Vísir - 10.08.1972, Side 2
2
Visir Fimmtudagur 10. ágúst 1972
LESENDUR
M HAFA
/£% ORÐIÐ
Skatturinn
gleypir allt
Kinstæð kona simar:
,,Ég réðst i það stórvirki i fyrra
að kaupa mér ibúð og reikn
aðist mér og minum svo til að ég
gæti staðið i skilum með vexti og
afborgánir væri fyllstu sparsemi
gætt. En þá sáum við ekki fyrir
skattpiningu stjórnarinnar.
Skattarnir i ár eru liðlega '
helmingi hærri en i fyrra og er nú
svo komið að tæplega þriðja hver
króna sem ég fæ i hendur lendir
hjá skattinum. Ég sé ekki fram á
hvernig ég fæ haldið ibúðinni, þvi
ef ekki er staðið i skilum lendir
allt i óefni. Og ekki þýðir að ætla
sér að sleppa við að greiða raf-
magn og hitaveitu. Ætli ég verði
ekki að fara fram á að Geir taki
við mér, eða kannski að Halldór
vilji gera það.
Þá veit 6g dæmi um ung hjón
sem langt eru komin að byggja.
Maðurinn hefur um langt skeið
unnið tvöfaldan vinnudag til að
hafa upp i kostnaðinn. Nú segist
hann vera hættur við að vinna
meira á þessu ári. Það verði allt
tekið i skatta. Hvernig fer með
framleiðsluna á endanum, þegar
þeim er þannig refsað sem leggja
hart að sér i sina þágu og þjóðar-
Ijúsins?”
vimsm:
Kirikur Þóroddsson, sölumaður:
Nei. Það mætti hins vegar hækka
hámarkshraða bifreiða um 10 km
hvort sem er i bænum eða úti á
landi. Annars fer það auðvitað
eftir aðstæðum.
upp til 5 áro
heldur
Ung hjón leggja
Viljum
en safna
dvalar í Afríku
hjálpa
auði hér
,,Þetta er auövitaö stór
ákvörðun og þarna verður
ekki hægt að safna neinum
auði. En við kviðum engu",
agði Jónas Þ. Þórisson, en
lann og kona hans, Ingi-
jörg Ingvarsdóttir eru að
ggja af stað til Afríku,
ar sem þau ætla að dvelj-
st í 5 ár. Eins og hálfs árs
óttir þeirra, Hulda Björg,
er að sjálfsögðu með.
„Við verðum i Konsó i Eþiópiu,
islenzku kristniboðsstöðinni og
g mun sjá um skólareksturinn
ar. Þarna hafa tslendingar verið
ður, og ásamt okkur verður
arna ein önnur islenzk fjöl-
kylda. Þarna eru annars ein-
göngu innfæddir Konsómenn,
sem tala Konsómál, sem er að
jálfsögðu gjörólikt þeim málum,
em við tölum. Við munum læra
mharisku, en á henni fer öll
ennsla fram. Starf okkar verður
álgið i trúboði og kennslu, auk
mis konar fræðslu”.
.Hvernig er aðbúnaðurinn
arna?”
Hann er svona sæmilegur,
auðvitað hvergi sambærilegur við
það sem maður á að venjast.
Rafmagn hefur maður aðeins frá
7 - 10 á kvöldin og vatn er litið.
Rigningarvatni er safnað saman
og þarf að spara það mjög mikið.
Þarna er mikill trjágróður, en þó
ekki eiginlegur frumskógur,
heldur háslétta”.
„Hvernig er ástandið á meðal
innfæddra?”
„Þarna er ekki bein hungurs-
neyð, en mikill næringarskortur
i börnum. Sá siður rikir, að láta
börnin alltaf fá siðast, og þá
oftast minnst. Þau liða þvi mjög
mörg af næringarskorti. Annars
er þetta duglegur ættbálkur, og
lifir hann aðallega á akuryrkju.
En þetta fólk lifir i strákofum og
er mjög frumstætt á okkar mæli-
kvarða. Kristniboðsstöðin er
þarna við smáþorp, og margir af
hinum innfæddu hafa aldrei séð
hvitan mann”.
„Er læknir þarna?”
„Nei en hins vegar hjúkrunar-
kona. Ekki alllangt frá er starf-
andi islenzkur læknir, og kemur
hann af og til til Konsó. En með
trúboðsstarfinu innum við af
hendi sjúkrastarf og ýmsa heil-
brigðisfræðslu”.
„Og þið kviðið engu?”
„Nei, við höfum unnið að
kristniboðsfræðslu hér heima og
við viljum heldur fara þangað,
sem við getum hjálpað til, en að
vera hér heima og safna auði”,
sagði Jónas að lokum.
