Vísir - 26.10.1972, Síða 8
Hann átti ekki umtalsvert skot i leikn-
um — reyndar eitt, sem lenti i hliðar-
neti.
Hins vegar sáu 38.500 áhorfendur
Derby leika sinn bezta leik i haust.
Roy McFarland, miðvörðurinn sterki,
skoraði strax i byrjun leiks og það gaf
leikmönnum Derby trú á sjálfa sig.
beir Alan Hinton og McGovern skor-
uðu tvivegis að auki i fyrri hálf-
leiknum. I siðari hálfleik var leikurinn
jafnari og fleiri mörk ekki skoruð. En
það verður erfitt fyrir Benfica að
vinna upp þennan mikla mun, þegar
liðin leika siðari leik sinn i 2. umferð
keppninnar i Lissabon 7. nóvember.
Leikur liðanna i gærkvöldi þótti sér-
lega prúður.
Portúgalska stórliðið
Benfica, sem tvivegis hefur
orðið Evrópumeistari i knatt-
spyrnu, og þrívegis tapað í
úrslitum, hefur nú ekki mikla
möguleika til að komast áfram
i Evrópukeppni meistaraliða
eftir stórtap gegn ensku
meisturunum Derby County í
gærkvöldi á Baseball Ground.
Lokatölurnar urðu 3-0 og skoraöi
Derby öll mörk sin i fyrri hálfleik. bað
var eins og sá frægi kappi, Eusebio,
sem hlaðiö hefur upp mörkunum i
undanförnum leikjum Benfica, hefði
alveg gleymt skotskónum heima.
fræga og Míiller sendi knöttinn fimm
sinnum i mark mótherjanna. Lið hans
sigraði með 9-0 og var það langmesti
markamunurinn i 2. umferðinni.
Framhaldið er þvi létt hjá Bayern.
t Kiev vann Dynamo góðan sigur
gegn Gornik Zabrse frá Póllandi —
skoraði tvö mörk gegn engu og ætti að
hafa mikla möguleika á að komast
áfram i keppninni.
Markakóngurinn mikli Gerd
Múllervar heldur betur á ferð-
inni við mark Nikosia, þegar
liö hans Bayern Munchen lék
fyrri leikinn við Kýpur-liðið i 2.
umferð Evrópukeppni
meistaraliða.
Leikið var á Ólympiuleikvanginum
Ekki var getið um i fréttum i gær
hverjir skoruðu mörk liðanna. I sömu
keppni vann Spartak Trnava, Tékkó-
slóvakiu, hið ágæta, belgiska lið
Anderlecht með 1-0, en leikið var i
Tékkóslóvakiu, svo Belgarnir hafa
góða möguleika á að vinna þennan
mun upp i siðari leiknum.
Real Madrid, mótherjar
Keflvíkinga í Evrópukeppni
meistaraliða, töpuðu fyrri leik
sínum í 2. umferð í gærkvöldi.
Real Madrid lék þá i Búkarest
gegn Arges Pitesti og vann
rúmenska liðið með 2-1.
Visir Fimmtudagur 26. október 1972.
Visir Fimmtudagur 26. október 1972.
Víkingur glataði
mœtu stigi gegn
dýr-
ÍR!
Fyrsto stig Fylkis
— Vann upp sex marka forskot Ármenninga
Staðan
Þrir leikir voru
háðir i meistara-
t'lokki karla á
Ileykjavikurmótinu i
gærkvöldi og urðu
úrslit þessi.
Ármann-Fylkir 7-7
Vikingur-ÍR 10-10
Valur-brótturl2-ll
Staðan i mótinu er nú
þannig:
Víkingur 6 3 3 0 76-64 9
Fram 5 4 0 1 72-51 8
KR 6 4 0 2 72-62 8
Valur 5 3 11 61-51 7
Ármann 6222 68-61 6
ÍR 5 1 1 3 55-63 3
bróttur 5 0 2 3 55—71 2
Fylkir 6 0 1 5 41- 87 1
Næstu leikir i meistara-
fiokki eru samkvæmt mót-
skrá miðvikudaginn 1.
nóvember. bá leika bróttur-
Fylkir, valur-ÍR og KR-
Fram og ættu þetta að geta
oröið tvisýnir ieikir.
baö voru oft mikil átök, þegar Vikingar reyndu aðútfæra aukaköst sin í gærkvöldi, þar sem risinn Einar Magnússon stekkur upp og kastar yfir
vörn mótherjanna. IR-ingar tóku hraustlega á móti, enda eru þar einnig mjög hávaxnir menn eins og Agúst Svavarsson. Hann sést
þarna á miðri myndinni — en þó hár sé gat hann ekki stöðvað Einar að þessu sinni. Knötturinn er á leið i markið. Ljósmynd Bjarnleifur.
