Vísir - 31.10.1972, Page 2
2
Visir Þriðjudagur 31. október 1972.
risnism:
Hvað finnst yður um
samningana milli Hita-
veitu Reykmvikur og
Kópavogsbæjar?
Kyjólfur Kristjánsson, Brúarósi.
Mér finnst sjálfsagt að fá hita-
veitu i Kópavoginn, hvort sem
þetta er rétta Ieiðin eða ekki.
Kjartan Gunnarsson, stud. oecon.
Mér lizt illa á þá. Ég held að þetta
sé skref að innlimun Kópavogs i
Reykjavik.
.lóliann Baldursson, nemandi.
Mér lizt bara vel á þá. Ég held að
hitaveitan verði miklu ódýrari á
þennan hátt.
Gunnar Þorsteinsson. Ég hef nú
litið kynnt mér málið. Eftir þvi
sem ég fæ bezt séð, þá er þetta
báðum aðilum til hagræðis og þvi
ágætt.
Jóhannes Uelgason, laganemi.
Mér lizt bara mjög vel á samn-
ingana. Það er indælt að eiga von
á að fá hitaveitu i Kópavoginn.
Pálina Haraldsdóttir, nemandi.
Ef vatninu verður skipt jafnt á
milli aðilanna, er þetta ágætt. Við
fáum svo litið heitt vatn og það er
agalegt vesen. Það verður mikill
munur að fá meira af heita vatn-
inu.
Kaupmaðurinn ó horninu
að hverfa?
,Þróunin í þó ótt, að reynt er að útrýma okkur, segja
/litlu" kaupmennirnir. „Æskileg þréun", segja þeir „stóru'
Þróun verzlana virðist vera
orðin sú, að hinar stærri og full-
komnari verzlanir séu að vcrða
kaupmanuinum á horninu svo-
kailaða yfirsterkari. Hinar minni
verz.lanir, sem fyrirfundust
næslum á hverju götuhorni,
virðast vera að hverfa, en þær
verzlanir, sem hafa allt á boð-
stólum fyrir viðskiptavininn,
inunu verða i framtiðiuni.
Við höfðum samband við
nokkra aðila, sem kunnugastir
eru þessum málum, og spurðum
um þeirra álit á þessari þróun.
„Litlu verzlanirnar eru að
hverfa. Þær hafa þjónað bæði
ungum og gömlum, og sérstak-
lega hafa þær þjónað þeim, sem
átt hafa erfitt. Kaupmaðurinn á
horninu hefur reynt að leysa
vandamál þeirra, sem koma og
verzla og reynt að gera þeim til
hæfis. En stórar verzlanir eru að
risa upp. Borgaryfirvöld hafa út-
vegað glæsilegar lóðir, og þessar
verzlanir fá örugga aðstöðu. En
kaupmaðurinn á horninu er aldrei
óhultur, þvi að engar reglur eru
til um það, að önnur verzlun megi
ekki risa upp alveg við hliðina”.
Þetta sagði formaður Félags
matvörukaupmanna, Einar
Bergmann, þegar blaðið hafði
samband við hann.
„Þróunin er öll i þá átt, að það
er verið að reyna að útrýma
okkur”, sagði Einar ennfremur,
,,en hvort það er æskileg þróun,
verður hver og einn að dæma
fyrirsig. En svo vikið sé að öðru,
heimilar reglugerðin um lokunar-
tima sölubúða öllum verzlunum
að hafa opið til klukkan 10 á
þriðjudögum og einnig á föstu-
dögum. Til okkar koma örfáir, og
margir hafa lokunartimann i
staðinn 7 á þriðjudögum og 8 á
föstudögum, en aðrir hafa gefizt
LESENDUR
Jk HAFA
/áW ORÐIÐ
Húsnœði utanríkis-
ráðuneytisins
S.i. föstudag birtir Visir lesenda-
bréf frá K.J., er lætur i ljós mikla
vandlætingu sina á innréttingum
húsnæðis þess, er utanrikisráðu-
neytið hefir fengið til afnota á
el'stu hæð i skrifstofubyggingu
Lögreglustöðvarinnar við
Hverfisgötu. Með þvi að embætti
húsameistara hefir verið falið að
sjá um innréttingar þessa
húsnæðis, og mjög er hallað réttu
máli i bréfi K.J., þykir ástæða til
þess að koma hér á framfæri
nokkrum athugasemdum.
Bréfritari segist hafa
gengið um húsakynni ráðu-
neytisins af „tilviljun” i sam-
Þessi mynd er tekin á gangi hins
nýja húsnæðis utanríkisráðu
neytisins.
upp. En stóru verzlanirnar
græddu á þessu, þvi þær höfðu
auglýsingamáttinn. Þær hafa
unnið sigurinn yfir hinum minni
verzlunum.”
