Vísir - 16.01.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 16.01.1973, Blaðsíða 9
Visir. Vísir. Þriöjudagijr 16. janúar 1973 Umsjón: Hallur Símonarson pil8ll|SilSiliSli|il Mun lakari en Óskar! Meistaramót i lyfting- um var háö í Bergen i Noregi um helgina og komust norsku lyftinga- mennirnir ekki nálægt árangri þeim, sem islendingar hafa náð að undanförnu. Sem kunnugt er setti Óskar Sigurpálsson, Armanni, nýtt tslandsmet í þungavigt i tviþraut á laugardaginn — lyfti 310kg.i keppni i sjónvarpssal. A mótinu i Bergen lyfti Jan Erik Gabrielsen, sá, sem sigraði i þungavigtinni þar, aðeins 277.5 kg.eða 32.5 kg.minna en Óskar. I milliþungavigt i Bergen sigraði Leif Helgeland með 240 kg. t léttvigt Rolf Larsen, lyfti samtals 240 kg. og i millivigt Magnus Eide og lyfti hann 235 kg- 1 léttari vigtunum var árang- urinn sá, að Terje Michaelsen sigraði i fjaöurvigt meö 180 kg. og Reidar Johansen sigraði i léttvigt — lyfti 212.5 kg. Deíldamieistarar gegn Evrópumeistarunum! Ensku meistararnir gegn Evrópumeisturunum — það verður aðalleikurinn í 4. umferð ensku bikar- keppninnar. i gær var dregið og þá kom upp, að dei Idameistarar Derby County leika á heimavelli gegn U EFA-meisturum Tottenham. Það verður hiklaust aðalleikur um- ferðarinnar, þó svo nokkrir aðrir leikir geti boðið upp á mikla spennu. Að venju var dregið um það i gær i Lundúnum hvaöa lið leika saman i 4. umferð bikarsins og varð niöurstaöan þessi. WBA eða Nottm. Forest — Swindon Sheff. Wed. — Crystal Palace Everton — Millvall Derby — Tottenham Burnley eða Liverpool — Manch. City Jorwich eða Leeds — Plymouth Jotts County eða Sunderland — teading eða Doncaster Jewcastle — Luton Ihelsea — Ipswich Ixford — QPR eða Barnet larlisle eða Huddersfield — iheff. Utd. itockport eða Hull — West Ham Iharlion eða Bolton — Cardiff loventry — Grimsby trsenal eða Leicester — Iradford City Nils Per Skarseth, Noregi, sigraði á miklu alþjóðlegu stiikkinóti i Planica i Júgóslavíu á sunnudaginn — hlaut sam- tals 245.1 stig og á myndinni hér að ofan sést hann i sigurstökki sinu. Annar varð landi hans Odd Grette, sem hlaut 241.2 stig, en i þriðja sæti kom Norcic, Júgó- slaviu með 237,7 stig. Norsku skiðamennirnir hafa að undan- förnu dvalið og æft I Bischchofen eftir að stór- mótunum i Austur-Þýzkalandi og Austurriki lauk. Það er ekki um annað að ræða — litill sem enginn snjór er i Noregi. Sovézkt met í Almo Ato! Wolves — Portsmouth eöa Bristol City. Ef að likum lætur verður einnig stórleikur i Liverpool — það er að segja ef Liverpool sigrar Burnley á morgun i aukaleik úr 3. umferð. Þá fær Liverpool, efsta liðið i 1. deild, Manch. City i heimsókn. Einnig er leikur Chelsea og Ipswich mjög athyglisverður. Ef Arsenal tekst að slá Leicest- er út fær liðið Bradford City úr 4. deild I 4. umferð. Til gamans má geta þess, að fyrir 15 árum mætti Bradford City einmitt Arsenal i bikarkeppninni og það á leikvelji Arsenal, en samt sem áður sigr- aði Bradford. Það var mikil „bomba” þá. Á sovézka meistaramót- inu í skautahlaupum, sem háð var i háfjallaborginni Alma Ata í Síberíu um helgina, sigraði Vladimir ivanov samanlagt og setti nýtt, sovézkt met — hlaut 172.822 stig. Hann hljóp 500 m á 40.39 sek.' 1500 m á 2:03.31 min. 