Vísir - 04.07.1972, Qupperneq 6
6
Visir Þriftjudagur 4. júli 1972.
VISIR
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
/ Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiftsla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Valdimar H. Jóhannesson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siftumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakiö.
Blaftaprent hf.
Unnin glœfraskák
Glæfraskákin tókst. Skákmeistarinn Fischer og
ráðunautar hans náðu þvi, sem þeir höfðu ætlað sér,
meiri peningum. Það var að visu ekki Skáksam-
band íslands, sem gaf sig, enda hafa menn Fischers
áreiðanlega frekar búizt við björgun af hálfu þriðja
aðila. Og sú varð raunin i gærkvöldi, þegar brezki
fjármálamaðurinn Slater lagði fram yfir tiu
milljónir króna til að tvöfalda vinningsupphæðina
og vel það.
Margt bendir til þess, að taugastrið undanfarinna
tiaga, vikna og mánaða hafi af hálfu manna Fisch-
ers verið háð til að egna bandariska auðmenn og fá
þá til að styðja Fischer f járhagslega. Það er raunar
eftirtektarvert, að sú viðleitni skuli ekki hafa borið
árangur. Bandariskir auðmenn hafa margir hverjir
verið mjög örlátir við iþróttamenn og listamenn, en
enginn þeirra varð til að styðja Fischer til heims-
meistaraeinvigisins i skák. Og svo var það Breti,
sem kom um siðir til skjalanna.
Sorafenginn bragur hefur verið á siðasta aðdrag-
anda heimsmeistaraeinvigisins. Fischer og menn
hans eiga þar einir nærri alla sök. Þó gekk Skák-
samband Islands einu eða tveimur skrefum of langt
i sölu réttinda og fékk á sig orð fyrir peningagræðgi,
en reynsluleysi mun hafa valdið þessari ofsölu. Og
þetta mál hverfur gersamlega i skugga hinnar
glæfralegu skákar, sem lögfræðingar Fischers hafa
teflt.
Sögulegar forsendur eru fyrir þvi, að Fischer
kann litla mannasiði, og þess vegna mega menn
ekki dæma hann of hart. Hann hefur lika verið svo
óheppinn að lenda i klóm ráðgjafa, sem hafa i von
um ágóðahlut farið með hann fram á yztu nöf i fjár-
kröfum og jafnvel fram af hendi. Raunverulega var
Fischer búinn að fyrirgera rétti sinum, og það var
gersamlega ólögleg ákvörðun dr. Euwes, forseta
Alþjóðaskáksambandsins, sem bjargaði einviginu á
siðustu stundu.
Allir eru auðvitað fegnir, að einvigið skuli fara
fram. Einkum eru þó Islendingar fegnir, þvi að
undirbúningurinn var orðinn mjög dýr. Sá kostnað-
ur skilar sér nú aftur. Og raunar er ekki laust við,
að i ljósi þess, að allt hefur endað vel þakki menn
Fischer og framkomu hans fyrir þá feikilegu aug-
lýsingu, sem einvigið hefur fengið i fjölmiðlum um
allan heim.
Dr. Euwe lék einn leik i glæfrataflinu, þegar hann
af samúð með Skáksambandi Islands frestaði ein-
viginu um tvo daga. Mótmæli Sovétmanna gegn
þeirri ákvörðun hafa verið á þá lund, að þeír sam-
þykkja hana ekki, en þola hana. Glæfraleikur
Euwes hefur þvi tekizt og á hann fyrir það skilið
mikið þakklæti íslendinga.
Eftir á að hyggja hefur aðdragandi einvigisins
verið eins og menn vona, að einvigið sjálft verði,
fullt af glæfralegum skákum, fórnum, brögðum og
tangarsóknum. Taugastriði aðdragandans er lokið
með hálfum sigri Fischers. Og nú biða allir i ofvæni
eftir þvi, hvor sigrar i taugastriði einvigisins sjálfs.
Sigurvegarann i þeirri keppni má með nokkrum
rétti telja öflugasta skákmann heimsins fyrr og sið-
ar.
ÞRÁSKÁK LOKIÐ?
Hentistefnumanninum Bhutto tekst vel upp
Ef til vill hefur einni
styrjaldarógninni verið
rutt úr veginum með
samkomulagi Indiru
Gandhi og Ali Bhutto.
Styrjaldarástand hefur
verið milli Indlands og
Pakistan, að heita má,
siðan þessi riki voru
stofnuð úr hinni gömlu
Bretanýlendu. Mesta
styrjöldin var í vetur,
þegar Indverjar neyddu
Pakistanstjórn til að
veita Bangladess sjálf-
dæði.
Sniftugri valdhafi tók upp úr þvi
vift i Pakistan, Ali Bhutto, sem
verið haffti handgenginn valda-
klikunni i Vestur-Pakistan, en
orftift viftskila vift hana, tekift upp
sósialistiska stefnu, aftur stutt
vift bakið á einræftis-
herranum Jaja Khan, þegar veldi
hans var aft hrynja, og lokst
steypt Jaja Khan úr stóli. Bhutto
haffti farift erindisleysu á þing
Sameinuöu þjóanna til aft verja
stjórn Jaja Khans og kúgun
hennar á Austur-Pakistönum, en
fáir urðu til bjargar. Afstaða
hans skýrist likiega að nokkru
meft þvi, sem seinna kom fram,
aft bandariska stjórnin velti fyrir
sér, hvort senda mætti vopn til
Pakistanstiórnar og bjarga henni
úr klemmunni, þar sem sagt var,
aft Rússar fengju ella mikil völd á
þessum slóðum. Af þvi varft ekki,
enda liklega of seint að forfta Jaja
Khan.