Þegar við höfðum samband við
Gunnar Snorrason, varaformann
Kaupmannasamtakanna, kvað
hann einstaklingsverzlunum fara
fækkandi smátt og smátt. „Þær
koma til með að hverfa”, sagði
hann. „Reyndar er ekki gott að
segja til um gamla bæinn, en það
verður svo i hinum nýju hverfum.
Þar byggist allt á þvi, að hægt sé
að fá vörurnar á sama stað. Þetta
er æskileg þróun. Kostnaður i
sambandi við siikt ætti ekki að
aukast, og vinnuafl nýtist mun
betur i kjörbúðinni, þvi að hægt er
að nota það, þó ekki sé alltaf
verið að afgreiða.
Mjólk ætti einnig að fara inn i
þessar verzlanir, það skapar
meiri umferð, en verzlanirnar
ætti að innrétta með það fyrir
augum, að þar verði hægt að selja
og geyma mjólk”.
Að lokum höfðum við samband
við Baldur Ágústsson, verzlunar-
stjóra hjá Silla og Valda.
„Þróunin er sú, he'r eins og alls
staðar annars staðar I heiminum,
að smábúðirnar eru að hverfa.
Timinn er það dýrmætur, að fólk
vill fara á þann stað þar sem allt
fæst.
Á Norðurlöndunum hefur
þróunin orðið sú, að minni
verzlanirnar hafa horfið. I Kaup-
mannahöfn til dæmis, þar sem á
hverju horni voru litlar
verzlanir, hefur þeim nú verið
lokað I stórum hópum, en það
eru stóru verzlanirnar, sem
draga fólkið til sin. Þetta verður
þróunin hér á landi lika þó að við
séum enn á eftir. En þetta er
staðreynd.
Ég veitekki hvað skal segja um
það, hvort þetta sé æskileg þróun.
Viðskiptavinurinn verður að
dæma um það. En við getum tekið
sem dæmi, að húsmæður vinna
nú meira úti en áður tiðkaðist, og
þegar þær hafa lokið vinnutima,
kjósa þær heldur að fara á þann
staðinn, þar sem úrvalið er
meira.
Þegar kjörbúðirnar hófu göngu
sina, var talið, að slikur rekstur
mundir ekki ganga. Fólkið myndi
um leið missa allan „contact” við
kaupmanninn eða afgreiðslu-
fólkið. Það kom þó i ljós, að þær
verzlanir, eða kjörbúðirnar
gengu.
Stærri verzlanirnar eiga að
geta verið ódýrari. Ef þær geta
flutt inn sjálfar, en það eru meiri
möguleikar til þess, eftir þvi sem
þær eru stærri, eiga vörurnar að
vera ódýrari en þegar fyrst þarf
að kaupa þær frá heildverzlun-
um.” —EA
Kaupmaðurinn á horninu er að hverfa, en stærri verzlanir eru að taka vlð, segja þeir, sem mest vit hafa
á málunum.
bandi við heimsókn i Lögreglu-
stöðina. Ekki er þvi óliklegt, að
K.J. miði gagnrýni sina við
samanburð á vistarverum öðrum
i húsinu og leigjandans á 5. hæð i
aðalbyggingunni, en eigi dylst, að
gagnrýnin byggir á allt öðru en
sanngjörnu mati á þvi sem fyrir
augu þessa gests i húsakynnum
ráðuneytisins bar, og að annar-
legar ástæður hafa stjórnað
penna hans við ritsmiðina.
Innréttingar á húsnæði utan-
rikisráðuneytisins eru með sama
hætti og skrifstofuhúsnæði á
öðrum hæðum hússins, og hefði
orðið með sama fyrirkomulagi
um herbergjaskipan hjá hverjum
öörum, er þar hefði fengið sama
stað.
óhóf telur K.J. það helzt, að
gólfog gangarséu teppalagðir og
veggfletir klæddir harðviði. Rétt
er það, að vel flest herbergi eru
teppalögð, en harðviður aðeins að
litlu leyti i innréttingum, og þá
helzt á göngum i hurðarhæð.
Teppalögnin og viðarklæðning
þar sem henni var við komið,
þótti hagkvæmari lausn en önnur
meðferð gólfa og veggjarflata.
Jafnframt er það i samræmi við
nýlegar breytingar á innréttingu
annarra stjórnardeilda, svo sem i
Arnarhvoli, þar sem gagnger
breyting hefir verið gerð á skrif-
stofuhúsnæði sl. tvö ár, og inn-
réttingar á húsnæði stjórnar-
ráðsins verið samræmdar og
leitazt við að gæta allrar hagsýni
um búnað.
