Vísir - 10.06.1972, Side 7

Vísir - 10.06.1972, Side 7
VtSIR. Laugardagur 10. júnl 1972. cTWenningarmál Gunnar Björnsson skrifar um listahótíð: Eins og litlar bjöllur Hjónin Maynie Sirén og Einar Englund buðu upp á visnadagskrá i Nor- rænah.kl.17 á fimmtu- daginn. Efnisskráin samanstóð af þjóð- lögum, flestum úr heimahögum þeirra hjóna, ,,þar sem vatnið i ánum er kalt og tært og straumhljóð þeirra kátt eins og litlar bjöllur.” Þau eru bæði frá Finn- landi, þótt bóndinn sé að visu fæddur i Sviþjóð, en sem kunnugt er tala menn ýmist sænsku eða finnsku i. þessum löndum, þó einkum Finnlandi. Þar við bætast svo áhrif frá Rússum. Þeirra gætir mest á landamærunum. Þetta sambýli þjóöa og tungna vildi frúin meina a& kæmi fram 1 vlsum efnisskrárinnar, enda söng hún bæöi á sænsku og finnsku og geröi mönnum viövart, &öur en flutningur hófst, hvort búast mætti viö þessum eöa hinum menningarstraumi, sorglegu ellegar gleöilegu efni o.s. frv. Visnasöngur er eins og allir vita nokkuö allt annaö en ljóöasöngur. Mismunurinn á vlsnasöngvara og ljóöasöngvara er sá, aö báöir hafa aö vísu yfir mikilli þekkingu og kunnáttu aö búa (eöa þurfa aö hafa þaö), en ljööa- söngvarinn reynir hvaö hann getur aö sýna þekkinguna, þar sem visnasöngvarinn reynir hins vegar aö leyna henni. Af þvi leiöir, að flutningur visnasöngvara fær á sig þennan „hver-meö-sinu-nefi-blæ” sem oft getur virkað einkar þægilega. Maynie Sirén er sniöug söngkona og lifir sig mjög inn I viö- fangsefniö hverju sinni, hvort heldur hún likt og leikur á alls oddi, ellegar er að hrynia saman af melankóliu. Svona söngur er i raun réttri nær dægurlaginu en ljóöinu. Einar Englund lék með á pianó sjálfur tvö falleg lög á efnis- Þökk þessum sóma-hjónum af dugnaði og léttleika viöa og átti skránni. fyrir ágæta skemmtun. Finnskur visnasöngur I Norræna húsinu: Einar Englund og Maynie Sirén. Kappakstur og ást Kvikmyndahátíð - Listahátíð? Laugarásbíó ,, Winning" +* Leikstjóri: James Goid- stone Aöa Ihlutverk: Joanne Woodward, Paul Newman. Sumar kappaksturssenur þessarar myndar eru hreint frábærar... og það er annað slagið fjári gaman að sjá hjónin Woodward og New- man leika hvort gegn öðru. Leika saman, er raunar rétta orðið. Og þar með er raunar upptalið, það sem þarf að segja um ,,Winning"^ Newman er geðþekkur leikari. Engin svakastjarna, og alls ekki persóna á borö við eiginkonu hans, Joanne Woodward. Sú kona er ógleymanleg i myndinni „Rakel, Rakel”, sem Austur- bæjarbió sýndi i vetur og New- man stjórnaði, hins vegar gefur „Winning” varla tilefni til neins stórleiks. Stundum lá við borð að maður hrifist gersamlega með á æsi- legum augnablikum kapp- akstursins i „Winning,” þegar ó- freskjulegir bilar æddu framhjá, beint áfram meö eldingarhraöa — en rétt I þann mund, sem maður hélt að nú væri hasarinn verulega að magnast, þurfti leikstjórinn endilega að troða ástarvellunni Listahátíð Kannski er rangt að skattyrðast út i Listahátiö vegna vondrar frammistöðu við útvegun kvik- mynda. Hátið með sniði eins og , þessi, er likast til hvergi við hæfi kvikmyndamanna. Raunar hefði verið bráðnauðsynlegt að fá ein- hvern góöan mann, til að