Vísir - 20.11.1972, Blaðsíða 11

Vísir - 20.11.1972, Blaðsíða 11
Kostuðu mistök dómara KR stig? — FH sigraði KR 15-13 í leik, þar sem upp úr sauð í lokin og leikmenn létu hendur skipta Það sauð heldur betur upp úr í leik KR og FH á islandsmótinu í Laugar- dalshöllinni í gærkvöldi, — það svo, að um tíma virtist sem leikurinn mundi leys- ast upp. Leikmenn létu hendur skipta — kjafts- höggin gengu á víxl — og voru leikmenn beggja liða í sök. En með aðstoð liðs- stjóra og nokkurra leik- manna, sem „héldu höfði" tókstað Ijúka leiknum, sem lauk með sigri FH eftir spennandi og harðan leik 15-13. Annar dómari leiksins, Ey- steinn Guðmundsson, átti mikla sök á þessum ósköpum og furðu- legir dómar hans hleyptu illu blóði i leikmenn. Annað liðið, FH, hagnaðist mjög á dómum hans i leiknum — það svo, að það kostaði jafnvel KR-inga stig. Ég er ekki að halda þvi fram, að Eysteinn hafi af ásettu ráði sýnt hlutdrægni i leiknum — siður en svo — en margir dómar hans vöktu mikla furðu áhorfenda sem leikmanna og þar var ekkert samræmi. Rúmri minútu fyrir leikslok, þegar staðan var 14-13 fyrir FH dæmdi Valur Benediktsson brot á FH við Vitateig KR — KR-ingar tóku aukakastið fljótt og gáfu fram á Steinar Friðgeirsson. Hann komst frir upp og Hjalti Einarsson sá ekki annað ráð, en hlaupa gegn honum og skella Steinari — Vitakast!! Flauta dómarans hljómaði, en þá skeði einkennilegur hlutur. Eysteinn breytti fyrri dóm Vals dómara — dæmdi aukakast á KR — þegar Valur hafði dæmt aukakast á FH — og vitakastið, sem KR-ingar höfðu reiknað með á lokaminút- unni varð að engu. FH tók auka- kastið — Gunnar Einarsson skor- aði upp úr þvi og sigur FH var i höfn, 15-13. Eysteinn sýndi samdómara sinum þarna mikla litilsvirðingu — Valur var alveg við atvikið, sem hann dæmdi á, Eysteinn langt úti á velli — og það er ekki vafi á þvi, að dómur Vals var hinn rétti. Eftir leikinn sagði Valur að- eins á sinn rólega hátt. „Útidóm- arinn ræður algjörlega i sliku til- viki”, en það var greinilegt, að undir niðri þótti honum mjög miður það,sem skeð hafði. En þetta var ekki hið eina hjá Eysteini i leiknum — hann dæmdi vitakast á KR, sem eflaust var rétt, en sleppti að minnsta kosti tveimur vitum á FH fyrir verri brot, þegar staðan var 10-9 fyrir FH. barna var ekkert samræmi — heldur ekki, þegar hann rak KR-inginn Björn Blöndal af leikvelli fyrir brot, sem var að- eins barnaleikur miðað við margt annað, sem skeði i leiknum. Þetta eru aðeins dæmi af mörgum. Greinilegt, að Eysteinn „lokað- ist” alveg i leiknum, þvi hann hefur áður margsýnt sig vera i hópi betri dómara okkar. bað er kannski hægt að afsaka „lokun” dómara, ef það bitnar jafnt á liðum. Þarna, illu heilli, urðu KR- ingar aðeins fyrir barðinu á hon- um. bað kom á óvart hve KR-ingar stóðu i FH, já, meira en það. Liðið hefði alveg eins getað hlotið stigin i leiknum. Þó var oft gaman að horfa á FH-liðið — hraðinn gifur- legur á köflum, en þó eins og að- eins væri hraði hraðans vegna — litið gert til að opna vörnKR með honum. En kannski brást leikað- ferðin vegna þess hve