Vísir - 04.11.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 04.11.1972, Blaðsíða 5
Vísir. Laugardagur 4. nóvember 1972 5 Sjónvarp kl. 20.25: Óttalega er 'ann barnalegur Bandariski gámanmyndaflokkurinn „Heimurinn minn” er á dag- skrá sjónvarpsins i kvöld kl. 20.25. Þessi þáttur nefnist Christabel. Eins og oft áður lendir hinn hugmyndariki teiknari I mestu vand- ræðum vegna mikils imyndunarafls sins. Dóttur hans finnst hug- myndir föður sins oft heldur barnalegar og vorkennir honum hálft i hvoru, vegna þess hve hann er utan við heiminn. — ÞM Sjónvarp kl. 21,25: BÖRN EFTIR PÖNTUN Lífsgátan nefnist fræðslu- mynd sem sjónvarpið sýnir í kvöld. Mynd þessi fjallar um erfðafræðina og ráð- gátur hennar. Er þar glimt við spurninguna hvort hægt sé að breyta erfða- eiginleikum mannanna. Margir visindamenn telja að i fram- tiðinni verði hægt að framleiða börn á rannsóknarstofum, og að tölvur muni reikna út eiginleika þá sem barnið á að vera gætt. 1 myndinni eru þessir möguleikar rannsakaðir, bæði efnafræðileg og tæknileg hlið þeirra. Eru hinar svokölluðu ENA og RNA kjarna- sýrur rannsakaðar og ýmis efna- sambönd. Reyna visindamenn i myndinni áö sýna hvernig breytingar á þessum efnasamböndum leiði ti’l breyttra erfðaeiginleika. Hver veit nema i framtiðinni verði hægt að panta börn með þeim kostum sem hver kýs að barnið hafi. Þýðandi og þulur Gylfi Páls- son. —ÞM RAFHA Rafha sýnir framleiðslu sína á heimilistœkjum á sýningu Byggingaþjónustunnar Laugavegi 26, 3. hœð. Komið og sjáið íslenzka framleiðslu. 35 ára reynsla tryggir gœðin. H.F. Raftœkjaverksmiðjan Hafnarfirði. Sjónvarp kl. 20,50: „GLENS OG GAMAN" Kvöldstund isjónvarpssal heitir þáttur sem er meðal efnis á dag- skrá sjónvarpsins i kvöld. Það er þáttur i léttum tón með músik og öðru skemmtiefni. Sjálfsagt þæðu flestir slíkan þátt, að minnsta kosti einu sinni i viku, og það er ekki útilokað að af sliku geti orð- ið. Egill Eðvarðsson hjá sjónvarp- inu sem sér um þáttinn i kvöld tjáði okkur að vonir stæðu til að slikur þáttur yrði einu sinni i viku, en þó sagði hann að ekki væri hægt að lofa neinu um það. Hann sagði einnig að reynt yrði að gera þætti, þar sem eitthvert efni væri fyrir alla, og skoðana- kannanir hafa verið gerðar i þvi tilefni. t þættinum i kvöld kemur meðai annars fram Bjarki Tryggvason og syngur lagið: 1 sól og sumaryl, sem flestum er vel kunnugt. Guðjón Matthiasson leikur á harmoniku létt harmonikulög. Tveir piltar úr Keflavik koma fram og leika klassiskt verk á gitara, sem að þvi er Egill sagði, er gott og mikið atriði i þættinum. Ung stúlka úr Keflavik, Stein- unn Karlsdóttir kemur fram i fyrsta skipti og syngur eitt lag á ensku, og kvartettinn Sólskins- bræður syngur lag um logn, bliðu sumar og sól. Er það klassiskt lag og má segja að söngurinn sé i svipuðum dúr og söngur MA kvartettsins. 1 þættinum er svo ýmist glens og gaman. —EA enwood HEIMILISTÆKIN LETTA HUSMOÐURINNI STÖRFIN Kynnist Kenwood heimilistœkjum ó sýningu Arkitektafélagsins Laugavegi 26 Viðgerða- og HEKUV HF varahlutaþjónusta ó Uugavegi 170—172. Símí" 21240

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.