Vísir - 20.11.1972, Blaðsíða 13
Vísir. Mánudagur 20. nóvember 1972
13
Itaquel Welch við komuna til London. Hún var ekki svona brosleit, þeg-
ar. hún kom til baka....
Með tilkomu hraðbrauta
hefur slysahœtta af völdum hálku
og ísingar stóraukizt.
VDO-LOFTHITAMÆLIRINN
kemur yður að gagni í þessu tilliti
með því að hann
☆ sýnir hitastig við jörðu
☆ gefur til kynna með Ijósmerki,
ef hitastig við jörðu fer niður
í eða niður fyrir frostmark.
☆ varar yður þannig við
ísingarhœttu.
Mœlinn mó auðveldlego setj mœlaborð bifreiðarinnar. 0 í
- VARIST SLYSIN - Sefjið umferðaröryggi öðru ofar.
^gunnai S4?>%úió Suðurlandsbraut 16 - Reykjavlk • Slmnefni: »Volver öon k.f t - Sfmi 35200
Raquel Welch er framhleypin og ósvífín
— segir mótleikari hennar í nœstu mynd, James Mason
Kynbomban Raquel
Welch átti ekki eins
langa viðdvöl i London
nú siðast og tilefni gaf
til. Nokkru áður en töku
myndarinnar ,,The last
of Sheila” lauk, kom
leikkonan stormandi til
flugstöðvarinnar fyrir
utan London og keypti
sér farmiða með næsta
flugi heim.
A meðan hún beið, snökkti hún
stórum. Það gátu barðastór hatt-
ur hennar og dökk sólgleraugu
ekki falið.
Hún viðurkenndi, að ástæðan
fyrir þessari skyndilegu brottför
voru miklar deilur og illindi á
milli hennar og leikstjóra Warner
Brothers-myndarinnar, en þá
ekki hvað sizt aðal mótleikara
hennar i myndinni.James Mason.
,,—Látið mig i friði”, kjökraði
hún, en lét þeim þó ekki ósvarað,
sem vildu bendla nýjasta vin
hennar, tizkuteiknarann Ron
Talsky, við leiðindin. — Hann á
enga sök á þvi hvernig komið er,
næstum hrópaði-hún.
Leikaranum James Mason
varð ekki orðfátt i viðtali við
blaðið Daily Mirror: — „Ungfrú
Welch er sú framhleypnasta,
ruddalegasta og ósvifnasta kvik-
myndaleikkona, sem ég hef haft
þá óánægju að vinna með.”
Það var aðeins skömmu áður
en hún hélt til kvikmyndaleiks i
London, sem hún fékk skilnað frá
Patrick Curtis. Þá þegar var hún
komin i hýrt samband við hinn
43ja ára gamla kvikmyndafram-
leiðanda og piparsvein Robert
Ross. En sem fyrr segir heitir
núverandi fylgisveinn hennar
Ron Talsky — þ.e.a.s. að þvi er
siðustu fréttir herma.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 32., 36. og 37. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1972, á eigninni Holtsgötu 10, Hafnarfirði, þing-
iesin eign Friðriks A. Jónssonar, fer fram eftir kröfu
Innheimtu rikissjóðs, á eigninni sjáifri fimmtudaginn 23.
nóvember 1972 kl. 3.45 e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Banki allva landsmanna
Ef áætlunin
stenzí
ekki
Óvænt útgjöld hafa oft gert náms-
mönnum leiðan grikk. Margir hafa oröið
að verða sér úti um starf jafnhliöa nám-
inu, ef til vill á versta tíma námsársins.
Áætlanir geta brugðizt.
Nú eiga aðstandendur námsmanna
auðveldar með að veita þeim aðstoð, ef
þörf krefur. Með hinu nýja sparilánakerfi
Landsbankans er hægt að koma sér upp
varasjóði með reglubundnum sparnaði,
og eftir umsaminn tíma er hægt að taka
út innstæðuna, ásamt vöxtum, og fá lán
til viðbótar.
Varasjððinn má geyma, því lántöku-
rétturinn er ótímabundinn. Þér getið
gripið til innstæðunnar, og fengið lán á
einfaldan og fljótlegan hátt, þegar þér
þurfið á að halda.
Reglubundinn sparnaður og reglu-
semi í viðskiptum eru einu skilyrði
Landsbankans.
Kynnið yöur sparilánakerfi Lands-
bankans. Biðjið bankann um bæklinginn
um Sparilán.