Urðu bara háðari
stórveldum
Bhutto og þjóð Vestur-
Pakistan komust hins vegar aft
raun um eftir ósigur herjanna i
Austur-Pakistan, aft vel væri, að
skipt yrfti um leifttoga og reyndar
nýjar leiftir til aft skapa traust
innaniands og utan. Bliutto tók
völdin, talaði fagurlega um
Bangladess, sem hann haföi reynt
aft kæfa, sparkafti frá völdum og
aufti fjölskyldum þeim, sem höfðu
drottnaft i Vestur-Pakistan frá
byrjun og makaft krókinn. Hann
boftaöi gjörsamlega nýja stefnu,
er byggfti á „sósialisma og
frifti”. Þessari stefnubreytingu
var aft sjálfsögftu ekki tekift illa af
sósialistanum Indiru Gandhi.
Hún og foringjar Bangladess
komu auga á möguleika á að
tryggja tilvist Bangladess og
stöðva striftsástandift i Kasmir, á
landamærum Indlands og Vestur-
Pakistan. Upp úr strifti milli
Indverja og Pakistan haffti aldrei
neitt komift nema þráskák fyrr en
nú meft stofnun Bangladess. Hið
eina var kannski, aö rikin höfðu
orftið háðari stórveldum,
llllllllllll
Umsjón:
Haukur Helgason
Indverjar háftari Rússum og
Pakistanir háftari Raufta-Kina og
Bandarikjunum. Styrjaldir um
Kasmir höföu ekki orftift til mikils
annars.
Sagan endurtekin?
Indverjar hafa einnig ekki of
góftan málstaft i Kasmirmálinu,
þar sem meirihluti ibúa þar
mun, aft minnsta kosti lengst af,
hafa viljaft sameinast Pakistan.
Vanmáttur Pakistan eftir
ósigurinn nú gerir Indverjum
mögulegt aft tryggja yfirráft sin i
Kasmir.
Þaft er vi rökrétt afleiðing af
valdatöku Bhuttos og svip-
breytingum i stefnu Pakistan, aft
þau settust aft samningaborftinu,
Indira og Bhutto, og yrftu sam-
mála, þó aft merkilega erfiftlega
gengi á stundum i viftfæðunum.
Leiðtogar þessara rikja hafa þó
áður samift, þó að ekki tryggði
þaft frið til lengdar. Það var i
bænum Tashkent á siðasta
toppfundinum milli leifttoga
Indlands og Pakistan árið 1966.
Rikin höfftu þá háft stutt strift um
völdin i Kasmir og fleiri svæfti á
landamærunum. Indverjar höfftu
betur og Rússar, vinir þeirra,
gengust fyrir fundinum i
Tashkent, sem tryggði, að völd á
þessum svæðum yrfti i höndum
Indverja, sem var rökrétt
afleifting getuleysis Pakistana i
þessu striftsfrumhlaupi þeirra.
Þá var, eins og nú, lýst yfir af
leifttogum, að „öll deilumál skyldi
framvegis útkljá a friðsamlegan
hátt” og tekið alvarlega um hrift.
Og árin 1948 — 49 höfftu þessi
lönd barizt um yfirráftin i
Kasmir, og Indverjar haldift sinu.
Reyndar mætti ætla, að þau
muni einhvern tima enn berjast
um yfirráftin i Kasmir, en sam-
komulag Indiru og Bhutto er
merkt vegna þess, hvernig i
pottinn er búið.
Klókasta, sem völ er á
Pakistan er magnlaust eftir
striðift vift Indverja og missi
Austur-Pakistan, þar sem mikil-
vægasti útflutningur Pakistan-
rikisins var,- Vestur-
pakistanir höfðu
blóftsogift Austur-Pakistani,
svosem meft þvi aft tiltölulega
litift rann þangaft af tekjum, þótt
Austur-Pakistanir stæftu undir
miklum hluta útflutnings vegna
landkosta þar.
Framferfti Jaja Khans i
örvæntingartilraun til að halda
Austur-Pakistan undir oki var
fordæmt viftast hvar á Vestur-
löndum. Hann haffti fáa banda-
menn, nema auftvitað Kinverska
alþýðulýftveldift og Persakeisara,
eitthvað af Aröbum og töluverfta
samúft i Washington, sprottna af
hugmyndum um að styðja ætti
vondan málstað, fremur en horfa
upp á Rússa styrkja stööu sina á
taflborðinu.
Með samningum vift Indiru
Gandhi fær Bhutto mikinn byr til
aft halda áfram siglingu sinni og
fá samúft vifta um heim við stefnu
sina. Hann vill aft fortiðin
gleymist, þegar öllu er á botninn
hvolft er hann ekki hinn eini
hentistefnumaður, sem stýrir
riki. Enginn veit, hvert stefnu
hans rekur I rauninni, en sem
stendur er hún hin klókasta, sem
völ er á, fyrir hann sjálfan og
fyrir Pakistani.
Þótt Pakistanir færu hrakfarir I striðinu vift Indverja, náftu þeir
nokkrum skika lands og föngum á landamærum Indlands og Vestur-
Pakistan. Indverjar náðu þó meiri landsvæðum þar af hinum. Landa-
mæri brcyttust þvi litið eitt, en meft samningunum nú á aft kippa þvi
ilag. — Myndin sýnir indverska hermenn, sem Pakistanir tóku til
fa nga.