Vísir - 02.08.1972, Síða 6

Vísir - 02.08.1972, Síða 6
6 Visir Miftvikudagur 2. ágúst 1972 vísm Útgefandi: Reykjaprent hf. Frarnkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsscr. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttástjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Varnir gegn ferðamennsku ( Heimsmeistaraeinvigið i skák hefur á undanförn- ) um vikum verið umræðuefni fjölmiðla um allan \ heim. ísland og Reykjavik hafa þar fengið frábæra ( auglýsingu, sem mun verða ferðamálunum drjúg á ( næstu árum. Straumur ferðamanna til landsins hef- ) ur á undanförnum árum yfirleitt aukizt um meira \ en 10% á ári. Nú virðist ljóst, að hann muni aukast ( enn hraðar á næstu árum, svo framarlega sem við / höfum undan að byggja upp aðstöðu fyrir þá, eink- ) um hótelrými. \ ( Ferðamannaþjónustan er að verða verulegur lið-) ur i gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Hún styður að fjöl- ( breytni og öryggi i atvinnulifinu. En hún er ekki ein- / tóm blessun. Með henni fylgja ýmis vandamál, sem ) við verðum að taka til meðferðar i tæka tið. Einkum \ eru það vandamálin á sviði náttúruverndar, sem ( við erum vanbúnir að fást við. / Náttúra landsins er ákaflega viðkvæm, mun við- / kvæmari en i flestum öðrum löndum. Rusl og sóða- / skapur verða fljótt áberandi á islenzkum berangri. \i Gróður og jarðvegur láta fljótt á sjá, þegar umferð (l eykst. Þessa má þegar sjá merki á vinsælustu // ferðamannastöðunum. /i Við göngum sjálfir ekki of vel um landið okkar. (/ Linnulaus áróður fyrir bættri umgengni og náttúru- ) vernd hefur þó haft töluverð áhrif. Erlendir ferða- \ menn hafa ekki setið undir jafn miklum áróðri ( heima hjá sér, enda þolir náttúran þar meiri sóða- / skap en islenzk náttúra. Auk þess hefur umferðar- ) þunginn sjálfur mikil áhrif, t.d. á öræfunum, sem ( mörg eru nú opin allri almennri umferð. Hjólför eru / að verða eitt af einkennum öræfanna. ) Við verðum að horfast i augu við þá staðreynd, að / hluta af tekjum okkar af erlendum ferðamönnum ) verðum við að verja til að vernda náttúruna, eink- ( um á vinsælustu ferðamannastöðunum. Á mörgum / þessara staða er litil eða engin hreinlætisaðstaða né) aðstaða til að koma frá sér rusli. Á siðustu árum\ hefur nokkur breyting orðið til bóta, en mun betur ( má, ef duga skal. / Ennfremur mættu þeir aðilar, sem flytja erlenda/ ferðamenn um byggðir og óbyggðir landsins, leggja) aukna áherzlu á snyrtilega umgengni. Þeim áróðri, \ sem til er á islenzku fyrir góðri umgengni um/ náttúruna, þarf að snúa á ýmis erlend tungumál til) dreifingar i ferðabilum. Væru slik gögn til, mundu) fararstjórar og bilstjórar erlendra ferðamannal áreiðanlega leggja sitt af mörkum til að láta þau/ koma að gagni. ) íslendingar ferðast þegar mjög mikið um landið. / Fjölgun ferðamanna i náttúru landsins mun á næstu ) árum einkum koma fram hjá erlendum mönnum, ( ekki sizt ef straumur þeirra til landsins eykst um // helming á tiltölulega fáum árum eins og nú eru / horfur á. Það er þvi einmitt timabært að taka nú til) óspilltra málanna við að vernda náttúruna fyrir ( hinum erlendu auðfúsugestum okkar, eins og við / höfum á undanförnum árum verið að reyna að) vernda hana fyrir sjálfum okkar. \ Við fögnum auðvitað tekjunum, sem við höfum af ) ferðamannaþjónustunni. Jafnframt þurfum við að \ gæta þess, að þessar tekjur verði ekki umhverfi ( okkar til tjóns, og hefjast handa á þvi sviði nú þeg- ) ar. ) Ki ónprinsinn þóttist eiga forsetacmbættiö og varö vondur — Lin Piao og Mao. Þess vegna er Kína ekki sameinað Sovétblökkinni: Dóttir Brútusar ..Afhjúpið svikarana, jafnvel þótt þcir séu foreldrar ykkar, bræður og systur.” Samkvæmt þessum klassisku kennisctning- um uppbafs valdaskeiðs komm- únista i Auslur-Kvrópurikjum var það dóttir Lin Piaos, sem aflijúpaði samsæri föður sins. Lin ..agent” Sovétrikjanna, ætlaði að inyrða Mao formann 13. septcm- ber 1971, segja japanskar fréttir. Morðið er enn sem fyrr snjallt vopn i striðinu milli risanna i heimi kommúnismans. Svo snjallt, að hefði samsærið heppnazt og Lin Piao tekið við völdum, væri Kina væntanlega aftur sameinað i Sovétblökkinm í eindrægni og alúð. Lin Piao hafði það til sins sér- staka ágætis i hlutverki Brútusar við morðið á sinum Cesari, að hann var útnefndur krónprins Maos formanns. Hefði stelpan ekki kjaftað.... Flest dettur elliærum formönnum i hug. Lin hal'ði einnig stuðning ekki ómerkari samsærisbræðra en allra helztu herforingja. Her- l'oringjum leizt ekki á, að her- menn væru