Vísir - 27.11.1972, Page 13

Vísir - 27.11.1972, Page 13
\ isir. Máiiudagur 27. uóvrmber 1!I72 13 Þessi niynd var tekin, þegar Elisabet drottning liélt upp á silfurbrúðkaup sitt og Fiiippusar prins i fyrri viku. Frá vinstri: Karl prins, Edward prins, Elisabet drottning, Filippus prins, Andrew prins og Anna prinsessa. Mestu hátíðahöld frá krýningunni árið 1953 — Lundúnabúar skemmtu sér „konunglega" í tilefni silfurbrúðkaups drottningarinnar Fyrir Elisabetu II. Bretadrottn- ingu og Filippusi drottningar- 111 a n n i var siðasti mánudagur eiiginn vcnjulegur mánudagur beldur áttu þau þá tuttugu og fimm ára bruðkaupsafmæli. Dagurinn byrjaði á fremur rólegan hátt, þau tóku á móti gjöfuni frá fjölskyldu sinni. en þvi næst mátti scgja að þcim væri drckkt i heillaóskaskeytum og bréfum um það leyti sem þau hugðust setjast að inorgunverði Að morgunverði loknum ók hin 46 ára drottning ásam Filippusi og yngsta syni sinum Edward i við- hafnarbil til Westminster Abbey, en þar voru þau gefin saman i hjónaband árið 1947. Drottningin veifaði til mann- fjöldans sem safnazt hafði við fánum prýdda götuna sem liggur frá höllinni. Enn stærri mann- fjöldi hafði safnazt saman við þinghústorgið fyrir athöfnina, og börnin, sem fengið höfðu sérstakt fri úr skólunum, veifuðu brezka fánanum. Tekið var á móti þeim með lúðrablæstri við komuna til West- minster Abbey. Filippus prins, sem nú er fimmtiu og eins ár, gekk við hlið konu sinnar til kirkjunnar, á eftir komu þau Karl prins, erfingi krúnunnar og systir hans Anna prinsessa, og, virtist hún litið áhyggjufull yfir fyrirsögnum Lundúnablaðanna, en þar stóð að hún hefði tekið þátt i refaveiðum, og þar með brotið óskrifuð lög konungsfjölskyldunnar og fengið dýraverndunarfélög upp á móti sér. En að þessu er vikið annars staðar á siðunni. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar i kirkjunni fyrir athöfnina, lögreglumenn með sérþjálfaða hunda til að þefa uppi sprengi- efni fóru um alla kirkjuna. Hin ellefu alda dómkirkja, þar sem brezkir þjóðhöfðingjar hafa verið krýndir og oft gefnir saman siðustu eitt þúsund ár var listi- lega skreytt. Lá dregill eftir henni endilangri i hinum konung- lega bláa lit. Það var augljóst að athöfnin hafði mikil áhrif á drottninguna og minningarnar sem bundnar voru við hana. Og þegar maður hennar og börn tóku undir með kirkjugestum i lok athafnarinnar og sungu brezka þjóðsönginn, þá horfði hún beint fram fyrir sig bersýnilega mjög hrærð. Fjórir nú- og fyrrverandi for- sætisráðherrar Bretlands voru viðstaddir, þeir Edward Heath, Harold Wilson, Alec Douglas- Home og Lord Avon, fyrrum Anthony Eden. Um tuttugu meðlimir brezku konungsfjölskyldunnar voru við- staddir, einnig voru þarna með- limir ýmissa konungsfjölskyldna i Evrópu, þar á meðal Haraldur prins frá Noregi, Konstantin út- lagakonungur Grikklands ásamt konu sinni, önnu Mariu og Jean stórhertogi frá Luxemburg. Að athöfninni lokinni sneri drottningin aftur til Buckingham hallar til stuttrar hvildar áður en hún ók i opnum vagni um götur miðborgarinnar. Þúsundir fólks voru við götur- nar sem ekið var um áleiðis til Guildhall, en þar snæddi drottn- ingin hádegisverð ásamt borgar- stjóra Lundúna og ýmsum fyrir- mönnum rikis og kirkju. Að honum loknum kom að þeirri langþráðu stund er hún fékk sér göngu innan um fólkið fyrir utan. Aðeins einu sinni heíur það komið fyrir að þjóöhöfðingi Bretlands hafi haft svo náin samskipti við almenning, en það var i ferð drottningar til Ástraliu, en þetta var i fyrsta skipti sem þetta gelur gerzt á Bretlandi — JK ANNA PRINSESSA SÖKUÐ UM GRIMMD GAGNVART DÝRUM — en hún gaf blaðamönnum orð í eyra og sakaði þó um