Vísir - 23.12.1972, Blaðsíða 11

Vísir - 23.12.1972, Blaðsíða 11
* isn . i^augaruagur 23. desember 1972 Visir. Laugardagur 23. desember 1972 11 Jólatré, englar, jólaskraut, Ijósog gómsætur matur er víst vort helzta jólatákn. Fyrir mörgum er þó stemningin um jólin og svo kirkju- sóknin hápunktur þessarar hátiðar. Þó að skiptar skoðanir séu um það, hvers vegna jólin eru haldin, þá byggjum við þau víst flest upp á því sama, og við deilum ekkert um það, hvort jólin eru upprunnin frá heið- ingjum eða hvort þau eru fæðingar- dagur Krists. Eftirfarandi sögur og tilvitnanir eru fengnar úr mörgum bókum, sem hafa að geyma ýmsar skemmtilegar sagnir um jólin. Kannski erekki allt saman alveg rétt, en jaetta eru að minnsta kosti ekki leiðinlegar upp- lýsingar. Jólin eru talin hafa verið haldin strax á annarri öld, eða að minnsta kosti á þeirri f jórðu. Þá tal- aði páfinn og brýndi um fyrir al- menningi að blanda ekki saman hinu jarðneska og himneska og átti þá við, að jólin mætti ekki gera að neinni gleðihátíð, þar sem skemmt- anir yrðu haldnar eða annað slíkt. Danski þjóðsagnasafnarinn H.F. Feilberg telur jólin upprunalega hafa verið hátið sál- arinnar, einnig hátið fyrir þá dauðu, og nefn- ir mörg dæmi um það, að menn hafi fyrirhitt látna ættingja sina á jólanótt. Enginn veit hvaðan orðið jól er upprunnið eða hvers vegna hátiöin er kölluð þessu nafni. En nafnið helzt samt sem áður, og árið 492 var farið að syngja svokallaöar ljósmessur i kirkjum. Um leið minntu messurnar á ljós heimsins, Jesús. A miðöldum var siður að kveikja á stóru kerti, sem brann upp á 12 dögum. t Noregi var haft stórt kerti i stofunni, sem hafði það l'ram yfir önnur kerti i stofunni að vera kallað jólaljósið. Það var oft yfir einn metri á hæð og átti að brenna alla jólanótt- ina. t Sviþjóð var kveikt á kertum, einu fyrir hvern meðlim fjölskyldunnar og þjónustu- l'ólkið. Einnig tiðkaðist það að steypa nokk- urra arma kerti, og var þá einn armur fyrir hvern meðlim Ijölskyldunnar. Svört Ijós eða svört kerti tiðkuðust einnig, en það voru ljós hinna dauðu, sem varð þó að slökkva fljótt á aftur. Marteinn Lúther hefur stundum hlotið heiðurinn al' þvi að hafa fyrstur skreytt furu- tré eða jólatré. Það gerði hann með þvi að setja á það kerti og skreyta það, en hugmynd sú er i raun og veru miklu eldri. Egyptar og Rómverjar þóknuðust guðum sinum fyrr á öldum með þvi að skreyta pálmatré eða önn- ur i húsum sinum með ávöxtum eða leikföng- um. I dag eru notaðir skrautlegir og fallegir dúkar á jólaborðið, en i gamla daga voru dúkar aðeins notaðir við aðalmáltiðina. Hinir fátæku urðu að láta sér nægja lak. Jólamál- tiðin varð að vera stærri og meiri en venju- legar máltiðir á heimilinu og borðið var hlað ið ýmiss konar skrautlegu góðgæti eins og gert er enn þann dag i dag. 1 Sviþjóð og á nokkrum stöðum i Noregi tiðkast það ennþá að hafa stóra hæð áJ miðju matarborðinu undir oúknum. Sá si&ur er kominn af þvi, að áður fyrr var lagt korn frá siðustu haustuppskeru og brauð á borðið. Sið- an var dúkurinn lagður á. Alveg nauðsynlegt þykir, að hæðin sé á borðinu undir dúknum öll jólin. A nokkrum stöðum tiðkaðist það að hylja matinn á borðinu með dúk, sem var svo fjar- lægður, þegar gestir komu. Enginn ,má bera jólin út frá heimilinu, og gesturinn' varð að muna að óska og biðja um jólafrið i stofunni, áður en hann gekk fram að fremsta bjálkan- um i loftinu. Okkur finnst það nokkuö skritlnn siöur, aö þegar grautur var borinn inn á