sendir á akrana i púl. Svo sem eins og hver önnur vit- leysan i formanninum. Hermenn skyldu vera hermenn á klassiskan hátt, stolt þjóðarinnar, liald og traust. yfirstétt. önnur vitleysan i formanninum var menningarbylting hans, sem setti allt á annan endann og tafði framsókn hennar, lokaði skólum og verksmiðjum og setti fjölda góðra forystumanna á hnén til að þylja rullur um ..afbrot” sin og vera skammaðir af hálf-brjáluð- um stúdentum. Flest gæti elli- 'ærum formönnum nú dottið i hug. Forseti kinverska alþýðulýð- veldisins. Liu Shao-Chi snerist gegn formanninum og var tekinn til bæna af óaldarlýð stúdenta, þar sem hann grátbað um miskunn og játaði reiprennandi Iráhvarf sitt frá vegi sannleikans og lifsins stefnu Maos og sósialismans. Af honum fréttist i stofu- fangelsi. Forsetaembættið var laust til umsóknar og Lin Piao var helzti umsækjandinn. Em- bættið mátti nýta. þótt það stæöi ekki formannsstöðunni á sporði. Lin Piao varð vondur, þegar hann fékk ekki embætti forseta. Hann ákvað að drepa Mao. Herforingjar trúöu á stál i striöi Mao var fluttur á öruggan stað 12. september 1971, daginn áður en samsærismenn hugðust höggva. Herforingjar vildu skapa sterkari her atvinnumanna. mótaðan samkvæmt fyrirmynd Rauða hersins sovézka. með vopnum frá Sovétmönnum, sem voru auðvitað fullkomnari en heimatilbúin vopn Kinverja. Mao sagði: ..Kina gengur eitt''. Herforingjar og Lin Piao höfðu hver fram af öðrum haldið fram hinu gagnstæöa: Aðeins með stuðningi Sovét- manna verður eitthvað vit i kin- verskum her á atómöld. Þessa stefnu má rekja til her- foringjans Peng, sem hafði stuðning Krusjevs á sinum tima. Mao formaður var þá orðinn þreyttur á ofmetnaði Sovét- manna, sem vildu ráðskast með kinversk mál samkvæmt fyrri kenningum Stalins (sem þó er enn dýrkaður i Kina). Mao setti Krusjev stólinn fyrir dyrnar. Burt með Rússa. Þótt Peng væri „hreinsaður” IMMMIMII Umsjón: Haukur Helgason og við stöðu yfirmanns herráðsins tæki Lo jui-Ching nokkur, var ekkert lát á undirróðri her- foringja gegn grundvallarstefnu formannsins. Ching var sparkað fyrir að halda þvi fram, sem Kin- verska dagblaðið orðaði þá svo: ,,Þeir héldu þvi fram, a‘ð i nútimastriði réðú tæknin, stálið og vélarnar úrslitum, en maðurinn og stjórnmálin skiptu litlu." Cheng-Wu tók við af Ching og var sparkað fyrir sömu afbrotin, en eftirmaður hans var engu betri. Hann tók þátt i samsærinu með Lin Piao. Opinber kinversk blöð viðurkenna nú loks, að Lin Piao hafi ætlað að koma Mao fyrir kattarnef. en langt er siðan þetta var taliö sannað á Vesturlöndum. Blöðin staðfesta einnig, að Lin Piao hafi beðið bana, er flugvél hans hrapaði en áður voru skiptar skoðanir um or- sök flugslyssins, hvort hún hefði til dæmis verið skotin niður. Lin Piao reyndi að myrða for- manninn eftir ósigur sinn og fé- laga i deilum við Chou En-Lai for- sætisráöherra og synjun á for- setaembætti sér til handa. Lin og fylgismenn eru kallaðir „róttæk- ustu vinstri mennirnir” i kin- verska kommúnistaflokknum, en erfitt er að skipa þessu liði til hægri og vinstri af viti. 1 Japönsku fréttunum er sagt, að Kinverjar muni ekki skýra i smáatriðum frá samsæris- áformunum, svo sem hvernig átti að stytta Mao aldur, vegna þess hve ..skammarlegt" slikt sé. Meðal herforingja, sem studdu Lin, voru yfirmaður herráðsins , flughers og flota. Sovétmenn reyndu aö koma burt gjaldeyri Lin Piao flýði, þegar upp komst um samsærið og komst i flugvél i bænum Linyu, öðru nafni Shann- haikwan, um 300 kilómetrum austan Peking. Með konu sinni Yeh Chun og syni þeirra komst hann burt i þotu, áleiðis til Sovét- rikjanna, til vina sinna. Flugvélin hrapaði i Mongóliu, segja kin- verskar fréttir, vegna þess að of mikill hamagangur var á flótta- mönnunum, sem óttuðust eftirför. t vélinni voru um það bil tiu, segir i fréttunum, og fórust allir. Óttinn við eftirför var varla alveg ástæðulaus. Að minnsta kosti er sagt, að sovézk flugvél hafi verið skotin niður yfir Sinkiangfylki og hafi hún flutt leyniskjöl kinverska kommúnistaflokksins og erlend- an gjaldeyri, dollara rúblúr og franka. Formaður stóð þvi af sér öll áhlaupin frá hægri og vinstri, allt frá þvi að forseti Kina, Liu Shao- Chi reis gegn honum i menn- ingarbyltingunni og unz samsæri krónprins hans urðu ljós, vegna dóttur. sem vist bar heill þjóðar- innar meira fyrir brjósti en heill foreldra sinna. Cliou En-Lai sigraði og tók á móti Nixon, en Lin heföi vist frekar boð- ið Bresrijev lieim.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.