Vísir - 20.09.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 20.09.1972, Blaðsíða 1
62. árg. — Miðvikudagur 20. september 1972 — 214 tbl. RAUÐSOKKA Á JARÐ- ÝTU HANDA BOBBY? Bobby er sterkasti skák- maður i heimi, —eða hvað? Enn eru deilur uppi um þetta atriði i bréfadálknum. Lesandi okkar á Hvolsvelli heldur uppi sterkri vörn fyrir Bobby og bendir réttilega á að hann hafi unnið einvigið sem skera átti úr um hver væri sá sterkasti, — og punktum basta. Að auki hnýtir hann aftan í bréf sitt: „Ilann (þ.e. Fischer) gæti náð sér i kellingu, t.d. rauðsokku og látið hana vinna á jarðýtu fyrir góðu kaupi”, og þannig ætti hann að geta tekið þátt i skákmótum án þess að setja upp sinar rosa- kröfur — Lesendur okkar eru annars með allra hressasta móti og hafa samband við okkur á degi hverjum með hin aðskiljanlegustu mál, sem þeim liggur á hjarta. SJABLS.2. Spenningurinn um EBE vex Fylgismenn EBE sækja á i Noregi og spenningurinn vex um úrslit þjóðarat- kvæðagreiðslunnar um helgina. SJÁ BLS. 5 ★ Svðrum við ekki bréfum, eða hvað? Bandarikjamenn eru allra þjóða iðnastir við að senda okkur bréf. Þeir sendu okkur i hitteðfyrra meira en 670 þús. sendingar með póst- inum. En ætli við svörum almennt ekki bréfum? Við sendum þangað ekki nema rúmlega 346 þús. sendingar. Sjá bls. 3. ★ Tekur stjórnin aðra stefnu? A brjóstvitinu einu saman tekst rikistjórn ekki að halda þjóðarbúi fljótandi. Það veit núverandi rfkisstjórn okkar nú þegar, og til að freista þess að bjarga málum við hefur sérfræðinganefnd ver- ið skipuð og hefur unnið sleitulaust síðan i sumar að lausn á vandanum. Farí rikisstjórnin að ráðum nefndarinnar mun það jafn- giida þvi að stefnunni verði breytt. — Sjá forystugreinina á bls. 6. Smyglið í lampanum var hass Lyfjarannsóknarstofa Há- skólans hefur nú gengið úr skugga um, hversskonar efni það var, sem reynt var áð smygla inn i landið, falið i lampafæti. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna, að það er cannabis, sem i dag- legu tali er nefnt hass. Um 200 grömm af efni þessu fundust i borðlampa, sem maður nokkur kom með til tollþjóna á Keflavikur- flugvelli, þegar hann kom frá Kaupmannahöfn. En hann sagðist hafa verið beð- inn af stúlku i Kaupmanna höfn um að koma pakka til kunningja hennar hér heima. Þegar tollþjónar opnuðu pakkann, kom i ljós borð- lampi, en nýjar álimingar á lampafætinum vöktu tor- tryggni þeirra, enda fundu þeir við nánari aðgæzlu nokkra smáböggla inni i lampanum, sem höfðu að geyma —eins og nú er komið i ljós — hass. Rannsókn málsins stendur enn yfir, og hefur ekki náðst til viðtakenda ennþá. —GP ARABAR TIL ÍSLANDS: Sneru síðast 5 fró í einu „Ég neita þvl ekki, að útlendingaeftirlitið gæt- ir nokkurrar varkárni þá er Arabar sækja hingað til lands. Það eru ekki nema nokkrar vik- ur siðan við snerum fimm Aröbum frá land- inu á einu bretti,” sagði Árni Sigurðsson hjá eft- irlitinu, i viðtali við Visi i gær. Upplýsti hann þá jafnframt, að hér á landi væru starfandi alls 22 Arabar um þessar mundir. „Þessi varkárni varðandi Arabana er ekki nýtilkomin og stendur ekki I neinu sambandi við atburðina i Munchen á dögun- um,” hélt hann áfram. „Við hert- um eftirlitið miklu fyrr. Mest vegna hinna tiðu flugvélarána Araba.” „Annars gilda bara sömu reglur um þá Araba sem hingað sækja og aðra, þeir verða að hafa sin vegabréf i lagi og hafi þeir ekki handbæra peninga eða flug- farseðla til baka, við komuna til landsins, fara þeir ekki inn i land- ið — frekar en aðrir útlendingar,” sagði Arni. Kvað hann þvi ekki aö neita, að hlutfallslega væri þaö oft.» . sem snúa þyrfti Aröbum frá af þessum sökum. Af þeim hópi Araba, sem hér væru starfandi sagði Arni, að flestir væru frá Iran og Jórdániu, en lika væru hér nokkrir frá Sýr- landi. „Og allir hefðu þeir þurft að hafa við komuna hingað full- komnar vegabréfsáritanir ræðis- manna Islands i viðkomandi löndum, en þeir spyirðust gjarna fyrir um Arabana áöur en