Vísir - 04.11.1972, Side 16

Vísir - 04.11.1972, Side 16
Laugardagur 4. nóvember 1972 Með kaffikönnu í hlýjuna hjá ná nrtmnn Þe'r s°tu ■ rofmogns og símaleysi fyrir norðan „Það var farið yfir til nágrann- ans sem hlýjast var hjá með kaffikönnuna” Þetta sagði Þor- finnur Bjarnson sveitastjóri i Höfðahreppi, þegar Visir taiaði við hann i gær. Hann var að tala um ástandið, sem skapaðist þann eina sólarhring, sem Ibúar á Skagaströnd voru rafmagnslaus- ir. Rafmagnið fór sem kunnugt er víðast á vestari hluta Norður- lands s.l. laugardag. A Skag- strönd fengu þeir þó rafmagn daginn eftir, þvi að þeir hafa disilstöö og gátu skammtað raf- magn til ibúanna. Sveitirnar i kring héldu þó áfram að búa við rafmagnsleysi þar til á miðviku- daginn. Simasambandslaust var á þessum slóðum þar til i fyrradag, en menn gátu haft samband sin á milli eftir einni linu á miðviku- daginn. Vinnu gátu menn að mestu stundað á meðan bjart var, nema i fyrstihúsinu og á nokkrum öðr- um stöðum. Bliðviðrið bjargaði milljónum. ,,Ef ekki hefði komið til óvenju gott veður miðað við árstima, hefði orðið hér stórkostlegt tjón af völdum frosta”, sagði Brynjólfur Sveinbergsson, oddviti á Hvammstanga. Fyrir utan fólkið i sveitunum hafa ibúar Hvammstanga farið einna verst út úr isingarveðrinu. Þeir voru rafmagnslausir frá þvi á miðnætti á laugardagskvöld og til þriðjudagskvölds. Þá fengu þeir disilrafstöð senda frá Reykjavik. Brynjólfur sagði að þeir á staðnum hefðu reynt að fá að halda rafstöðinni, til að geta mætt slikum vanda, ef hann hefði komið upp öðru sinni, en disil- stöðin var ekki föl. í þá þrjá sólarhringa sem raf- magnslaust var, sátu margir heima hjá þeim sem kynda hibýli sin með oliu, svonefndum sólóvél- um og sú-hiturum. Fólk varð að elda sér mat á primusum og gas- tækjum. A sama tima og rafmagnið hvarf misstu Hvammstangabúar einnig simasamband við um- heiminn. 1 tvo sólarhringa gátu menn þó haft símásamband sin á milli,þvi að rafhlaða sá fyrir nægri orku til þess. En þegar raf- hlaðan var þrotin rofnaði allt simasamband i fimmtán klukku- stundir, en þá komst simasam- band á við umheiminn. Ekki var þó hægt að hringja sin á milli á Hvammstanga strax, þvi að raf- hlaðan átti eftir að endurhlaða sig. Hvammstangabúar munu reyna að fá sér vararafstöð, ef svona skyldi koma fyrir aftur. Ekki eru likur að þeim verði jafn- kalt á ókomnum tima, þvi að nú standa yfir hitaveituframkvæmd- ir, sem endanlega mun lokið við um jól. Byrjað var á þessum framkvæmdum i ágúst siðastliðn- um og verður vatnið leitt átta kilómetra leið frá Laugabakka. Áætlaður kóstnaður er um tutt- ugu milljónir króna. Hitaveitan mun ná til 80—90% allra ibúa á þessum slóðum. Birgir Sigurjónsson hjá Lands- simanum kvað tjón það sem af ill- viðrinu hlauzt ekki fullkannað, en tjónið af brotnum simastaurum eingöngu væru um þrjár og hálf til fjórar milljónir króna. Fróðir menn segja okkur að is- ingin, sem sums staðar fór upp i tuttugu sentimertra á sima- og rafstrengjum, hafi aðallega verið á linum, sem sneru þvert á vind- áttina. Vonandi verða gerðar ráð- stafanir til þess