta i Vestmannaeyjum. Þar sam- / þykktu Framsókn, Alþýðubandalag og Alþýðu- ) flokkurinn, þ.e. meirihlutinn i Vestmannaeyjum, \ þetta sama en sjálfstæðismenn sátu hjá. ( 1 Hafnarfirði er meirihluti bæjarstjórnar ( skipaður Framsókn, Alþýðuflokknum og óháðum. / Þar var hið sama uppi á teningnum. ) Svona mætti telja áfram, og ekki skyldi þvi ) gleymt hvernig þessum lögum rikisstjómarinnar \ var tekið i sjálfu riki kommúnistanna, Neskaups- ( stað. Það hlýtur að duga stjórnarliðinu skammt, til / að breiða yfir þessi afglöp sin, að ráðast með ósvifni ) og fúkyrðum á borgarstjórnarmeirihlutann: i \ Reykjavik fyrir hið sama og flokkar rikis- ( stjórnarinnar eru að samþykkja og framkvæma út ( um allt land. ) Hreingerningin mikla Hreingerningin mikla er hafin. Raunarerallt ógert, eöa svo til, en samt hefur miklu f jármagni veriö variö til aö hreinsa ár, sem atlt lif haföi veriö drepið i — Bandarikin eyddu t.d. meira en þremur bill- jónum dollara til aö draga úr vatns- og loftmengun aöeins. Og áætlað er þar vestra aö eyöa 285 billjónum dollara næstu 10 árin til þe ssara hluta. önnur iðnriki stefna lika aö þvi aö snúa viö blaöinu i mengunarmálum. Bret- land hefur varið 3,5 billjónum til að hreinsa ár sinar. Sovétrikin hafa varið yfir einni billjón dollara til þess að hreinsa Volgu eina og vatn sem úr Úralfjöllum kemur. 1968 á Allsherjarþingi S.Þ. var samþykkt aö halda Umhverfis- ráðstefnu 1972. Þessi ráðstefna stendur nú, og þótti rétt að leyfa Svium aó halda hana, þar eð hug- myndin er frá þeim komin. Þegar 1968 gerðu menn sér grein fyrir þvi, að umhverfisvernd i venju- legum skilningi, getur i eyrum vanþróaðra rikja merkt eins kon- ar lúxus handa rikum iðnaðar rikjum. Þannig hlýtur það að hljóma undarlega i eyrum fá- tæklinga i Afriku, sem eru að berjast við að koma sér upp iön- aði, að verksmiðjur séu heldur vont mál meðan þær spúa reyk • allt kringum sig. Og staðreyndin er raunar sú, að verndun um- hverfis er vakning, sem nær aðeins til iðnþróuðurikjanna. Höf spillast alls staðar. Þrátt fyrir það, að þróunarrikin skipti sér litt af verndun um- hverfis á næstunni, þá hlýtur það mjög að koma við þessi riki, að höf jarðarinnar eru viða hætt komin. Langmest af þeim úrgangi sem frá jarðarbúum kemur endar i sjónum. Þar eiga sér stað flóknar efnabreytingar og á löngum tima verða flest úrgangsefnanna að nýju hluti af þeim lifsvef, sem höfin mynda og þekur sjö tiundu hluta yfirborðs jarðarinnar. Heimshöfin framleiða einnig 60-70% af súrefni heimsins. Þau framleiða gnægð næringarrfkra matvæla, sjá okkur fyrir megin- hluta vatnsbirgða okkar, ásamt andrúmsloftinu eru þau hita- skiptageymar og þar að auki þjóðbrautir milli meginlanda. Fram til þessa hafa höfin getað gegnt þessum hlutverkum sinum næsta ótrufluð. Nú gætir þess hins vegar, að höfin virðast ekki leng- ur megna að brjóta og breyta fjöl- þættum efnum, sem tæknin skap- ar. Heldur megna þau ekki að nýta til lifrænnar vinnslu þá flauma skólps og annars úrgangs sem i höfin berast frá sivaxandi mannabyggum. Aðgæzlu er þörf. Oliumengun fer ört vaxandi. Og hún er ekki aðeins með ströndum, heldur einnig á höfum úti. Þegar Thor Heyerdal sigldi yfir Atlantshafið á papýrusbátnum Ra II. varð hann var við oliumengun 43 daga af þeim 57 sem ferðin tók frá Marokkó til Barbados. Óöum fjölgar þeim stöðum, sem eru eins og hafsvæðið niu milum utan við höfnina i New York, þar sem rusl og úrgangur hefur lengi verið losað. Sjórinn er þar lifvana méö öllu. Hafið verður æ gruggugra. Um þaö vitna ummæli manna eins og Jacques Cousteau, sem er kunnur neðansjávarkönnuður. 