Vísir - 12.10.1972, Qupperneq 4
4
"VfSIR Fimmtudagur 12. október 1972.
FORD TRANSIT
VINSÆLASTUR
í BANKARÁNIN
Lögreglumönnum i þjónustu
Scotland Yard hefur verið til-
kynnt að þeir eigi að hafa sér-
staka gát á öllum Ford Transit
sendiferðabilum i framtiðinni,
vegna þess að þeir séu notaðir i
95% allra bankarána i Bretlandi.
Sé einhverjum Transit bil stolið
er það umsvifalaust sent út og
jafnframt er fjöldi bila af sömu
gerð stöðvaður til athugunar.
Astæðan fyrir þessum vin-
sældum Transit bilanna er mest
sú, að um 300.000 bilar af þessari
gerð eru á vegunum i Bretlandi
(og um 600.000 i öllum heiminum)
og einnig þykja þeir liprir i
snúningum.
Og nú er brezka lögreglan farin
að fá sér þessa bila lika.
Y *
BÍLASÝNINGIN í PARÍS
Hér gefur að lita hluta af sýningarsvæðinu á 59. alþjóðie'gu bila-
sýningunni, sem opnaði dyr sfnar fyrir fólki I Parls á föstudaginn I
síðustu viku.
BÍLAR UMFERÐ TÆKNI
mÍ». * ‘iFgfr_ÍS8& & Æ_
Við flytjum búðina (nokkur hænufet)
að Nybýlavegi 8
Frá gömlu búðinni þarf aðeins að fara undir
fínu umferðabrúna og smáspöl af
Nýbýlaveginum (rennisléttum með nýlagðri
olíumöl) að númer 8.
Þar höfum við opnað svo stóra sölubúð
að við getum sýnt yður allar búðarvörur
okkar við góðar aðstæður — og það er meira
en við gátum stært okkur af í gömlu
búðinni.
BYGGINGAVÚRUVERZLUN >1^
KÓPAVOGS /y
BYKO
NÝBÝLAVEG 8 SÍMI:41000
SKRUM OG ÓNÓG-
AR UPPLÝSINGAR
Bandarískir bílaframleiðendur á hálum ís með auglýsingar
65% þess sem bila-
auglýsendur láta koma
fram i auglýsingum sínum
og ætlast til að væntanlegir
kaupendur trúi, eru annað
hvort ónógar upplýsingar
eða eru viðkomandi bíl alls
óviðkomandi.
Þetta kemur fram i skýrslu,
sem lögð var fram á landsfundi
bandarisku neytendasamtakanna
i siðustu viku. Fengu samtökin
sérfræðinga til að fjalla um þetta
mál fyrir sig og sannreyna inni-
hald auglýsinganna.
Rannsóknin sem gerð var að til-
hlutan verzlunarnefndar rikisins
lauk i júli, en var ekki gerð opin-
ber fyrr en nú.
Sérfræðingarnir tóku fyrir 54
auglýsingaatriði, sem var talið
að þyrftu frekari skýringa viö.
— I 20 atriðum var innihaldið
ófullnægjandi, óviðkomandi og
jafnvel i mótsögn við sjálft sig.
— I 15 atriðum, þó svo að þau
ættu við, þá voru þau samt sem
áður ófullnægjandi hvað snerti
fullan skilning á texta auglýsing-
arinnar.
— 1 3 atriðum reyndist aðeins
unnt að sannreyna innihald aug-
lýsingarinnar i mjög þröngum
skilningi.
— t 16 auglýsingum reyndist
vera um nægar tæknilegar
upplýsingar að ræða til sönnunar
innihaldi auglýsingar.
Samkvæmt bandarisku
neytendalöggjöfinni er hægt að
refsa fyrirtækjum fyrir að veita
rangar upplýsingar i auglýsing-
um, en rannsóknarnefndin lagði
áherzlu á, að i þessu tilfelli hefði
aðeins verið um að ræða að sann-
reyna innihald auglýsinganna frá
tæknilegu sjónarmiði.
Meðal þeirra atriða sem
nefndin fjallaði um var:
— Staðhæfing Chrysler verk-
smiðjanna að snúniiígsfjöðrun yki
þægindi, öryggi og auðveldaði
akstur.
— Staðhæfing General Motors
aö framhjóladrif Toronado gerði
hann mýkri og þægilegri i akstri.
— Einnig frá General Motors
að ' Chevelle væri 109 kostum
búinn sem gerði það að verkum
að hann yrði ekki „gamall fyrir
timann.”
— Staðhæfing Toyota og
General Motors að Corollu og
Opel þyrfti aldrei að smyrja.
— Staðhæfing Volkswagen að
„Super Beetle” þeirra hafi meira
farangursrými, endist lengur og
stöðvist fljótar.
— Og staðhæfing Ford að Pinto
þurfi aldrei að bóna, og að hann
sé hljóðlátari en margir af
dýrustu bilum heims.
Það sakar ekki að geta þess, að
þessi skýrsla á við um aug-
lýsingar bilaframleiðendanna
innan Bandarikjanna, en við hér
uppi á tslandi erum blessunar-
lega lausir við kapphlaup bila-
seljendanna, allavega hvað inni-
hald auglýsinganna snertir.
—jr