Vísir - 20.11.1972, Page 3

Vísir - 20.11.1972, Page 3
Visir. Mánudagur 20. nóvember 1972 3 Svona kom hver á fætur öðrum, fólk, sem engan efa hefur um sannleiksgildi andalækninga: ,,Já, ég hef reynslu af þvi að læknar haldi áfram lækningum eftir dauðann. Það eru virkilega góöir andar. ” — ,,Já, ég trúi á kraftaverk, — áttu ekki við aðstoð frá verum úr öðrum heimi? „Nei, ég get ekki sagt ég trúi á þær, þar sem ég hef ekki kynnzt þeim persónulega. En ég segi ekki heldur, að andalækningar geti ekki verið til.” — „Nei, en ég trúi mörgum þeim sögum. sem heiðarlegt fólk hefur sagt mér um reynslu sina af öndum”. — Þannig slógu flestir i nei-hópnum varnagla um leið og þeir svöruðu eftir beztu sannfæringu. Viðhorf þeirra markaðist mjög af þeim anda, sem einn spurðra orðaði þannig: „Nei, ... og þó annars”. Fæstir þeirra, sem voru óákveðnir, leiddu hjá sér spurn- inguna, vegna þess að þeir vildu ekki svara henni. Ekki vegna þess að þeim finndist of nærri sér gengið með spurningunni, sem óneitanlega er nærgöngul. Það er i sjálfu sér aðdáunarvert, hve fúst fólk er til að ræða svona viðkvæm mál við ókunna i sima. Viðhorf hinna óákveðnu einkenndist fyrst og fremst af efasemdum : „Segðu að ég trúi 90% á andalækningar. Sjálf hef ég ekki notið þeirra og er þvi ekki reiðubúin til að taka gall- harða afstöðu”. Ekki var unnt að merkja neinn verulegan mun á afstöðu manna eftir búsetu á landinu. Þannig var hlutfall t.d. svo til jafnt eftir þvi hvort hinir spurðu voru úr dreif- býli eða þéttbýli. Aðeins var unnt að merkja mun á afstöðu kynjanna, en hann var þó ekki það mikiíl, að varlegt væri að draga mikinn lærdóm þar af. Þó virtust konur heldur trúaðri en karlar. Eftir þessa skoðanakönnun þarf ekki að koma á óvart hinn feikilegi áhugi, sem fram kemur jafnan i jólabókaflóðinu á bókum um yfirnáttúrleg efni, en oft hafa heyrzt raddir, sem undrast allar þessar bækur um þessi efni. Mönnum kann að lika þetta illa og telja tslendinga vera frumstæða að þessu leyti, þ.e. andstæðinga. Hinir, sem eru i miklum meiri- hluta, telja þetta þó eflaust bera akkúrat vitni um hið gagnstæða, þ.e. mikinn andlegan þroska þjóðarinnar. Erfitt er að dæma, hvorir hafa á réttu að standa. Trú á yfirskilvitlega hluti virðist vera jafn rikjandi i öllum stéttum, háum sem lágum, hjá mennt- amönnum jafnt sem öðrum. — Kannski trúa þó læknar siður en aðrir á samkeppnina að handan. Þeir kvarta að minnsta kosti ekki um aðgerðarleysi. — VJ fyrir óliðlegheit og þar fram eftir götunum. Ég vil mótmæla svo- leiðis skrifum. Ég hef ferðazt með strætó i fjölda mörg ár og mér finnst þjónustan stöðugt hafa batnað. Vagnstjórar sýna undantekn- ingarlitið lipurð og þægilegheit við farþega, sem oft á tiðum sýna nokkuð tillitsleysi. Ég vil hér með koma þökkum minum á framfæri til hinna ágætu vagnstjóra strætó.” Varalestur í sjónvarpi Lydia Guðjónsdóttir hringdi: „Ég vildi gjarnan beina þeirri spurningu til sjónvarpsmann- anna, hvort ekki er hægt að beina alltaf myndavélinni að þeim sem er að tala hverju sinni i sjónvarpi. Þá yrði greiði gerður heyrnar- daufu fólki i landinu, og sjálfsagt fleirum, þvi að þeir heyrnardaufu geta ekki fylgzt með samtali nema að sjá einhvern tala, svo hægt sé að lesa oröin af vörum viðkomandi. Þegar umræður eru i sjónvarpi er þetta sérstaklega heppilegt, i stað þess að sýna allan þann hóp sem er saman kominn i sjón- varpssal. Þetta á þó einnig við um viðtöl og samtöl, þegar þvi verður við komið.” Reynt að fá Shirley Temple á pressuball? Sú hugmynd hefur komið fram að reyna að fá fyrrverandi barna- stjörnu, Shirley Temple, til þess að vera heiðursgestur á hátíö blaðamanna, hinu svokallaða pressuballi. Að þvi er Hörður Bjarnason hjá Upplýsinga- þjónustu Bandarikjanna tjáði blaðinu i morgun', er þó alls óvist, að hún komi og ckki hcfur verið rætt við hana sjálfa. Temple hefur nylega verið skorin upp og liggur á sjúkrahúsi ennþá. Án efa myndi koma hennar verða ánægjuefni margra, sér- staklega þeirra, sem kannast við hana úr hinum eldri kvikmyndum hennar, er hún sló allt i gegn og' hreif hjörtu flestra, sem á horfðu. Fleiri hafa þó komið til greina sem heiðursgestir, og má þar nefna Hubert Hum-phrey og Edward Kennedy, en þeir menn eru mjög uppteknir og útilokað, að Kennedy heimsæki landið. EA Shirley Temple Black var nýlega skorin upp vegua æxlis i brjósti. Frost