Vísir - 21.08.1972, Síða 6
6
Visir Mánudagur 21. ágúst
vísm
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Eitstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiösla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Bit-gir Pétursson
Valdimar H. Jóhannesson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Svörum með sókn
Bretar telja sig hafa unnið áróðurssigur i
Haag, sem muni auðvelda þeim leikinn. Þeir geti
kallað sig „verndara laga og réttar”. þegar þeir
reyni að knésetja þessa litlu þjóð
Úrskurður alþjóðadómstólsins hlýtur hins
vegar að teljast ábending ein. Dómstóllinn hefur
ekki úrskurðað að hann hafi lögsögu i landhelgis-
deilunni. Kvótakerfið, sem dómstóllinn býður
sem bráðabirgðarlausn, er augljóslega einungis
tillaga hans. Hann getur að sjálfsögðu ekki byggt
úrskurð um ákveðna takmörkun veiða Breta og
Vestur-Þjóðverja við ísland á neinum lögum
Bretar hafa þvi ekki neinn raunverulegan dóm
að baki sér, þegar þeir leggja til atlögu, Hins
vegar munu þeir reyna að notfæra sér bráða-
birgða niðurstöður dómstólsins til að komast hjá
enn meiri siðferðilegum hnekki en þeir munu
óhjákvæmilega biða af nýju þorskastriði.
Jafnvel brezku blöðin hafa bent á, að með
dómsúrskurði i Haag hafi i rauninni alls ekki
verið komizt nær niðurstöðu i landhelgismálinu.
Lausn málsins hljóti eftir sem áður að vera
komin undir afstöðu þeirra rikja, sem i hlut eiga.
Engu að siður skipta viðhorf annarra þjóða
miklu um framvinduna.
Einmitt þess vegna báðu Bretar um það, sem
þeir kölluðu „lögbann”
í samskiptum stórra rikja við hin smærri hefur
það æ oftar ráðið úrslitum, hvernig almenningur
og rikisstjórnir landa, sem ekki hafa átt beina að-
ild að deilunum, hafa brugðizt við. Þetta hefur að
minnsta kosti gilt um lýðræðisriki.
Að þvi kemur að alþjóðleg hafréttarráðstefna
fjallar um málið.
Þetta hafa islenzkir stjórnmálamenn gert sér
ljóst frá upphafi. Þess vegna var i umræðu um út-
færslu fiskveiðilögsögunnar jafnan lögð rik á-
herzla á, að málstaður íslendinga yrði kynntur
eins og kostur væri.
Ábendingin frá Haag undirstrikar enn frekar
mikilvægi slikrar kynningar.
Það var miður, að ísland átti ekki málsvara
hjá dómstólnum til að tefla fram rökum okkar.
En nú riður á, að svara með sókn.
Rikisstjórnin verður að auka til mikilla muna
kynningarstarf erlendis. Það má ekki fara fram
hjá neinum, sem máli skiptir, að Haagdóm-
stóllinn hefur ekki kveðið upp dóm. Hann getur
að sjálfsögðu engan dóm fellt, meðan hann hefur
sjálfur ekki gert sér grein fyrir, hvort hann hafi
lögsögu i þessu máli eða ekki.
Dómarar i Haag lögðu fram tillögur um bráða-
birgðaráðstafanir, þar sem þeir að visu fylgdu
fram óskum Breta og Vestur-Þjóðverja til hins
ýtrasta.
Tillögurnar eru ekki raunhæfar og litt fallnar
til að stuðla að sanngjarnri niðurstöðu.
Þær munu i engu hnekkja ásetningi okkar, sem
byggist á nauðsyn.
Þær breyta ekki staðreyndum með þvi að af-
neita þeim.
En þeim verður að svara með nýrri sókn.
Frakkland.
Frakkland hefur veriö áningar
stöö heróinsmyglsins. Þar hafa
veriö leynilegar verksmiöjur,
sem hafa unnið heróin úr óplum
og morflni. Mest af heróini i
Frakklandi er talið unnið úr
tyrknesku ópium og morfini.
Franska stjórnin hefur til mikilla
muna aukið fjárveitingar til bar-
áttunnar viö heróinframleiö-
endur i Suöur-Frakklandi
llllllllllll
a® imm
■■■■■■■■■■■■
Umsjón:
Haukur Helgason
Indland.
