Vísir - 04.11.1972, Page 8

Vísir - 04.11.1972, Page 8
8 Visir. Laugardagur 4. nóvember 1972 Litagleði í eldhúsinu! Það nýjasta ó markaðnum á sýningu í Byggingaþjónustunni Það er vlst óhætt að segja, að litagleði riki i nýjustu eldhúsinnrétt- ingunum. Eldavélar, skápar, pottar og pönn- ur, allt er i litum, græn- um, rauðum, appelsinu- gulum o.s.frv. Ilckla hf.: Uppþvottavélin er fyrir ca. 12 manns og kostar 31.500. Strau- vélin kostar 12.749, en með tveimur elementum 14.094. Ilaíbúð Sainbandsins: Innrétting frá Trésmiðju K.A., og meðaleldhús með slikri innréttingu kostar um 90—120 þúsund. Með meðaleldhúsi er átt við þessa innréttingu sem á myndinni sést og aðra sambærilega á móti. tsskápur: 35.824. Uppþvottavél: 36.700. Ofn: 40.300. Hella: 16.681. Ileimilistæki sf :Uppþvottavélin, sem þvær eftir 10—12 manns kostar: 36.400. Tveggja dyra Isskápur: 29.100. Þvottavél: 39.950. 240 litra ís- skápur: 25.200. Það kemur fram á sýningu þeirri, sem nú stendur yfir á eld- húsbúnaði og eldhústækjum i húsnæði Byggingaþjónustunnar að Laugavegi 26. Þar sýna niu fyrirtæki það allra nýjasta á markaðnum, og þó að ekki sé hægt að segja, að þarna sé um al- gjörar nýjungar að ræða, kemur margt skemmtilegt fram i eld- húsbúnaðinum á þessari sýningu. Sjálfsagt getur sýning þessi lika hjálpað þeim, sem eru að hefja búskap, eða þeim, sem ein- hverra hluta vegna hafa áhuga á að endurnýja húsbúnaðinn eða kaupa nýtt inn. Þau niu fyrirtæki, sem sýna á þessari sýningu eru: H.G. Guð- jónsson, Hekla hf., Gunnar Ás- geirsson hf, Rafbúð sambandsins, Bræðurnir Ormsson hf, Ofna- smiðjan,Orka hf, Heimilistæki sf og Rafha. Þarna eru sýndar allar þær vél- ar, sem hver getur hugsað sér i eldhúsið eða þvottahúsið, t.d. þvottavélar. Sýndar eru eldavél- ar, uppþvottavélar, hrærivélar, strauvélar, isskápar, frystikistur og eldhúsinnréttingar. Það er áreiðanlegt, að hviti ltirurinn er að hverfa fyrir hinum sterkari litum. Bæði á veggjum stofunnar og einnig i eldhúsinu. Allt virðist haft i litum og engin takmörk gilda. Þó skiptir það miklu máli, að litirnir fari vel saman, og þeir verða að vera valdir af smekkvisi, annars vill mesti glansinn fara af innrétting- unni. Veggfóður á skáphurðum hefur ekki tiðkazt, en á þessari sýningu er sýnd innrétting, þar sem vegg- fóður er sett á skápa. Veggfóðrið þekur þó ekki allan skápinn, heldur er það aðeins sett á miðja hurðina, þannig að sú tegund við- ar, sem skápurinn er smiðaður úr, kemur i ljós sem nokkuð breið rönd meðfram veggfóðrinu yzt á brúnunum. Veggfóður er þá notað á alla skápa i innréttingunni, hvort sem þaö eru veggskápar eða skápar i borði. Yfirleitt eru eldhúsgólf dúk- lögð, eða þá að á þau eru sett flis- ar, mósaik eða jafnvel teppi, einna helzt nylonteppi, þunn og ekki loðin. I einni þeirri innrétt- ingu, sem sýnd er, er þó parket- gólf. Er parketgólfið bæði þægi- legt til þess að hreinsa það, og einnig er það glæsilegt. Hvitar eldavélar eru algeng- astar, og þvi er það stór nýjung i augum margra, þegar eldavélar i litum koma á markaðinn. Nú er hægt að fá t.d. grænar eldavélar og geta þær þess vegna fallið mjög vel inn i innréttingu, þar sem litagleði rikir, ef hægt er að fá eldavélina i svipuðum lit. Flestar húsmæður hekla, prjóna eða suma hlífar yfir hell- urnar á eldavélum sinum. Það prýðir vissulega, en eldhætta stafar oft samt sem áður af slik- um hlifum. Þær eru ekki lengi að brenna, ef hiti er á hellunni. Slikt er þó hægt aö foröast, þvi að á eldavélar er hægt að fá hlifar i ýmsum litum úr þunnum og fin- gerðum málmi. Þær skapa ekki siður prýði en hekluðu og hand- unnu hlifarnar. Orka: tsskápur: 32.138 með ein- um dyrum. Með tveimur dyrum: 44.550. Frystikista, 195 litrar: 23.914. Þurrkari: 24.831. Uppþvottavél er sennilega draumur hverrar húsmóður. Enda er það ekki amalegt að geta sett allt óhreint leirtau inn i vél- ina, raðað þvi á réttan hátt og látið vélina sjá algjörlega um að þvo og þurrka. Uppþvottavélar er hægt að fá i ýmsum stpræðum. tsskápar koma sifellt fram i nýrri og nýrri gerðum, og völ er á isskáp, sem inniheldur stóran skáp og svo minni frystikistu, eða þá öfugt, stór frystikista og litill skápur. Hægt er að fá tvo isskápa og setja þá saman, þannig að þeir verða sem einn. Þannig mætti sjálfsagt lengi telja upp fullkomnari og full- komnari eldavélar, sjálfvirkari þvottavélar og fleira, en sjón er sögu rikari, og sýning þessi i Byggingaþjónustunni er opin til sunnudags 12. nóvember. —EA II.G. Guðjónsson: Eldavélarnar sem sjást á myndinni bjóða upp á ýmsa möguleika og er verðið á þeim 25.900, og 20.400. Bræöurnir Ormsson: Þvottavél: 44.800. Þurrkari: 30.916. Uppþvotta- vél: 45.800. Eldavél: 30.740. Vifta: 12.800. Gunnar Asgeirsson hf.: Þessi innrétting er einnig frá Trésmiðju K.A. Þessi innrétting i meðaleldhús, kostar um 100—110 þúsund. Edlavél: 43.700. Uppþvottavél: 58.200. Vifta: 14.350. Itafha -.Eldavélin á gólfinu i þessari innréttingu: 21.700, önnur eldavél: 18.100, Eldavélasamstæða: 15.250 m/bakarofni Hella i innréttingunni kostar: 8.650. ísskápurinn: 20.490 og viftan 13.770., Ofnsmiðjan: Innrétting i meðaleldhús mun kosta um 70—100 þús und. Viftan kostar: 14.350. Hella: 12.350. Ofn: 23.430, en hann er ekki i innréttingunni á myndinni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.