og sumar! Frost og sumar hétu þau módelin. sem hvað mesta athygli vöktu á sýningu Félags snyrtisér- fræðinga i gærdag. Tvær stúlkur voru fengnar til þess að seljast i stól snyrtisérfræðinga á sýn- ingunni, og með förðum og lyfjum máluðu þær Þyri Dóra Sveins- dóttir og Kagnheiður lfarvey svo- kallað „Fantasy make-up” á and- lit þeirra tveggja. Kölluðu þær andlitssnyrtinguna frost og sumar, en þetta er i fyrsta sinn, sem slikur farði er sýndur á tslandi. Erlendis ryður hann sér þó mjög til rúms. Að skreyta andlit kvenna svo mjög tekur langan tima, en sýningarstúlkurnar höfðu verlð undirbúnar áður og aðeins átti eftir að setja frostrósir og sumar- blóm, ásamt örlitlum lit, á and- litið. Var ennið málað blátt á þeirri stúlku, sem bar andlits- snytinguna frost....(Sjá nánar Innsiðu á morgun.) —EA ÞEIR OTTAST JAFNVEL AÐ KOMA Á ALMENNA SUNDSTAÐI — nýtt félag berst fyrir málefnum exem- og spœringssjúklinga Liklega eru ekki færri en 4-5000 manns haldnir ýmsum ofnæmis og spæringssjúkdómum á islandi, a.m.k. cf dæma má eftir reynslu Færeyinga þar sem milli 2 og 11% landsmanna eru haldnir þessum sjúkdómum. Félag sjúklinga með sjúkdóma þessa hefur nú verið stofnað i Reykjavik, og var stofnfundur félagsins einn hinn stærsti sent menn minnast. „Og margir hringdu utan af landi og aðrir sem komust ekki vegna lasleika”, sagði Hörður Ásgeirsson fulltrúi hjá Gunnari Ásgeirssyni h.f., en hann er for- maður félagsins. Hörður kvað verkefni félagsins ótæmandi, m.a. að fá umbætur á sjöttu deild Landspitalans, húðsjúkdómadeildinni, en þar eru skilyrði ekki upp á það allra bezta, t.d. þarf að vekja sjúklinga upp að næturlagi til að nýta tjörubað, sem „sórfasis”- sjúklingar þurfa að nota. Þá er lyfjakostnaður óbærilegur fyrir marga. Kvaðst Hörður hafa hitt mann um daginn, sem færi með 30 þúsund krónur á ári i lyf, enda þótt sjúkrasamlagið borgaði helminginn. Þá mun félagið berjast fyrir auknum skilningi almennings á húðsjúkdómum þessum. Það hef- ur komið fyrir, að foreldrar yrðu að taka börn sin úr sundkennslu vegna þess, að þau höfðu exem eða annað slikt. Hin börnin voru hrædd við ummerkin sem exem- börnin höfðu. Þá eru það margir sem hreinlega láta ekki sjá sig á almennum sundstöðum vegna sára sinna að sögn Harðar. Sagði Hörður að böð væru reyndar bezta lækningin fyrir marga, sér- lega sjóböð og sólböð. Þvi væri það mörgum sjúklingum mikils virði að geta komizt i hlýtt lofts- lag við baðstrendur, og hefur Dauðahafsströndin i Israel reynzt bezt i þessu tilliti. — JBP — Vindsvalur enn vindlaus Loftbelgurinn Vindsvalur er enn á jörðu niðri. Ekki hefur komið lil þcss, að loftferðacftir- litið skoðaði helginn, og þvi engar likur til að af flugi verði i dag eða á morgun. Veðurguðirnir sýndu það glöggt um helgina, að þeim er ekki treystandi til að útvega hagstætt flugveður eftir pöntun á þessum tima árs, þvi fljótt skipast veður i lofti. —SG 23 erlendir í vari i morgun lágu 23 erlcndir tog- arar i vari undir Grænuhlið. Versta veður cr á miðunum og geta skipin ekki stundað veiðar. Landhelgisgæzlan hefur látið togarana afskiptalausa, en þeir eru brezkir, þýzkir og færeyskir. —SG Engin jarðarfararstemning yfir EFTA — segir Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri Það hreint engin jarðarfar- arstemning yfir ráðherrafundi EFTA núna, þó að Bretland, Dan- mörk og irland séu nú að ganga inn i Efnahagsbandalagið. Eitt stefnumark EFTA hefur verið að eyða hindrunum i viðskiptum með iðnvarning, koma á friverzl- un iðnaðarvarnings. Og þvi mark miði hafa aöildarlöndin, sem ekki ganga í Efnahagsbandalagið ein- mitt náð i samningum sinum við bandalagið, sagði Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri i viðskiptaráðuneytinu, cn hann sat ráðherrafund EFTA i fyrri viku i Vin. Fulltrúar Islands á fundinum lögðu til, að allar sjávarafurðir njóti friverzlunar innan EFTA eins og iðnararvörur og var til- lögunni visað til EFTA-ráðsins, sem aftur mun skila áliti fyrir ráðherrafund i mai. — Núna er friverzlun með freðfiskflök, mjöl, lýsi og lagmeti, en nýr fiskur, saltaður og þurrkaður er undan- þeginn friverzlun. — Þórhallur Asgeirsson sagði, að það væru alveg úrelt sjónarmið að flokka sjávarafurðir með landbúnaðar- vörum. Þær ætti að flokka með iðnaðarvörum og þvi njóta toll- frelsis. -VJ

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.