Vísir - 15.12.1972, Síða 7

Vísir - 15.12.1972, Síða 7
Visir. Föstudagur 15. desember 1972 7 reynd, að ástandið i þessum málum hefur stórkostlega versnað undir núverandi stjórn. Ein orsök til þess er ef til vill sá stutti vinnutimi, sem fékkst fram s.l. haust. Það er t.d. mjög áber- andi, að versti drykkjutiminn hefur færzt fram frá laugardags- kvöldi yfir á föstudagskvöld, og nú geta menn drukkið tvo daga i röð án þess að eiga vinnudag yfir höfðinu. Með þessu er ég ekki að mæla þvi i gegn, að stytting vinnutimans sé mikilvæg kjara- bót. Það gæti einmitt verið mjög uppbyggjandi að fá stór helgarfri. En gallinn hefur bara verið sá núna, að þjóðin hefur tæpast verið undir þetta búin. Það hefur um leið algerlega skort á viðleitni til að hjálpa fólki eða ráðleggja að verja auknum fritima skynsam- lega. Fyrir urmul fólks þýðir lengdur fritimi, að það er ekkert að gera nema að drekka. Saman við þetta fer, að verkalýðs- hreyfingin hefur um áratugi van- rækt alla félags- og menningar- starfsemi. Fyrr á árum voru verkalýðsfélög gróðurreitur fræðslu, leiklistar og bindindis- starfsemi. Nú eru þau einvörð- ungu kjarabaráttufélög, sem skenkja þvi ei minnsta þanka, hvað sé þjóðfélagi eða einstakl- ingi til góðs. Það er bara að ota sinum tota. Fáranleg afstaða þeirra kom hvað bezt i ljós á siðasta Alþýðusambandsþingi, þegar samþykkt var tillaga um að stöðva vinveitingar i opin- berum veizlum og helmingur þingheims, sem það samþykkti, var þegar orðinn vel slompaður eftir veitingar i opinberri veizlu. Þar við bætist nú sivaxandi spill- ing i verkalýðsfélögunum, þar sem þau eru orðin verkfæri hálaunamanna til að tryggja sinn hag gegn láglaunafólkinu og tryggja, að það geti nokkru sinni fengið að risa að launum hlut- fallslega við hálaunafólkið. Vitanlega er brennivinið ekki pólitiskt, en hitt er jafn vist, að engri stjórn og engum ráðherra sæmir að humma þau fram af sér með ummælum um, að þau fari einfaldlega eftir þvi, hvaða ástand riki i þjóðfél. á hverjum timá, þar geti hið opinb- engu umbreytt. Hið rétta er, að rikis- valdið getur haft mikil áhrif til að lina áfengisbölið. Þaö er eitt mikilvægasta félagslega úr- lausnarefnið i dag að taka þau mál föstum tökum. Hér skortir allt til viðunandi meðferðar og lækninga gegn áfengissýki. Hér hefur allt lika verið látið drasla i afbrotamálum, sem spretta af áfengisvandamálinu. Ollu hefur verið hrært saman, unglingum og forhertum drykkjumönnum og afbrotamönnum. Ekkert er til, sem heitir lækning og eftirlitmeð eiturlyfjasjúklingum, sem smita út frá sér eins og sýklar. Það er margt ljótt i félags- og heil- brigðismálum okkar, en hvergi er ástandið lakara en á þessu sviði. Það hljómar þvi furðulegast af öllu, ef stjórn, sem kallar sig vinstri stjórn, ætlar i engu að sinna þessu, þetta sé mál, sem komi henni ekkert við, drykkju- skapurinn verði bara að fara eftir þvi, sem gerist i þjóðfélaginu hverju sinni. Þetta yrði, ef svo færi, hin stærsta andlega gengislækkun, sem hægt væri að hugsa sér, ef rikisvaldið gæfist nú algerlega upp — kannski vegna þess að fjár er vant. En svo er það aftur hin gengis- lækkunin, sú fjármunalega. Það getur verið erfitt að horfast i augu við sannleikann. Það getur þótt ámælisvert, ef núverandi stjórn, sem hefur alla tið svarið af sér gengislækkun krónunnar, fellir samt gengið. En hvað er það þó á móti þeim fádæmum, þvi há- marki hræsni og heigulsháttar, ef hún nú hleypur af verðinum, búin að sóa og sólunda öllu, en neitar svo að bera ábyrgð gerða sinna. Ef vinstri stjórnin liðaðist i sundur nú, af þvi að hún þorir ekki að lækka gengið, yrði það með litilmótlegustust atburðum sögunnar. Ég hef heldur ekki trú á þvi. Hin raunverulega vinstri stefna er að snúa við á þessari