Vísir - 28.06.1972, Side 1

Vísir - 28.06.1972, Side 1
62. árg. Miðvikudagur 28. júni 1972. — 143. tbl. SPÁNVERJAR SIGRUÐU, EN LANDINN STOÐ SIG VEL! ,,Alll er fertugum fært” og það sannaði Vaibjörn Þorláks- son i gærkvöldi, þegar hann tryggði sér þriðja sæti i tug- þrautarlandskeppninni og hældi fararstjóri Breta Valbirni á hvert reipi eftir keppnina. Stefán Hallgrimsson kom mjög á óvart — stórbætti árangur sinn og varö fjórði. En þetta kom ekki i veg fyrir sigur Spán- verja i landskcppninni og Bret- ar urðu i öðru sæti. Sjá nánar iþróttir i opnu. „Þannig fór um sjóferð þó..." Silungsveiðimenn nokkrir skrifa lesendadálkinum og eru hreint ekkert kátir yfir viöskiptum sinum við einn aðila, sem hefur auglýst mjög gæði veiðilendanna sinna, telja að búið sé að draga fyrir þarna og hirða allt nema einhverja hortitti, sem reyndar vildu ekki bita á hjá þeim að þessu sinni. — SJA BLS 2 ☆ Lengir þig eftir SKATTSEÐLINUM? sjá Vísir spyr á bls. 2 ☆ íslenzkan og notendur hennar islenzkukennslan eða þátturinn um móöurmálið i útvarpinu undanfarin ár hefur oftlega verið mjög um- ræddur meðal almennings ýmissa hluta vegna. 1 blaðinu i dag gerir Hannes Pétursson þennan þátt að umtalsefni — og auðvitað er sneitt að máifari blaða- manna, sem þykir vist ákaf- lega klént... — SJA BLS 7 ☆ Spasskí og Nei hlupu í burtu þegar Ijósmyndarar komu að honum ó tennisvellinum Það er ekki auðhlaupið aö festa Boris Spasski á filmu. Þegar hann fór i morgun á tennisvöliinn við Melaskóla voru komnir erlendir ljós- myndarar á staðinn og Spasski og Nei fiýðu i burtu. Visir-menn komu á vettvang og náðu i skottiö á Rússunum þar sem þeir löbbuðu á brott með tennisspaðana. Spasski sagöi að leyfi Guðmundar G. Þórarinssonar þyrfti til að taka myndir af honum, og þegar við spurðum hann hvenær hann léki venjulega tennis ásamt Nei, gaf hann engan ákveðinn tima upp. Spasski sagðist fremur hvekktur á öllu umstanginu hjá blaðamönnum og Ijós- myndurum og strunsaði á HótelSögu. GF Fólksflutningakúrfan er okkur enn andstœð Fleiri fóru en komu Fólksflutningaskrúfan er okkur enn andstæð. Fleir- fluttust héðan , i fyrra en komu. 1393 fóru brott til annarra landa til búsetu, en 1221 kom til búsetu á Is- landi. Af þessum voru 1166 islenzkir ríkisborgarar sem fóru og 858 islenzkir rik- isborgarar komu. Út- lendingar bættu stöðuna þar sem 363 þeirra komu hingað , en 227 , sem hér höfðu verið, fóru burt á árinu. Islendingarnir sem fluttust til annarra landa, fóru langflestir til Danmerkur (Færeyjar með) alls 401. Til Sviþjóðar fluttust 274 og 208 til Bandarikjanna. Menn fóru viöa, og meira aö segja 10 Islendingar fluttust til Afriku það áriö, en enginn til Asiu og aðeins 5 til Astraliu. Af þeim útlendingum sem hingað fluttust, voru 115 Bandarikjamenn, 65 danskir og færeyskir, 26 norskir 30 brezkir, og 39 þýzkir. 16 Sviar komu og 3 Finnar. Af öörum Evrópulöndum voru 2 frá Austurriki og aðrir tveir franskir, 4 hollenzkir, 8 sviss- neskir, 1 ttali, og 15 fra öðrum Evrópulöndum. 20 Kanadamenn komu, 4 Afrikumenn, 8 Asiumenn, 3 ástralskir og loks 2 þar sem „rikisfang var ótilgreint.” Fólksflutningar voru i fyrra minni en árið þar áöur, en þá fluttust burt héðan 2192 en aðeins 628 fluttust hingaö. Hefur þvi orðið snör fjölgun aðfluttra og fækkun brottfluttra. -HH. VOPNIN KVÖDD? Fleiri og fleiri bandariskir hermenn kveðja vopnin I Vfet- nam, þótt striðið geisi i sinu ægi- veldi. Nixon er enn að fækka I liöinu, en nóg er þar af flugdrek- um, sem dreifa sprengjum og tundurduflum yfir andstæðinga. Vonir hafa enn glæðzt um frið, mitt i eldhafinu, en þær gætu reynzt tálvonir sem fyrr. Vonandi fer þeim að fækka myndunum frá striðinu I Viet- nam. Þessi litmynd sýnir, hvernig stórskotalið úr Banda- rikjaher hefur komið sér fyrir meðfram landamærum Laos. Tilgangurinn er að skjóta á- Norður-Vietnama, svo aö her- menn S-Vietnama fái svigrún til aö ráðast á þá. AP-fréttastofan segir að svona byssur dragi um 29 kilometra leið. Nixon œtlar að halda 30 þúsundum — sjó bls. 5 Sprenqjutunna í brygqjunni! Starfsmenn bæjarins á Seyðisfirði sem und- anfarið hafa unnið við að grafa i svokallaða Garðarsbryggju sem er ein af bryggjum staðarins, og var ein aðal bryggjan á striðs- árunum, fundu i morg- un fulla tunnu sem hafði að innihaldi nokkurs konar sprengjutúbur, sem talið er að séu fullar af benzini hver túba um sig. Ein túba er ca 10 sm löng og utan um hana er gúmmi Ekki erhægt að segja um hvort þetta sprengiefni virkar enn eftir 30’ - ár, en málið hefur nú verið tekið til rannsóknar, en niður- stöður ekki fengizt er blaðið fór i prentun. Skip Landhelgisgæzl- unnar er nú komið i Seyðisfjarðarhöfn, en ekki var neitt farið að rannsaka skipið E1 Grillo sjálft, en senni- lega verða sendir sér- fræðingar frá Land- helgisgæzlunni i dag. Skip þeirra hefur ekki með sér kafara, og halda þvi þeir sömn áfram verkinu. -EA Ný EBE-lota EBE-samningarnir við tsland og fleiri riki munu hefjast aö nýju eftir nokkra daga, segir i NTB frétt i morgun. Frétt siðdegis i gær hermdi, að undirrita ætti samninga um miðj- an júli, en hún var borin til baka af islenzkum ráðherrum, sem sögðu að ósamið væri enn. Rikisstjórn tslands vinnur að gerð gagntillögu við siðustu til- lögu EBE-manna um samninga. EBE hefur sem kunnugt er boðið samninga um friverzlun með iðn- aðarvörur, innan ákveðinna marka.og tollalækkun á sjávar- afurðum, en hið siðara er bundiö við, aö samkomulag hafi orðið-um landhelgismálið, áður en sá þátt- ur tæki gildi. -HH.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.