halda fyrirlestra. eða fylgja úr hlaöi myndaflokki — og lá raunar við borð að sjálfur Majewsky kæmi — hins vegar væri öllu gagnlegra að hafa hreinlega sérstaka „hátiö” fyrir kvikmyndirnar, jafnmikil- vægur þáttur og þær eru orðnar i daglegu lifi fólks. Það er undarlegt, að þótt ts- lendingar (eða Reykvlkingar réttar orðað) hafi verið aldir upp á miklu kvikmyndafóðri siðustu 30 árin, þá er rikjandi hér algjör fávizka varðándi kvik- myndir. Fram til þessa hafa kvikmyndasýningar hér verið hin ómerkasta dægradvöl og mynda- val kvikmyndahúsa oftast fyrir neðan allt velsæmi. Vegna þessarar einhæfu stefnu eða stefnuleysis með kvikmyndir hér, ræktast upp almenn smekkleysa. Rikisvaidið eða menningar- málayfirvöld verða einhvern veginn að hafa hemil á kvik- myndahúsum. Þau leika gersam- lega lausum hala með kvik- myndaval sitt. Þeir sem stjórna kvikmyndahúsum og hafa af þvi lifsviðurværi, þurfa enga lág- marksmenntun að hafa i kvik- myndafræðum (eins og t.d.~ tiðkast á Norðurlöndunum hinum). Ég er ekki að tala um ritskoðun kvikmynda. Ég er að tala um pinulitla auglýsingu, — örlitla leiðbeiningu i sambandi við þær kvikmyndir, sem við horfum dag- lega á. Sjónvarpið á auðvitaö að ganga þar á undan. Þar ætti kvik- myndafræðsla, að vera fyrir- ferðarmikil. Og i allt öðru formi, en menn hafa kynnzt af þættinum „Vaka” sem verið hefur i Sjv. i vetur. Það dugir nefnilega skammt að fá ræmu úr einhverju reykvfsku kvikmyndahúsi, sýna hluta og benda á hve þetta og þetta atriði sé flott tekið og hver sögu- þráðurinn sé. Slik „fræðsla” ýtir ekki við neinum, er raunar ekkert annað en að sýnast. Einhvers staðar segir i reglugerð fyrir Sjónvarp á Islandi að Sjv. eigi að styðja við innlenda kvikmynda- gerð. Meðan ekki er alveg ljóst hvernig það má bezt takast mætti prófa þátt, sem sýndi fólki framan i fslenzka kvikmynda- gerðarmenn (Þeir eru nefnilega nokkrir til). Hvi ekki að hleypa þeim skörfum saman svolitið? Sumir þeirra eru jafnvel að pina iúsarögn aftan af kaupinu sinu til að gera einhverja myndar- skömm. Hvernig væri að sýna þetta og með skýringum? Hvað er kvikmyndavél? Hvernig á að setja saman langa filmu? Hvað þarf að læra..ég held fólk hefði gaman af einhverju einföldu abc i sambandi við kvikmyndir — og svo mætti segja frá meisturum i útlöndum. Og kvikmyndavika hér? Þaö hefur komið fyrir að haldin hefur verið „ensk vika”, eða „amerisk vika” i Háskólabiói, en hér þarf að taka upp markvissari stefnu. Meðan engin kvikmyndadeild er við Háskólann hér, væri ráð að nota Háskólann af alvöru. Fá jafnvel gestaprófessora stuttan tíma. Og númer eitt þyrfti stjórnandi Háskólabiós að vera menntaður i kvikmyndafræðum. En allt þetta er likast til fjarlæg framtið, og þýðir litið að fárast. Við viljum vist fremur verja milljónum i afdankað fyrirbæri eins og núverandi listahátiö er, heldur en sýna almenningi á landinu boðlegar, innlendar kvik- myndir. Almenningur er nefni- lega þannig gerður, að hann nennir varla i Norræna húsið i há- deginu til að hlusta á ariur. Hann fer frekar að horfa á Jerry Lewis klukkan fimm.... Newman og Woodward

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.