Vísir - 27.07.1972, Page 1

Vísir - 27.07.1972, Page 1
Hamfarir á skákborðinu Eftir hamfarirnar var loks saminn friður i 7. skákinni þegar biðskák- in var tefld i gær. Hvorugur fann neina lausn á stöðunni. Spasski sýndi áfram sömu hörkuna og tókst að knýja kóng Fischers fram á borðið. Þar varð Fischer að taka mikil- væga ákvörðun, sem endaði með þvi að hann varð að tryggja sér jafn- tefli með þráskák. Þar með er staðan 4-3 áskorandanum i vil, og 8. skájkin verður tefld i dag á sama tima kl. 5. Sjá skákina á bls. 3. GF „Segðu þig bara til sveitar" Gamla fólkiö fer ílla út úr skattaskriöu rikisstjórnar- innar, en nú er lausnin fund- in, — því hefur verið ráölagt að segja sig til sveitar, — eöa þá að biöja um náö og miskunn hjá stjórnvöldun- um. —Sjá forystugrein á bls. 6. Sunddrottningin fœr ekki barnapíu Sunddrottningin okkar um árabil, Hrafnhildur Guö- mundsdóttir getur ekki keppt við að ná Olympiulág- markinu, hún er nefnilega þriggja barna móöir, — og barngæzlu vantar hana til að geta sinnt daglegum æfing- um — Sjá íþróttir i opnu. Föt fyrir menn með „Láns- trausts,#vöxt Það er ekkert gamanmól fyrir menn sem hafa óvenju langa handleggi að veröa sér úti um skyrtur, að maður tali nú ekki um tilbúin föt. Nú og ef einhver „lánstrausts tákn” hafa myndast framan á menn eru þeir lentir i sama vanda. Við ræddum við ung- an mann i gær sem var að opna nýja herrafatabúð. — Sjá bls. 7. M 238 punda mótel Það er fjarri þvi að allar sýningastúlkur og fyrirsætur þurfi aö vera þvengmjóar og tálgaðar eins og við eigum að venjast. Fran Fulleinvider er t.d. 238 pund og eftirsótt, — en hún er lika frá Texas, og þar er allt stærst segja menn. — Sjá bls. 13. M Verða 95% tannlœkna atvinnulausir? Sjá bls. 5 Tvisvar tveir bílar á sama númerinu! Austur á Egilsstöðum hafa undanfarið ekið um göturnar fjórir bflar á tveimur sömu númerunum. Þaö er U-755 og U-878 sem tvö eintök hafa verið af þarna eystra. Þessi mistök urðu vegna þess aö i Reykjavik voru slegnar nýj- ar númeraplötur á tvo bila og sömu númer slegin og höfðu vcriö i notkun i fleiri ár fyrir austan. Óku hinir nýju U-755 og U-878 austur -á Hérað, en brá heldur en ekki i brún, er þeir mættu „nöfn- um” sinum á götunni. Snar- aðist þá lögreglan i málið og skipti um númer á þeim sem að sunnan komu, og hafa þeir nú númer, sem enginn annar bíll hefur — að þvi er beztervitað. þs „Söluopin dauðadœmd" —segja náttúruverndarmenn, telja mun meiri sóðaskap fylgja þeim verzlunarháttum Náttúruverndarnefnd Reykja- vikur hefur kvartað undan um- gengninni i kring um Umferðar- miðstöðina. Þykir nátt- úruverndarfólki ekki nógu vel gengið frá rusli fró pylsusölu og öðru á þessum mikla umferðar- stað. En það er viðar, sem ferðafólk fær ósnyrtilegar móttökur af um- hverfinu. Landganga ferðafólks af skemmtiferðarskipum mun vera erfið, þar sem „hala” þarf farþegana á land og umhverfið hjá gömlu verbúöunum vestan Hafnarbúða sizt til þess fallið að sýna Reykjavik sem snyrtilega borg. Skiptar skoðanir geta verið um hreinlæti á götum borgarinnar, en ekki gera borgarbúar starfs- mönnum hreinsunardeildar borgarinnar sem annast hreinsun á götunum léttara um vik. — Það er enginn friður með körfurnar, segir Guðjón Þor- steinsson yfirmaður hreinsunar- deildarinnar. Þær eru jafnvel eyðilagðar nóttina eftir að þær eru settar upp. Hið sama gildir um kassana. En mesta plágan hjá okkur eru glerbrotin. Sjoppurnar selja glerið með gosdrykkjunum Þessar körfur eru smámsaman aö taka við af eldri kössunum en veröa allt of oft fyrir skemmdarfýsn ibúanna f Reykjavik. sem krakkarnir kaupa, siðan ganga þau um göturnar og drekka úr flöskunum og fleygja þeim i göturnar þar sem þau eru stödd. Mér finnst sjoppufyrir- komulagið dauðadæmt og held að það þekkist varla i heiminum, að selt sé út um söluop eins og hér tiðkast. Þetta ástand lagaðist ef til vill, ef fólkið fengi að vera inni meðan það er að drekka úr flösk- unum. Guðjón sagði, að vélsóparnir væru i notkun 18 tima á sólar- hring. Þeir gangi alltaf, þegar þeir séu i lagi. Hins vegar bili þeir oft vegna mikillar notkunar. Yfir- leitt sé þó hreinsað tvisvar á dag i Miðbænum og margar af aöal- götunum hreinsaöar daglega.