Eftirlitskerfi Indverja meö
ópiumframleiðslu er taliö vera
hiö bezta i heimi. Embættismenn
óttast helzt, að veröi góður árang-
ur af tilraunum annars staðar til
að stöðva ópíumsmygl og ólög-
lega ræktun, muni verða meiri
freisting fyrir indverska bændur
og afbrotamenn að gefa sig aö
ólöglegri sölu.
Stjómin valdalítil
Burma
Lög eru ekki nægilega ströng i
Bnrmatil aö hamla viö ópium-
smygli, og fyrst og fremst ræður
stjórnin ekki sumum þeim svæö-
um, þar sem ræktunin blómgast
mest.
Stjórnin hefur þó fengizt við
aö stööva ópiumræktunina.
Thailand.
Rikisstjórnin er alls ómegnug aö
útrýma ræktun ópiums, þar til
fram koma aðrar nytjajurtir frá
sjónarmiöi bænda, sem hafa
ræktað ópium. Litiö er unnt aö
leggja upp úr þvi aö brenna akra
og eyöileggja uppskeru fyrir
bændum.
Laos.
Laos er i hers höndum, og strið
geisar um þvert landið. Vanda-
máliö viö óplum er þar aöallega
aö koma I veg fyrir, aö ópium sé
smyglaö um landiö frá öörum
löndum, einkum Burma.
Suöur-VIetnam er góður mark-
aöur fyrir ópium, þótt úr þvi
dragi, er bandariskir hermenn
verða færri.
Valmúinn, „nytjajurt milljóna bænda i fjölda landa.
italir mest i orði
Italia er aðlalega millistöð fyrir
flutning ópiums og morfinbasa
frá Tyrklandi til heroinverk-
smiðjanna i Suöur-Frakklandi.
Lög ttaliu eru nægilega ströng,
en mikiö skortir, aö þeim sé fylgt
fram af afli.
Eitthvað hefur italska lögregi-
an reynt að stemma stigu viö
starfsemi Mafiunnar, sem þrifst
ekki sizt á eiturlyfjasmyglinu.
Þetta hefur þó verið meira i oröi
en á borði....
ATLAGAN GEGN
VALMÚANUM
Tvimælalaust hafa stjórnir
ýmissa landa gert mun meira til
aö stöðva eiturlyfjasmygliö i
seinni tiö en jafnan áöur. Nefnd
Nixons Bandarikjaforseta segir I
skýrslu til hans, 112 blaösiöum ,.
80 prósent af heróini, sem komi til
Bandarikjanna, sé frá Tyrklandi
komiö, 10—15 prósent frá Mexikó
og 5 til 15 prósent frá Suðaustur-
Asíu. Þetta á aö stööva. Hvaö
hafa stjórnir hinna ýmsu land|a
gert'?
Bann í Tyrklandi.
Enn þarf aö herða framkvæmd
laga ef takast á að draga úr
ópiumsmygli þaöan, þótt fram-
leiðsla ópiums i Tyrklandi, einu
aðai framleiöslulandinu.verði nú
bönnuö.
i „Mikið net er til staðar i Tyrk-
jlandi til aö safna og stundum
framleiða og smygla ópium, sem
hefur verið framleitt fyrir bann-
,ið”, segir nefndin. „Þessi starf-
semi mun væntanlega halda
áfram, þar til ekkert ópium verö-
ur lengur til i landinu. Hætt er við
smygli gegnum Tyrkland frá
.Iöndum austar i Asiu.
Afganistan:
Þaðan er ópium selt ólöglega til
Irans, og fer mest ekki lengra.
Þótt framleiðsla á ópium sé bönn-
uö I Afagnistan, er nánast ekkert
gert til aö framfylgja banninu.
tran.
Þar er framleiðsla á ópium
leyfð til lyfjagerðar. Sæmilega
viröist ganga að koma I veg fyrir,
að þessi framleiðsla fari á ólög-
lega markaðinn og til Evrópu og
Ameriku um íran.
Eftirlit Indverja
bezt í heimi.
Pakistanl*
Rikisstjórn Bhuttos segist
gjarnan vilja vinna með Banda-
rikjunum til að stemma stigu viö
framleiðslu ópiums og smygli i
Pakistan. Bhutto kveöst vilja
binda enda á ólöglega framleiðslu
ópiums i landinu, þótt þaö veröi
mjög erfitt á stöðum, þar sem
ópium hefur veriö ræktaö i ald-
anna rás.
Hins vegar segist Bhutto hafa
öðrum hnöppum að hneppa I bili
en fást viö slikt.
Akrar brenndir.