Vísir - 02.08.1972, Blaðsíða 13
'
Visir Miðvikudagur 2. ágúst 1972
13
Umsjón: EDDA ANDRÉSDÖTTIR
„Við verðum settir í fangelsi,"
segja þeir sem nú standa að
kvikmyndagerð um kynlíf Krists
Jens Jörgen Torsen, sem hefur gert handritið að kvikmyndinni
heldur á krossinum, en þarna fer fram æfing á einu atriði kvikmyndar-
innar.
,,Við verðum settir i fangelsi
fyrir þessa kvikmynd,” segir
náungi nokkur Aners Stefansen
að nafni, en hann er upprunninn
úr Danaveldi. Þessi kvikmynd
sem ætti að geta komið sér svona
illa fyrir hann og félaga hans
heitir: The Love Affairs og Jesus
Christ, þar sem þeir taka fyrir
„mannlega” hlið Jesús. Krists.
Höfundur handritsins heitir Jens
Jörgen Thorsen, og eftir heils árs
vinnu í Suður-Frakklandi að gerð
handritsins er það loks tilbúið til
upptöku. Kvikmyndin verður tek-
in i Suður-Frakklandi.
„Kvikmynd þessi á án efa eftir
að verða mikiö umdeild”, segir
Anders ennfremur „en hún er lika
þess virði að gera hana. Hún er
unnin og gerð af hæfileikamiklum
mönnum, og talið verður á
ensku.”
Akveðið hefur verið aö upptök-
ur hefjist nú alveg á næstunni,
eða um mánaðarmót ágúst-sept-
ember. Bæði Anders og Jens
Jörgen telja Suður-Frakkland
einna heppilegasta staðinn til upp
töku kvikmyndarinnar, bæöi
vegna þess að þeim finnst lands-
lagið hæfa vel, og svo segja þeir
að þar sé staðsett hin b'eztá
kommúna, sem kemur til meö að
verða þeim hjálpleg við gerð
myndarinnar. Ekki nema örfáir
atvinnuleikarar leika i kvik-
myndinni. Samt getur það átt sér
stað að upptaka kvikmyndarinn-
ar verði i vetur gerð i Tunis að
einhverju leyti.
„Jesús Kristur var mikill upp-
reisnarseggur og byltingarmaður
þegar hann var uppi”, segir Jens
Jörgen, eftir að hafa athugaö
gaumgæfilega Mattheusarguð-
spjallið og allan þann fróðleik
sem hann getur náð sér i um
Krist.
„Oghann var einnig veikur fyr-
ir mat, drykk og konum alveg
eins og aðrir karlmenn”, segir
Jörgen ennfremur.
Meiri hluti kvikmyndarinnar
mun ganga út á hin siöari ár
Krists. Stundum er hún tekin upp
þannig að Jesús er látinn vera
fyrirliöi flokks sem rænir banka
og fremur önnur afbrot, stundum
er hann sýndur sem Kristur eins
og hann er sagður hafa verið eða
eins og fólk hefur myndað sér
hugmyndir um hann og einnig er
hann sýndur sem foringi hippa-
kommúnu.
Meðal þeirra atriða i kvik-
myndinni sem efiaust munu
koma miklu hneyksli af stað, er
krossfestingin. Þar er Kristur
krossfestur ásamt, Karli Marx,
Tarzan, Mao-Tse-tung, Simoni
postula og Uncle Sam.
t formála handritsins sem Jens
Jörgen hefur gert, segir hann
meöal annars: „Maður sem lifir á
tilfinningum sinum. Hann vekur
athygli á þeim augnablikum
þegar hann er eins og Guð, þegar
hann lendir i slagsmálum, þegar
hann drekkur og þegar hann
umgengst konur. Þessi persóna
vekur athygli og hann er hrifinn
af völdum sinum.”
Maria Magdalena er látin vera
stór partur i lifi Jesú. Þau eru
látin hittast i Libanon i fjölmennu
kynferðissvalli. Jóhannes postuli
er i kvikmyndinni leikinn af kven-
manni.
Myndin verður tekin i litum og
framleidd af S.B.A. kvikmynda-
fyrirtæki i Danmörku og Europa-
Film i Stokkhólmi.
„SYNFÓNÍA ARKITEKTÚRSINS"
Litla borgin Neviges, sem stendur við ána Ruhr i Þýzkalandi hefði sennilega aldrei orðiö neitt þekkt,
ef ekki heföi verið út af þessari furöulegu en skemmtilegu byggingu sem hér sést. Bygginguna teiknaði
arkitektinn prófessor Gottfried Böhm og er hún gerö i mjög svo sjaldgæfum stíl.
t byggingu þessari er kirkja, svo og nokkurs konar heimili eða bústaður fyrir pilagrima og þá sem
hvergi eiga höfði sinu aö halla. Bygging þessi rúmar fjölda manns, en hana vigði kinverskur biskup,
Vitus Maria-Chang Tso-huan.
Fatafram-
leiðendur
nota sér
einvígið
Þeir deyja ekki ráða-
lausir , þeir sem
æstastir eru i
gróðafýsninni. En
heimsmeistaraeinvigið
i skák er nú lika þess
virði að þvi sé veitt
athygli og margt snúist
i kringum það. Ungar
stúlkur og ungir piltar
þramma nú um strætin
með taflborð á bolnum
sinum,og svo auðvitað
Spasski og Fischer
nöfnin i stórum áber-
andi stöfum.
Annars hefur ekki
borið á þessum
klæðnaði á islenzku
strætunum ennþá, en
eflaust á þessi tizka
eftir að ná hingað eins
og önnur.