að heilu byggðarlögin verði ekki raf- magns- og hitalaus lengi eftir svona veður, þvi að slikt gæti, eins og áður var bent á, valdið stórfelldu tjóni á heilsu manna og mannvirkjum. íslenzk flugfreyja aðalsögu hetja í erlendri skáldsögu Islenzkar flugfreyjur og flug- og er eftir Richard Falkirk. menn virðast vinsælar sögu- t þessari bók er flugfreyja hjá hetjurum þessar mundirhjá er- Flugfélagi íslands söguhetjan. lendum rithöfundum. Desmond Þá kom út i fyrra bók um ame- Bagley fjallaði þannig um is- riska pilta, Frank og Jóa, leyni- lenzkan flugmann i bók sinni lögregludrengi sem höfðu mikil „Running blind” og nú er að samskipti við islenzkt flugfólk koma út bók hjá Erni og örlygi hjá báðum félögunum. sem heitir „Vegið úr launsátri” — JBP Starfsemi AA kynnt: y „Enn gœtir misskilnings um AA" A.A. menn kynna í dag i Austurbæjarbiói þær aðgerðir, sem þeir beita til að losna úr viðj- um ofdrykkjunnar. Fundurinn er opinn öllum. A.A. samtökin taka ekki af- stöðu til opinberra mála né félagslegra deilumála, en of- drykkja fer vaxandi hér á landi, og æ fleiri verða henni að bráð, meðal annars vegna þess að þeirra nánustu þekkja enga leið út úr vandanum. Fundurinn er haldinn til að benda á leið, sem oft hefur gefizt vel. Segjast A.A. menn með þvi vilja gjalda þakklætisskuld fyrir þann árangur, sem þeir hafi náð, með þessum hætti en jafnframt stuðla að þvi að eyða óæskilegum misskilningi, sem enn verði vart meðal almennings um eðli A.A. samtakanna. — Fundurinn hefst kl. 4. — HH Þórarinn Sveinsson á Eiðum lézt í umferðarslysi Þórarinn Sveinsson, fyrr- verandi kennari á Eiðum, lézt af slysförum á þriðjudaginn. Þórarinn heitinn var á göngu eftir vegi nálægt Eiðum á svonefndum Eiðaöxlum, er bifreið ók aftan á hann. Þórarinn lézt nær samstundis. —LÓ Kona við skál olli árekstri Þrátt fyrir mikla umferð i gær- dag gekk umferðin stóráfallalaust. Arekstur varð þó á mótum Laugavegar og Laugarnesvegar. Einhver slys urðu á fólki, en ekki voru þau talin alvarleg. Kona sem ók öðrum bilnum er grunuð um ölvun við akstur. —LÓ Rafmagnslaust fimm sinnum á 10 mánuðum Framleiðslan á fjórum dag- blöðum stöðvaðist i gærkvöldi i tvo klukkutima eða þvi sem næst, þegar rafmagnið fór af hluta af Iiáaieitishverfi. Eru þetta dag- blöðin sem prentuð eru i Blaða- prenti við Siðumúla. Rafmagn kom fljótlega á hluta hverfisins eftir að það fór skömmu fyrir 10 en I Blaðaprenti mátti starfsliöið sitja við kerta- ljós og hafa ofan af sér með tafli og spilamennsku. Er reynsla Blaðaprents i 10 mánaða starfsemi sinni orðin heldur dapurleg 1 rafmagnsmál- um.þvi þetta er i fimmta sinn sem rafmagnið fer og stöðvar setn- ingu og prentun blaðanna á þess- um tima. Hefur þetta að vonum bakað fyrirtækinu talsverðan auka- kostnað, en liklega hefur sá kostnaður veriö hvað mestur i gærkvöldi, þegar um 30 manns biðu aðgeröalausir. — JBP — Vofa stríðsins hvilir stöð- ugt yfir heiminum, enda þótt þeir bjartsýnustu sjái nú fram á endalok Víet- namstríðsins, og menn vona áreiðanlega um aII- an heim að þær blikur sem nú eru á lofti verði ekki til þess að friðar- samningar