5000 m á 7:29.43og 10000 m á 15:27.73 min., sem er mjög glæsilegur árangur. Tsjygankov varð annar meö 172.973 stig og var keppni milli hans og Ivanov gifurlega hörð, en i siðustu keppnisgreininni, 10000 m vann Ivanov með þeim sekúnd- um, semdugðu til að hljóta meist- aratitilinn. Ivanov varð að sigra mót- herja sinn með 17 sek. mun og gerði betur, þvi Tsjygankov hljóp á 15:46.63 min. Hann hljóp 1500 m á 2:03.98. Ivanov varð sovézkur meistari annað árið i röð og náði bezta heimstimanum i ár i 10000 m og einnig samanlagt. Jurij Kondakov sigraði i 1500 m á frá- bærum tima 2:02.55 min. Fundur um byggingu íþrótto- monnvirkju tþróttakennarafélag tslands efnir til almenns umræðu- fundar i kvöld kl. 20.30 að Hótel Esju um bygg- ingu iþróttamannvirkja og samstarf skóla og iþrótta- hreyfittgarinnar. Anfundinum munu mæta m.ai. Gisli Halldórsson for- seti tSt, og Þorsteinn Einarsson iþróttafulltrúi rikisins, en auk þeirra hefur stjórn HSI verið boðið á fundinn. Stúdentar kynna sig Á ýmsu hefur gengið hjá körfuknattleiksmönnum iþróttafélags stúdenta undanfarin ár og hefur liðið veriö ýmist í 1. eða 2. deild. Að jafnaði var það þannig aö liðið féll jafn- haröan niður í 2. deild, eftir að hafa verið í 1. deild eitt keppnistímabil, en nú virðist vera orðin míkil breyting þar á. Á siðasta vetri náði lið Í.S. 4- 5 sæti i 1. deild Islands- mótsins undir góðri hand- leiðslu Birgis Jakobssonar og liðsmenn hafa siðuren svo hug á að falla niður i 2. deild á næstu árum. Körfuknattleiksdeild IS hefur nýlega leikskrá, þar sem leik- menn liðsins eru kynntir. Þær upplýsingar fara hér á eftir: Nr. 4 Stefán Hallgrimsson: 24 ára gamall laganemi. Hann hóf að leika með t.S. á þessu leiktimabili og hefur aðeins leikið 7 leiki með liðinu. Hefur áður leikið með K.R. og ÞÖR. Stefán er 194 cm á hæð og leikur ýmist i stööu mibherja eða framvarðar. Nr. 5 Guðni Kolbeinsson: Hann er 26 ára gamall kennari og B.A. nemi. Þetta er 2. ár Guðna meö liðinu og eru leikirnir orðnir 25. Hann er 182 cm á hæð og leíkur bakvörð. Nr. 6 Bjarni Gunnarsson: Verkfræðinemi 24 ára gamall. Hann hefur leikið með t.S. i 4 ár, alls 50 leiki. Bjarni er 181 cm á hæð og leikur ýmist i stöðu framvarðar eða bakvarðar. Nr. 7 Fritz Heinemann: 31 árs gamall Bandarikja- maður. Hann kennir ensku við Háskólann og leggur einnig stund á islenzku. Fritz byrjaði að leika með t.S. haustiö 1972 og hefur leikið 7 leiki. Hann er 183 cm á hæð og leikur bakvörð. Nr. 8 Jón Birgir Indriðason: 22ja ára gamall verkfræði- nemi. Hann hefur áður leikið með t.R. en kom yfir i raðir t.S. manna haustið 1972 og hefur leikið 7 leiki með liðinu. Jón er 181 cm á hæð og leikur fram- vörð. Nr. 9 Jónas Haraldsson: Lögfræðingur 27 ára gamall. Hann hóf að leika með t.S. haustið 1966 og hefur leikið 70 leiki með meistaraflokki. Jónas er 190 cm á hæð og leikur ýmist I stöðu framvarðar eöa miðherja. Nr. 10 Steinn Sveinsson: 26ára gamall kennari og B.A. nemi. Steinn er fyrirliði liðsins og hefur leikið 65 leiki með l.S. á sl. 4 árum. Hann er 187 cm á hæð og leikur ýmist. bakvörð eða framvörð. Nr. 11 Ingi Stefánsson: 23ja ára gamall tannlækna- nemi. Á þeim 3 árum sem hann hefur leikið meö meistaraflokki, þá eru leikirnir orðnir 47 að tölu. Ingi er 