Það sem miklu fremur ætti að
vekja athygli um innréttingar á
húsnæði utanrikisráðuneytisins
en „bruðl” og „flottheit” sem
K.J. telur einkenna fram-
kvæmdirnar, — er einmitt hversu
látlausar þær eru og án alls
iburðar. Gólfteppi, gluggatjöld og
húsgögn þau, sem eigi voru áður
fyrir hendi, er góður islenzkur
iðnaður og kostnaði i hóf stillt.
Að lokum skal tekið undir óskir
K.J. um það, að sem flestir mættu
sjá, hvernig eitt ráðuneyti býr
um sig, og hver vinnuskilyrði hið
opinbera býr þar starfsmönnum
sinum, og stefnir að, að verði sem
viðast. En óviða var meiri þörf
breytinga á vinnuskilyrðum og
aðstöðu allri en einmitt hjá utan-
rikisráðuneytinu.
Frá húsameistara rikisins.
Synd að stytta
Jón B.
Sú ákvörðun útvarpsins að fella
niður þáttinn „Eftir hádegið” á
fösludögum virðist ekki hafa
fallið i góðan jarðveg hjá hlust-
endum. Hafa fjölmargir skrifað
vegna þess arna, og hér verða
nokkur bréfanna birt.
„Mig lahgar til að koma á
framfæri kvörtun til útvarpsins
yfir þvi að þáttur Jóns B. Gunn-
laugssonar, „Eftir hádegið”,
skuli stórlega skertur. Þetta er af
mörgum talinn einn bezti þáttur
útvarpsins og synd, að hann skuli
að miklu leyti tekinn burt af dag-
skránni. Þar sem ég vinn hlusta
allir, og vafalaust hafa fleiri
sömu sögu að segja. Hvað veldur
þessari ákvörðun?”
Haraldur Marteinsson
Þátturinn
má ekki hœtta
M. skrifar:
„Svo er mál með vexti, að ég er
að nokkru öryrki og er þar af leið-
andi litið á ferðinni, enda lömuð
að nokkru. Ég er þvi að mestu
heima og hlusta mikið á útvarp og
horfi á sjónvarp.
Mig langar til að koma á fram-
færi þeirri ósk til útvarpsins, að
þátturinn „Eftir hádegið” verði
ekki skorinn niður. Ég heyrði, að
hann ætti ekki að vera á föstu-
dögum framvegis, og það finnst
mér misráðið. Útvarpið verður
lika að taka tillit til þeirra, sem
heima sitja, þegar dagskráin er
ákveðin. Sá hópur er tryggasti
hlustendahópurinn og sjálfsagt
ekki sá minnsti. Ég vil þakka
útvarpinu fyrir margt gott efni og
þá ekki sizt þáttinn „Eftir
hádegið”. Hann má ekki falla
niður”.
r
Afram
„Eftir hádegið"
á föstudögum
Guðinundur Jónsson skrifar:
„Ég vil með bréfkorni þessu
koma á framfæri megnustu
óánægjuminni með þá ráðstöfun
útvarpsins að fella niður þáttinn
EFTIR HÁDEGIÐ á föstudögum.
Þáttur þessi er vafalitið einn allra
vinsælasti þáttur útvarpsins og
vafasamt, að meira sé hlustað á
annað efni. Auk þess sem þáttur-
inn flytur fjölbreytilega tónlist
(ekki sízt eldri slagara), þá eru
sum simtölin ógleymanleg og
fróðleiksmolar fylgja alltaf með!.
Má með sanni segja, að i
þættinum komi fram „frétta
aukar” af ýmsu tagi og virðist
stjórnandinn vera einkar opinn
fyrir þvi, sem er að gerast, og
ekki skemmir að hann hefur gott
skopskyn og kann að tala við fólk
án þess að láta „of mikið” i
sjálfum sér heyra.
Ég skora á útvarpið að taka
tillit til allra þeirra, sem fylgjast
með þessum þáttum, en ég er viss
um að þátturinn EFTIR HÁDEGI
er með vinsælasta efni sem flutt
hefur verið lengi. Meira af
þessum óþvingaða léttleika og
fjöri, sem einkennir þáttinn
allan”.
Við liöfðum samband viö dag-
skrárdeild útvarpsins og
spurðum, hvort ákveðið væri að
fella niður umræddan þátt á
föstudögum. Hjörtur Pálsson
dagskrárstjóri tjáði lesenda-
þættinum, að útvarpsráð hefði
samþykkt á fundi sl. fimmtudag,
að þátturinn skyldi halda áfram
á föstudögum. Verður hann þvi
væntanlega tekinn upp aftur á
þeim dögum eins fljótt og hægt
verður. Ætti þessi ákvörðun að
gleðja hlustendur.