uðfangadags- kvöld, rjúkandi heitur, þykkur grautur, þá var siður að hleypa af einu riffilskoti. Þann graut má kalla „skotgraut,” en svo er til annar, sem kalla mætti „rimnagrautinn.” Hann er kallaður það, vegna þess að eftir að búið var að bera fram grautinn, mátti enginn fá aö bragða á honum, fyrr er búið var að fara með rimu um jólagraut og jólamat. Hugmyndin er liklegast frá Síáni, en hana mætti þó bera saman við sið, sem þekktur var i Danmörku. Þegar borðaðar voru grisa- tær, fékk hver og einn „snafs' fyrir bita af tá, sem borðaður var. Margar hverjar sögusagnir ákaflega rómantiskar og falle vist, að þær falla börnunum vel um jólin eru ar, en eitt er Ein er sú, að þegar hirðarnir við Betlehem höfðu heyrt um fæðingu Jesú, lögðu þeir strax af stað til hans með gjafir. Aftast gekk litil stúfka, sem grét af sorg yfir þvi, að hún gat ekki gefiö neina gjöf. En þá kom engill. sem breytti strax tár- unum i fallegar. hvitar rósir, og litla stúlkan flýtti sér strax að tina þær upp og flytja þær til jötunnar. JOLASIÐIR Á ÍSLANDI FYRR OG NÚ „Jólasveinarnir koma utan af hafi á aöfangadag- inn, og stendur þvi ævin- lega vindur af landi á að- fangadag. Þeir eru stórir og ljótir og luralegir. Sumir álita þá klofna upp i háls og að fæturnir séu kringlóttir, en aðrir scgja, að þeir séu tómur búkur niöur i gegn. Þeir eru i röndóttum fötum með stóra gráa húfu á höfði og hafa með sér gráan poka. Þeir lifa mest á þvi, sem talað er Ijótt um jóla- leytið, en annars benda nöfn þeirra á það, sem þeir girnast mest og hvernig þeir haga sér. Svo hættir þeim við að fara i jólamat- inn fólksins, einkum barn- anna, og cta hann eða spilla honum. Þeir eru mjög meinlausir og gera engum illt, nema helzt að þeir hrekki löt og óþæg börn.” Enginn má halda, að fyrrnefnd lýsing sé hug- mynd einhvers nútima- mannsins um þessa kátu karla. Þvert á móti, þetta er hugmynd, sem forfeður okkar mynduðu sér um jólasveinana. Svo sannar- lega hefur þessi hugmynd breytzt nú. Núna eru jóla- sveinarnir kátir og huggu- legir á að lita og þeir gera engum mein, heldur koma þeir sifellt færandi hendi og skapa gleði og kátinu, hvar sem þeir tylla niður fæti. Og það eru ekki aðeins jólasveinarnir, sem voru öðru visi hér fyrr á öldum. Jólasiðirnir voru öðru visi, og þegar farið er að grafast fyrir um það i gömlum skruddum og bókum, má komast að ýmsu skemmti- legu um jólahaldið hér áður fyrr. Þó að jólaundirbúningur hafi þótt mikill og ærlegur áður þá er það ekki likt þvi sem nú er. Allt var reyndar þvegið og sópað hátt og lágt. öll nærföt voru þvegin og „stundum” lika rúmföt- in. Jafnvel mestu sóðar gerðu sig hreina og þokka- lega. Þá tiðkaðist það lika viða að fara i kaupstaðinn fyrir jólin, og sumir náðu sér þá i hressingu á jóla- kútinn, eins og kallað var. Einstaka geröu sér jafnvel mikla og erfiða ferð á hendur, eingöngu til þess að ná i hressinguna. Það var lika gömul venja að slátra kind fyrir jólin, og sú var kölluð jólaærin. Þá var hægt að hafa alveg nýtt kjöt um jólin. Og það er ekki alveg vist, að nútima- manninum mundi litast á blikuna, ef borinn væri fram jólamatur nú eins og þá gerðist bezt. Svinakjöt, hamborgarhryggur, rjúp- ur, is, ávextir, sósur, græn- meti og fleira góðgæti er borið á borð á islenzku heimilunum núna, og ekki er litið við öðru. En hvað um magál, sperðil, lauf- kökur, kaffi og lummur, eða þá hnausþykkan grjónagraut með sirópi eða rúsinum og svo hangi- kjöt? Jú, sæmilegasti mat- ur, en ekki jólafæða