-SB- ENN NÝ TÆKI í GULLLEITINA Allar likur eru nú á þvi að farið verði mjög fljótlega austur á Skeiðarársand með ný mæiitæki, til þess að leita að guliskipinu. 1 vor var leitað með nýjum tækjuin og gáfu þau mjög ákveönar bend- ingar um staðsetningu skipsins. Samkvæmt þeim á það að vera grafið i sandinn mjög auslarlega, eða á svipuðum slóðum og leitað hcfur verið undanfarin ár. Nú eru komin hingað enn ný tæki og fullkomnari, bæði kanadisk og handarísk af ýmsum gerðum og hyggjast incnn nú freista þess að gera ýtarlega leit að skipinu með þeim.Sem kunnugt er hafa Norð- inenn nú fundið mjög verömætt holienzkt skip og náð upp úr þvi um 200 kilóum af gulli. Talið er vist að dýrmætur fjársjóður sé i skipi þvi, sem hér strandaöi við Skeiðarárfjörur um aldamótin 17 hundruö, en ekki vita menn ná- kvæmlcga um farminn. þs „Möguleiki ó veðbanka" — segir Guðjón Stefánsson, framkv.stj. Skáksambandsins „Við höfuni verið að velta fyrir okkur inöguleikanum á að stofna veðbanka vegna einvigisins segir Guðjón Stefánsson, framkv.stj. hjá Skáksambandinu, en það er óvist ennþá hvort af þvi verður. „Það þarf að fá mann til þess að reka slikan hanka. finna út kerfi og annaö slikt en hvort út i þetta verður farið er alls ekki vist. „Astæðan fyrir þvi að ekki var larið úl i þetta fyrr er liklega sú óvissa sem rikti um cinvigismálin á timahili en nú er sem sagt ekkert þvi til fyrirstiiðu að veð- banki geli orðið að veruleika.” Það eru vissulega margir sem niyndu veðja enda hafa menn verið að undra sig á þvi að veð- banki hafi ekki verið stofnaöur fyrr. Kn nú er sem sagt möguleiki á þvi að veðmál geti hafizt af full- um krafti og áreiöanlcga með mjiig góðum árangri fyrir aðslandendur einvigisins. GF Nú heimtar Fischer myndir Seint f gærkvöldi vildi Fischer óður og uppvægur að farið yrði í að setja upp nýja klefa fyrir kvik- myndatökumenn og tæki þeirra. Þeir eru hins veg- ar orðnir langþreyttir á dyntum stórmeistarans í sambandi við myndatök- urog afsögðu að vinna við þetta í nótt en byrjað var á verkinu í morgun. Virðist svo sem myndatöku- málið sé loksins leyst og hér eftir verði hægt að mynda á eðlilegan hátt. Það var koma hinna þekktu umboðsmanna skemmtikrafta, þeirra Jerry Weintraub og Sid Bernstein sem hleypti fjöri i þetta deilumál. Fyrst ætluðu þeir að kaupa Fox frá mynda- töku hið snarasta og semja sið- an sjálfir við Fischer. En Fox lýsti þvi yfir að einkaréttur hans á dreifingu mynda væri ekki til sölu og þeir fengju ekki leyfi til að taka neinar myndir i höllinni frekar en aðrir. Þá var það Marshall lög- fræðingur Fischers sem kom áskorandanum i skilning um mikilvægi þess að myndataka færi fram og vildi hann þá að þegar yrði hafizt handa um að koma fyrir nýjum klefum fyrir tökumenn. Bandarikjamenn hafa kvart- að hástöfum undan þvi að hafa ekki fengið að sjá sjónvarps- myndir frá einviginu eftir að nafn Fischers komst á hvers manns varir. Akveðið hafði verið að mynda hverja skák svo hægt væri að stúdera þær siðar meir fyrir þá sem vildu. Aðeins var tekin kvikmynd af fyrstu skákinni en siðan hefur ekkert verið myndað. Nú eru tilbúnar þrjár filmur frá einviginu og undirbúningi þess, en vegna lögfræðilegra atriða hafa þær ekki verið sýndar ennþá. En frá og með skákinni i dag má fast- lega búast við að kvikmyndaö verði. -SG Brotalöm á kerfinu: Borgar sig ekki að reyna að forðast árekstur — sjá baksíðuna

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.