Mikil forföll, en Þrótt-
ur stóð í meisturunum
skoraði þrjú fyrstu mörk Fylkis.
6-3. bað leit þó ekki út fyrir, að
þetta yrði sá leikurinn, þar sem
Fylkir fengi sin fyrstu stig og
jafnvel möguleika á sigri.
En munurinn minnkaði 6-4,
þegar Jóni Ástvaldssyni tókst
loks að skora fyrir Ármann. En
Fylkir hélt áfram á réttri braut
meðan næstum allt mistókst hjá
Armenningum. bað var eins og
þeir gætu ekki náð góðu skoti á
mark i þessum hálfleik.
Orn Jónsson skoraði fyrir Fylki
og siðan Ásgeir og þegar þrjár
minútur voru eftir var staðan
orðin 7-6. Ahorfendur voru
orðnir spenntir og hvöttu nýlið-
ana mjög. Guðmundur Siguðrs-
son jafnaði fyrir Fylki rétt i lokin
— og þegar leiktiminn var á enda
var Fylkir aftur með knöttinn, en
leikmenn liðsins náðu ekki að
skjóta. beir fögnuðu mjög þessu
stigisinu,— það vareins og Fylkir
væri orðinn meistari i handknatt-
Ármenninga?. — bað var næstum
óskiljanlegt hvernig allt hrundi
hjá liðinu, þegar leið á leikinn.
Ármann skoraði fjögur fyrstu
mörkin i leiknum. Staðan var 5-1 i
hálfleik og komst strax i 6-1 — en
þá var allt búið.
Mörk Ármanns i leiknum
skoruðu Vilberg Sigtryggsson 3
(allt viti), Björn Jóhannsson 2 og
Jón 2. Fyrir Fylki var Ásgeir
drýgstur við að skora, 4 mörk, en
eitt skoruðu Kjartan, örn og
Guðmundur. Dómarar voru
Gunnar Gunnarsson og Sigurður
Bjarnason og áttu léttan dag.
siðustu mörk leiksins og hinn að
þvi er virtist öruggi sigur Vals
hékk á bláþræði i lokin.
Bergur Guðnason skoraði flest
mörk Vals i gær eða fjögur og
voru tvö þeirra skoruð úr vita-
köstum. Stefán Gunnarsson kom
talsvert á óvart með þvi að skora
þrjú ágæt mörk með langskotum.
bá skoraði Ólafur H. Jónsson tvö,
borbjörn Guðmundsson, Jón
Karlsson og Gunnsteinn Skúlason
eitt.
Aðeins þrir leikmenn skoruðu
fyrir brótt i gærkvöldi og gefur
það til kynna takmörkun liðsins i
þessum leik. Hinn efnilegi leik-
maður Sigurður Trausti var
markhæstur með fimm mörk, en
„gömlu kempurnar” Halldór
Bragason og Helgi borvaldsson
skoruðu þrjú mörk hvor.
Árbæjarliðið Fylkir hlaut
sín fyrstu stig í meistara-
flokki á Reykjavikurmót-
inu í gærkvöldi, þegar liðið
gerði jafntefli við Ármann.
7-7 urðu lokatölurnar — fá
mörk í kuldanum i Laugar-
dalshöllinni — og það leit
ekki út fyrir annað lengi
vel en góðan sigur
Ármanns. Liðið hafði fimm
mörk yfir i byrjun siðari
hálf leiks 6-1 en þá fór allt í
baklás hjá Ármenningum.
Fylkir fór smám saman að
saxa á forskotið með mörkum
Ásgeirs Ólafssonar — en hann
Valur sigraði Þrótt með eins marks mun í gœrkvöldi
Þróttarar velgdu
Ileykjavikurmeisturum
Vals heldur betur undir
uggum á lokaminútum
leiks liðanna i Reykja-
vikurmótinu i gær-
kvöldi. Þróttur skoraði
fjögur siðustu mörk
leiksins og ekki munaði
miklu að liðinu tækist að
jafna. En Valur fór með
sigur af hólmi 12-11, svo
það mátti ekki naumara
standa — og lokakaflinn
var afar tvisýnn.
bessi frammistaða bróttar
kom vissulega á óvart. begar
fréttist fyrir leikinn að 5 af
föstu mönnunum i liði bróttar
væru veikir og gætu ekki leikið,
kom fáum i hug, að bróttur gæti
Staðið i Reykjavikurmeisturun-
um. En önnur varð raunin loka-
kaflann. bá sótti bróttur mjög i
sig veðrið — þrátt fyrir þá stað-
reynd, að margir leikmenn
liðsins, sem léku i gær, eru ekki i
mikilli æfingu — öfugt við Vals-
menn, en leikþreyta einkennir
allan leik Vals um þessar
mundir, einkum hinna mörgu
landsliðsmanna liðsins.
bó leit ekki út fyrir annað i
byrjun, en Valur ætlaði að
tryggja sér öruggan sigur. Liðið
komst i 8-3 og kannski ástæðan til
þessa mikla munar, að leikmenn
bróttar beinlinis trúðu þvi ekki að
þeir gætu með þessu liði sinu
staðið i Val. En þeir komust að
raun um annað og skoruðu þrjú
siðustu mörkin i fyrri hálf-
leiknum. Staðan i leikhléi var þvi
8-6 fyrir Val.
