Vísir - 02.08.1972, Page 1

Vísir - 02.08.1972, Page 1
«2.árg.—Miðvikudagur 2. ágúst—173.tbl. VINUR MINN BORIS Júgóslavinn Dimitijé Bjelica er kunnur fræðimaður og rithöf- undur um skák i heimalandi sinu. Ilann er nú staddur hér sem fréttamaður vegna einvigisins. Bjelica er góðvinur Fischers og Spasskis og hefur ritað greinar og bækur um þá. Við birtum i dag glefsur úr viðtölum sem hann hefur átt við Boris Spasski á und- anförnum árum og greinarkorn um feril hans. Seinna munum við svo gera Fischer jafnt undir höfði og birta grein og spjall Bjelica við hann. Friðsamleg ótök . . - og keppendur sömdu eftir 29 leiki Sjó bls. 3 og 4 Dóttir afhjúpar föður I Það var dóttir Lin Piaos, I sem afhjúpaði samsæri föður jsins, Lin var „agent” Sovét- 1 rikjanna og hugðist myrða Mao formann i september i fyrra, segir i fréttum frá Japan. Austur i Kína er far- ið eftir kennisetningunni: „Afhjúpið svikarana jafnvel þótt þeir séu foreldrar ykk- ar, bræður og systur”. — sjá bls. (> Leyndardómurinn | um upplagið — sjá bls. 4 I Hvað er skákmerkið i stóru upplagi? Frimerkjasafnarar gæla við töluna 2 milljónir, eða allt af þvi. Póstmeistari er persónulega á móti þvi að lialda þvi leyndu hvert upp- lagið er, — en gerir það þó. Við röbbuðum við menn i i póstþjónustunni i gær um fri- I merkjamálíð. — Sjá. bls. 4 Myndasmiðum sagt upp? — sjá bls. 3 TIZKA Itízka, tízka . . — Sjá INN-siðuna á bls. 9 Júlí kveður: Sólarminnstur í sautján árl ágúst heilsar með sól og blíðviðri . 'ÍLÍ V' > * . -m-,. .. . r Þessi ungi maður var á fótum fyrir allar aldir til að njóta sólarinnar i Hallargarðinum, enda ekki að vita nema hún hyrfi bak við ský i næstu andrá. Sólin tók upp á þvi að skina á Reykvíkinga i morgun. Fjórði sólarminnsti júlí- mánuður frá því að mælingar hófust í Reykja- vík hefur nú kvatt og nýr mánuður tekið við með sól og bliðu og heiðbláum himni. Júlimánuðurinn hér í Reykjavik og nágrenni varsá sólarminnsti frá því árið 1955 og aðeins tvisvar áður, frá því að mælingar hófust, var minna sólskin. Árið 1955 voru 81,4 sólar- stundir, árið 1949 83,0 árið 1926 82,6 og núna árið 1972 mældust sólarstundirnar 97,7. Meðaltalið í þessum mánuði eru 177,7 sólar- stundir. Þessi mánuður var hins vegar bjartur og fagur fyrir norðan og austan, en nú hafa veðurguðirnir snúizt á sveif með Sunnlendingum og sent rigninguna norður, en fært okkur sólskinið. i morgun var brakandi þerrir á öllu Suður- og Vesturlandi og er ekki gert ráð f yrir að veðrið breytist i dag. Um framtíðina vilja veðu rf ræði nga r sem minnst segja. — Lægð er suður í hafi sem menn vona að fari sér hægt, og hæðin yfir Grænlandi getur hugsanlega tryggt áfram- haldandi góðviðri syðra. En sem sagt, — engin loforð og við bíðum með helgarspána þar tíl síðar í vikunni. —ÞS Fischer kampakátur og sigurviss Ilobert Fischer var kampakátur eftir jafn- teflið i gær og gekk sinu vaggandi göngulagi um sali Loftleiðahótelsins áður en hann lokaði sig inni i Leifsbúð með Fred C ramer og hóf að snæða kvöldverð. Þegar blaðamaður Visis spurði áskorandann hvort hann væri öruggur með sigur i einvig- inu, færðist breitt bros yfir and- litið. Og brosið hélt áfram að breikka þar til það sprakk i hlátri, sem sagði meira en nokkur orð að sigurinn væri hans. Séra Lombardy var hins veg- mmmmmmmmmmmimism Olíuskolunin var brot á lögum og alþjóðasamþykktum ar orðinn hungraður á undan Fischer og snæddi i blómasaln- um, áður en stórmeistarinn fann til svengdar. En Fred Cramer hélt þetta út og borðaði með Fischer kvöldverð um klukkan 23. Hefur Fischer haft það fyrir venju að snæða i Leifs- búð en ekki almennum veitinga- sölum hótelsins. —SG. EINVALDURINN VALDI LANDS- LIÐIÐ f MORGUN — >(ó fréttir Halls Símonarsonar fró Sjá baksíðu Stavangri í ÍÞRÖTTAOPNU

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.