Vísir - 21.08.1972, Page 7

Vísir - 21.08.1972, Page 7
Visir Mánudagur 21. ágúst 1972 7 FININM I 5IÐAN = Umsjón: Svanlaug Baldursdóttir Fimm barna móðir fær sér vinnu ulan heimilis. Hún er ekki að safna fyrir nýju heimilistæki eða sófasetti heldur að vinna fyrir tannvið- gerðum. En hún vill vita nákvæmlega i hvað pening- arnir fara og um áætlaðar mánaðargreiðslur, sem er ekki auðvelt að fá. Tannlækn- ar virðast enn ekki hafa slikar fjármálaáætlanir á starfssviði sínu , þótt einkennilegt megi virðast ,þar sem þeir annast gjaldskrá sina sjálfir. Og þó, auðvitað ætti það ekki að vera á verksviði tannlækna að vera einhvers kónar fjármála- spekúlantar eða gjaldkerar, þeirra hlutverk er að gera við tennur og sjá um tannvernd. Dæmið/Sem nefnt var hér á undan er úr Reykjavik. Það er inngangur að almennu spjalli um tannlækningar og hvernig þær koma við vasa fólks. Nú standa yfir viðræður meðal tannlækna og heilbrigð- ismálaráðuneytisins um það, að hvaða miklu leyti tannlækn ingar eiga að koma inn i sjúkrasamlögin. t útvarpsþætti fyrir skömmu var þetta mál m.a. á dagskrá. Það var ekki annað aö heyra en, að sjúkrasam- lagstryggðar tannlækningar myndu beinast að skóla- skyldualdrinum, eingöngu. Var fínt að vera með „falskar" En staðnæmumst aðeins og litum á málin. Tannlækningar eru orðnar ótrúlega dýrar. Til skamms tima þótti það ekki nema sjálfsagður hlutur, að fólk léti draga úr sér, þegar tennurnar voru farnar að bila. Fyrir ekki mjög löngu þótti það jafnvel fint að státa með fölskum tönnum. Þessi viðhorf hafa tekið algjörum stakka- skiptum. Tannlæknar reyna að halda i hverja tönn eins og lengi og möguleiki er á fyrir sjúklinginn að fá að halda þeim. Og þá komum við að svokölluðum brúm, sem not- aðar eru i vaxandi mæli. En þessar brýr eru á tiðum og i verstu tilfellum það dýrar, að fyrir svokallaðan almenn- ing mun það vera ærið þungur baggi að taka á sig með venju- legur launum. t þannig tilfell- um gripur fimm barna móðir til þess að vinna fyrir tann- lækninn sinn til aö hafa upp i nokkra tugi þúsunda, fyrir ut- an það að borga skatta af öllu saman. Ratarnir ekki eingöngu meðal almennings Tannlæknar hafa oft borið við rataskap, þegar rætt er um fólk komið á fullorðinsár, sem hefur slæmar tennur og þarf miklar tannviðgerðir. En rat- arnir finnast einnig i tann- læknastétt. Eða er það ekki ratagangur, svo að mildilega sé komizt að orði, þegar tannlæknir ger- ir svo illa við, að fyllingar detta úr jafnóðum eða að skemmdin leynist að hluta undir viðgerðinni.sem kostar aðra tannlæknaheimsókn að liðnum vissum tima, oft kostnaðarsama tannviðgerð, þega ekki er hægt að bjarga tönninni nema með ærnum kostnaði eða alls ekki. STETTASKIPTING í TANNLÆKNINGUM ... fluortannburstun kennd .. en fræöslan um tannhirðingu nær ekki langt upp i skólastigiðog alls ekki til fullorðinna. Borinn nær ekki til allra Áður var minnst á það, þegar það þótti fint að ganga með „falskar”. Fáfræði al- ... viöfangsefni tannlæknisins og gullkista ... mennings stafar auðvitað af þvi, að hann hefur ekki fengið leiðbeiningar. Ennþá er gefinn út bæklingur þar sem mæðrum er bent á að gefa bórnum sinum sykurvatn, ef þau eru óvær á nóttunni. Þessi bæklingur kemur frá hinu opinbera. Þótt tannlæknar hafi byrjað upplýsingastarfsemi er hún enn á frumstigi. Stutt er um liðið siðan hún var tekin upp. , og nær ekki enn til fullorðinna, „ratanna” nema að litlu leyti. Skólatannlæknar eiga sér einhverja sögu hér, en tak- markaða. Takmarkaða vegna þess, að fólk i dreifbýlinu hefur engan tannlækni til að gera reglubundið við tennur þess. Það fer þvi, þegar það er komið á fullorðinsárin, til höfuðborgarinnar til að „fá sér tennur”. Það eru margar heimsóknirnar