Þess má geta að lokum að þau
Jónas og Ingibjörg eru bæði
kennarskólagengin, og auk þess
hefur Jónas verið á kristniboðs-
skóla i Noregi. Hann er rétt orð-
inn 28 ára gamall, en Ingibjörg er
24 ára. Við óskum þeim góðrar
ferðar og velgengni i Konsó.
—ÞS
„Vio Kvioum engu , ingiDjorg, Hulda Björgog Jónas, sem eru aðleggja upp í 5 ára Afrlkudvöl.
Guöni Runólfsson, skrifstofumað-
ur: Nei . Það er kannski álitamál
hvo'rt það eigi að taka bila af
mönnum eins og gert var um
helgina, en það má refsa þeim
eitthvað fyrir of hraðan akstur.
Stefán Þorvaldsson, starfsm.
Hótel Sögu: Alls ekki. Það þyrfti
bara að beita hörkunni lika i öðru
i umferðinni, eins og t.d. stefnu-
ljósunum. Það eru fáir sem nota
þau rétt.
Bolli Gunnarsson.simritari: Nei.
Það er sjálfsagt að beita hörðu
þegar óvarlega er ekið. Sums
staðar mætti þó hækka hámarks-
hraðann uml0-20 km.
Gamall Keykvikingur skrifar:
„Ég vil hvetja sem flesta til að
heimsækja safnið að Árbæ. Það
ætti að vera föst venja foreldra að
fara þangað með börnin þegar
þau eru farin að vitkast og að
sjálfsögðu ættu Reykvikingar að
bjóða þangað öllum kunningjum,
sem búsettir eru utanbæjar en
koma i heimsókn hingað.
Á hverju sumri fer ég minnst
tvisvar sinnum upp i Árbæ og hef
alltaf jafn gaman af þeim ferð-
um. Safnið er opið frá kl. 1 til 6
alla daga nema mánudaga og á
sunnudögum er boðið uppá
skemmtiatriði ef gott er veður.
Allir sannir tslendingar þurfa að
þekkja nokkuð til fortiðarinnar og
margt úr henni má sjá áþreifan-
lega i Árbæ, þótt safnið eigi að
sjálfsögðu eftir að stækka og efl-
ast á næstu árum. En það er ekki
nema rúmur mánuður þar til
safnið lokar og þvi vildi ég nú
koma þessum orðum á framfæri.
Nú er veðrið gott og hvað er þá
betra en skreppa og skoða safnið
og fá sér kaffi og bakkelsi um
leið?”
Smekkur
íslenzkra
stúlkna
E.Sk. skrifar:
„Hvernig er það með islenzkar
stúlkur, hafa þær ekki lengur
smekk fyrir islenzkum karlmönn-
um? Ég varpa þessari spurningu
fram vegna þess, að maður sér
varla svo rindilslegan Malæja að
hann hafi ekki islenzkan kven-
mann upp á arminn og sagt er að
sumar hafi gengið i það heilaga
með þeim.
En næst er mér að halda að is-
lenzkar stúlkur viti ekki i hvaða
aðstöðu þær eru að koma sér, með
þvi að bindast þessum mönnum
og flytja með þeim úr landi. Þeir
eru gjörólikir okkur i hugsunar-
hætti og búa flestir við þröngan
kost vestan hafs, allavega verri
en hvitir menn. Þvi er hætt við að
stúlka sem gift er Malæja verði
að þola það, að á hana er litið sem
annars flokks þegar til Banda-
rikjanna kemur, og það getur
orðið erfið raun. Þetta eru ekki
kynþáttarfordómar heldur stað-
reynd sem erfitt er að komast hjá
að viðurkenna.
Islenzkum stúlkum ætti ekki að
vera vorkunn að giftast islenzk-
um karlmönnum þvi nóg er af
myndarlegum mönnum til reiðu.
Mig langar að varpa fram spurn-
ingu til þeirra sem vita: Er ekki i
varnasamningnum ákvæði þess
efnis að varnaliðsmenn i Keflavik
skuli vera af hvitum stofni?”
Finnst yður að lögreglan
taki of hart á hraðaksturs-
mönnum?
John Hinriksen, sölumaður: Nei,
það finnst mér ekki. Hins vegar
finnst mér að megi vera strangari
gæzla með umferð i bænum og
lika að tekið verði harðar á stöðu-
mælasektum þó það komi kannski
ekki málinu við.
Heimsœkið Árbœ
Guömundur Arinann Sigurjóns-
son, myndlistarmaður: Ég veit
nú ekki hvað skal segja. Það er
alltaf verið að kenna ökumönnum
um bifreiðaslys i stað þess að
rekja málið til rótarinnar: sífelld-
ur innflutningur biia til landsins.
Það er þó sjálfsagt að menn reyni
að aka gætilegar, en ég er á móti
lögreglunni og ætla mér ekki að
dæma um það.
HRINGIÐ í
síma86611
KL13-15