á okk- ar mælikvarða. En i dag eru jólin aðal- lega hátið barnanna, og það voru þau lika fyrr. 1 fyrsta lagi fengu þau al- deilis nóg að borða, og svo var það einnig gamall og góður siður að gefa þeim kerti. Sums staðar fékk jafnvel allt heimilisfólk kerti, en það þótti stór gjöf, á meðan grútarkolur og lýsislampar voru aðal ljós- gjafarnir. Nú hendast foreldrar og börn um allan bæ til þess að fá hentugan jólakjól eða jólaklæðnað á barnið, eða þá leitað er til saumakon- unnar og fenginn finn silki- pifukjóll. Áður fyrr varð að gefa barninu einhverja nýja flik á jólunum, þvi annars var hætta á pvi að það „færi i jólaköttinn”. Jólakötturinn var einhvers konar óvættur, sem tók alla þá, sem fengu engin ný föt. Kötturinn var þá vis til þess að éta viðkomandi eða gera annað spellvirki. Það var þó algengt, að flestir ef ekki allir á bænum fengju nýja skó fyrir jólin, það voru þá nefndir jólaskór. Jólanóttin var allra helg- asta stund ársins i augum almennings, og reyndar er hún það enn þann dag i dag. Þá var siður að kveikja ljós um alian bæinn svo að hvergi væri skuggi. Þegar siðan búið var að sópa allan bæinn, og húsfreyjan gekk um hann og i kringum hann, sagði hún: „Komi þeir, sem koma vilja, veri þeir, sem vera vilja, fari þeir, sem fara vilja, mér og minum að meinalausu.” Sumir létu ljósin jafnvel lifa alla nóttina. Ekkert mátti leika sér á jólanóttina, hvorki spila né dansa. Ekki mátti heldur rifast eða blóta, og til voru margar sögur um það, að þá væri sjálfum kölska að mæta. Sögur voru lika til um álfa og huldufólk i sam- bandi við jólanóttina. En sé vikið aðeins útfyr- ir landsteinana og jólasið- ina hér uppi á Islandi, þá hefur Marteinn Lúther oft fengið heiðurinn af þvi að hafa fyrstur skreytt jóla- tré. Það gerði hann með þvi að setja ljós á það og skreyta, en hugmynd þessi er i raun og veru miklu eldri. Egyptar og Róm- verjar þóknuðust guðunum fyrr á öldum með þvi að skreyta pálmatré eða önn- ur i húsum sinum með ávöxtum eða leikföngum. t Sviþjóð og á nokkrum stöðum i Noregi tiökast það ennþá að hafa stóra hæð á miðju matarborðinu undir dúknum. Sá siður er kom- inn frá þvi, að áður fyrr var lagt korn frá siðustu haust- uppskeru og brauð á borð- ið. Siðan var dúkurinn lagður á. Alveg nauðsyn- legt þykir, að hæðin sé á borðinu öll iólin. —EA. Kóngakerti. Það eru vist heldur ekki mörg ár siðan, að fátæk ekkja með mörg börn reyndi að skreyta jólatréð sitt eftir beztu getu og efn- um. En á eítir komu kóngulær og spunnu hinn finasta silkiþráð i bezta munstri yfir jólatréð. Að siðustu birtist Jesúbarnið og lagði vel- þóknun sina yfir tréð. Jerikórósin er einnig ein sögusögnin. Sagt var, að hún hefði sprottið undan fótspori Mariu meyjar á flóttanum til Egyptalands. Á jólanótt ber að setja hana i vatn. Er þá sagt, að uppskeran verði góð. Jólastjarnan svokallaða, blómið, sem er vel þekkt, er upprunnið frá Mexikó. Sagt er, að litil bóndastúlka, sem ekki átti peninga fyrir gjöf handa Jesúbarninu, þegar hún fór til kirkju, hafi séð engil. Hann benti henni á að tina óskrautleg há blóm, sem stóðu við veginn, og þegar stúlkan teygði sig eftir þeim, blómstruðu allt i einu stór, rauð blóm á stilkunum. Siðan hefur blómið verið kallað jólastjarnan. En skyldu ekki sögur, sem eru öllu raun- verulegri frá jólunum, hafa meiri áhrif á okkur nú til dags. Sagnir um hermenn, sem leggja frá sér vopnin um jólin stutta stund og syngja saman jólasálma i snjáðum og óhreinum hermannabúningum. Á