250% minna súrefni. Bandarfskur umhverfisfræö- ingur, Barry Commoner, hefur greint frá þvi, að súrefnisinnihald sjávar á athugunarstöð einni i Eystrasalti hafi minnkaö um 250 siöan árið 1900. Þá hefur komiö i ljós, að ýmis efni hafa til- hneigingu til að safnast saman og breytast i önnur hættulegri, jafn- vel lifshættuleg efni, er þau fær- ast upp eftir lifskeðjunni frá frumdýrum- sem fyrst neyta þeirra og til manna. Svissneski neðansjávarkönnuðurinn, Pic- ard, hefur varað við þvi, að viö getum ekki endalaust leyft okkur að nota heimshöfin eins og væru þau botnlaus rotþró. Hann segir, að verði ekkisnúið við á þeirri brautsem viðerum nú á, sé hætta á að hlutar heimshafanna verði Þetta er þrælmenguö á I New Jersey, Bandarikjunum. Ástandið er víða svona viðurstyggilegt, en sums staðar hefur verið hreinsað til. Og hreinsun vatnsfalla og fljóta hefur tekizt með ágætum, einmitt sums staðar i Bandarikjunum. 1 nokkrum fljótum er jafnvel silungur aftur farinn að sletta sporði, eða lax að bita um flugur veiðimanna. orðnir lifvana með öllu eftir um það bil 25 ár. Veröur kannski einhver hissa að heyra, að undir eðlilegum kringumstæðum berast i heims- höfin um 200 þúsund lestir af fos- fór árlega. Nú berast i höfin ár- lega — eða réttar sagt, er dælt i þau — 6,5 milljónum lesta af fos- fór. Þetta magn kemur bæði úr verksmiðjum og af tilbúnum áburði sem dreift er á tún, akra llllllllllll m mm Umsjón: Gunnar Gunnarsson og -engi. Arlega hafna milljón lestir af oliu i höfunum. Þessi olia kemur frá oliuskipum og öörum skipum, og er þá ekki meðtalið það olíumagn sem kemur frá oliuborturnum á sjó, en þannig oliuvinnsla fer nú ört vaxandi. Ár og fljót flytja nú 2,5 milljónir lesta af blýi árlega i heimshöfin. Þetta er 13 sinnum meira magn en ber- ast myndi, ef náttúran væri ein- ráð. I höfin berast nú árlega fimm þúsund lestir af kvikasilfri, sem umbreytast i banvænt methyl- kvikasilfur, sem eykst að magni og styrkleika eftir þvi sem það berst ofar eftir lifskeðjunni. Bitnar á vanþróuðum rikjum Mengunin er vitanlega fyrst og fremst frá iðnaöarþjóöunum komin, en þótt svo sé, þá hefur hún áhrif jafnvel á strjálbýl strandrfki i hitabeltinu, vegna þess að allt dýra- og jurtalif er sérlega næmt fyrir mengun. Enn er það mönnum að mestu leyti hulið, hvernig hún fer fram, hin náttúrulega hreinsun sem höfin fremja á sjálfum sér. Einnig er margt hulið um eðli og upptök hafstrauma, en þótt þekking sé sums staðar gloppótt, þá geta vist allir sem til þekkja veriö vissir um að ef svo heldur fram sem horfir kann framtið lffs á jörðu að vera í hættu. Það sem þarf til að stemma stigu við menguninni er i flestum tilvikum að stemma á að ósi, það er að segja, aðkoma I veg fyrir að hættuleg eða skaðleg úrgangsefni berist frá verksmiöjum i fljót, sem siðan flytja úrganginn til sjávar. Rinarfljót eitt flytur ár- lega fram 60 milljónir lesta af skólpi og öðrum miður æskilegum efnum. Á Stokkhólmsráðstefnunni verður lögð fram tillaga um að koma á fót skipulögðu eftirliti með mengun heimshafanna. Stungið hefur verið upp á því, að gefa árlega út eins konar meng- unarkort, þar sem væri að finna upplýsingar um dýra- og jurtalif á svæðum þar sem mengun er mikil, eða þar sem mengun er lik- leg til að fara vaxandi. Stokkhólmsráðstefnan verður án efa i framtíðinni talin byrjunin á samræmdum aðgerðum gegn mengun — og nú er bara að vona að við höfum ekki sofið yfir okk- ur. -GG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.