Vísir - 08.07.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 08.07.1972, Blaðsíða 5
Yisir. I.augardagur. 8. júli 1!)72 5 GM AFTURKÖLLUÐU VEGA-BÍLANA General Motors létu eigendur nær allra Chevrolet Vegas-bila sem komnir voru á götuna, skila þeim aftur til seljandanna til athugunar á galla, sem kom fram i öxli. Framleiðslugallinn gat leitt af sér bilun á afturhemlunum og öxlinum sjálfum. Þetta var i þriðjá sinn á siðustu þremur mánuðum að Vega-bilarnir hafa verið kallaðir þannig aftur inn til verksmiðjanna. Náði afturköllunin til 500 þúsund bila sem smiðaðir hafa verið af ’71 og '12- módelunum. Jane Fonda kvikmyndadis, gleymir ekki fyrr- verandi eiginmanni sinum, Roger Vadim, leikstjóra, þótt þau séu fyrir löngu skilin. Hún greiddi ný- lega eftirstöðvar af skattskuldum hans, svo að hann géti snúið aftur heim til Frakklands til að hefja gerð nýrrar myndar meö fyrr- verandi eiginkonu sinni, Brigitte Bardot. Þessi tryggð Jane Fonda kostaði hana smáhýsið hennar, sem hún átti skammt frá Paris. Simon Spies sá frægi ferðamálafrömuður og sérvitringur fékk langþráða ósk uppfyllta, þegar hann um siðustu helgi leigði tveggja hreyfla þotu frá Business Jet Flight. Fyrir 30 þús. krónur danskar flaug hann til Nordkap og snéri heim sama dag. Hann langaöi til þess að pissa i Ishafið. Sofið ekki ó bakinu ef þið hrjótið! Það er sagt að það sé ekkert ráð til við hrotum. Það er að segja, ekkert ráð, sem dugir. en af hinu er uóg. i Bandarikjunum einum liggja fyrir cinkaleyfisumsóknir á einum 300 uppfinningum og ráð- um gegn hrotum. Brezki læknirinn, Ian Robin, sem talinn er vera heimssins fremsti sérfræðingur i hrotum, telur þessi ráð öll einskis nýt. Menn brosa kannski að þessu skrafi um hrotur, en reynslan sýnir, að það er óþarfi að lita þær smáum augum. t sumum fylkjum Bandarikjanna, er það heldur ekki gert, þvi að þar eru þær teknar fullgildar sem skilnaðar- orsök. Og vel að merkja, þá eru það ekki karlmennirnir i öllum tilvikum, sem hrutu sig út úr hjónaböndunum. Fyrir þá sem aldrei hafa deilt svefnherbergi meö öðrum og eiga þvi ekki gott meö að gera sér grein fyrir þvi hvers konar plága hrotur geta verið, mágetaþess að hrotur hafa mælst allt upp i 69 decibel (mælieining hljóðs) en loftborinn sem gatnagerðar- mennirnir vekja ykkur með á morgnana, gefur fra* sér hávaða, sem mælist frá 70 upp i 90 decibel! Doktor Robin telur þó að ráða megi bót á hrotum i svona 50% allra tilvika. Aðallega með læknisaðgerðum i nefi eða hálsi. Hann telur ennfremur að draga megi úr hrotum i svo sem 30% til- vika til viðbótar,en 20% verði ekki bjargað við. Á meðfylgjandi myndum má sjá, með hvaða hætti hrotur verða i flestum tilvikum. Á mynd A sést að vinstri nasavængurinn er i eðlilegum stellingum við út- öndunina. En hann sigur niður við innöndunina og lokar næstum nasarholunni eins og sést á mynd B. Streita og tóbaksreykingar geta lika leitt af sér hrotur. En besta ráðiö við hrotum er að sofa ekki á bakinu. Umsjón: G. P. OG ÞA FELL ÞAKIÐ NIÐUR! Úrslitaleikur heimsmeistaramótsins milli ttala og Bandarikja- manna var spilaöur i fjórum 16 spila lotum og tveimur 12 spila. Fyrstu þrjár loturnar einkenndust af yfirburðum ttala, en i þeirri fjórðu bilaði spilavél ttalanna og að henni lokinni var staðan 148-120. Sfðan dró aftur sundur og lokastaðan var 203-138. I.eikurinn i tölum er þannig: ttalia ÚSÁ 42 28 54 24 33 22 203 7 14 43 56 8 10 138 Spil nr. 67 var ógæfulegt fyrir Bandarikjamenn. Staðan var a-v á hættu og suður gaf. A K-9-5-3-2 V A-9-8-6 4 G-7-6 * S * enginn A D-G-10 ▼ D-G-10-3-2 * 5.4 * A-10-3 4 K-D-9-8-5 * D-9-8-3-2 jf, Á-G-10 * A-8-7 6-4 V K-7 * 4-2 * K-7-6-4 Það virðist sem Soloway hafi haft of mikla trú á getu ttalanna, þar eð hann telur þá geta unnið úttektarsögn, jafnvel þótt báðir hafi sagt pass í upphafi. Garozzo spilaði út spaðaás og blindur trompaði. Laufi var svin- að og aftur kom spaði trompaður i blindum. Tigulás var tekinn og siðan spilað laufi — og þá féll þak- ið niður! Forquet trompaði, spil- aði undan hjartaásnum og tromp- aði annað lauf. Sagnhafi gaf siðan einn á hjarta og einn á spaða og var 1100 niður. t lokaða salnum gekk allt miklu rólegar: Sagnir á Bridge-Rama voru þannig: Suður Vestur Norður Austur Garoz Solo Forquet Hamm zo . way an P P P 1 T 1 S 2 H 3 S P 4 S 4 G D 5 T D P P P Suður Vestur Norður Austur Lawr Avarelli Gold Bella ence man donna P P P 1 T 1 S 2 H 4 S D P P P ttalirnir tóku sina upplögðu fjóra slagi og spilið var einn nið- ur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.