sem tann- læknarnir hafa fengiö og fá ef- laust enn af þessu fólki. Svo skulum við minnast þess, að unglingar fá ekki enn- þá skólatannlækningar, en ef til vill er það ekki sizt sá aldursflokkur sem á að njóta tannverndar og lækninga. Annar hópur, sem er hafður i fyrirrúmi og látinn njóta al- gjörra forgangsrétti nda, a.m.k. sums staðar erlendis, pegar um ræðir tannlækn- ingar, eru þungaðar konur. Hér er þunguðum konum ef- laust bent á það aö sækja heim tannlækninn reglulega á meö- göngutimanum. En þær greiða að sjálfsögðu fullan taxta og ætli hvatningin sé mjög mikil. Stéttaskipting og tennurnar Tannréttingar eru annar flokkur tannmeðhöndlunar, sem eru vist svo kostnaðar- samar, að það er ekki á færi nema efnafólks að njóta þeirra. sem og beztu tegunda af brúum. Það er þvi komin upp stéttaskipting á tann- lækningunum i „hinu stétt- lausa” islenzka þjóðfélagi. Sjúkrasamlögin greiða tannlækningar að hluta a,m.k. i Danmörku og Sviþjóð og það tiðkaðist einnig i Eng- lanói, sem hefur annars ekki þóttstanda mjög framarlega i tryggingarmálum. Ef við tökum Sviþjóð sem dæmi.þá eru tannlækningar ókeypis fyrir 0-16 ára aldurinn eða eldra fólk, en 16 ára greiðir fyrir tannlækn- ingar með niðurgreiddu veröi, konur greiða 25% af verði á meðgöngutimanum og niu mánuði eftir að barnið er fætt auk þess, sem þær hafa for- gangsréttindi. Enn eru þó starfandi tannlæknar með einkastofur i meirihluta þétt- býlisstaða i Sviþjóð. Hins vegar verður komið upp al- mennu tanntryggingarkerfi þar árið 1973. Eins og málum hefur verið háttað hér á landi er mikið verkefni framundan i kynningarstarfsemi á tann- vernd, tannviðgerðum og fyrirkomulagi trygginga. Heldur virðist þaö óskemmti- leg tilhugsun, að þjóðfélagið láti þá þegna, sem hafa farið á mis viöalla fræðslu, fyrir utan þau sjálfsögðu réttindi að geta komizt auðveldlega til tann- læknis bera þungann af tann- lækningakostnaðinum, m.a. með sköttum sinum auk beinna fjárútláta, ef þeir verða afskiptir i hinu nýja tryggingakerfi tannlækning- anna. Ef til vill má finna milliveg, en allavega þurfa að skapast umræöur um málin áður en endanlega er frá þeim gengið. Þannig er borgað fyrir dagvistun — í efnahagsbandalagslöndunum Danska efnahags- bandalagsnefndin hefur gert könnun á þvi hvernig dagvistunar- stofnanir eru fjár- magnaðar í hinum sex löndum efnahagsbanda- lagsins. Það er með sitt hvoru móti i hverju landanna fyrir sig. 1 Hollandi borga foreldarnir án tillits til efnahags um þrettán hundruð krónum á ári iopinberar dagvistunarstofn- anir á barn en afsláttur frá þessu verði gildir fyrir fleiri börn en eitt. Þetta gildir fyrir börn eldri en fjögurra ára. Einkaa ð i 1 a r reka dag- vistunarstofnanir fyrir yngri börn en fjögurra ára. Frakkland og Belgia bjóða ókeypis aðgang fyrir 2-6 ára börn á dagvistunarstofnunum þar sem þær eru taldar hluti hins opinbera skólakerfis og að mestu fjármagnaðar af rikinu. Næstum þvi öll 5-6 ára börn eru á dagvistunarstofn- unum i Frakklandi A Italiu fjármagnar rikið byggingar og reksturskostnaö barnaheimila en bæjarfélagið borgar viðhald En tala rikis- rekinna dagvistunarstofnana eraðeins 4500 með plássi fyrir um það bil 250 þúsund börn. Fyrirtæki hafa viðtækar skyldur til að koma á dag- vistunarstofnunum og gera það i rikum mæli ásamt bæjarfélögunum. 1 Vestur-Þýzkalandi borga foreldrar um það bil 840 kr. i 1900 kr. mánaðarlega fyrir leikskólavist en dagvistunar- stofnanir eru reknar i auknum mæli i tengslum viö skólana og með ókeypis aðgangi. Bæjar- félögin borga 40-80% kost- naðar við að koma upp einka- dagvistunarstofnunum og i nokkrum tilfellum leggja þau einnig fé til rekstrarins. —SB—

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.