þeir árituöu vegabréfin.” Það er aðeins af Aröbum frá Marokkó, sem ekki er krafizt vegabréfa, en Marokkó er eina Arabarikið, sem gert hefur gagn- kvæma samninga við Island um niðurfellingu vegabréfa landa á milli. -ÞJM Makki hnifur i einni af heimsóknum sinum á „nuddstofuna”. „Loksins kom óskohlutverkið" „Loksins kom óskahlutverkiö þegar maður er orðin sjötugur að aldri”, sagði Anna Guðmunds- dóttir leikkona, þegar Visismenn litu við á æfingu á Túskildings- óperu Bertrolt Brecht i Þjóðleik- húsinu i morgun. Anna fer þar með hlutverk hinnar svokölluðu „mellumömmu” en hún hefur heiðurinn af þvi að vera elzta starfandi leikkona hér. Lif og fjörríkti áleiksviðinu þar sem verið var að æfa sjöunda atriði Túskildingsóperunnar, og skemmtilegar persónur koma þar við sögu, svo sem Bessi Bjarna- son, Itóbert Arnfinnsson og Arni Tryggvason sem presturinn.sem i upphafi atriösins er að flýta sér heim eftir góða nótt i „Nuddstof- unni”. En nuddstofan er aðeins rekin með þessu nafni,cn það leynist margt bak við tjöldin. Sex fall- egar stúlkur fara með hlutverk vændiskvenna, og daginn byrja þær með þvf að sminka sig og fegra fyrir kúnnana, sem koma síðla dags. „Þetta eru ógurlega skemmti- leg hlutverk”, segja þær. „Hér á nuddstofunni veitum viö i fyrstu ýmiss konar þjónustu, en siðan lokkum við karlana með okkur. Gróft? Nei, nei, alls ekki.” Flestar hafa stúlkurnar farið með sams konar hlutverk áður, en textana i Túskildingsóperunni segja þær sdrlega skemmtilega. - EA „Inn og út um gluggonn..." FÓR INN í 6 FYRIRTÆKI Á ÖRSKÖMMUM TÍMA 18 ára piltur var staðinn að verki eftir innbrot i verzlunina Ileimakjör i Sólheimum i nótt. Fólk i nágrenninu varð ferða hans vart, og kom lögreglan i tæka tið til að handsama pilt inni i verzluninni, en þá var hann búinn að stela kr. 4400 f skiptimynt. En þegar farið var að yfirheyra drenginn, kom ýmislegt fleira i ljós. Hann játaði, að hafa áður um nóttina brotizt inn i Vogakaffi, og einnig inn i verkstæöi þar i ná- grenninu (þar sem hann stal tveim armbandsúrum), og enn- fremur inn i húsnæði Leikfélags Reykjavikur, svo og inn i barna- heimilið Brákarborg, og þá loks inn i bifreiðaverkstæði i Duggu- vogi, en þaðan stal hann bifreið. — Alls hafði hann þá brotizt inn á 6 stöðum um nóttina, og var þó klukkan rétt aðeins orðin hálf- fjögur, þegar til hans náðist i Heimakjöri. Og i leiðinni á milli innbrotanna hafði hann skroppið á stolna biln- um upp að Geithálsi, þar sem hann skildi bilinn eftir. Piltur þessi hefur áður komið við sögu vegna þjófnaða, enda hafði hann lag margra þeirra, sem oft hafa komizt i kast við lög- in, að játa hreinskilnislega strax á sig syndir sinar. Með þvi eygir hann möguleika á þvi að verða sleppt fljótlega úr haldi aftur, þar sem mál hans er upplýst. Gæti hann þá leikið lausum hala á meðan hann biði þess gð málið yrði tekið fyrir rétt og dómur kveðinn upp. —GP VAR AÐ HUGA AÐ SKEPNUM - VARÐ FYRIR VÖRUBÍL Bóndinn á Hrafnagili i Eyja- firði, Hjaiti Jósefsson, slasaðist i gærkvöldi, þegar hann varð fyrir slórum vöruflutningabil á þjóð- veginum við Hrafnagii. Var Hjalti fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri , en siðan var fengin sjúkraflugvél frá Tryggva Helga- syni til þess að fljúga með hann til Reykjavikur þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús. — Meiðsli hans voru þó ekki talin lifshættu- leg. Hjalti var ásamt konu sinni og öðrum farþega á leið á bil sinum eftir þjóðveginum um kl. 20 i gær- kvöldi.en þau námu staðar þegar Hjalti vildi huga að skepnum, sem hann sá austan vegarins. Steig hann út úr bilnum og gekk spöl eftir veginum, en i þvi bar að vöruflutningabil og skipti engum togum, að bíllinn lenti á Hjalta. Við áreksturinn kastaðist hann út i skurð utan vegar. ökumaður flutningabilsins hafði ekki séð manninn á óupp- lýstum þjóðveginum fyrr en um seinum. -GP hió Byggingasjoði bls. 2

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.