Vísir - 10.08.1972, Page 6
6
Visir Fimmtudagur 10. ágúst 1972
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjjjri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulftrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglysingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaöaprent hf.
Nokkur kostur og mikill löstur
Töluverð pólun hefur orðið i rifrildinu um skatt-(
heimtu rikisins. Annað hvort sjá menn hvergi á\li
henni ljósan punkt eða þá, að menn færa henni flest')
til ágætis. Hinir siðarnefndu hafa sig þó minna ij\
frammi, einkum eftir að rikisstjórnin viðurkenndií
mistök sin i skattlagningu aldraðs fólks og öryrkja. /
Raunveruleikinn fellur ekki i þessa svarthvitu/
mynd. Visir hefur gagnrýnt skattalögin nýju harð-)
lega, en blaðið hefur lika tekið fram, að ýmislegt i (
þessum lögum væri jákvætt. Á vissum sviðum felst/i
t.d. i þeim einföldun á kerfinu, sem er til bóta. Og)
allir voru sammála um, að skattalögunum þurfti\
nauðsynlega að breyta. (
Fyrri rikisstjórn hafði raunar byrjað á umfangs- (
mikilli endurskoðun skattakerfisins. Um það höfðu/
verið samin itarleg nefndarálit. I fyrstu umferð)
voru tekin sérstaklega þau atriði, sem snertu at- (
vinnulifið. Siðasta ár stjórnarinnar voru sett lög, (
sem miðuðu að þvi, að skattlagning fyrirtækja yrði /
með svipuðum hætti og tiðkast hjá öðrum þjóðum i)
Norður- og Vestur-Evrópu. í framhaldi af þessu átti (
svo að setja lög um skattlagningu einstaklinga, /
byggð á sömu athugun, en til þess entist stjórninni )
ekki aldur. (
Nýja rikisstjórnin sló striki yfir allt þetta starf. (
Hún dró til baka þær endurbætur, sem gerðar höfðu (
verið á skattlagningu fyrirtækja. Og hún lét i hasti /
og laumi gera nýja heildarathugun á skattamálun- )1
um. Helztu skattafræðingar landsins voru ekki((
hafðir með i ráðum, ekki einu sinni rikisskattstjóri. //
Þessi athugun leiddi til hinna nýju skattalaga, /
sem svo mjög hefur verið rifizt um á þessu ári. í)
þeim fólust sumpart eðlilegar og sjálfsagðar endur- (
bætur, sem voru i samræmi við tillögur þær, er hinir (
skattfróðu menn höfðu gert á vegum fyrri rikis-//
stjórnar. En sumpart voru á þeim alvarlegir gallar, //
sem smám saman hafa verið að koma i ljós. )i
Þekkingarskortur og ónógur undirbúningur eru)
helzta orsök margra þessara mistaka. Svivirðileg-(
ust voru mistökin i skattlagningu aldraðs fólks og /
öryrkja. Þau mistök hefur rikisstjórnin nú séð sjálf)
og lofað að lagfæra nú þegar. önnur mistök streit-)
ast hún enn við að viðurkenna ekki. Þar á meðal er(
skattpining þess unga fólks, sem með mikilli vinnu /
er að reyna að koma undir sig fótunum og koma sér)
upp þaki yfir höfuðið. Ennfremur skattpining al-(
mennra borgara, sem hafa meðaltekjur og þar yfir. /
Sumir fara vitanlega vel út úr nýju reglunum, þar (
á meðal tekjulitlir námsmenn. Einkum er þó farið /
vel með þá, sem bersýnilega lifa þannig, að tekjur )
þeirra eru mun meiri en skattskýrslur þeirra sýna. (
Þeir eru látnir alveg i friði, þótt þar hefði verið mest /
ástæða til endurbóta i skattheimtunni. )
Höfuðvilla rikisstjórnarinnar er þó sú að gina yfir /
of stórum hluta þjóðarkökunnar. í stað fimmta )
hluta hennar vill hún nú fjórðung. Þetta kemur auð- (
vitað niður á sveitarfélögunum, sem fá minna til /
þjónustu sinnar við borgarana, og á skattgreiðend-)
um almennt, sem borga kostnaðinn af þvi heims- (
meti, er rikisstjórnin hefur slegið i skattheimtu. (
Það eru til ljósar hliðar á hinu nýja skattakerfi, ((
en hinar dökku eru þvi miður allt of áberandi. Þetta7/
er harður en sanngjarn dómur um hina nýju skatt- )l
heimtufrekju. (\
,Sá koss var svo heitur.." Bandarískt og sovézkt geimfar (teikning)
Merkileg tiðindi i kalda
striðinu. Kinhvern tima snemma
ársins 1975 verAur geimfari
skoliA af palli i Sovctrikjunum, og
sjii og hálfri klukkustund siAar
leggur handariskt geimfar upp.
Tveir Itússar. Þrir Bandarikja-
menn. Þeir ætla aA hittast úti i
geimnum.
Kftir sólarhrings geimferA ætla
hiA sovézka Sojusfar og hið
bandaríska Apollofar að mætast i
geimnum, og geimfararnir heilsa
hver upp á annan. Þeir verða
næstu tvo daga „sameinaðir", för
þeirra tengd saman. Þeir kynnast
útbúnaði geimfara hinna ,,fornu
fénda” i kalda striðinu og gera
sameiginlega rannsóknir og
tilraunir.
