Vísir - 21.11.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 21.11.1972, Blaðsíða 5
Visir. Þriðjudagur 21. nóvember 1972 5 AP/INITB Í MORGIIN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTL Umsjon Guðmundur Pétursson Peron og leiðtogar stjórnmólaflokka Argentínu sammóla Sátu 6 klukkustunda fund í nótt Juan D. Peron, fyrrum forseti Argen- tínu, lauk i morgun sex klukkustunda fundi við aðra stjórnmálaleiðtoga Argentinu og skýrði svo frá, að þeir hefðu orðið sammála um „einhliða afstöðu til stjórnmála i Argentinu. í ávarpi til hóps stuðnings- manna sinna kallaði Peron fund þennan „sögulegan”, en fór ekki út i einstök atriði, sem borið höfðu á góma á fundi hans með hinum leiðtogunum. Peron talaði frá svölum lítils matsölustaðar, þar sem fundur- inn hafði verið haldinn, en hann sóttu nánast allir leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka landsins. — Nokkrir þeirra höfðu að orði, þgar þeir fóru af fundinum, að hann hefði verið „mjög jákvæður”. Peron varð að biða í nokkrar minútur til þess að fá hljóð, meðan fólksfjöldinn, sem safnazt hafði saman framan við matsölu- staðinn sönglaði: „Peron, Peron, Peron,”. Peron sagðist vera að reyna að sameina öll stórnmálaöfl landsins „til að verja rétt argentinsku þjóðarinnar”. Að loknu ávarpi sinu ók Peron til villu sinnar skammt frá, en að staðartima var þá komið yfir miðnætti. Aðeins nokkrum húslengdum frá fundarstað stjórnmálamann anna særðust tveir lögreglu þjónar i skotbardaga, þegar þeir reyndu að handtaka mann nokkurn. Yfirvöld létu ekkert uppskátt um atburð þennan, og ekkert er vitað, hvort hann stóð i nokkru sambandi við 3000 Peronista, sem safnazt höfðu við fundarstaðinn. Lögreglumennirnir tveir höfðu handtekið mann og þegar þeir ætluðu að færa hann á brott með sér, kom til átaka, þar sem lögreglumennirnir skiptust á skotum við óþekkta byssubófa. 1 ringulreiðinni tókst handtekna manninum að sleppa. ( Liðsauki barst og særðu lögregluþjónarir voru fluttir á sjúkrahús. A fundi Perons og leiðtoga stærstu stjórnmálaflokka Argentinu sátu einnig um 50 leiðtogar verkalýðs- samtaka, sem flest eru á bandi Perons. Sumir þeirra sjást hér á myndinni með Peron (á miðri mynd) eins og José Rucci (sem veifar með Peron) frá hinum öflugu samtökum járniðnaðarmanna. HONG KONG VÍSAR NJÓSNARA UR LANDI, - EKKI MANNINN EN RUSSAR VILJA Kinverskur kaupsýslumaður, sem visað hefur verið úr brezku nýlendunni, Hong Kong, vegna gruns um njósnir i þágu Rússa, hefur i heila viku verið hugar- angur yfirvalda þar. Yfirvöld Hong Kong segja, að maðurinn hafi óskað eftir þvi að neðra sendur til Rússlands, þegar honum var visað úr landi. Var honum komið fyrir i rússnesku skipi, sem átti að leggja af stað frá Hong Kong á þriðjudag i siðustu viku. Eigendur og skipstjóri skipsins harðneituðu hins vegar að flytja manninn og mótmæltu þvi, að honum væri prangað upp á þá. Hefur skipið þvi ekki hreyft sig, siðan maðurinn kom um borð. Sir Murray MacLehose, land- stjóri nýlendunnar, hefur hins vegar þvertekið fyrir það að fjar- lægja Ho Hung-yan,eins og Kin- verjinn heitir, frá skipinu og visaði mótmælum skipseig- endanna á bug. Stendur þvi enn i sama stapp- inu. Skipstjórinn neitar að hreyfa sig úr höfninni með manninn innanborðs og segir, að Rússar eigi engum skyldum að gegna við manninn né heldur eigi þeir að liða fyrir það, þótt hann hafi eitt- hvað komizt upp á kant við lands- menn i Hong Kong. I heimsókn hjá Amin Keisal, konungur Saudi-Arabiu, var um helgina i opinberri heimsókn i Uganda og sest hér aka um götur Jinja i fylgd Idi Amins, forseta Uganda. KUBUMENN DRAGA FLUGRÆNINGJANA FYRIR RETT Yfirvöld Kúbu hafa gert stjórn Bandarikjanna kunnugt um, að þau muni draga fyrir rétt flug- ræningjana þrjá, sem þvinguðu flugvél frá Southern Airways til að lenda i Havana á dögunum. Flugræningjarnir voru allir