Vísir - 21.11.1972, Page 16

Vísir - 21.11.1972, Page 16
Þriöjudagur 21. nóvember 1972 Á bragðið líkt og bandni, en í laginu eins og pera! „Vift höfum flutt ávöxtinn avocado inn undanfarin misseri, en þessi ávöxtur er nýjung fyrir fólki, og þaft þekkir hann litið. Okkur hcfur lundi/.t litili áhugi rikja fyrir honum, en hann virðist ákaflega vinsæll i öðrum löndum, scrstaklega sem forréttur”, sagði Hjörgvin Schram, stórkaupmað- ur, þegar blaðið hafði samband við liann, en nú hefur Sambandið einnig liafið innflutning á þessum nýja ávexti, fyrir isiendinga, avocado. Ávöxturinn hefur ekki alltaf fengizt i verzlunum til þessa, en svo mun þó verða nú. Er hann mjög svipaður peru i laginu, en nokkuð stærri. Bragðið er sagt dálitið sérstakt, likist banana- bragði nokkuð en það tiökast nokkuð að gera úr honum salöt og fleira og bera fram i hýðinu. Hýð- ið er ekki borðað, en ávöxturinn er grænn eða brúnn á lit. Að þvi er Þorbergur Eysteins- son hjá Sambandinu tjáði blað- inu, kemur einnig til greina að hefja innflutning á svokölluðum kiwi ávexti frá Nýja-Sjálandi. Er sá ávöxtur mjög frisklegur og nokkuð svipaður appelsinu. Er hann nokkuö stærri en plóma. Avocado er fluttur inn frá Israel og að þvi er Þorbergur sagði, verður hann fluttur inn mest allan ársins hring. — EA Ófœrt síðan á laugardag Hefill sex tíma frá Staðarskála að Laugarbakka „Það er ekki liægt að segja, að hér sé ófært gangandi mönnum, en ástandiö er slæmt, veður hefur vcrið mjög vout, og hér er allt á kafi I snjó. Allt er gjörsamlega ófært biluin, og hér liefur engin uinferð verið þvi á laugardag”. Svo sagði Sigurður Sigurðsson i Mjólkurstöðinni á Hvamm- stanga i viðtali við blaðið i morg- un, en þá hafði barna- og gagn- fræðaskólanum verið lokað vegna ófærðar og veðurs. „Snjórinn er allt upp undir 2-3 metra sums staðar en það er þó mjög misjafnt, sem veður hefur verið hvasst og mikið hefur skafið. Hér er sem sagt ekki fært nema fyrir gangangi fólk og jarð- ýtur”. „Mjólk höfum við ekki fengið frá þvi á laugardag, en við erum vön að fá mjólkursendingar sex daga vikunnar. Ekki er orðinn mjólkurskortur ennþá, en það má búast við, að það gangi á birgð- irnar, ef ekki fer að lagast færðin”. „A sunnudag ætlaði hefill að reyna að komast hingað til Hvammstanga frá Staðarskála i Hrútafirði. Sú ferð gekk mjög illa og var hefillinn sex tima á leiðinni frá Staðarskála að Laugarbakka, en sú ferð tekur hálftima til þrjú korter fyrir venjulega bila i ágætri færð. Allt i allt held ég, að þeir hafi verið tæpan sólarhring á leiðinni að brjótast i gegn til Hvammstanga með hvild að Laugarbakka”. Sigurður sagði að lokum, að vonast væri til, að hægt yröi að hefjast handa viö að ýta, svo að vegir opnuðust, en sem stendur er allt ófært i kringum Hvamms- tanga. —EA „Belgi" hér með ólög- lega möskvastœrð Möskvastærð veiöarfæra belgiska togarans Caesars rcyndist ekki fullkomlega lögleg við skoðun i Keykjavikurhöfn um helgina. Auðunn Auðunsson, skipstjóri, kærði skipiö fyrir Landhelgisgæ/.lunni og fóru skoöunarmenn hennar á vett- vang. Þeim ber ekki saman við Auöunn hversu miklu munar á löglegri stærð pokans. Auðunn var á vakki við höfnina þar sem togarinn lá og sá ekki betur en möskvastærð trollsins væri undir löglegri stærð. Þótti honum það benda til þess að togaramenn hyggðu á humarveiðar, en Belgir hafa ekki leyfi til slikra veiða innan 50 milna samkvæmt samningn- um við islenzku stjórnina. Tveir menn frá gæzlunni fóru um'borð i Caesar og framkvæmdu