ólukkubraut, vinna upp skuldir og áföll, koma fjárh. landsins á traustan grundvöll — til þess að geta svo á eftir tekizt á við vandamálin og framkvæmt hin raunverulegu vinstri-stefnu hug- sjónamál um margvislegar félagslegar umbætur. Þorsteinn Thorarensen cTWenningamiál Elísabet Gunnarsdóttir skrifar um myndlist: í geimi Ijóss þar sem fegurð Þingvalla og ófreskjum vélvæðingar og sölu- mennsku er teflt saman, eða „Framliðum” þjóðfrelsis- hreyfingar Viet Nam. Sú mynd er ástarljóð, þó að vélbyssur séu þar i forgrunni og svipur kvennanna • einkennist fremur af viljafestu hins þaulreynda hermanns en rómantiskri angurværð. Eins og venjulega á þessum tima árs hefur verií! töluvert um mynd- listarsýningar að und- anförnu. Auðvitað eru þessar sýningar mis- jafnar, sumar bera greinilega merki jóla- gjafasölu, en innan um eru ágætar sýningar, eins og „Vinnan”, sem Listasafn ASÍ kom upp fyrir skömmu. Þar var tekið fyrir ákveðið efni: 1(5 listamenn fjölluðu um manninn við starf sitt, og þó sýningin væri ekki stór i sniðum, var hún vel saman valin. Þegar Listasafn alþýðu opnar sýningu, sem hefur vinnu manns- ins að inntaki, vaknar óneitan- lega sú spurning, hversu stór hluti „vinnandi fólks” i landinu sækir myndlistarsýningar. Hægt er að fá tölur um fjölda sýninga- gesta safnanna og sýningasal- anna i bænum, en hvaða fólk er það, sem kemur? Hvað starfar það, hvað er það gamalt, eru það karlar jafnt og konur? Fjölmennir verkafólk á sýningar alþýðulistasafnsins?. Ég hef það á tilfinningunni, að aðeins tiltölulega litill hópur fólks sæki sýningar hér reglulega, og breyta glæsilegar tölur frá Lista- safni Islands o.fl. engu um það. Það er enginn vandi að fá tölu ár- legra sýningargesta upp i tugi þúsunda með þvi að smala nem- endum úr framhaldsskólum borgarinnar inn á safnið, svo sem hundrað i einu undir leiðsögn eins til tveggja kennara, láta þá hlaupa rösklega gegn um salar- kynnin og segja siðan, að þetta fólk hafi skoðað einhverja sýn- ingu og jafnvel, að þvi hafi verið veitt innsýn i islenzka myndlist. Þar sem listasöfn hér á landi eru svo fá og frumstæð hefur áhuginn beinzt að þvi að byggja almennilega yfir þau og að auka fjölda sýningargripanna. Minna hefur verið hugsað um að fá fólk til að koma i þau söfn, sem til eru og hvort söfn séu yfirleitt heppi- leg aðferð til að glæða áhuga fólks á myndlist. Sums staðar, þar sem menn hafa verið afkastameiri við byggingu listasafna en hér, er sú hugmynd farin að skjóta upp koll- inum, hvort ekki þurfi að flytja listina úr söfnum, til þess hún rykfalli þar ekki og gleymist. Þessi spurning um listmiðlun verður enn áleitnari, eftir aö maður hefur villzt úr hinni iðandi kös jólagleðikaupenda inn i ör- æfakyrrð sýningarsalanna. Þar er þó að finna umtalsverðar sýningar. Ljós, hreyfing, litur 1 Norræna húsinu eru Margrét Jónsdóttir og Stephan Fairbain með 34 op- og hreyfimyndir. Flestar myndanna hafa þau unnið i samsiningu, og það eitt út af fyrir sig er sjaldgæft hér á landi. Þar að auki er þetta i fyrsta skipti hér, sem komið er upp heilli sýn- ingu á op- og hreyfilist, þó slikar myndir hafi sézt hér öðru hvoru undanfarin ár. Þau Margrét og Stephan kalla verk sin „rannsóknir á eðli ljóss- ins og samspili lita og formbygg- ingar”. Nokkrar myndanna eru hrein optik — þar er hlið við hlið raðað saman andstæðum litum svo augað getur ekki skynjað þá samtimis hvern fyrir sig og myndflöturinn virðist litra ogiða. t nýrri myndunum bætisthreyfing i spilið. Ýmist hreyfist myndin sjálf eða áhorfandanum virðist sem myndin hreyfist og taki breytingum. Þetta gera þau með Ingiberg Magnússon — innlegg i pólitiska baráttu. þvi að sistrika allan myndflötinn með mismunandi litum, en strengja siðan þræði með