Vísir - 27.11.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 27.11.1972, Blaðsíða 9
Yisir. Mánudagur 27. nóvember 1972 9 Ijúfur draumur í mjúku ekta „krepp", eins og aðeins HÖIE getur framleitt. 100% bómull — straufrítt rúmfataefni í skemmtilegum mynstrum og litum. Varist eftirlíkingar. hoie KREPP FJÁRMÁLIN E ERFIÐ HJÁ FR — Örn Eiðsson endurkjðrinn formaður Frjólsíþróttasambands íslands VíkingurReykja víkurmeistari! orn Eiðsson var endur- kjörinn formaður Frjáls- Til hamingju! Paft var talsvert um það um helgina. að þekkt fólk úr is- lenzku iþróttalifi gekk i hjónabönd. Myndina hér að neðan tók Bjarnleifur af Kristbjörgu Magnúsdóttur, liandknattleikskonu úr KR, og landsliðsmanninum kunna úr Kram, Axel Axels- syni. þegar þau giftu sig á laugardag. Þá gengu i það heilaga llalldóra Sigurðar- dóttir og Viðar Simonarson. landsliðsmaður i FH — einn- ig Guðrún Sverrisdóttir og Brynjólfur Markússon, landsliðsmaður úr ÍR, og Agústa Magnúsdóttir og Gunnar Gunnarsson, fyrir- liði Vikings i knattspyrnu. Vonandi fáum við myndir af öllum brúðlijónunum innan skamms og við óskuni þeim nllum til hnmimfiu iþróttasambands islands á ársþingi þess i gær, en þingið var haldið um helg- ina. Um 30 fuiltrúar mættu þar víðs vegar að af land- inu. Umræður voru miklar og margvíslegar og kom þar í Ijós, að fjárhagur sambandsins var mjög erfiður. Aðrir i stjórn voru kjörnir Svavar Markússon, Sigurður Björnsson. Þorvaldur Jónasson og Páll Ú. Pálsson. sem kom 1 stað Finnbjörns Þorvaldssonar, sem ekki gaf kost á sér til endur- kjörs. Formaður laganefndar var kjörinn Magnús Jakobsson og formaður útbreiðslunefndar Sigurður Helgason. Þeir sitja báðir stjórnaríundi. Starfsemi FRÍ var mikil á árinu - 25. afmælisári sam- bandsins - og kom það vel fram i ársskýrslu stjórnarinnar. Tals- vert var um keppni islenzks frjálsiþróttafólks erlendis — til Hmmic I ‘A nH qIí pnnn i \firS NnríSiir- Noreg. Norður-Sviþjóð og Norður-Finnland og kostaði þetta mikið fé. í reikningum Frjálsiþrótta- sambandsins, sem gjaldkerinn, Svavar Markússon las upp og skýrði. kom i Ijós. að haíli hjá FRÍ á árinu nam rúmlega (>16 þúsund krónum — þannig að skuldir sambandsins i heild eru rúmlega 1200 þúsund krónur. Stendur þetta mjög allri starf- semi FRl fyrir þrifum — þrátt fyrir fórnfúst starf þeirra, sem að þessum málum vinna. En þvi miður er aðsókn að Irjálsiþrótta- mótum litil og mólin þvi litil tekjuöflun jafnvel þó boðið sé upp á þátttöku heimsfrægra i- þróttamanna. A ársþinginu um helgina voru ýmsar laga- og leikreglna- breytingar, lögð fram fjárhags- áætlun fyrir næsta ár og ýmsu helztu mót næsta keppnistimabils ákveðin. Siðar verður skýrt frá helztu tillögum og ályktunum þingsins hér i blaðinu. Héraösdómstóll Handknattleiksráðs Reykjavikur tók á laugar- dag fyrir kæru Vikings gegn IR í Reykjavíkur- mótinu i handknattleik. Niðurstaða dómsins var sú, að Víkingi var dæmdur sigur í leiknum gegn IR og þar með er Víkingur Reykjavikur- meistari i meistaraflokki 1972. Kæra Vikings byggðist á þvi, að i liði ÍR lék leikmaður, Geir Thorsteinsson, sem hafði ekki verið tilskilinn tima i félaginu, þegar hann lék gegn Viking i mólinu. I.eik liðanna lauk með jafntefli en þar sem dómur dómstóls HKRR hefur fallið Viking i hag fær félagið bæði sligin. Vikingur var taplaus i mótinu og er með 13 stig - en Valur var i öðru sæti með 12 stig. Möguleiki er á þvi - þó ósennilegt - að IR láti málið ganga til dómstóls HSt og kann málið þá að dragast eitthvað enn á langinn, þó niðurstaða verði eflaust hin sama. Úrslit eru nú kunn i nokkrum öðrum flokkum á mótinu. 1 meistaraflokki kvenna bar Valur sigur úr býtum - en um tima i gær i leiknum gegn Fram leit alls ekki út fyrir sigur Vals heldur, að þrjú félög yrðu jöfn þar að stigum, Armann, Fram og Valur. 1 hálfleik höfðu Fram- stúlkurnar vel yfir, 5-1, en da'mið snerist hins vegar alveg við i siðari hálfleiknum og þá skoruðu Valsstúlkurnar fimm mörk gegn einu. Leiknum lauk þvi með jafntefli 6-0 og það eina stig.sem Valur hlaut i leiknum, na'gði liðinu til sigurs i mótinu. i 1. flokki karla bar lið Vikings sigur úr býtum - þannig, að Vikingur hefur sigrað bæði i meistara- og 1. flokki og hefur einnig góða möguleika á sigri i 2. flokki karla. i 3. flokki karla voru lið Ármanns og Fram jöfn að stigum og verða að leika sér- stakan úrslitaleik. i héraðsdómi HKRR eru Helgi V. Jónsson. formaður, Karl Benediktsson og Hilmar Ólafs- son, sem tók sæti Sigurðar Jón.s- sonar i þessu máli. Blómstrandi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.