tvískinnung Anna Bietapiinsessa liefur þótt einstaklega lagin við að konia sér i blööin upp á siðkastið, og þaö ekki fyrir skemmtilegar fréttir, að minnsta kosti ekki i augum konungsfjölskyldunnar. Það siðasta sem hún hefur af- rekað á þessu sviði er að taka þátt i refaveiðum og brjóta þar með óskrifuð lög konungsfjölskyld- unnar um að taka ekki þátt i slik- um veiðum. Fara þær fram með þeim liætti að reiðmenn á hestum mcö hunda elta uppi refinn þang- að til liann er uppgefinn. Dýra- vcrndunarfélög hafa verið mjög á móti veiðum sem þessum og nú liefur reiði þeirra snúizt gcgn önnu prinsessu fyrir að hún tók þátt i veiðunum. Voru stórar fyrirsagnir og fréttir i ýmsum tóntegundum i brezku blöðunum á mánudaginn. Þótti mörgum nóg um þetta sið- asta athæfi önnu. en hún hefur nú nýverið verið i fréttum fyrir að hafa komizt i kast við lögin með þvi að aka sportbifreið sinni helzt til of hratt. alla vega miðað við hraðatakmarkanir brezkra um- ferðarlaga. Andstæðingar veiðanna voru fljótir að benda á aö bæði móðir önnu. Elisabet drottning og amma hennar Elisabet drottn- ingarmóðir eru verndarar kon- unglegu brezku samtakanna gegn illri meðferð dýra, en þau hafa barizt gegn refaveiðum i fjölda ára. Faðir hennar, Filippus prins er forseti World Wildlife Fund, sem eru stærstu samtök á sviði dýra- verndunar i heiminum. Talsmaður Buckingham hallar sagði þetta vera i fyrsta skipti sem Anna tæki þátt i veiðum sem þessum. Hann sagði ennfremur að veiðarnar hefðu verið góð æf- ing fyrir hana að láta hest sinn stökkva yfir hindranir við ýmsar aðstæður. Anna prinsessa er góð reiðkona og kom mjög til' álita sem keppandi Bretlands i hindr- unarhlaupi hesta á Olympiuleik- unum. Hins vegar sagði formaður samtakanna gegn grimmilegum iþróttum. Itamond Kowlxey. ,,Þessar fréttir munu skelfa heiminn. Það er hneyksli að með- limur konungsfjölskyldunnar taki þátt i dráps iþróttum” Ennfrem- ur sagði hann: ,,Hver sem þátt tekur i veiðum er ábyrgur um grimmilegt athæfi gegn dýrum Anna prinsessa hefur með þessu sett miður heppilegt fordæmi”. Anna svarar fyrir sig Anna preinsessa var heiðurs- gestur i kvöldverðarboði brezkra blaðamanna á miðvikudaginn. Þar svaraði hún ýmsum spurn- ingum blaðamannanna og sagði meðal annars: ,,Þið eruð nú orðnir býsna snöggir upp á lagið”. ,,En ég myndi aldrei láta mig dreymaumað gagnrýna ykkur þar sem þið eruð aðeins að vinna ykkar störf. Kitstjórarnir myndu hreinlega drepa ykkur ef þið skil- ið ekki frétt eða mynd á sóma- samlegan hátt.” Anna sakaði pressuna á kurteislegan hátt, að hún fylgdi alls ekki þvi sem hún boðaði. Hún sagði: ,,Þegar ég gekk i skóla eða ef ég tek þátt I keppni, hamast blöðin við að benda á hve áriðandi það sé að ég sé tekin eins og ein af fjöldanum. En einhvern veginn er það svo að þeim geng- ur illa að framfylgja eigin ráð- um.” Hún benti ennfremur á i gam- ansömum tón, að það hefði verið kærkomin tilbreyting frá ofbeldi og kynferðismálum að nafn hennar kom á forsiðurnar. — Og hún kom á forsiðurnar daginn eftir. - - JR Tegund: 1430 Meö rennilás og loðíoðruð, rauðbrúnt rúskinn og sterklegur botn bæö 30 cm. Verð aöeins: 2995- kr. Tegund: 3802 Með rennilás og svampfóðruð, vinrautt mjúkt skinn og hrágúmmisólar hæð 39 cm. Verð: 3987- kr. PANZL Austurrísku kuldaskórnir nýkomnir Tegund: 3811 Með rennilás og injög góðu loðfóðri (Santos) dökkbrúnt, m júkt skinn og hrágúmmisólar liæð 39 cm. Verð: 4434- kr. Tegund: 4012 lleimaðir og loðfóðraðir ú r m i 11 i b r ú n u rúskinni og sterkir hrufóttir sólar hæð 13 cm. Verð: 2329- kr. Póstsendum samdœgurs DOMUS MEDICA Egilsgötu 3 Pósthólf 5050 Sími 18519

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.