Vísir - 12.10.1972, Side 3
VtSIR Fimmtudagur 12. október 1972.
3
Vigtuðu ekki aflann og
því sviptir veiðileyfi
i siðustu viku voru 3 bátar frá
Ólafsvik, sem stunduðu hörpu-
diskveiðar sviftir veiðileyfum
sinum. Höfðu bátarnir ekki skilað
skýrslum um vigt aflans.
Reglur Sjávarútvegsráðu-
neytisins eru, að vigta verði
aflann á löndunarstaö, en það
hafði ekki verið gert. Aflinn var
ekki vigtaður fyrr en h'ann hafði
verið fluttur til Suðurnesja þar
sem hann var verkaöur. Aðeins
þessir þrir bátar hafa látið undir
höfuð leggjast að vigta aflann á
löndunarstað. bar sem skip-
stjórar bátanna sögðust ekki
hafa fengið tilkynningu þess efnis
að vigta ætti aflann á löndunar-
stað, var ekki tekið strangt á
reglubroti þessu og eru nú allir
bátarnir komnir á veiðar aftur.
Ekki munu bátarnir hafa misst
marga róðra vegna leyfis-
sviftingarinnar, þar sem þetta
bar uppá helgi og slæmt veður og
þess vegna ekki róið. Munu
bátarnir aðeins hafa misst einn
eða tvo daga, sem þeir hefðu
getað notað til veiða.
-bM
Eru íslenzkir
unglingar yngri
en annars staðar?
Rœtt við Hinrik Bjarnason
framkvœmdastjóra Æskulýðsróðs
„Starfsemi okkar miðast við að
sjá unglingum fyrir skemmtilegu
og þroskandi tómstundastarfi,”
sagði Hinrik Bjarnason i stuttu
viðtali, sem Visir átti við hann i
gær.
Aðspurður kvað hann erfitt að
afmarka hvað teldust vera ung-
lingar, en unga fólkið, er notfærði
sér þá aðstöðu, sem Æskulýðsráð
skapaði þvi, væri helzt á aldrin-
um þrettán til sautján ára. Hærri
mörkin væru óvenju lág, miðað
við það sem gerðist um svipaða
starfsemi i nágrannalöndunum.
betta taldi Hinrik stafa af þvi, að
hér á landi tæki fólk á sig fjár-
hagslegar skuldbindingar og festi
ráð sitt fyrr en viðast annars
staðar.
Æskulýðsráð mun brydda á
nýjungum og færa út kviarnar i
vetrarstarfi sinu að þessu sinni.
Staðið hefur verið fyrir ýmsum
námskeiðum fyrir unglinga und-
anfarin ár og mun svo einnig
verða i vetur. Ný námsgrein
verður tekin upp og er það kvik-
myndun. Leiðbeinandi er Karl
Jeppesen, en hann var styrktur af
Æskulýðsráði til að fara utan og
læra til slikra hluta. Verður hér
um mjófilmugerð (8 mm) að
ræða.
Hinrik kvað skilning rikjandi á
þvi hjá ráðamönnum að mennta
þyrfti fólk til að starfa að æsku-
lýðsmálum. t þvi skyni hafa þrir
menn auk Karls verið styrktir til
náms á þessu sviði. bessir menn
eru Ómar Einarsson, Guðmundur
Gunnarsson og Kolbeinn Pálsson.
Tveir þeir fyrstnefndu fengu
námslán úr borgarsjóði, vegna
náms i æskulýðsleiðsögn við lýð-
háskólann i Gautaborg, en Kol-
beinn ferðastyrk til að fara til
Bandarikjanna, þar sem hann
kynnti sér hvernig þeim, er verst
eru settir i þjóðfélaginu, má veita
sem bezta félagslega aðstöðu.
Nú i sumar hefur unglingum i
Breiðholtshverfi og Langholts-
hverfi verið gefinn kostur á að
koma saman i þvi, sem nefnt hef-
ur verið ,,opið hús” á föstudags-
kvöldum, verður þvi haldið áfram
i vetur og stefnt að þvi að koma
upp slikri aðstöðu sem viðast.
LÓ.
Á þessu sumri, sem nú er liðið, námu um hundrað og fimmtiu ung
menni reiðmennsku á vegum Æskuiýðsráðs i Saltvik. i vetur f.cr
mestur hluti starfsemi ráðsins fram innan dyra.
Slys í Slippstöðinni
Nýtt og betra skoðunarkerfi:
Rðntgen leysir manns-
augun af hólmi
„ilann las 11 doðranta á 19
dögum, — notaði dagana tii að
gieypa það allt i sig, — og svo
fórum við i allt þetta verklega á
kvöldin”, sagði Bob Christian,
röntgensérfræðingur frá
National Airlines i Miami i
Florida, þegar biaðamaður
Visis rabbaði við hann suður i
flugskýli 4 á Reykjavikurflug-
velli i gærdag.
bar var hann að hef jast handa
ásamt nemanda sinum, Marvin
Friðrikssyni, nýútskrifuðum
röntgensérfræðingi með ágætan
vitnisburð, við að röntgen-
mynda Sólfaxa, aðra Boeing 727
þotu félagsins.
bróunin i allri tækni við við-
hald og skoðun flugvélanna
fleygir ört fram, ,,þó sennilega
aldrei eins hratt og á allra
siðustu árum og mánuðum”,
sagði örn O. Johnsson, forstjóri
Flugfélags lslands, þegar hann
kynnti þá nýju tækni, sem
félagið tekur nú upp, fyrir flug-
virkjum og flugliðum félagsins i
gær. Félagið hefur ákveðið að
taka upp skoðanakerfi National
Airlines, sem talið er braut-
ryðjandi og langfremst allra
félaga i skoðun Boeing 727
þotanna, en félagiö á 40 slikar
vélar.