187 cm á hæð og leikur framvörð. Nr. 12 Stefán Þórarinsson: Læknanemi 25 ára gamall. Hann hefur leikið i 4 ár með t.S. og eru leikirnir alls orðnir 60. Stefán er 190 cm á hæð og leikur hann ýmist i stöðu framvarðar eða bakvarðar. Nr. 13 Bjarni Gunnar Sveins- son: 26 ára gamall kennari og við- skiptafræðinemi. Bjarni er leik- reyndastur l.S. manna með alls 75 leiki á 5 árum. Hann er 197 cm á hæð og kemur það sér vel i stöðu miðherja. Nr. 14 Albert Guömundsson: Tvitugur verkfræðinemi. Hann bættist i hópinn haustið 1972 nýbakaður frá Akureyri og hefur aðeins leikið 7 leiki með t.S. Albert er 190 cm á hæð og leikur ýmist framvörð eöa mið- herja. Nr. 15 Helgi Jensson: Hann er 21 árs gamall lækna- nemi og er nýbyrjaður að leika með liðinu, hefur aðeins leikið 3 leiki. Helgi er 178 cm á hæð og leikur framvörð. Þjálfari liösins er Dennis Carl Goodman: Hann er 34 ára gamall Bandarikjamaður og hefur unniði sendiráði Bandarikjanna á tslandi, sem 2. sendiráðsrit- ari, siðan i nóv. 1971. Dennis er ættaður frá Cleveland, Ohio og fór hann snemma að loknu há- skólanámi að vinna við utanrik- isþjónustu Bandarikjanna eða árið 1967. Hann hefur áður unnið i sendiráðum á Jamaica og Ástraliu. Dennis tók við liði t.S. i okt. 1972 og hefur liðið tekið miklum framförum undirstjórn hans. r 16. janúar 1973 9 Erik Haker „keyröi” glæsilega I Adelboden, þó þaö nægöi ekki nema f þriöja sætið. Meistarinn kom- inn á sigurbraut - Gustavo Thoeni sigraði í stórsvigi í Sviss í gœr Nú mega skíðakapparnir fremstu í keppninni um heimsbikarinn i alpagrein- um fara að vara sig. Heimsmeistarinn tvö síð- ustu árin, Gustavo Thoeni, er kominn á skriðið og sig- raði i stórsvigi, þegar keppnin um heimsbikarinn hélt áfram i Abelboden í Sviss i gær. Það er fyrsti sigur Thoeni i keppninni i vetur, en sem kunnugt er hefur hann verið fremsti skíðamaður heims undan- farin ár — Olympiu- meistari i stórsvigi i Sapporo og silfurmaður í svigi þar, auk heimsmeistaratitlana. Thoeni og Norðmaðurinn ungi Erik Haker voru langbeztir i fyrri umferðinni i gær — Thoeni fékk 1:02,84 en Haker 1:02,90 min. Hins vegar meiddist Haker og gat þvi ekki einbeitt sér sem skyldi i siðari umferðinni. Hann náði þó þriðja sæti samanlagt. Þá náði Hans Hinterseer, Austurriki, beztum tima án þess þó að ógna sigri Thoeni samanlagt. Fremstu menn i* keppninni i gær urðu. 1. Thoeni.ttaliu, .2:15.63 2. Hintérseer, Aust. 2:16.01 3. Haker, Noregi, • 2:16.39 4. Schmalzl, ttaliu, 2:16.94 5. Duvillard, Frakkl. 2:17.62 6. Hauser, Aust. 2:17.77 7. Klammer, Aust, 2:17.90 8. Kniewasser, Aust. 2:17.96' 9. Tresch, Sviss, 2:18.21 10. Bachleda. Póll. 2:18.36. Roland Collombin tók ekki þátt i keppninni i gær, en David Zwilling féll og var dæmdur úr leik og missti þvi af tækifæri til að nálgast stigatölu Svisslendings- ins. Við sigurinn komst Thoeni upp i sjöunda sæti i keppninni um heimsbikarinn. Collombin er beztur með 106 stig. Þá kemur Zwilling, Austurriki, með 86 stig og i 3ja sæti er Olympiumeistarir.n i bruni frá Sapporo, Bern.iard Russi, Sviss, með 61 stig. t fjórða sæti er M Marcello Varallo, tlaliu, með 56 stig og fimmta sæti deila Piero Gros, ttaliu, og Karl Cordin, Austurriki, hafa 50 stig. Thoeni og Reinhard Tritscher, Austurriki, hafa