Vísir


Vísir - 12.01.1973, Qupperneq 1

Vísir - 12.01.1973, Qupperneq 1
'Á 63. árg. — Föstudagur 12. ianúar 1973. — 10. tbl. Línuspillirinn fékk hirtingu Veiöarfæraspillirinn Ross Renown hefur veriö hirtur. Þessi brezki togari varð al- ræmdur i haust, er hann eyði- lagði veiðarfæri fyrir islenzkum báti. Varðskip skar i morgun á tog- vira Ross Renown, sem var 29 sjómiiur innan landhelgismark- anna út af Langanesi. Þetta gerðist upp úr kiukkan tiu i morgun. Varðskipið hafði aðvarað Bretann margsinnis, en það bar ekki árangur. 23. nóvember eyðilagði togari þessi linu mb. Esjars RE-400. — HH. 13 rúður brotnar , ' 7... í Þinghólsskóla — tjón upp ó fugi þúsunda og skólinn óstarfhœfur í morgun „Þetta var óhugnanleg aðkoma"/ sagði skólastjóri Þinghólsskóla, Guðmundur Hansen, í morgun þegar Vísi bar þar að, en í nótt voru brotnar hvorki meira né minna en 13 rúður i vesturhlið skólans. „Við vissum ekkert af þessú fyrr en við komum i skólann klukkan 8 i morgun og komum þá að rúðunum svona illa útleiknum. Við urðum að gefa nemendum, um 230 að tölu, fri, þvi að hér á eftir að hreinsa allt.” Guðmundur sagðist ekki hafa minnstu hugmynd um hver eða hverjir hefðu gert þetta, en málið er nú i rannsókn. Ekki vissi hanft heldur til að nokkur hefði orðið var við brothljóðin, enda var hvasst, og rokið hefur getað dreg- ið úr hávaðanum. Griðarlega stórir hnullungar lágu á gólfi þeirra kennslu- stofa, sem urðu fyrir barðinu á árásarmönnum, og gizkaði Guð- mundur á að tjónið næmi túgum þúsunda, liklega um 50-100 þús- und kr. Ekki virtust aðrar skemmdir hafa orðið á kennslustofunum, en þrjár stofur af 8 i vesturhliðinni eru þannig útleiknar sem fyrr segir, ásamt skrifstofu skóla- stjóra og rúðum i anddyri. Þó virðist eitthvaö hafa brotnað af loftræstingarkerfi i einni stofunni, sem er við gluggann. Fleiri grjótum virðist hafa ver- ið hent inn um brotnar rúöurnar, eftir að fyrsta grjótinu var hent, að minnsta kosti lágu um fimm hnullungar á gólfinu i einni stof- unni. Aðspurður hvort einhvern tima hefði veriö unnið spellvirki á skólanum áður, svaraði Guð- mundur þvi neitandi, en hann sagði aö á milli jóla og nýárs hefðu verið brotnar 9 rúður i austurhlið Kársnesskóla. Nú i fyrradag var svo brotin þar aftur ein rúða, og fannst sá er það gerði. Þeir er sáu fyrir rúðu- brotunum niu hafa hinsvegar ekki komið i leitirnar. Guðmundur tók það fram, að við vesturhlið skólans, þar sem rúðurnar voru brotnar, væri gangstétt þar sem fólk yfirleitt gengi um. Hann tók það einnig fram, að skólinn væri upplýstur á öðrum hliðum skólans en vestur- hliðinni. Ekki hafði verið tekin ákvörðun um það hvort kennt verður eftir hádegi. Enginn húsvörður dvelur i skólanum um nætur. —EA Þeir voru ekkert smáir hnuliungarnir sem kastað var I 13 rúður Þinghólsskóla i nótt. Það sést lika á myndinni, enda varð tjón gifurlegt. Þau eiga ekki að vera I skólanum fyrr en eftir hádegi þessi, en þau vonuöust eftir frii. Ekki sögðust þau hafa hugmynd um hverjir eða hver vann spellvirkið, en sögðust vel geta hugsað sér að komast að þvi. ENGAR TÖLUR FRÁ ÍSLANDI UM ÁHORF- ENDUR — Sjú íþróttir í opnu MARKAKÓNGURINN MULLER STEFNIR í MET PELE! - si« °Pnu „Orðinn leiður ó Palme,"... ....sagði Hugh Scott, leiðtogi þingflokks republikana i öldungadeildinni i gær. „Palme sér ekkert rangt við launmorö og slátranir Noröur- Vietnama, en vill sefa róttæk- ustu fyigismenn sina með „Anti- Bandarikjastefnu” sinni”, sagði Scott. — Sjá bls. 5. Verzlað samkvœmt konungslögum Þá eru útsölurnar hafnar rétt einu sinni. Þær eru haldnar „i skugga” gamalla konungslaga frá tið Kristjáns 9„ sem leyfði að þær skyldu haldnar tvisvar á ári, og eftir þvi förum við enn þann dag i dag, cnda þótt sumir telji að breyttir timar kalli á breytt lög.- Sjá INN- siðu á bls. 7. „Eg skal giftast þér þegar þú ert orðin 70 kilóum létt- ari”, sagði ungur maður við unga stúlku, — og ástin lét Ný hús koma I stað gamalla llvort sem menn vilja eða ckki, þá er það staðreynd, að á næstu árum mun gamli miðbærinn i Rcykjavik taka iniklum breytingum. Ýmis gömul hús munu hverfa, en önnur stærri risa á grunni þeirra. Eitt af þcim svæðum, sem skipulagt hefur verið til fullnustu, er svæðið sem tak- markast af Laugavegi og Hverfisgötu, og Smiðjustig og ingólfsstræti. — Sjá bls. 2. ekki að sér hæöa. Unga stúlkan hefur náð þessum 70 kilóum af sér og gott betur. — Sjá NÚ-siðuna á bls. 4. íslendingar og örlög Indíóna — og ensk Ijóðagerð um landhelgina ...en ef þeir fylgdu ein- hverri annarri stefnu, mundu islendingar hljóta sömu örlög og Indiánar N Amcriku, þegar vísundarnir voru frá þeim teknir, — undirstaðan undir tilveru þeirra”. Þannig segir brezk- ur lesandi i dagblaði i Hali- fax. Almennig lesendur virð- ast siður en svo hættir að hafa áhuga á málinu. Það eru jafnvel ort ljóð til styrkt- ,ar okkar málstað i málinu, og birtum við citt slikt, afar smellið, i blaöinu i dag,- SJA AD UTAN á bls. 6. SKIPT UM SKOÐUN AÐ KVÖLDI DAGS — Sjó leiðara ó bls. 6 um heimasetu forsœtisróðherra Ástin lœtur ekki að sér hœða

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.