af- brotamenn, sem gerzt höfðu sekir Kissinger róð- fœrir sig við Saigon Strax að loknum 5 klukkustund- a viðræðum þeirra Henrys Kiss- ingers og Le Duc Tho i Paris i gær hélt Kissinger á fund Pham Dang Lam, aðalsamningamanns Saigonstjórnarinnar i viðræðun- um i Paris. t framhaldsviðræðum þeirra Kissingers og Tho um vopnahlé i Vietnam verður þessi háttur hafður á, að Kissinger hitti jafn- harðan Lam til skrafs og ráða- gerða um það, sem á milli hans og Tho hefur farið. Kn i leyniviðræðunum, sem hófust núna á nýjan leik i gær, eru Suður-Vietnamar (hvorki Saigon- stjórnin né Viet Cong) ekki hafðir með á fundunum. Eins og siðast, þegar Kissinger og Tho réðu ráðum sinum og náðu samkomulagi um uppkast að vopnahléssamningum, eru við- ræður þeirra leynilegar. Mjög öflugur lögregluvörður gætti þess, að fréttamenn fengju ekki að nálgast samningamennina. um nauðganir og fleira. Blaðafulltrúi bandarisku rikis- stjórnarinnar, Charles W. Bray, skýrði fréttamönnum frá þessu i gær og lét þess jafnframt getið, að kúbönsk yfirvöld hefðu tekið vel i beiðni Bandarikjamanna um viðræður um aðgerðir gegn flug- ramingjum. „Okkur barst svar i gegnum svissneska sendiráðið, að kúbanska rikisstjórnin sé reiðu- búin til þessað hefja viðræður um þetta i gegnum svissnesku rikis- stjórnina,” sagði Bray blaðafull- Irúi, en eins og kunnugt er, hafa Bandarikjamenn og Kúbumenn ekkert stjórnmálasamband. I'yrsta konan ... i sögu Samcinuðu þjóðanna scm hcfur vcrið forseti öryggis- ráðsins —Jean Martin Cisse frá Ouinca — sést hér setja fyrsta l'und sinn þ. 15. nóv. Ilún verður forseli i nóvember. • • / ORUGGUM HÖNDUM Háskæiandi, en þó heil á húfi, er Laure litla Blagojevic hér komin i öruggar hendur lögreglumanns, eftir að hún fannst i fylgsni barnaræn- ingjanna i Paris, þar sem henni var rænt í siðustu viku. Ræningjarnir kröfðust 5 milljón kr. lausnargjalds, en fengu ekki krónu og náðust allir. Ben Barka-morðinginn sendur til New York Þrir Krakkar og einn itali, sem yfirvöld i Brasiliu visuðu þaðan úr landi i siðustu viku, höfðu enn ekki verið sendir á brott i gærdag, þar sem enn er óákveðið, hvert senda skuli mennina. Mennirnir voru allir aðilar glæpahrings, sem lögreglan i Brasiliu afhjúpaði nýlega, en glæpahringur sá hafði á prjónun- um ráðagerðir um að gera Brasiiiu að miðstöð dreifingar á eituriyfjum i Vestur-álfu. Þrir glæpamannanna voru sendir til Bandarikjanna, þar sem þeir voru ákærðir fyrir eitur- lyfjasmygl, en yfirvöld þar höfðu hins vegar engan áhuga fyrir þessum fjórum, sem nú er óráð- stafað. Saksóknari á Sikiley hefur farið þess á leyt við dómsmála- ráðuneyti ttaliu, að það fái ítalann (sem grunaður er um að vera i itölsku máfiunni) fram- seldan frá Brasiliu. Franska sendiráðið hefur hins vegar ekkert viljað láta uppi um það, hvort frönsk yfirvöld eigi eitthvað vantalað við Frakkana úr glæpa- klikunni. — Nema Krakkar höfðu áhuga á að fá framselda tvo þessara þriggja sem sendir voru til Bandarikjanna, Christian David og Michel Nicoli. David var eftirlýstur fyrir morð og einnig vegna gruns um þátttöku hans i morði Ben Barka, leiðtoga stjórnarandstöðu Marókkó. h'ranskur sendimaður i Rio sagðist „furðu lostinn”, þegar hann frétti, að David, Nicoli og Vlaude Pastou hefðu verið sendir, til New York. Mönnunum skaut upp i réttarsal i New York, aðeins 24 stundum eftir að þeim hafði verið visað úr Brasiliu. En þeir voru allir látnir svara til saka fyrir ákærur um eiturlyfjasmygl til USA. En það er gert ráð fyrir þvi, að þegar ákveðið hefur verið, hvað gera skuli við hina fjóra, sem eftireru i Brasiliu, þá verði þeir sendir jafn hljóðlega úr landi. Brottvisun mannanna úr Brasiliu fylgdi i kjölfar margra vikna rannsóknar, þar sem nokkrir Brasiliumenn voru jafn- framt handteknir fyrir aðild að eiturly fjahringnum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.