hinn ágæti leikmaður, Viðar Simonarson, átti slakan leik að þessu sinni og var að auki óheppinn. Hann skor- aði aðeins eitt mark i leiknum — átti fjölmörg skot framhjá, i stangir eða þá hinn snjalli mark- vörður KR, ívar Gissurarson, varði. Einstaklingsframtak Geirs Hallsteinssonar bjargaði þvi, sem bjargað varð hjá FH, og það skeði þrátt fyrir ágæta markvörzlu Birgis Finnbogasonar og Hjalta i leiknum. Geir skoraði nær helm- ing marka FH — sjö. Auk tvars markmanns áttu Haukur Ottesen og Bjarni Krist- insson stórgóðan leik i KR-liðinu — Bjarni skoraði þrjú gullfalleg mörk af linu, og Haukur var maður, sem FH var alltaf i erfið- leikum með. Hann skoraði fimm mörk. Leikurinn var mjög jafn nær allan timann — KR þó oftast yfir i fyrri hálfleiknum. Bjarni skoraði fyrsta mark leiksins og það liðu sex minútur þar til FH komst á blað. Auðunn Óskarsson skoraði. Björn Blöndal skoraði fyrir KR, en FH komst yfir með mörkum Geirs og Viðars, 3-2 eftir 15 min. Haukur jafnaði strax — og siðan skoraði FH mark, sem vakti mikla kátinu. Geir kraup þá allt i einu niður á hnén fyrir framan vörn KR — Gunnar Stefánsson steig upp á bak hans og skoraði fallega yfir vörn KR. Geir og Gunnar voru svo hrifnir af bragði sinu, að þeir tókust innilega i hendur á eftir. Þeir reyndu það ekki aftur i leikn- um — kannski var þetta bara til- viljun. Ekki sett á svið. En KR-ingar voru harðir og skoruðu næstu þrjú mörk — Stein- ar og Haukur tvivegis og staðan var 6-4 fyrir KR eftir 24 min. Geir jafnaði með tveimur fallegum mörkum á einni og sömu minút- unni. Haukur náði forustu aftur fyrir KR, en Arni Guðjónsson jafnaði með miklu heppnismarki FH i lok hálfleiksins. Sama spennan var i siðari hálf- leik. Fh oftast rharki yfir, en Kr jafnaði. 8-8, 9-9, 10-10, 11-11, og 12- 12 kom á markatöfluna. Geir skoraði þrjú falleg mörk i röð og FH komst i 14-12. örfáar minútur eftir, en vanhugsað skot Birgis Björnssonar kom KR aftur á bragðið — KR lék upp og Haukur skoraði 14-13. Lokaminútunum er áður lýst og þá lék Eysteinn dóm- ari aðalhlutverkið. Mörk FH i leiknum skoruðu Geir 7, Gunnar 3, Auðunn 2, Viðar, Arni og Þórarinn (viti) eitt hver. Fyrir.KR skoruðu Haukur 5, Bjarni 3, Björn Blöndal 2, Björn Pétursson 2 og Steinar 1. Björn Blöndai var FH-ingum oft erfiður i gærkvöldi. Hér hefur hann sloppið frir inn á linu, framhjá Viðari, Birgi og Arná, og skot hans hafn- aði i markinu. Ljósmynd Bjarnlcifur. Þrír heiðraðir A ársþingi KSl voru þrir kunnir knattspyrnumenn heiðraðir. Eyleifur Hafsteinsson, knattspyrnumaðurinn kunni frá Akranesi, hlaut gullúr frá KSI fyrir að hafa leikið 25 landsleiki — ogþeir Jóhannes Atlason og Guðni Kjartansson fengu fagrar styttur fyrir 20 landsieiki —- en báðir eru þeir að nálgast 25 leikina. Guðni var ekki viðstaddur á þinginu á laugardag — en myndin sýnir Albert Guðmundsson afhenda þeim Eyleifi (til vinstri) og Jóhannesi hinar fögru gjafir. Ljósmynd Bjarn- leifur. TÍORIS straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. AUSTURSTRÆTI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.