Fljótlega i siðari hálfleiknum
tókst Val að auka muninn i fjögur
mörk — en siðan kom að brótti að
skora. Munurinn minnkaði —
SigurðurTrausti skoraði fjögur
— og möguleikar ó sigri í Reykjavíkurmótinu minnkuðu mjög
Vikingar misstu af þýð-
ingarmiklu stigi i keppn-
inni um Reykjavikur-
meistaratiti linn, þegar
þeim tókst aðeins að ná
jafntefli, 10-10, i spennandi
leik gegn IR í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi. Þetta
stig þýðir sennilega að
möguleikará sigri i mótinu
eru hverfandi — og reyndar
mátti Víkingur þakka fyrir
Só frœgasti
setti þrjú
heimsmet!
Frægasti hjólreiða-
maður heims, Belginn
Eddy Mercx, setti þrjú
ný heimsmet i hjólreið-
um atvinnumanna i
gær i Mexikóborg og
bætti heimsmet Dan-
ans Ole Ritters.
Mestur ljóminn stendur um
heimsmetið í hjólreiðum i
klukkustund — nokkurs konar
miluhlaup hjólreiðamanna. Met
Ritters, sett 1968, var 58.666
kflómetrar, en Mercx bætti
metið hjólaði næstum km.
lengri vegalengd á klukkustund
eða 59.400 km.
að ná jöfnu gegn ÍR-Iiði,
sem lék sinn langbezta leik
i mótinu. Það var aðeins
stórsnjöll markvarzla fyrir-
liða Víkings, Rósmundar
Jónssonar, sem bjargaði
þvi sem bjargað varð i
leiknum. Þetta var 9.
ja fntefli i R og Vikings í röð.
Vikingur byrjaði betur og
komst i 2-0 eftir fjórar minútur.
bað liðu 10 minútur þar til 1R
skoraði sitt fyrsta mark i leikn-
um og var Brynjólfur Markússon
þar að verki. Rósmundur hafði
varið allt, sem á markið kom
áður. Ólafur Friðriksson kom
Viking i 3-1, en siðan fóru 1R--
ingar að siga á og jöfnuðu i 3-3.
á 12 min. Leikurinn hélzt i
jafnvægi fram að leikhléi og
staðan var þá 5-5. Óvenju fá mörk
hjá liðum, sem hafa jafn skot-
harða menn. bað r -var einnig
reyndin i fyrsta leik kvöldsins —
sárafá mörk og sennilega var
kuldinn i Laugardalshöllinni
ástæðan.
Sama spennan hélzt lengi i sið-
ari hálfleik. Magnús Sigurðsson
kom Viking i 6-5 með hörkuskoti,
en Brynjólfur svaraði með tveim-
ur mörkum fyrir 1R — annað úr
viti. Eftir það voru IR-ingar
aldrei udnir i leiknum. Næstu tvö
mörk voru einnig skoruð úr vita-
köstum. Einar Magnússon jafn-
aði i 7-7, en strax á eftir skoraði
Agúst Svavarsson hinum megin
úr vitakasti.
IR-ingar náðu góöum tökum á
leiknum um stund og komust tvö
Celtic lenti í
erfiðleikum
Glasgow Celtic lenti í
miklum erfiðleikum á
heimavelli sínum í gær-
kvöldi gegn ungverska
meistara liðinu Ujpest
Dosza. Þó tókst Celtic að
sigra í lokin með 2-1.
Albert Guðmundsson, for-
maður KSi, var sérstakur
fulltrúi Evrópusam-
bandsins á leiknum, sem
var i 2. umferð meistara-
keppninnar. Allt fór frið-
samlega fram á vellinum.
Ungverska liðið náði forustu i
fyrri hálfleik með marki
Puskasar, ungs leikmanns, sem
leikið hefur i ungverska lands-
liðinu. 1 siðari hálfleik sótti
Celtic mjög og tókst að jafna
með marki Kenny Dalglish, og
sami leikmaður skoraði sigur-
markið rétt fyrir lokin.
Tottenham lék i Lundúnum i
UEFA-bikarkeppninni gegn
griska liðinu Olympikos Piræus
og vann góðan sigur 4-0. bað
ætti að tryggja Tottenham
áframhald i keppninni en sem
kunnugt er vann Tottenham i
UEFA-keppninni i vor.
beir Jimmy Pearce, tvivegis,
Martin Chivers og Ralph Coates
skoruðu mörk Tottenham.
