Vísir - 04.11.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 04.11.1972, Blaðsíða 1
B2. árg. — Laugardagur 4. nóvember 1972 — 253 tbl. Glímuskjálfti fyrir ASÍ-þing Sjá baksíðu Minkurinn fer ekki í ríkiskassann „Er nú einn atvinnuvegur- inn i viöbót að sækja á rikis- spenann?” spyrja margir, þegar i ljós kemur að minka- búin i landinu hafa skaðazt stórkostiega frá þvi að starf- semi þeirra hófst. En minka- ræktendur eru ekki að biðja um neinn náðarstyrk, segir Asgeir Pétursson forstjóri i Dalsbúi, i bréfi til blaðsins, en óska aðeins eftir fyrir- greiðslu vegna timabund- inna vandamála. — Sjá bls 2. Allir regnbogans litir í' innréttingunni Hvítt, hvitt, hvítt... Þannig var það fyrir nokkrum árum, þegar hfbýli manna voru máluö, og litirnir á móti þessu voru ;gjarnan palisander eða tekkiitir. En svo komu litir svo um munaði, hvort heldur var á baðherbergi , i eldhúsi eða stofu. Og enn gerast innan- hússérfræðingar litaglaðir. Þetta má sjá á sýningu sem niu fyrirtæki hafa sett upp hjá Byggingaþjónustu arki- tekta. — Sjá INN-siðuna á bls 8. Búizt við skriðu á þriðjudaginn Menn búast við skriðu i forsetakosningunum i Ba n da r ik jun um næsta þriöjudag. Kjósendur sætta sig ekki við það sambland Lenins og Jóns Vidalins, sem McGovern er. Nixon gætir þess að láta sem minnst bendla sig við nokkra stefnu, vill hafa alla góða og sigra vegna veikleika andstæð- ingsins. Hiö eina, er Nixon gerir, er að kasta mestu kosningabombu allra aida i Vietnam. — SJA BLS. 6 BYRJAÐIR AÐ LEITA VOPNA Á VELLINUM Tœki komin í flugstöðvarbygginguna í þessu skyni Nú eru leitartæki til þeirra. vopnaleitar á farþegum komin í flugstöövar- þygginguna á Keflavíkur- flugvelli. Tæki þessi eru sett upp með það fyrir aug- um aö koma í veg fyrir flugrán, eða tilraunir til Björn Ingvarsson, lögreglustjóri á Kefla- víkurflugvelli tjáði þlað- inu, að þegar væri þúið að taka í notkun handleitar- tæki. Er verið að setja upp stærri tæki, sem komið verður fyrir á gangi i flugstöðvarbyggingunni. Að sögn Björns átti að koma mað- ur frá Luxemburg til að kenna íslendingum á tækin, og koma þeim fyrir. Þessi maður kom ekki og var annar frá Bandarikjunum fenginn i hans stað. Ekki vildi Björn segja hvort þörfin á þess- um tækjum sé mikil hér, en slik tæki eru á flestum stærri flugvöll um heims núna. Þá hefur alþjóðalögreglan Interpol sent báðum flugfélögun- um hér upplýsingar um tæki til að leita i farangri. Loftleiðir munu hafa skrifað framleiðendum tækisins og likur eru á að slik tæki verði keypt. ÞM GRUNUR UM AFBROT í SAM- BANDI VIÐ HVARF ÞEIRRA Stúlkurnar komnar fram Langar yfirheyrslur Stúlkurnar tvær, 13 og 14 ára, komu fram í gær, en þeirra hafði verið saknað síðan á mánudag. Kom önnur heim til sín og hin fannst i húsi í borginni síðar. Grunur leikur á, að lögbrot hafi verið framið i sambandi við dvöl stúlknanna fjarri heimilum sinum eða „hvarf” þeirra. Lögreglan hóf yfirheyrzlur i gær- kvöldi, og stóðu þær i tvær og hálfa klukkustund. Rannsókn málsins var þó ekki langt á veg komin, og verður henni haldið áfram um helgina. í þvi sambandi bendir lögreglan á, að þeir, sem sekir eru um, að unglingar á þessum aldri „hverfi”, fremji alvarlegt brot. Stúlkurnar voru allan timann i borginni, en þær vissu ekki fyrr en i gær, að þeirra væri leitað. Lögreglan styðst á þessu stigi við framburð stúlknanna og ann- arra en hafði i nótt ekki getað yfirheyrt þá, sem beinlinis mætti gruna um afbrot samkvæmt lög- um. Löggjöf er á ýmsum sviðum ætlað að vernda ófullveðja ungl- inga og dregur til ábyrgðar pá eldri sem stuðla að óreglu þeirra. Lögreglan viidi ekki gera nánari grein fyrir, að hverju grunurinn beindist i einstökum atriðum, enda rannsókn ekki nógu langt komin til þess. — HH Þeir flytja í dag Það var hátiðlegt inn við lilemmtorg i gærdag, fánar dregnir að hún og gesti bar að garði f nýju lögrcglustöðinni, sem var þá sýnd gestum, en á myndinni er Geir Hallgrims- son borgarstjóri ásamt yfir- mönnum lögreglunnar i nýju stöðinni. Og I dag munu skjala- bunkarnir með mislitum ferli manna verða ferjaðir á milli Pósthússtrætisins og Hverfis- götustöðvarinnar nýju. Og I dag mun lögreglan endanlega setjast að i hinum nýju húsa- kynnum, sem verða allt önnur og betri en þau sem iögreglan hefur haft undanfarna áratugi. FLUGFOLKIÐ OKKAR VINSÆLT í ERLENDUM SKÁLDSÖGUM — sjó baksíðu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.