Röntgenskoðun og örbylgju-
tækni er hluti hinnar nýju tækni
og verða tæki keypt frá Banda-
rikjunum i þessu skyni. Með
tækjum þessum er hægt að
skoða án verulegs rasks slitfleti
vélanna og átakshluti.Klæöningu
i farþegarými þarf t.d. ekki að
fjarlægja lengur, en þaö var
mikið verk. bað heyrir þvi
liðinni tið til að „slátra” vélun-
um gjörsamlega, en oft lágu
þær i þúsund pörtum mánuðum
saman i stórskoðunum.
Orn O. Johnsson lagöi áherzlu
á það við flugvirkjana, að ótti
um að þessi nýju vinnubrögð
mundu auka enn á atvinnuleysið
i stétt þeirra, væri ástæðulaus.
Miklu fremur mundi atvinna við
flugvirkjun hjá félaginu aukast.
Erlendis hefur ýmis vinna verið
unnin undanfarin ár við
skoöanir og viðhald á ýmsum
hlutum vélanna. En stefnt er að
þvi að taka nú sem mest af
þeirri vinnu heim. Hins vegar
mun vinna við skoöanir verða
minni, enda spara hin nýju rönt-
gentæki og örbylgjutækin stór-
kostlegan tima, auk þess sem
þau eru mun öruggari og skapa
almennum flugfarþega enn
meira öryggi en verið hefur, og
hefur þó verið vandað mjög til .
þeirrar hliðar hjá islenzku flug-
félögunum.
Tveir af yfirmönnum tækni-
deildar National Airlines, þeir
William Shell, yfirskoðunar-
maður og Carl Shugars unnu við
það i gær að kynna nýja
skoðunarkerfið og munu starfa
með flugvirkjum fram að helgi.
Kvaðst Shell aldrei fyrr hafa
hitt svo samvalinn hóp og flug-
virkja Ft, en hann hefur fariö
viða um heim sömu erinda-
gjörða.
Eitt af fyrstu verkum Shell
hér var að afhenda yfir-
skoðunarmanni Flugfélags
Islands, Jóni N. Pálssyni, próf-
skjöl Marvins Friðrikssonar, —
og vitaskuld var náms-
árangurinn með miklum ágæt-
um, enda þótt hratt hafi orðið að
fara i námið, eins og fyrr er
getið.
— JBP—
ENN BROTIST
SUNDLAUGAR
bað er viðar brotizt inn i sund-
laugar en aðeins i Reykjavik. t
morgun, þegar starfsfólk sund-
laugarinnar á Akureyri kom til
starfa, kom i Ijós, að þar hafði
óboðinn gestur haft viðkomu i
nótt. Sá hafði þó ekki komið
sömu erinda og skemmdar-
INNÍ
vargurinn i laugunum i Reykja-
vik. i stað þess að svala
skemmdarfýsn var þessi i leit að
verðmætum.
Ilann hafði upp Ur krafsinu 200
króna skiptimynd, 300 krónur úr
peningaveski, sem var i geymslu,
og 3 armbandsúr, sem voru i
óskilamunageymslu. — GP
Skólahljómsveit fer í póskareisu um Norðurlcnd
Skólahljómsveit Kópavogs,
sem skemmt hefur flestum lands-
mönnum mcö blæstri og
hljöðfæraslætti, hefur i nógu að
snúast þessa dagana.
Undirbúningur utanlandsferðar
stendur sem hæst og er hafinn
fyrir þó nokkuð löngu siðan. bað
stendur til að hljómsveitin haldi
til Noregs, Finnlands, Svíþjóðar
og Danmerkur og jafnvel til
Færeyja i páskafríinu og
skemmti þar nágrönnum okkar.
Hljómsveitin hefur leikið á
landsleikjum, á sjómannadaginn
og hefur haldið tónleika til þess að
afla sér fjár til ferðarinnar, og
þegar er kominn visir að sjóði.
1 hljómsveitinni eru nú 50
manns úr skólunum i Kópavogi og
rikir geysilegur áhugi á ferömni.
Reyndar eru meðlimir ekki alls
ókunnir útlandinu, þvi fyrir
tveimur árum siðan var farin ferð
til Noregs, og þá ferð fóru nokkrir
núverandi meðlimir.
Eitt af þvi sem hljómsveitin
hyggst gera fyrir þessa ferð er að
halda hlutaveltu og má jafnvel
búastviðhenniánæstunni. -EA.
Maður slasaðist i Slippstöðinni
á Akureyri i gærmorgun, þegar
hann féll niður af 2ja metra hárri
undirstöðu skips, sem er í
smiðum i slippnum. Kom maður-
inn nokkuð hart niður og
meiddist á höfði, hendi og mjöðm.
Varð að flytja hann til læknis á
sjúkrahúsinu á Akureyri, en
meiðsli hans voru þó ekki talin
hættuleg. — GP
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ VELJA
BORÐSTOFUHÚSGÖGNIN
r>e»
» l
í8
Slml-22900 Laugaveg 26