báðir 49 stig. t niunda sæti er Helmut Schmalzl, ttaliu, með 41 stig og 10. er Christian Neurether, Vestur-- Þýzkalandi, með 40 stig. Erik Haker hefur hlotið 35 stig. Sænsku göngumennirnir voru ósigrandi á Itölsku skfðavikunni I Madonna di Campiglio. Hér eru garpar- nir, sem sigruöu i 4xl0km. skiöagöngu Thomas Magnusson, Sven Ake Lundbeck og Tommy Linby. Jipcho jafnaði heimsmetið! IHauparinn kunni frá Kenýa, Ben Jipcho, geröi sér litiö fyrir i gær á Afrikuleikjunum I Lagos og sigraöi landa sinn, Olympiu- meistarann Keino i 3000 metra hindrunar- hlaupi og varö þar ineö meistari. Og ekki nóg ineö þaö. Jipcho hljóp á 8:20.8 mín„ sem er jafnt heimsmeti Svfans Anders Gærderud. sem hann setti f Helsinki i sept- eniber. Ben Jipcho hlaut silfurverðlaun i 3000 metra hindrunarhlaupinu á Olympiu- leikunum I Munchen — varö annar á eftir Keino. Oppsal ósigr- andi í Noregi Finim leikir voru háöir i 1. deildinni norsku i handknattleik um helgina og uröu úrslit þessi. Rjukan-Bækkelaget 18-25_ 7-20 Nordslrand-Oppsal Fredensborg-Stabæk 18-11 Ol-Arild 13-15 N jard-ltefstad 12-18 Oppsal liefur unniö alla leiki sina i keppn- inni hingaö til, en staöan er þannig: Oppsal Refstad Fredensborg Bækkelaget Arild Njard Nordstrand Stabæk OI Rjukan 12 12 0 12 9 2 12 12 12 12 12 12 12 12 1 0 0 227-127 24 1 210-153 20 3 229-171 16 4 235-207 14 5 192-200 14 5 216-194 13 6 180-211 11 9 155-194 6 11 175-232 2 0 0 12 163-293 0 Peters mark- hœstur í 1. deild Landsliösmaöurinn kunni hjá Tottenham, Marlin Peters, er nú markhæstur i deild og hikar á Englandi — hefur skoraö 19 mörk og er þaö vel af sér vikiö, þvi hann leikur oft framviirö i liöi sinu. i 2. deild er Don Givens, (Jueens Park Kangers, bcztur meö 18 mörk. Listinn yfir markhæstu leikmcnn er þannig eftir lcikina á laugardag. 1. deild. Martin Peters, Tottenham, 19. Jolin Itichards, Úlfunum, og Brian Kobson 17. Malcolm McDonald, Newcastle, og Don Kogers, Crystal Palace, 15. John Kaford, Arsenal, 14. Bob Latcford, Birmingham, John Toshack, Liverpool, John Tudor, New- Castle, Martin Chivers, Tottenham, og Kondey Marsh, Manch. City 13 mörk hver. 2. deild. Don Givens, QPR, 18. Alf Wood, Millvall. 14, Boh Qwens, Carlisle, og Brian Joiccy, Sheff. Wcd. 13 mörk hvor. Grimsby sló Preston út Kinn leikur var háöur i ensku bikarkeppn- inni i gær — jafnteflisleikur frá laugar- deginum. Preston og Grimsby léku i Preston og uröu úrslit þau, aö Grimsby skoraði eina markiö i leiknum. I 4. umferö mætir Grimsby 1. deildarliöi Coventry og veröur leikiö i Coventry. Loks tapaði Magnusson! Þá kom að þvi, að sænski göngugarpurinn Thomas Magnusson tapaði keppni i vetur. A móti i Le Brassus i Sviss á sunnudaginn kom Svisslendingurinn Alfred Kælin algjörlega á óvart og varð sigurvegari i 15 km skiöa- göngu. Timi hans var 44.35 min. Magnusson varð i öðru sæti 18 sekúndum á eftir — fékk timan 44.53 sek. Þriðji varð Sven Ake Lundbeck á 45.42 min. Fjórði Aimo Isometsa, Finnlandi, á 45.50 og fimmti norski Olympiumeistarinn i 50 km skiðagöngu, Pal Tyldum, á 45.55. t stökkkeppni i Le Brassus sigraði Ulrich Wehling, A-Þýzkalandi, með 221.5 stigum, en Pal Schjetne, Noregi, varð annar með 217.8 stig.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.