Vísir - 28.06.1972, Page 5

Vísir - 28.06.1972, Page 5
VtSIR Miðvikudagur 28. júni 1972 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UMSJÓN: HAUKUR HELGASON UTLÖND 30 þúsund samningar Nixon mun boða frek- ari fækkun i herliði Bandarikjamanna i Vietnam i dag, að sögn embættismanna i Wash- ington. Fækkað var i liðinu fyrir viku um 6.400 manns, niður i 54.000, og fyrir sunnudag á liðsafl- inn að vera kominn nið- ur i 49.000. Haft er eftir ,,mönn- um, sem vel þekkja til” að Nixon hyggist halda eftir 30 þúsund manna liði, þangað til vopnahlé hafi tekið gildi undir eft- irliti afþjóðlegrar nefnd- ar og Norður-Vietnamar hafi látið lausa alla bandariska striðsfanga. Verið að leggja oliuleiðslu til Kina. Norður-Vietnamar eru sagðir vera komnir vel á veg með að verða eftir unz nóst - segja fréttamenn um stefnu Nixons í Yíetnam - enn er verið að fœkka í liðinu þar leggja oliuleiðslu frá Hanoi til landamæra N-Vietnam og Kina, að sögn bandariska utanrikis- ráðuneytisins i gær. Slik leiðsla gæti orðið mikilvæg fyrir Norður-Vietnami og elds- neytisflutning til herliðs þeirra i Suður-Vietnam. Hún mundi draga mikið úr áhrifum loftárása og tundurdufla Bandarikjamanna. Talsmaður utanrikisráðuneyt- isins segir, að Bandarikjamenn hafi vitað um lagningu leiðslunn- ar i margar vikur, en hann vildi ekkert segja um, hvort loftárásir hefðu verið gerðar til að tefja lagninguna. Ljósmyndir njósnaflugvéla leiddu framkvæmdirnar i ljós. Þær eru taldar boöa, að Norður- Vietnamar verði háðari Kinverj- um en áður. Leyniþjónustan bandariska, CIA, segir, að leiðslan sé lögð þannig, að hún verði sem minnst fyrir barðinu á loftárásum. Bresnjev hvetur til friðsamlegrar lausnar. Leonid Bresnjev flokksforingi i Moskvu fordæmdi i gær hörðum orðum hafnbann Bandarikja- manna á Norður-Vietnam og hét að styðja Norður-Vietnama, þar til sigur ynnist. Bresnjev sagði i ræðu, er hann flutti til heiðus: Fidel Castro Kúbumanns, að það væru mikil- vægustu verkefni samtiðarinnar að finna friðsamlega lausn á deil- unum i Mið-Austurlöndum og Indo-Kina. „Bandarikjamenn og bandamenn þeirra verða að fara meö allan her sinn frá S-VIetnam, svo að pólitísk lausn finnist án utanaðkomandi áhirfa,” sagði Bresnjef. Hann hafði ekki áður látið neitt frá sér fara opinber- lega um hafnbannið. Skriðdrekar og fótgöngulið Norður-Vietnama réöust snemma i morgun á stöðvar sunnanmanna við Hué. Sunnanmenn segjast hafa eyðilagt fimm skriðdreka. Harðir bardagar urðu við An Loc i gær. Húsaraðirnar, umluktar flóð- þessum eldsvoða. Myndin er frá inu, brenna til grunna,en vatnið Harrisburg PennsyIvaniu. i hindrar slökkviliðsmenn i Bandarikjunum. starfi. Atta hús eyðilögðust i Nixon athugar „beddana” i William Penn menntaskólanum I Harrisburg, þar sem heimilislaust fólk hefst við eftir flóðin miklu. '4KKL' CIA- flugmenn í ópíum- smyglinu Ástæöa er til að telja, að bandariskir flugmenn, sem fljúga þyrlum leyniþjón- ustunnar bandarísku, CIA, hafi smyglað ópíum í Laos, segir þingmaður demó- krata Les Aspen. Aspen er i hernefnd fulltrúa- deildar þingsins, og hann vitnaði i gærkvöldi til bréfs frá rithöfund- inum Alfred McCoy, sem hefur rannsakað eiturlyfjaverzlunina i Suðaustur-Asiu. Rithöfundurinn visaði á bug yf- irlýsingum embættismanna utan- rikisráðuneytisins um, að CIA og yfirmenn Bandarikjahers i Asiu hafi ekki verið flæktir i verzlun með eiturlyf. Aspen skorar á yfir- mann CIA, Richard Helms, að láta fara fram rækilega athugun á fullyrðingum McC>oys Sönnunargögn rithöfundarins benda að sögn þingmannsins til ■ þess, að bandariskir flugmenn hafi smyglað ópium og efnið hafi verið selt bandariskum hermönn- um i Suðaustur-Asiu og á eitur- lyfjamarkaði i Bandarikjunum. Númuforingi, grun- aður um morð, dœmdur fyrir svik Tony Boyle, formaður félags námumanna i Bandarikjunum, liefur verið dæmdur i fimm ára fangelsi og sektaður um nær 10 milljónir króna fyrir að hafa notað sjóði félagsins til ólög- legra framlaga til stjórnmála- manna. Boyle liefur legið undir grun um að vera viðriðinn morðið á Joseph Yablonsky, sem keppti við hann um formennskuna fyr- ir nokkrum árum og var myrt- ur. Boyle er sjötugur og sjúkur. GERÐU SÉR GÖTU- VÍGI ÚR BIFREIÐUM Herinn tók völdin í Buenos Aires i morgun, þegar mótmælaaldan náöi til höfuöborgarinnar og stjórnarandstæðingar gerðu sér götuvigi úr bif- reiðum á götum miðborg- arinnar. Herinn hefur strangt eftirlit i borginni, og búizt er við upp- hlaupum, en nú eru liðin sex ár siðan herinn steypti stjórn lands- ins og myndaði eigin landsstjórn. Fjölmargar borgir og bæir eru einnig undir algerri herstjórn nú, en mótmælaaðgerðir hafa staðið i fjóra daga utan höfuðborgarinn- ar. Þær hófust eftir að tvitugur stúdent beið bana á laugardag, þegar táragassprengja, sem lög- regluþjónn kastaði, hæfði piltinn i höfuðið. Mótmælendur köstuðu i gær- kvöldi bensinsprengjum og kveiktu i götuvigjum. Stúdentar „hertóku” tvo háskóla og fóru kröfugöngur um götur, þar til lög- reglan dreiföi þeim. Menntamenn dœmd ir í Júgóslavíu Fjórir menntamenn i Serbiu hafa verið dæmdir til fangelsisvistar upp í 14 mánuði fyrir að hafa haft i frammi „áróður, óvinveitt- an Júgóslavíu", það er að segja ríkisstjórn landsins. Fyrrverandi formaður i sam- tökum júgóslavneskra lögfræð- inga, Subotic, hlaut 14 mánaða fangelsi, og stúdentinn Midic fékk eitt ár. Prófessor og prestur hlutu skilorðsbundna fangelsisdóma. Fimmti ákærður, lögfræðingur- inn Korda, var sýknaður. Dómarinn sagði, að Subotic og Midic hafi fengið minni refsingu en þeir hefðu tilunnið, af þvi að þeir væru heilsutæpir. Mennirnir fimm voru ákærðir fyrir að hafa ritað, fjölritað og dreift bókum og bæklingum með and-júgóslavneskum áróðri, og fyrir að vera andvigir þjóðfélags- skipun i landinu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.