Vísir - 10.06.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 10.06.1972, Blaðsíða 9
VtSIR. Laugardagur 10. júni 1972. Best er hœttur við að hœtta Það fór eins og sumir töldu liklegast, — Best vill hætta við að hætta. í gærdag kvaddi Ge- orge Best enn saman blaðamenn og tilkynnti þeim ákvörðun sina, hann vildi helzt af öllu snúa aftur til félags sins, Manchester Unit- ed. Eftir hegðan þessa snjalla knattspyrnumanns alllengi eru stjörnarmenn Manchesterliðs- ins settir i mikinn vanda. Eiga þeir að taka hann i sátt og láta eins og ekkert hafi gerzt, — eða hafna þeir honum fyrir fullt og allt? Þetta eru spurningar, sem Frank O’Farrell og félagar hans verða að gefa svar við. Aðrar stórfréttir eru þær af ensku knattspyrnunni að Huddersfield, liðið sem féll úr 1. deild I vor, verður að selja frá sér þrjá helztu leikmenn sina. Greinilega hafa þeir verið óánægðir með þau býtti að þurfa að fara niður i 2. deild, og hafa óskað eftir flutningi, sem hefur aftur oröið til þess að félagiö selur þessa þrjá leikmenn fyrir um 76 milljónir isl. króna: Frank Worthington fer til Liver- pool, en söluverð hans er 150 þús. sterlingspund. Trevor Cherry, fyrirliöi Huddersfield var seldur til Leeds, sem greinilega hugsar fyrir nýjum manni I staö John Charltons. Söluverö hans var 100 þús. pund. David Lawson, seldur til Ever- ton fyrir 80 þús. pund. 1 staðinn hefur Huddersfield aöeins keypt einn leikmann enn sem komið er, Alan Gowling, sem er lærður hagfræðingur frá Manchester, auk þess að vera mjög góður knattspyrnumaður. Aðrar sölur: Alun Evans frá Liverpool til Aston Villa fyrir 75 þús. pund. Knattspyrnan um þessa helgi: CITROEN GS BíHin.R, sem fer sigurför um heiminn „LHLU" LIÐIN í ELDLÍNUNNI Þaö eru leikmenn 2. og 3. deild- ar, sem eiga helgina, sem nú fer i hönd, — ef undan er skilinn leikur Vestmannaeyja á heimavelli viö Víkinga i 1. deild, en sá leikur fer fram f dag kl. 16. Sigur, eöa... Fyrir Eyjamenn verður það sigur í dag, — nú eða liðið er að setja sig i fallbaráttustellingar. Tapið fyrir Breiðablik i upphafi móts, og það á heimavelli, og síð- an annaö tap i Reykjavik fyrir Fram. Það er nóg til að æra óstöðugan. Sennilega verða Vest- mannaeyingar Vikingum erfiðir i leiknum i dag. Hinsvegar verður það að segjast að i engum þeirra leikja, sem sést hafa til þessara tveggja liða i 1. deildinni, hafa þau virzt mjög sannfærandi og ólik þeim liöum, sem við sáum i fyrra. Spennandi 2. deild Oft hefur 2. deildin litið út fyrir aö vera jöfn, en llklega sjaldan eins og nú. Enn hafa aðeins 3 leik- ir farið fram: FH og Þróttur gerðu jafntefli, Haukar unnu Sel- fyssinga og Akureyringar heim- sóttu Völsunga á Húsavik og unnu þá meö aðeins 2 mörkum gegn einu. I dag fara fram fjórir leikir við viðbótar. Akureyringar heimsækja Sel- foss og ættu eftir öllum kokkabók- um að vera öruggir sigurvegarar þar. 1 Hafnarfirði fer fram leikur, sem heimamenn ættu að hafa mikinn áhuga á, það eru Haukar og FH, heimaliðin, sem keppa þar. Bæði liðin hafa náð árangri i vor gegn 1. deildar liðunum, sem er mjög athyglisverður. En hvað gera þau á Hvaleyrarholtinu, þegar þeim lýstur saman þar i hörkuleik. Svona til gamans gizk- um við á FH-sigur, sem verður þó mjög naumur, spáum við. A Melavelli leika Þróttur og Ar- mann kl. 14. Eftir jafntefli Þrótt- ar og FH hefur tiltrúin á Þrótt aukizt. Liðið er hinsvegar nokkuð brokkgengt og ekki gott að spá neinu um hvað það gerir gegn Ár- menningunum, sem eru mjög vaxandi knattspyrnumenn. Við spáum Þrótti þó stigunum, a.m.k. ööru þeirra. A Isafirði leika heimamenn við Völsunga frá Húsavik. Sá leikur ætti að verða nokkuð jafn ef mið- að er við frammistöðu liðanna undanfarin ár. Hreint útilokað að spá nokkru, en aðstaða heima- liðsins mun betri, þvi um langan veg er að sækja fyrir Húsviking- ana. Þriðjudeildardagur á morgun A þrem knattspyrnuvöllum úti á landsbyggðinni verður 3. deildin leikin á morgun. A Siglufirði mætast KS og Leiftur, en svo heit- ir félag þeirra Ólafsfjarðar- manna. Á Sauðárkróki mætast UMSS og annað lið sem fáir munu þekkja, Magni, en þaö félag sækir Sauökræklinga heim frá Greni- vik. Loks mætast Grindvikingar og Stjarnan úr Garðahreppi á Grindavikurvelli á morgun, og liklega verður það jafn leikur, ef dæma má eftir úrslitunum úr leik Hrannar og Grindavikur, en Hrönn vann i vikunni með 4:0. Átta i 2. deild,- 22 i þeirri þriöju! Onnur deild er skipulögð eins og sú fyrsta, — átta lið sem leika heima og heiman. 1 3. deild eru aftur á móti 22 þátttökulið, og skiptast i riðla eftir lands- fjórðungum. Ekki er gott að spá um úrslitin I þessum tveim deildum, en greini- legt má telja að keppnin veröur hörð. Hinsvegar má reikna með að keppnin um 1. deildarsætið muni fyrst og fremst standa milli Akureyringa, Hafnarfjaröarlið-. anna og Þróttar. r Oviðjafnanlegir aksturseiginleikar — veghæfni frábær Loft/vökvafjöðrunin hentar vel islenzkum vegum og veitir hvild i löngum akstri. Með henni má einnig lyfta bilnum yfir torfærur. Aðeins Citroén er útbúinn þannig. Stýrisútbúnaðurinn á ekki sinn lika. Kemur m.a. i veg fyrir útaf- akstur þótt hvellspringi á framhjóli. Citroén GS sækir fram undir öllum fónum Allir vegir eru góðir ef þér akið í Citroén Umboðið Sólfell h.f. Skúlagötu 63. Simi 17966 CITROEN * GS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.