mistakist. Þessi mynd var gerð í Kanada og gæti verið táknræn um striðið í heiminum, sem stöðugt geisar, hvort heldur það er í Vietnam þar sem tug- um tonna af sprengiefni er fleygt yfir lendur manna á degi hverjum, eða hið ógeðfeilda stríð fyrirbotni Miðjarðarhafs- ins, eða þá rósturnará ír- landi. En myndin sem fylgir talar sínu óhugnan- lega máli um þennan ægi- lega fylgifisk mannsins, STRÍÐIÐ. Glímuskfálftí fyrir ASÍ-þing Hugmyndir um að fjölga varaforsetum ASÍ- — Hannibal varð að hlaupa í skarðið þegar Björn veiktist Undirbúningur er nú i fullum gangi fyrir þing Alþýðusambands island, sem hefst að Hótel Sögu 20. þessa mánaðar. Tölu- verður glímuskjálfti er eflaust samfara þessum undirbúningu hjá forystu- mönnum verkalýðs- hreyfingarinnar og jafn- vel forystumönnum þjóð- arinnar. Margt mun velta á þvi, hvernig þessu þingi lízt t.d. á persónulegar og aðrar skoðanir ýmissa á efnahagsmálunum. Miklr umræður hafa átt sér staö í haust um hugsanlegar skipulagsbreytingar á mið- stjórn samtakanna með hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengizt hefur á þvi fjögurra ára tima- bili, sem nú er að ljúka. M.a. hefur Visir frétt, að Guömundur Garðarsson, formaður Verzlun- armannafélags Reykjavikur, sem er fjölmennasta félagið innan ASÍ, hafi gert það að til- lögu innan miðstjórnar ASt, að varaforsetum verði fjölgað. Ábyrgum forystumönnum innan ASÍ brá i brún i sumar, þegar Björn Jónsson núverandi varaforseti, sem gegnir forseta- starfinu, eftir að Hannibai Valdimarsson tók við embætti félagsmálaráðherra,varð alvar- lega veikur. Þá kom I Ijós að ekki var unnt aö boða til löglegs fundar i miðstjórn ASÍ, þar sem aðeins varaforseti eða forseti geta samkvæmt lögum samtak- anna kallað saman fund. i sumar var brugðizt svo við þessum vanda, að leita til Hannibais um að hann kallaði saman og stjórnaði fundi, sem og hann og ge'rði. Það er m.a. með hliðsjón af þessu og þvi veigamikla og si- vaxandi hlutverki, sem ASi gegnir, að tillaga um fleiri varaforseta kom fram. Þá hafa stjórnunarstörf samtakanna einnig stóraukizt á undanförn- um árum, enda er nú svo komið, að félögin innan ASÍ hafa ekki aðeins mikið pólitiskt og félags- legt vald. heldur einnig fjár- hagslegt með öilum þeim sjóð- um, sem félögin hafa komið sér upp. Þar má nefna lifeyrissjóði, félagssjóði, sjúkrasjóði, orlofs- sjóði, styrktársjóði o.fl. fyrir utan sjálfan atvinnuleysis- tryggingasjóðinn. — Allt þetta virðist auka mjög á þörf fyrir aukna verkaskiptingu innan miðstjórnar ASt. Helztu mál þingsins, auk efnahags- og atvinnumáianna og launamálanna, sem að sjálf- sögðu munu skipa æðsta sess, munu senniiega verða ýmsar nýjar hugmyndir i sambandi við atvinnulýöræði og stóraukin fræðslumál. Þá verður senni- lega verulegum tima varið i að ræða aukið öryggi og bættan að- búnað á vinnustöðum. Hlutfalislega færri fulltrúar sækja ASÍ-þingið núna, en fyrir 4 árum, vegna skipulags- breytinga á vali fulltrúa. Þeir verða þó um 300 talsins, en voru töluvert á fjórða hundrað siðast. — VJ vísm

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.