mælingar á möskvastærð poka stjórnborðsvörpunnar. Lögleg stærð á að vera 120 millimetrar en reyndist nokkuð undir þvi marki á sumum stöðum, en annars staðar af löglegri stærð og yfir. Landhelgisgæzlan gerði skip- stjóra togarans þetta ljóst, en skipið hafði enn ekki hafið veiðar. „Okkar menn voru með löggiltar mælistikur og þetta er aðeins þáttur i venjulegu eftir- liti” sagði Hafsteinn Hafsteins- son hjá Landhelgisgæzlunni. Kvað hann farið um borð i öll erlend veiðiskip, sem hér kæmu til hafnar og veiðarfæri þeirra skoðuð. í þessu tilfelli var pokinn á stjörnborðsvörpunni mældur og reyndist ekki full- komlega löglegur. Auðunn Auðunsson sagði, að togarinn hefði verið með fótgrip undir vörpunni og styrkti það þá trú hans að togarinn ætlaði að reyna við humar. Hafsteinn sagði, að öllum skipstjórum væri það ljóst, að væru þeir með ólögleg veiðarfæri ættu þeir á hættu að verða kærðir. Gilti það bæði um erlend og inn- lend veiðiskip. Auðunn sagði i samtali við Visi , að mælingamenn Land helgisgæzlunnar heföu mælt möskvastærðina 117 millimetra. Honum þótti þetta ótrúlegt og Irvn^ct o f o m al* * u VOV OJCtlllil UUIU UllVll pokann. Hefði möskvastærðin verið 105 millimetrar á stjórn- óorðspoka en aðeins 80 á varatrolli á bakborða. Hafsteinn Hafsteinson sagði aðeins stjórnborðspokann hafa verið mæidan og itrekaði að þar hefðu verið að verki vanir menn með löggiltar mælistikur. Togarinn er nú farinn á veiðar , og mun Landhelgisgæzlan fylgjast með honum eins og öðrum skipum. —SG l.itill áhugi viröist hafa rikt hjá tslendingum fyrir avocado, en erlendis er ávöxturinn vinsæll. Hœttir leitarstöðin? Starfsfólki hinnor almennu leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins sagt upp Starfsliði leitarstiiðvar A, hinn- ar almennu lcitarstöövar Krabbameinsfélagsins, hefur verið sagt upp störfum. Mál þetta er enn á frumstigi, og vildu viðkomandi aðilar ekki tjá sig um það, eins og mál standa nú. Hér munu valda fjárhags- örðugleikar hjá Krabbameins- félaginu, en þar sem ekki er búið að fullkanna áframhaldandi rekstrargrundvöll, er ekki enn út- séð um, hvort þessi starfsemi leggist niður. Hin almenna leitarstöö hefur haft þvi hlutverkiaðgegnaað taka á móti fólki, sem vill láta rann- saka sitt likamlega ástand, hvort sem það hefur kennt sér einhvers meins áður eða ekki. Þar sem krabbamein er þannig sjúkdóm- ur, að hann gerir oft ekki vart við sig fyrr en hann er kominn á ólæknandi stig, hljóta allir að sjá, að hér er um hina þröfustu starf- semi að ræða. Oft hefur það einn- ig komið fyrir, að fólk hafi verið með aðra sjúkdóma en krabba- mein, sem fyrst hafa komið i Ijós, þegar það var rannsakað á leitar stöð A, þvi að við krabbameins- rannsóknina er gerð heildar at- hugun á heilsufarinu. Þó er þar ekki farið út i þær sérstöku hjarta- og æðarannsóknir, sem fram fara á vegum Hjartavernd- ar. Starfsfólkið, sem sagt hefur verið upp, er fimm manns, og vinnur það allt þarna hluta úr degi. Afganginn af deginum vinn- ur það svo annaöhvort á vegum Krabbameinsfélagsins eða ann- ars staðar. —Ló „Jesús gefur kannski ekki eins mikið af sér ^ M # # Náttúra samþykkir undirleikinn Enn er hlutverkaskipan i Súperstar Leikfélagsins ekki með öllu ráðin, cn þess vænzt, að þar verði allt komið á hreint áður en þessi vika er öll. Aftur á móti er hljóinsveitin Náttúra nú þcgar búin aö samþykkja aö annast undirleikinn og farin að búa sig undir þá framreiðslu. „Það vildi svo vel til, að áður en við þurftum að gefa