Nixon og Kosygin gengu frá
þessu, þegar Nixon kom til
Moskvu i vor. Samingur var
undirritaður 24. mai, eitthvert
merkasta verkið i samvinnu risa-
veldanna, eitt af þvi sem heldur
mannkyninu i voninni um fram-
tið, i stað vonleysis. Ægivopnin,
sem risaveldin ráða, mundu
boða endalok, ef ekki væru þess
konar skimur i þykkninu.
sendu John Glenn út i geiminn i
febrúar 1962. Þeir gerðu þá einnig
tilboð um samvinnu stórveld-
annna um geimferðir, og visinda-
menn beggja ræddust við. Niður-
staðan varð samningur um geim
ferðir, undirskrifaður i júni 1962,
sem gekk út á, að stórveldin
skiptust á upplý-dngum á tak-
mörkuðum sviðum. Samvinna
skyldi vera i ýmsum veður-
athugunum með gervihnöttum og
mælingar segulsviðs.
nmimm
Umsjón:
Haukur Helgason
Kapphlaup um ,,yfirburði
þjóðskipulags''
Arum saman hefur það verið
draumur margra visindamanna,
að risaveldin sameinuðu kraftana
i geimvisindum. Tilraunirnar
stöðvuðust á miðri leið, þegar
kalda striðið komst niður fyrir
frostmarkið. Bandarikjamenn
reyndu strax árið 1955 að stofna
til samvinnu um. hvaða
reglur skyldu gilda i geimferð
um og hvernig upplýs. skyldi
dreift. Kalda striö var of kalt til
þess að stórveldin gætu komið sér
saman um þetta. Rússar sendu
fyrsta „geimmanninn" af stað,
Juri Gagarin 12. april 1961. Kapp-
hlaupið hófst með forskoti Rússa.
Þeir slógu um sig með afrekinu. Á
íslandi sem og i Egyptalandi var
þvi haldið fram með sann-
færingarkrafti, að afrekið sýndi
yfirburði Sovétskipulagsins yfir
öðrum.
Bandarikjamenn jöfnuðu sig og
Skrefi lengra var komizt i
nóvember 1965 með samkomulagi
um samvinnu um upplýsingar um
liffræði- og læknisfræðilegar
rannsóknir úti i geimnum. Þetta
var þó aldrei gert að þvi marki,
sem ætlazt var til. En nú hefur
hlaðið verið brotið.
Þurfa að jafna sig í tvo
tíma
Ætlunin er, að sovézka gcim-
farið smeygi sér inn i tengibúnað
Apollo.
Samdægurs fara tveir
bandarfsku geimfaranna yfir i
Sojus og dvljast þar væntanlega i
margar klukkustundir.
Þeir fara aftur ,,Heim til sin”
til að sofa, en næsta morgun fara
tveir bandarisku geimfaranna
enn yfir i Sojus. Annar verður þar
um kyrrt, en hinn fer með
sovézkan geimfara yfir i Apollo.
Bandarískir og sovézkir geimvrsindamenn á blaöamannafundi. Frá
vinstri: Bushuyev og Petrov frá Sovét, og Kraft og Lunney frá
Bandaríkjunum.
Þeir verða nærri allan daginn i
þessum heimsóknum, en fara
heim um kvöldið
Lunney, einn yfirmanna
bandarisku geimferðaætlunar-
innar, segir aö sem sakir standa
muni tveir af þremur
Bandaríkjamönnunum fara yfir i
Sojus, en aðeins einn af
Rússunum tveimur fer yfir i
Apollo-geimfariö. Ein orsökin er,
að loftið er ekki hið sama i báðum
förunum. i Sojusi anda geim-
farar aö sér blöndu af súrefni og
nitrógeni, sem er nánast sams
konar loft og á jörðu, en i Apollo
er loftið hreint súrefni.
Þrýstingurinn er þvi mismun-
andi, og geimfararnir verða að
vera um tvær stundir i tengi-
hlutanum, áður en þeir fara alla
leiðina úr Sojusi i Apollo. Ella
yrðu þeir fyrir sömu reynslu og
kafarar, sem verða að fara of
hratt af miklu dýpi, en það getur
verið banvænt.
Hver ræður ef þeir rífast?
Báðir munu vafalaust hamast
viö að sýna „gestunum” hvernig
geimförin starfa, eins og flug-
menn i vinarheimsókn. Kannski
fá gestirnir að „taka i stýrið”.
Hver á að ráða, ef vandamál
koma upp? Þetta var eitt
erfiðasta viðfangsefnið. Ætlunin
er, að ákvarðanir séu teknar i
sameiningu, með þvi að geim-
farar hafi samband við mið-
stöðvar á jorðu beggja vegna i
samtölum, fjarskeytum og sjón-
varpi. Hvoru skipinu um sig
verður stjórnað af miðstöð i eigin
landi.
Samið var um það, hver skyldi
ráða og i hvaða tilvikum i
smæstu atriðum i Moskvu i april,
þegar ekki væri unnt að fá
samstööu beggja, meðan förin
væru tengd. Aöal atriðið, er, að
Bandaríkjamenn hafi stjórnina,
þegar sovézki geimfarinn er
staddur i geimfari þeirra, og
Rússar, þegar Bandarikjamenn
eru hjá þeim i heimsókn.
Komi hver öðrum til
bjargar
Og einhvern tima munu
Bandarfkjamenn fara af stað og
bjarga sovézkum geimförum i
neyð úti i geimnum eða Rússar
koma bandariskum geimförum
til hjálpar. Þetta er einn helzti til-
gangur samvinnunnar. Takist
þessi tilraun hafa báðar þjóðirnar
aukiö möguleika sina á að bjarga
„strönduöum" geimförum, án
þess að leggja þurfi i gifurlegan
kostnað við björgunarútbúnað og
hjálpargeimför, sem verði til
taks.
Auk þess gefur þetta
Bandaríkjamönnum eitthvað að
stússa i geimvisindum, og
„fyllir eyðuna", sem annars værir
milli tilrauna með geimrann-
sóknarskip næsta ár og hinna
miklu tilrauna með geimferjur,
sem verða upp úr 1978.