1 Evrópukeppni bikarhafa
kom mest á óvart i gær, að
Wrezham frá Wales, er leikur
i 3. deildinni ensku, sigraði
júgóslavnesku bikarmeistarana
Hajduk Split með 3-1. bá vann
Hibernian, Skotlandi, albanska
liðið Besa með 7-1 i Edinborg i
gærkvöldi i sömu keppni. Mót-
herjar Vikings i keppninni,
Legia, Varsjá, gerðu jafntefli 1-
1 við italska meistaraliðið AC
Milanó. Sá leikur var háður i
Varsjá og virðist sem Legia hafi
þarna mætt ofjörlum sinum,
enda er Milanó eitt frægasta
knattspyrnulið heims. Marg-
faldur Evrópumeistari.
Leeds lék gegn Carl Zeiss
Jena i Austur-Berlin. Jafntefli
varð án marks og getur Leeds
fyrst og fremst þakkað varnar-
mönnum sinum, Jackie Charlt-
on og Poul Madeley að jafntefli
náðist.
Onnur úrslit i gærkvöldi urðu
þessi: — UEFA-bikarinn.
Dynamo-Berlin vann Lecsky,
Búlgariu 3-0. Bero Stara,
Búlgariu, vann Honved, Ung-
verjalandi 3-0. Fejenoord, Hol-
landi vann OFK, Belgrad, með
4-3 i Amsterdam, en Grasshopp-
ers Zurich, töpuðu heima fyrir
sovézka liðinu Ararat 1-3.
Frem, Danmörku, tapaði illa
heima fyrir hollenzka liðinu
Twente 0-5, og Borussia vann
hitt Kaupmannahafnarliðið,
Hvidovre, 3-0 i býzkalandi.
1 keppni bikarhafa vann
Ferencvaros, Ungverjalandi,
Sparta Prag með 2-0, en
Atletico Madrid tapaði heima
fyrir Spartak Moskvu 3-4.
mörk yfir, þegar aðeins 5 min.
voru til leiksloka. 10-8 — en fleiri
urðu mörkin þeirra hins vegar
ekki i leiknum. Einar og Sigfús
Guðmundsson skoruðu fyrir Vik-
ing og jöfnuðu 10-10 og þá voru
þrjár minútur eftir. betta voru
miklar baráttuminútur og hvor-
ugt liöið gaf eftir. bað var mikið
um brot — Vikingar voru meö
knöttinn lokaminútuna og gerðu
örvæntingarfulla tilraun til aö
jafna. En þeir komust ekki i skot-
færi — það var brotið áður og i
lokin bættu dómararnir við 10
sekúndum við vegna leiktafa.
beir nægðu Viking heldur
ekki.
IR-liðið kom á óvart i þessum
leik miðað við fyrri frammistöðu i
mótinu. bað lék oft ágætlega —
einkum var vörnin traust og það
ar aöeins frammistaða Rós-
mundar, sem kom i veg fyrir góð-
an sigur 1R. Brynjólfur stóð sig
bezt og var iðinn við að skora, en
það var einnig mikil ógnun i leik
bórarins Tyrfingssonar og
Ágústar.
Sóknarleikur Vikings var nú
mun lakari, en gegn Fram og Val
á dögunum og stafaöi mest af þvi,
að Guðjón Magnusson, sá snjalli
leikmaður náði sér ekki á strik og
skoraði ekki mark, sem er mjög
óvenjulegt hjá honum. Hins vegar
skoruðu Einar og Magnús falleg
mörk, og Ólafur var heppinn með
tvö mörk úr hornunum.
Vikingur er nú i efsta sæti i
mótinu, en hefur tapað einu stigi
meira en Fram — og þremur eins
og Valur. Liðið hefur enn ekki
tapað leik, en gert þrjú jafntefli
við brótt, Val og nú 1R — og þó
eru bæöi bróttur og 1R meðal
néðstu liða mótsins. bað sýnir, að
öryggið skortir enn hjá Vikings-
iiðinu.
Mörk 1R skoruðu Brynjólfur 4
(1 viti) bórarinn, Hörður Árnason
og Svavar tvö hver. Fyrir Viking
skoruðu Einar 4 (1 viti), Magnús
3, Ólafur 2 og Sigfús 1.
Dómarar voru Jón Friðsteins-
son og Sveinn Kristjánsson. betta
var erfiður leikur að dæma og
komust þeir allvel frá hlutverki
sinu, þó svo áhorfendur og leik-
menn væru ekki alltaf a áama
máli.
barna berjast tveir harðir — ÍR-ingurinn Agúst Svavarsson og
Vikingur Magnús Sigurðsson. Ljósmynd Bjarnleifur.