stuttu millibili rétt framan við grunn- flötinn. Um leið og áhorfandinn gengur framhjá, finnst honum að myndin sjálf hreyfisl, þvi að lin urnar og þræðirnir renna saman og skiljast að á vixl. Þar með hættir myndin að vera ein og óumbreytanleg, þvi að i hvert skipti, sem ljósið breytist eða áhorfandinn færir sig um set, verður til ný mynd. Þær hugmyndir', sem þau Mar- grét og Stephen vinna að hafa verið við lýði i myndlistinni siðan upp úr fyrri heimsstyrjöldinni. Hér eins og i svo mörgu öðru má telja “Frakkann Marchel Duchamp upphafsmanninn, en upp úr 1920 er hann kominn með myndir, sem byggjast á sömu að- ferðum og hugmyndum og við sjáum i Norræna húsinu i dag. Margir hafa siðan orðiö til að taka upp þráðinn, þar sem Duchamp hætti, og mætti þar nefna Venezuelamennina Jesus Raphael Soto og Carlos Cruz- Diez, en sterkra áhrifa frá þeim litil tengsl við verk annarra op- listamanna.” Bæði hafa þau Margrét og Stephen stundað myndlistarnám i Bretlandi, og hvað svo sem hægt er að segja um brezka listaskóla, þá geta þessir skólar ekki látið eins og menn á borð við Duchamp, Albers, Soto o.fl. hafi aldrei verið til, enda hafa þeir greinilega ekki gert það. Svona yfirlýsingar eru ónauðsynlegar. Sýningin stendur fullkomlega fyrir sinu og þarf þeirra ekki með. Kúgun og kaupskapur I Norræna húsinu sitja litir og form i fyrirrúmi, en i Galleri Súm kveður við annan tón. Þar heldur nú Ingiberg Magnússon sina fyrstu sýningu, sem hann kallar „Gleðileik i 2 þáttum”. Fyrri þátturinn er fólginn i þvi, að sýningargestir verða að beygja höfuð sin fyrir Maó formanni og gangast þannig undir hugsun hans, aðeins með þvi skilyrði fá þeir að sjá seinni þáttinn. Þann þátt, málverk, teikningar og Myndirscm iöa og titra: eitt af verkum Margrétar og Stephens á sýn- ingu þeirra i Norræna húsinu. gætir einmitt hjá Margrétu og Stephen. t sýningarskrá gera þau Margrét og Stephen nokkra grein fyrir hugmyndum sinum og markmiðum. Það er þvi miður allt of sjaldgæft, að myndlistar- menn sýni svona viðleitni við að hjálpa áhorfandanum til að skynja betur, hvert þeir eru að fara með verkum sinum. Þetta manifest er þvi þakkarvert, en mér finnst það heldur hlálegt samt sem áður að koma með þá yfirlýsingu um eigin frumleik, að það sé „auðsýnilega mjög auðvelt að kalla verk okkar hreyfilist, en i raun og veru höfum við haft mjög grafikmyndir, ber þvi að lita á frá pólitisku, en ekki aðeins fagur- fræðilegu sjónarmiði. Verkin eru innlegg i pólitiska baráttu, og þar er tekin skýlaus afstaða. Ingiberg deilir á „velferðarþjóðfélagið”, þar sem allt er falt fyrir peninga, og ekki um nema tvennt að velja: að falla fyrir freistingum aug- lýsinganna eða skotum vélbyss- unnar. Ingiberg tekst yfirleitt að flytja boðskapinn án þess að gerast predikari. Myndir hans lýsa ekki aðeins andúð á kúgun og kaup- skap, heldur lika ást á fólki og óspilltri náttúru landsins. Þetta sést vel f myndum eins og „Úti”, Þær 18 myndir, sem eru á sýn- ingunni, eru frá 5 ára timabili og virðistsem Ingiberg hafi rétt með herkjum náð að fylla þá tölu, svo ekki geta afköstin verið mikil. Annars hefði mynd eins og „Samtíðar krosslesting” verið skilin eftir heima, enda er hún ekkert annað en vanhugsað hrákasmið. Einnig spillir upphengingin mikið fyrir sýning- unni, þvi hún setur heldur nötur- legan og jafnvel kæruleysislegan blæ á sýninguna, sem varla hefur verið ætlunin. NYTT LJÓÐSKÁLD Hjörtur Pálsson NÝ LJÓÐABÓK Dynfara vísur Hjörtur Pálsson er vel þekktur og vinsæll út- varpsmaður og upp- lesari. Hann hefur lagt stund á Ijóðagerð og ritstörf frá því á æsku- árum sínum og einnig fengizt nokkuð við þýðingar. Dynfaravísur er fyrsta bók Hjartar. Setberg

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.