Vísir - 27.07.1972, Síða 3

Vísir - 27.07.1972, Síða 3
Visir. Fimmtudagur. 27. júli 1972 3 Erkiengill úr flllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliH Brekkukotsmenn á kafi í undirbúningi ........IW1IIIIIII.II..Illlllll.Illlll.Illlllllllllll.Illllll.Illll...1111111= Þeir Brekkukotsmenn halda áfram að sanka að sér gömlum munum af ýmsu tagi, á meðan unn- ið er af kappi við að reisa kvikmyndaver hér og þar um bæinn og ná- grenni hans. Fyrsta ,,innistúdióið” hér á landi fyrir kvikmyndun er nú að risa i stórum skála i Skeifunni og þar verða teknar innitökur m.a. i Brekkukotsbæn- um og Hótel íslandi. Björn Björnsson, leikmynda- teiknari kvikmyndarinnar um Brekkukot sagði blaðinu að bæri- lega gengi að safna gömlum mun- um i myndina. Þó vantar tilfinn- anlega stóra afaklukku, sem sýn- ir bæði sekúndur og dagatal, auk þess gömul, brún leðurkoffort og svo er óskað eftir erkienglinum Garbriel i metershæð. Og það er tilgangslaust fyrir venjulega engla að gefa sig fram, þessi á að vera úr marmara! Þýzka sjónvarpið hefur nú sent hingað fleiri menn og þrjá stóra bila, fulla af upptökutækjum og ljósabúnaði og komu þeir með Dettifossi nú i vikunni. Þá er hingað komin þýzk kona, bún- ingateiknari, með fjöldamargar kistur af búningum frá Dan- mörku og Þýzkalandi, en eitthvað verður svo notað af islenzkum búningum, eftir þvi sem við á. Sagði Björn að mikið rok hefði verið á Löngustéttinni upp við Gufunes þessa daga og varð að staga öll húsin niður til þess að þau fykju ekki út á sjó. Fer nú að styttast i sjálfa kvikmyndatök- una, en leikarar æfa textann dag- lega með leikstjó'runum. þs Mikiö hefur safnazt af ótrúlegustu hlutum inni f Skeifunni II, þar sem „kvikmyndaveriö” er til húsa. Hér er Sigurður Eyþórsson að hand- fjatla myndarlegt náttgagn, sem hugsanlega verður notað i myndinni. Ofninn sem við sjáum i á að vera i stofunni i Brekkukoti. marmara óskast! Fischer varð jafntefli — Þegar umslagið með biðleiknum var opnað i gærdag kom i ljós að ■Spasski hafði leikið h4, liklega eina leiknum sem tryggði honum öruggt jafntefli. Fischer svaraði með f6 og Spasski fór með hrók á stað og hugðist þrengja að svarta kóngnum. Fischer tók það til bragðs að fara i ferðalag með kónginn inn á mið- borðið. Spasski lék ávallt af bragði og gaf að sœtta sig við Spasskí þröngvaði honum til að þróskóka undir lokin — og þar með var skemmtilegustu skák einvígisins lokið andstæðingnum engan frið til aö athafna sig. Báðir keppendur virtust sjá fyrir sér lokastöðuna og Fischer var þó ekki á þvi að gefa sig. Þeg- ar Spasski gaf honum loks tvo kosti • að þráskáka ellegar að fara út i hættulegt ævintýri,sem hefði leitt til þess að Fischer tapaði, þá himdi Bandarikjamaðurinn upp undir hálftima yfir stöðunni til aö sannfæra sig um að hann gæti virkilega ekki unnið. Loksins tók hann eina kostinn, að skáka si og æ kóngi Spasskis og þeir innsig) uðu jafnlefliðmeðþéttu handtaki. Eftir að Spasski hafði leikið biðleiknum h4, voru ýmsir að benda á að eini möguleiki Fisch- ers til sigurs væri að drepa ridd- arann á e8 og fórna þar með skiptamun. Varla hefði það þó leitt til sigurs en ekki heldur taps fyrir svartan. Fischer tók þó enga áhættu heldur valdi þann kostinn að sætta sig við jafnteflið. GF 42. He6 43. Kgl Kf5 44. Rg7 + 44. . . Kxf4 45. Hd4+ Kg3 46. Rf5 + 46. . . Kf3 47. He6-e4! 47. . . Hcl + 48. Kh2 Hc2 + 49. Kgl Samið jafntefli. Jóhann Orn Sigurjónsson. NY KRISTALSENDING vorum að taka upp nýja séndingu af kristal, — sérstaklega íallegt og mikið úrval af lituðum kristal, einnig haiidskornum <>K mótuðpm kristal. BJOÐUM AÐEINS HINN HEIMSÞEKKTA BÆHEIMKRISTAL FRÁ TEKKÓSLOVAKÍU. GJAFAVÖRUR FYRIR ALLA. VERÐ FYRIR ALLA. TEKK - KRISTALL Skólavörðustig~ 16 — Simi 13111

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.