þessum siðustu ófriðartimum heyrist einnig getið um vopnahlé og frið örstutta stund i hinum óró- legrihornum heims okkar. Þvi miður aðeins friður, sem ekki nær að breiðast lengra út. t sögn frá Siberiu segir frá félögum, sem á aðfangadagskvöld fyrir aldamótin leituðu að bóndabæ og spurðust fyrir um veitingahús, þar sem hægt væri að fá gistingu. Þó aö fé- lagarnir væru alls tiu og næstum þvi jafn margir hestar, var þeim boðið inn i bæinn. Þar var þeim veittúr gómsætur matur. I einu horni stóð borð, þar sem enginn sat. En i hvert sinn, sem nýr réttur var á borð borinn, tók elzta dóttir bóndans á bænum beztu stykkin og bar þau að litla borðinu i horninu. Þar sem gestgjafar og gestirnir áttu i erfið- leikum með að skilja mál hvers annars, gekk erfiðlega að fá svar við þvi, hvers vegna boröið stæði þarna. En svar kom um siðir. Maturinn var ekki þarna til minningar um ástkæran ættingja, heldur gjöf til allra þeirra, „sem maður á ekki að sjá.” Litlu seinna uppgötvaðist, að það voru flóttamenn frá siberisku fangabúðunum, sem ekki mátti sjá. A leið sinni á næturflóttanum fundu þeir upplýsta glugga. Gluggana þurfti aðeins að opna, þá beið þar brauð og vin, en enginn haföi séð flóttamennina, og gat þvi enginn neitt um þá sagt. Það er svo annað mál, að trú fólksins á bæjunum, að Guð hefði opnað fangelsið, lét það bera matinn i gluggana. Danski rithöfundurinn S.A. Klubien, sem lézt fyrir nokkrum árum siðan, sagði frá ferð með lest i gegnum Siberiu um jólanótt fyrir fyrri heimsstyrjöldina. A auðri járnbrautar- stöð stöðvaði lestin og þar átti hún að dvelja um nóttina. Ferðalangurinn, sem var S.A. Klubien, var einn og i ókunnu landi og varð nú að sjá um sig sjálfur og verða sér úti um svefnstað. Á veitingahúsi i þorpinu tók ung stúlka við pöntun hans um mat, en eiginlega átti staðurinn að vera lokaður. Þó gat hann fengið aö borða af jólamat fjölskyldunnar: Hrisgrjónagraut og gæsasteik: Kráareigand- inn var þá eftir allt Dani, sem fyrir 40 árum hafði orðið að dvelja i bænum vegna snjó- þyngsla, hafði gift sig og sett á stofn veitinga- hús. Þetta varð löng jólanótt, en sönnun þess, að enn gerast undur um jólanætur! Sjómennirnir geta einnig lifaö jól noröurs- ins, jafnvel þótt þeir séu staddir i ókunnum höfnum eöa höfum fjarri heimalandinu, sér- staklega ef meö i förinni var feitur gris, á dögunum fyrir frysti- og kæliskápaöld. 1 upp- hafi var grisinn i þessu tilfelli hafður með til leiks og gamans. Sjómennirnir smuröu hann allan upp úr feiti, og siðan reyndu þeir aö fanga hann, — sem ekki var létt — og leiöa hann fyrir slátrarann. I dag þykir það hins vegar ekkert furðulegt, aö kokkurinn á suö- urpólnum geti boöið upp á nýtt flesk úr ný- slátruðum gris. Það er kannski einna helzt á jólunum, sem gamlar minningar vakna um liðna daga og liðin jól. En er það ekki annars skritið, að um jólin skuli allt haldast óbreytt. Að minnsta kosti að mestu. Uppi á lofti eða niðri i kjall- ara er geymdur gamli jólatrésfóturinn, sem hefur verið undir jólatrénu i mörg, mörg ár. Jólatrésstjarnan, sem er á toppnum, er á sin- um sama stað ár eftir ár. Og það er sama sagan með jólaskrautið. Allt er geymt og fæstu er hent. Og er það ekki einmitt fast- heldnin i okkur mannfólkinu, siðir sem við höfum átt að venjast um mörg ár, sem gera það að verkum. Verum nýjungagjörn og „móðins” alla virka daga ársins, en um jólin getum við al- veg leyft okkur aö vera gamaldags. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.