endanlegt svar við málaleitan Leikfélags- ins, gafst okkur tækifæri til að sjá Súperstar á sviði. Það var i Lond- on, þar sem við vorum að vinna að gerð LP-plötu i siðasta mán- uði,” sagði Sigurður Arnason, bassaleikari Náttúru i viðtali við Visi i morgun. „Óhætt er að segja, að sú leik- húsferð hafi ráðið miklu um það, að við féllumst á að taka þátt i sýningum hér heima,” heldur hann áfram. „Eins spilaöi þar inn i reynsla okkar á þessu sviði. Við önnuðumst undirleikinn fyrir HAR á sinum tima, og likaði það stór vel. Æfingar eru erfiðar fyrir svona lagað, en af þeim má óneit- anlega hafa nokkra skemmtun lika.” „En fjárhagslega....?” „Trúlega gefur þetta kannski ekki eins mikið i aðra höind. Við verðum bundnir við sýningar að minnsta kosti fimm kvöld i viku, en þau tvö, sem aflögu verða höf- um við i hyggju að spila á böll- um.” „Hefur þú trú á, að uppfærslan hér muni takast eins vel og sú i London? „Það finnst mér ekki ótrúlegt. Við höfum — held ég — alla möguleika á að gera Súperstar sömu skil. Það ætti ekki að þurfa að hnika svo mörgu til, þó stærð leiksviðsins sé ekki eins mikil.” „Verður fjölgað i hljómsveit- inni?” „Það er ekki afráðið ennþá, en likur eru til, að svo fari. Það á eftir að sýna sig, þegar lengra er komið i æfingunum....” —ÞJM Norðurlandsvegur ófœr Kaffenntir bílar tefja snjómokstur Allt er nú á kafi i snjó á Norður- landi og flestir vegir ófærir. Sæmileg færð var i morgun á Snæfellsnesinu, og eru yfirleitt allir vegir færir á Suðurlandsund- irlendi. Viða á Vestur- og Norðurlandi var vonzkuveður og mun ekki verða reynt að opna leiðina á milli Reykjavikur og Akureyrar eins og ráðgert hafði verið, að gert yrði i dag. En það verður byrjað að ryðja norður strax á morgun, ef veður leyfir. Á Akureyri var færð erfið i morgun, en byrjað var að moka götur þar. Standa þar viða bilar á götunum, sem algjörlega hefur fennt i kaf, og tefur það mokstur- inn. Vegagerðin hefur aðstoðaö mjólkurbila við að ná mjólk i ná- grenni Akureyrar og er ekki búizt við, að þvi verði hætt. Þrátt fyrir mikla ófærð fyrir norðan er ekki hætta á skorti á matvörum eða öðrum nauðsynj- um, þviað miklar vörubirgðir eru til bæði á Akureyri og öðrum bæj- um fyrir norðan. — ÞM Útsölumenn ÁTVR vilja firra sig ábyrgð Þjónum óheimil stórinnkaup á áfengi „Það vekur alltaf einhvern grun, ef starfsfólk veitingahúsa kaupir talsvert magn af áfengi. Þess vegna er starfsmönnum út- salanna bannað að afgreiða það, þegar tilefni er til grunsemda”, sagði Jón Kjartansson, forstjóri ATVR, i samtali við Visi. En þeir, sem vinna i útsölum Áfengisverzlunarinnar, þekkja alls ekki allt starfsfólk veitinga- húsanna, eins og gefur að skilja. Þvi hafa þeir ritað bréf, þar sem þeir biðja um að verða leystir undan þeirri ábyrgð að þurfa að þekkja alla þjóna borgarinnar og fleira kemur þar til. „Okkur finnst það fyrir neðan allar hellur, að við skulum alltaf vera ásakaðir, þegar unglingur er drukkinn, þegar menn eru kærðir fyrir leynivínsölu eða þjónar fyrir vinkaup”, sagði starfsmaður i einni útsölunni i viðtali við Visi. Sagði hann, að þess vegna hefðu starfsmenn skrifað bréf og farið fram á, að þeir væru undanþegnir þeirri ábyrgð, sem þeim væri lögð á herðar. Þar sem Áfengisverzlunin heyrir undir fjármálaráðuneytið, hafði blaðiö tal af þvi ráðuneyti. Vegna veikinda ráðuneytisstjór- ans var ekki unnt að afla upp- lýsinga um, hvort umrætt bréf heföi hafnað þar eður ei. —SG

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.